Morgunblaðið - 15.04.1984, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984
Plötusnúðurinn
Kid Jensen
í heimsókn
á íslandi
NÝLEGA kom hingað til lands Kid Jenscn, þekktur kynnir úr bresk-
um poppþáttum. Hann er kvæntur íslenskri konu og er hér á landi
ásamt henni og börnum þeirra tveimur.
í samtali við blm. Mbl. sagði
Kid Jensen að hann væri með
þriggja tíma poppdagskrá fimm
sinnum í viku á rás 1 hjá BBC.
Hann kvaðst vera með þáttinn
„Top of the Pop“ í sjónvarpsút-
sendingu hjá BBC einu sinni í
mánuði. Þar fjallar hann um
þrjátíu vinsælustu lögin hverju
sinni. Einnig kvaðst Kid Jensen
vera af og til með alvarlegri
dagskrár fyrir rás 4 hjá BBC.
Hann kvaðst nú vera að gera
þátt um kirkjuna og viðhorf
ungs fólks til hennar, einnig
væri hann að vinna að fræðslu-
mynd um rithöfundinn Robert
Louis Stevenson. En Kid Jensen
hefur margt fleira á sinni
könnu, hann skrifar poppsíðu í
„Daily Mirror" hvern laugardag
og gerir stundum prógrömm
fyrir óháða sjónvarpsstöð, sem
flutt eru síðdegis. Um helgar
kemur hann fram á skemmti-
stöðum víðs vegar um Bretland
með klukkustundar dagskrá.
Til íslands er Kid Jensen og
Kid og Guðrún Jensen ásamt
börnum sínum tveimur, þeim
Önnu Lísu, sex ára, og Davíð Alex-
andcr, þriggja ára.
fjölskylda komin til að njóta
hvíldar frá erli hversdagslífs-
ins. Kid Jensen hafði orð á því
að honum þætti Reykjavík hafa
tekið talsverðum stakkaskipt-
um á undanförnum árum, sér-
staklega hefði fjölbreytni á
matsölustöðum aukist. Kid
sagði að sér fyndist spennandi
að borða á mörgum þeirra, sér-
staklega sjávarrétti, sem hann
væri mjög hrifinn af. Einnig
hefur hann, að eigin sögn mik-
inn áhuga á að fylgjast með því
sem hér er að gerast í út-
varpsmálum.
Kid Jensen kvaðst verða var
við mikinn áhuga hjá fólki í
Bretlandi þegar vissi um tengsl
hans við Island. Hann sagðist
vera viss um að ef landið væri
auglýst meira myndi koma
hingað mun fleira ferðafólk frá
Bretlandi.
Góð gjöf gleður
í hönd fer tími gleði og gjafa.
Vandlátir vita hvað þeir vilja.
Gefjunarteppi er vönduð gjöf - sem gleður.
gjöf er góð gjöf.
LEIÐANDI í LIT OG GÆÐUM
TOLLSKJÖL
oö verðútreiknlngar
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að auka þekkingu þeirra sem
innflutning stunda og stuðla þar með að bættum af-
köstum og tímasparnaði hjá viðkomandi aðilum. Kunn-
áttvleysi í gerð tollskýrslna og verðútreiknings hefur
haft í för með sér ómælt erfiði fyrir margan manninn, en
þetta námskeið á að kynna þátttakendum hvernig þessi
mál ganga fyrir sig.
EFNI:
- Helstu skjöl og eyðublöð við tollafgreiðslu og notkun
þeirra.
- Meginþættir laga og reglugerða er gilda við tollaf-
greiðslu vara.
- Grundvallaratriði tollflokkunar.
- Helstu reglur við verðútreikning.
- Gerð verða raunhæf verkefni.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem stunda innflutn-
ing í smáum stíl og iðnrekendum, sem ekki hafa mikinn
innflutning. Einnig er námskeiðið kjörið fyrir þá, sem
eru að hefja eða hyggjast hefja störf við tollskýrslugerð og
verðútreikninga.
LEIÐBEINANDI:
Karl Garðarsson við-
skiptafræðingur frá
Háskóla íslands. Starf-
ar nú sem deildarstjóri
á skrifstofu tollstjóra.
TÍMI - STAÐUR:
14.-16. maí kl. 13.30-17.30.
Síðumúla 23.
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags ríkisstofnana greiðir
þátttökugjald fyrir félaga sína á þessu námskeiði ogskal sækja um þaðtil
skrifstofu SFR.
■
STJÓRNUNARFÉIAG
ÍSLANDS ifö*23