Morgunblaðið - 15.04.1984, Side 48
Opið öll /immtudags-, föstu-
dags-, laugardags- og sunnu■
dagskvöld
AUSTURSTRÆTI22.
IINNSTRÆTI).
SIMI 11340.
Opið alla daga frá
kl. 11.45-23.30.
AUSTURSTRÆTI 22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11633.
SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Morgunblaðið/Júlíus.
Lögreglumenn höfðu í nógu að snúast við hraðamælingar á Kringlumýr-
arbraut í vikunni — fyrstu 11 daga mánaðarins höfðu 236 ökumenn
verið teknir fyrir of hraðan akstur.
236 teknir fyrir of
hraðan akstur fyrstu
11 daga aprílmánaðar
FYRSTU ellefu daga aprflmánaðar voru 236 ökumenn teknir fyrir of
hraðan akstur í Reykjavík — allt frá liðlega 60 til 116 kflómetra hraða.
„Að undanfornu hafa orðið mörg umferðarslys sem rekja má meðal
annars til of hraðs aksturs," sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, í samtali við Mbl.
Ólafsfjörður:
Snjóflóð féll
á fiskhjalla
— tjón talið nema einni milljón króna
Pálmasunnudagur:
Um 700 ung-
menni ferm-
ast í dag
PÁLMASUNNUDAGUR er í dag — þá
minnast kristnir menn innreiðar Jesú í
Jerúsalem og mannfjöldinn fagnaði
honum. „Hósanna syni Davíðs. Bless-
aður sé sá, sem kemur í nafni Drottins.
llósanna í hæstum hæðum." Mattheus
21:9. Með pálmasunnudegi hefst
dymbilvika, sorgþrungnasti tími árs-
ins. A öldum áður voru allar skemmt-
anir bannaðar í dymhilviku og jafnvel
hljómur kirkjuklukkna þótti of glað-
legur og járnkólfar kirkjuklukkna því
teknir úr og trékólfar settir í staðinn
svo hljómur klukknanna varð dapur og
dregur dymbilvika heiti sitt af því.
Pálmasunnudagur hefur í tímans
rás orðið helsti fermingardagur árs-
ins. Það er vel við hæfi — ungmenni
staðfesta skírn sína og gera Krist að
leiðtoga sínum, rétt eins og forðum
þegar mannfjöldinn gerði Jesúm að
leiðtoga sínum í Jerúsalem. I Mbl. í
gæreru birt nöfn um 700 ungmenna.
Ef við gerum ráð fyrir, að um 40
manns fagni með hverju ferming-
arbarni, þá verða tæplega 30 þúsund
manns í fermingarveizlum víðs veg-
ar um landið í dag.
Sendibílstjór-
ar mótmæla
Á MILLI 80 og 100 sendibílum var
ekið milli leigubflastöðanna í fyrra-
kvöld og vildu sendibflstjórar með því
mótmæla flutningi leigubflstjóra á létt-
um varningi — svokölluðum pakka-
flutningi. IVlikil óánægja er meðal
sendibílstjóra mcð þessa flutninga og
telja þeir að leigubílstjórar fari inn á
sitt verksvið.
„Þetta er fyrsta skrefið. Ef ekki
næst samkomulag kann svo að fara
að við grípum til þess ráðs að aka
gestum veitingahúsa heim til þess að
undirstrika kröfur okkar,“ sagði
sendibílstjóri í samtali við Mbl.
Ef ökumaður er tekinn á yfir
11 kílómetra hraða yfir löglegum
hraða, þá hlýtur hann 950 króna
sekt, 1200 króna sekt sé hann á
yfir 20 kílómetrum yfir löglegum
hraða og 1800 krónur sé hann
yfir 30 kílómetra hraða yfir lög-
legum hraða. Sé brot grófara, þá
er mál sent Sakadómi Reykja-
víkur eftir að rannsókn er lokið
hjá rannsóknadeild lögreglunnar
og á ökumaður á hættu að verða
sviptur ökuleyfi. Þannig voru á
þriðja hundrað ökumenn sviptir
ökuréttindum á síðastliðnu ári
fyrir of hraðan akstur.
„Árið 1983 var norrænt um-
ferðarár og átak var gert til þess
að freista þess að fækka umferð-
arslysum. Það tókst bærilega.
Þeim er slösuðust í umferðinni í
Reykjavík fækkaði um 74, þar af
fækkaði þeim sem hlutu meiri
háttar meiðsl um 33. Þeir sem
slasast alvarlega í umferðarslys-
um þurfa iðulega að dvelja svo
mánuðum skiptir á sjúkrahúsi,
oft mörg ár. Svo mikið er í húfi
að reyna að halda umferðahraða
niðri,“ sagði Óskar Ólason.
SNJÓFLÓÐ féll aðfaranótt laugar-
dagsins í Kleifarhorni í Ólal'sfirði,
gegnt kaupstaðnum. Engin byggð er
þar, en flóðið fór yfir fiskihjalía þar
sem talsvert af var fiski og talið er að
tjón af völdum þess nemi að minnsta
kosti einni milljón króna. Auk þess
fóru þrír raflínustaurar, skíðalyfta og
kofi skíðamanna í flóðinu. I gær var
enn talin mikil snjóflóöahætta á þess-
um slóðum.
Talið er að flóðið hafi fallið um
kiukkan fjögur um nóttina, en þá fór
rafmagnið af bænum. Rafmagn
komst á aftur um morguninn nema í
Kleifabyggðinni. Fiskihjallarnir
voru í eigu Stíganda hf. og sagði
Gunnar Þór Magnússon,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í
samtali við blm. Morgunblaðsins að
flóðið hefði tekið nær alla hjalla
fyrirtækisins, en fiskur hefði verið í
11 þeirra. Tjónið væri því tilfinnan-
legt, að minnsta kosti ein milljón, en
erfitt væri að gera sér grein fyrir
tjóninu vegna þess að ekki væri
hægt að kanna skemmdir vegna kaf-
alds og snjóflóðahættu. Sagöi hann.
ÚTFLUTNINGUR 140 hrossa að verð-
mæti tæpar 5 milljónir króna stendur
nú fyrir dyrum hjá tveimur einstakling-
um. Hafa þeir að undanfórnu keypt
hross víða um landið og fer meirihluti
þeirra til Svíþjóðar eða 100 alls og
verður það stærsta hrossasending, sem
þangað hefur komið í einu. Auk þess
hafa þeir félagar í huga aö senda innan
að í norðvestan áttinni nú hefði mik-
inn sjó skafið í fjallið og því væri
mikil hætta á frekari snjóflóðum.
Vegna þess væri ekki þorandi að
kanna skemmdirnar og hætt hefði
verið við viðgerð á raflínunni af
þeim sökum.
Einn túr á
meðalskip
VIÐBÓTIN á þorskkvótanum, 23.000
lestir, dreifist hlutfallslega á fiskiskip-
aflotann og nemur viðbótin góðum
þorsktúr, bæði á vertíðarbát og togara.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins nemur aukningin um 30
lestum á vertíðarbát í hærri flokki,
60 lestum á togara á suðursvæðinu
að meðaltali og 115 lestum á togara
á norðursvæðinu. Ljóst er því að
viðbótin er nokkur búbót og kemur á
góðum tíma fyrir vertíðarbátana nái
þeir skammtinum fyrir vertíðarlok.
skamms 70 hross utan til viðbótar og
fara þau til Þýzkalands, Danmerkur og
Noregs.
Sigurður Sæmundsson í Holts-
múla í Landmannahreppi sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins, að
með þessum 100 hrossum væri inn-
flutningskvóti Svía á íslenzkum
hrossum fylltur, en mikil eftirspurn
væri þar eftir „fjölskylduhestum".
Ætlunin væri að hrossin færu út
þann 23. þessa mánaðar ef tilskilin
leyfi fengjust en leiðin gegnum kerf-
ið væri flókin. Alls þyrfti að fá út-
flutningsíeyfi á 7 stöðum, en hann
sagðist bjartsýnn á að þetta gengi.
Auk Svíþjóðar færu hrossin til Nor-
egs, Danmerkur og Þýzkalands og
fyrirhugað væri að senda um 70
hross til þeirra landa á næstunni.
Sigurður sagði, að meðal söluverð
hrossanna væri um 35.000 krónur, en
langmestur hluti þeirra væri geld-
hross, fáeinar merar en engir stóðh-
estar. Taldi hann að hér væri um
nokkra búbót að ræða fyrir hestaeig-
endur og mikill munur væri á því að
flytja út lífhross eða hrossakjöt.
Smíða nýjan
svifdreka
UPP ÚR miðjum næsta mánuði
verður haflst handa við leit að
„gullskipinu** á Skeiðarársandi. Þá
verður stálþilið, sem rekið var niður
í sandinn umhverfls flak þýska tog-
arans, er fannst í fyrrahaust, tckið
upp og flutt, að sögn Kristins Guð-
brandssonar í Björgun.
„Við verðum áðeins seinna á
ferðinni en við ætluðum okkur.
Farartæki, sem við erum að smíða
okkur, er ekki alveg tilbúið en ætti
að verða það fljótlega,“ sagði
hann. „Það verður einskonar sam-
bland af bíl, bát og flugvél - þ.e.
það á að „svífa" á púðum og geta
verið bæði á sjó og landi."
Langalangafí Guðlaugs
var einnig afreksmaður
Langalangafi Guðlaugs Frið-
þórssonar, þess er vann það afrek
að synda 5—6 kílómetra leið til
lands er Hellisey sökk við Vest-
mannaeyjar, gat sér orð fyrir
hreysti og hugrekki. Frá þessu segir
Bolli Gústavsson í Rabbi Lesbókar
Morgunblaðsins í gær og ennfrcm-
ur það að málverk eftir Ásgrím
Jónsson af aldurhnignum manni,
sem mynd birtist af í Morgunblaó-
inu 3. nóvember 1968, sé af Vigfúsi
Þórarinssyni, bónda í Ytri-Sólheim-
um í Mýrdal, (1841—1934) langal-
angafa Guðlaugs og hafl það vakið
athygli sína, hversu miklar og
sterklegar hendur hans voru.
Segir Bolli að Vigfús hafi getið
sér orð fyrir hreysti og hugrekki
og ekki síður fyrir drengskap við
þá sveitunga sína, sem lítils
máttu sín og hafi hann vegna
þess hlotið viðurnefnið Laga-
Fúsi. Vitnar hann í sögu Eyjólfs
Guðmundssonar, Pabba og
mömmu, og segir að þar sé sagt
frá einu víðfrægasta afreki Vig-
fúsar, þar sem sagt er frá ferð
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Guðlaugur og faðir hans, Friðþór Guðlaugsson, og málverkið af Vigfúsi
eftir Ásgrím Jónsson. Séra Bolli segir miklar og sterklegar hendurnar
vera eitt af því sem þeir frændur eigi sameiginlegt.
teinæringsins Péturseyjar til
Vestmannaeyja árið 1880. Af-
takaveður gerði á útleiðinni og
sleit í sundur framsegl og mastur
hrökk í sundur. Formaður var
Guðmundur í Eyjarhólum og er
hann tók sér hvíld frá því að
stýra varð það slys að einn skip-
verja, Þorsteinn að nafni, hrökk
útbyrðis. Guðmundur var þegar
kominn að stýrinu og tókst að
sveigja aðeins að manninum. Síð-
an segir: „Vigfús sem fremstur
sat að venju, hafði kippt Þor-
steini inn, áður en varði, og var
það hið fágætasta snarræði. Þó
var engin skipun gefin sagði Vig-
fús síðar, „en ég vissi til hvers
formaðurinn ætlaðist, er hann
sveigði í veg fyrir manninn ...
Vigfús gat sér almennt hrós fyrir
snarleik sinn og hreystiverk og
sagði meðbróðir hans fram á, að
hann hefði kippt manninum inn
eins og meðalþorski. En Vigfús
sagði, að hjá formanni eins og
Guðmundi væru allar hendur
harðtækar."
Hross seld utan
fyrir 5 milljónir