Morgunblaðið - 16.05.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1984
3
Mótmælin afhcnt.
Kartöflum Hagkaups skipað {land í gær.
Morgunblaðið/ KEE og KÖE.
20.652
mótmæla
NEYTENDASAMTÖKIN hafa krafist
þess af ríkisstjórninni, að hún hlutist
til um að opinber rannsókn fari fram i
kaupum 50 tonna af fmnskum kartöfl-
um til landsins og dreiftngu þeirra til
neytenda. Kom í Ijós að megnið af
kartöflunum voru ónýtar og ekki
mannamatur. Krafa samtakanna var
sett fram í bréfi til forsætisráðherra í
gær um leið og Jón llelgason, land-
búnaðarráðherra, tók við undirskrift-
um 20.652 neytenda, sem andmæltu
finnsku kartöflunum og hvöttu til auk-
ins frjálsræðis í innflutningi garð-
ávaxta. Undirskriftunum var safnað á
tveimur verslunardögum um helgina á
höfuðborgarsvæðinu og afhenti þær
Jón Magnússon, formaður Neytenda-
samtakanna, eins og sjá má á mynd-
inni til vinstri hér fyrir ofan.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
mun í dag gefa umsögn sfna um
beiðni verslunarinnar Hagkaupa um
að fá að selja 20 tonn af enskum
kartöflum, sem fyrirtækið hefur
keypt frá Englandi. Á myndinni efst
til hægri má sjá þegar kartöflunum
var skipað á land í Reykjavík í gær.
Forsætisráðherra hefur lýst yfir
stuðningi við áform Hagkaupa en
iandbúnaðarráðherra hefur viljað
bíða umsagnar framleiðsluráðsins.
KRON:
Þröstur Ólafs-
son formaður
NÝKJÖRIN stjórn KRON, Kaupfé-
lags Reykjavíkur og nágrennis hef-
ur haldið fyrsta fund sinn. Á fund-
inum skipti hún með sér verkum og
var Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar, kjörinn formaður
KRON, varaformaður var kjörinn
Páll Bergþórsson, veðurfræðingur,
Jón Þór Hannesson ritari og Ásgeir
Jóhannesson vararitari. Aðrir í
stjórn KRON eru Þórunn Klem-
ensdóttir, Björn Kristjánsson, Sig-
urður Magnússon og Gylfi Krist-
insson.
Fráfarandi formaður, sem gaf
ekki kost á sér á aðalfundi félags-
ins, var ólafur Jónsson.
Spurt og
svarað
MORGUNBLAÐIÐ minnir lesend-
ur sína á, að eins og undanfarin ár
býður blaðið upp á lesendaþjón-
ustu um garðyrkju og nú einnig um
byggingamál. Lesendur geta kom-
ið spurningum sínum á framfæri í
síma 10100 virka daga milli klukk-
an 13 og 15. Svörin birtast nokkr-
um dögum síðar.
Blaðið hefur fengið Hákon
Ólafson, yfirverkfræðing, og
Pétur H. Blöndal, framkvæmda-
stjóra, til að svara spurningum
varðandi byggingamál. Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, svarar, eins
og undanfrin ár, spurningum er
snerta garðyrkju.
••
enaðrirbankartyóða
Paö er engin spurning, lönaöarbankinn býöur aörar sparnaöarleiöir.
Viö bjóðum þér BANKAREIKNINC
MEÐ BÓNUS í staö þess aö kaupa
skírteini.
Þú týnir ekki bankareikningi. Pú
þarft ekki aö endurnýja banka-
reikning. Rú skapar þérog þínum
lánstraust meö bankareikningi.
Mnaðarbankinn
Fereigin leiöir -fyrir sparendur.