Morgunblaðið - 16.05.1984, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.05.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAl 1984 27 Ljósm Mbl. KÖE. Árni Kristjánsson framkvæmdastjóri Austurbæjarbíós ásamt Sigríði Svein- bjarnardóttur eiginkonu sinni í sal 2 sem rúmar 115 manns í sæti. Nýr sýningarsalur í Austurbæjarbíói AUSTURBÆJARBÍÓ tók nýjan sýningarsal i notkun í gær. Salurinn, sem tekur 115 manns í sæti, er á efri hæð kvikmyndahússins þar sem Snorrabær var áður, og innan tveggja mánaða er ætlunin að opna þriðja sýningarsalinn sem rúmar 90 manns í sæti. Fyrsta myndin sem sýnd var í hinum nýja sal var Atómstöðin sem áður var sýnd í sal 1. Um leið var frumsýnd Break-dans mynd í sal 1 og var hún frumsýnd í öllum löndum Evrópu í gaer. Salur 2 er þar sem áður var eldhús og kaffistofa Snorrabæjar, en salur 3, sem væntanlega verður opnaður innan tveggja mánaða, verður þar sem dansgólfið var áð- ur. Gólfið í sal 2 var hækkað upp til að fá rétta sjónlínu á sýningar- tjaldið og rýmið á milli sætaraða er óvenju mikið eða 90 sentí- metrar. Aðspurður um hvers vegna Austurbæjarbíó væri í þann veginn að bæta tveimur sölum við sig, sagði Árni Kristjánsson framkvæmdastjóri, að það væri hagkvæmara að reka kvikmynda- hús með smærri sölum, til að hægt væri að halda áfram sýningum þó aðsókn minnkaði að einhverju leyti. „Þessir salir eru eiginlega til að útiloka ekki þá sem eru alltaf á leiðinni í bíó,“ sagði hann. Samkomulag ríkisstjórnarinnar: Nákvæm úttekt fari fram á verðmyndun landbúnaðarvara Verð á kókómjólk, Jóga og Mangó-sopa lækki um 20 %, álögum frestað verði lækkað um sem nemur jákvætt svar við beiðni sinni frá 20%. Ráðherranum hefur borist Mjólkursamsölunni í Reykjavík. Lækkun fasteignagjalda af sumarbústöðum: Óvíst um afdrif frumvarpsins Á ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag lögðu ráðherrarnir fjórir, sem settir voru til að leysa úr ágreiningnum um mjólkurdrykkina Kókó- mjólk, Jóga og Mangó-sopa, fram undirritað samkomulag þeirra dagsett 11. maí sl. og hlaut það samþykki ríkis- stjórnarinnar. Samkomulagið byggir á að innheimtu vörugjalds og sölu- skatts á umræddum vörum verði frestað með beitingu undanþáguheimilda laga og að útsöluverð umræddra vara verði lækkað um að minnsta kosti 20%. Þá felst einnig í samkomu- laginu að landbúnaðarráðherra beiti sér fyrir nákvæmri úttekt á verðmyndun landbúnaðaraf- urða, sem fram fari á næstu mánuðum og verði kynnt Al- þingi næsta haust. Landbúnaðarráðherra hefur ritað framleiðendum og söluað- ilum mjólkurvaranna bréf og farið fram á að verð varanna „ÉG VIL ekkert fullyrða um það hvort þetta frumvarp verdur afgreitt frá nefndinni á þessu þingi,“ sagöi Davíð Aðalsteinsson, alþingismaður sem er formaður í félagsmálanefnd efri deildar Alþingis, er hann var spurður hvort hann ætti von á þvi að félagsmálanefndin myndi afgreiða frá sér frumvarp um lækkun fasteigna- gjalda af sumarbústöðum, sem Pétur Sigurðsson er fyrsti flutningsmaöur að, en frumvarpið liggur nú hjá nefnd- inni. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fasteignagjöld af sumarbústöðum lækki úr hálfu prósenti í 0.25% af fasteignamati. Davíð var að því spurður hvort það væri eitthvað hæft í því að full- trúar bænda í félagsmálanefnd efri deildar hygðust koma í veg fyrir að frumvarpið fengist afgreitt frá nefndinni, vegna meðfylgjandi tekjutaps fyrir sveitarfélög. Davíð svaraði „Það vita allir að ef þetta frumvarp verður að lögum, hefur það í för með sér tekjutap fyrir ákveðin sveitarfélög, en málið er ennþá í nefnd, og því ekki meira um það að segja á þessu stigi." Davíð upplýsti að næsti fundur í félagsmálanefnd efri deildar Al- þingis yrði árdegis í dag. Aðalfundur Þönmgavinnslunnar hf.: Ellefu milljón kr. tap á síðasta ári — áætlað að það minnki um helm- ing á þessu ári Mióhúsum, 14. maí. ELLEFU milljón króna tap varð á rekstri Þörungavinnslunnar hf. á síð- asta ári. Hækkuðu tekjur ársins um 114% frá árinu áður, en gjöld hækk- uðu um 76%. Beinar rekstrartekjur 1983 að frádregnum sölukostnaði voru 22,7 milljónir króna. Þetta kom fram á 10. aðalfundi Þörungavinnsl- unnar hf., sem haldinn var á Reykhól- um sl. laugardag, 12. maí. Samkvæmt áætlun um rekstur- inn mun tapið í ár lækka um helm- ing frá því sem var á síðasta ári og á næstu árum verður Þörunga- vinnslan hf. þjóðhagslega arðbært fyrirtæki, sem framleiðir vörur án mengunar, að því er forráðamenn fyrirtækisins sögðu á aðalfundin- um. Á síðasta ári störfuðu 28 manns hjá Þörungavinnslunni og var starfsemin samfelld. Launa- greiðslur námu um 9,4 milljónum króna, greiðslur til öflunarmanna voru 4,3 milljónir og þangtökugjöld voru 0,5 milljónir. I ræðum þeirra Vilhjálms Lúð- víkssonar, formanns stjórnar fé- lagsins, og Kristjáns Þórs Magn- ússonar, forstjóra fyrirtækisins, kom m.a. fram, að heildartekjur Reykhólahrepps af landbúnaði væru 29% yfir landsmeðaltali. Með- altekjur í hreppnum eru 129,2 þús- und krónur en í Þörungavinnslunni eru meðaltekjur 172,6 þúsund krón- ur. Þörungavinnslan er flokkuð undir matvælaiðnað og eru laun um 9% yfir landsmeðaltali. Af þangmjöli seldist mest til Skotlands eða 62,4%, innanlands- markaðurinn tók við 7,5% af þang- mjölinu. Af þaramjöli seldist mest til Japans, eða 42,2%, en innan- landsmarkaðurinn tekur við um 20% framleiðslunnar. Annars eru framleiðsluvörur fyrirtækisins seldar til margra landa. Á síðasta áratug hefur íbúum Vestfjarða fækkað um 1.100 en í Reykhólahreppi, þar sem íbúar hafa fæstir verið 189, voru íbúar á síðasta ári 249. Sveiflur á íbúa- fjölda undanfarinn áratug hafa fallið nær alveg saman við öflun- armagn Þörungavinnslunnar. Níu sveitarfélög við Breiðafjörð hafa nú beinar eða óbeinar tekjur af Þör- ungavinnslunni. Stærsti hluthafi félagsins er rík- issjóður með um 98% hlutafjárins. í stjórn fyrir næsta ár voru kosnir fh. iðnaðarráðherra þeir Vilhjálm- ur Lúðvíksson, formaður, Aðal- steinn Jóhannsson, tæknifræðing- ur, og Vilhjálmur Egilsson, hag- fræðingur. Bundið er í lögum um Þörungavinnsluna, að einn maður búsettur í A-Barðastrandarsýslu skuli vera í stjórninni og hefur Ingi Garðar Sigurðsson, tilraunastjóri, setið í stjórn fyrirtækisins frá upp- hafi. Aðrir hluthafar en ríkissjóður hafa rétt til að kjósa einn stjórn- armann og hefur Ólafur E. Olafs- son, fyrrv. kaupfélagsstjóri, verið fulltrúi þeirra í stjórninni frá stofnun félagsins. Úr stjórn gengu Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra, og Kjartan ólafsson, fyrrv. alþingismaður. 1 tilefni tíu ára afmælisins gaf Þörungavinnslan Dvalarheimili aldraðra á Reykhólum 50 þúsund krónur en það er nú í byggingu. Jaf- et Ólafsson, deildarstjóri i iðnað- arráðuneytinu, sem setið hefur í stjórninni sem varamaður Stein- gríms Hermannssonar, flutti fund- inum kveðjur og þakkir ráðherra síns. Kjartan Ólafsson, fráfarandi stjórnarmaður, sagðist hafa trú á þessu fyrirtæki og að bjartari tímar væru framundan. Ragnar Aðal- steinsson, hrl., stjórnaði fundinum og í lokin þakkaði hann kvenfélags- konum hér fyrir veitingar. — Sveinn. Listframleiðslufyrirtækið Oxsmá í öllu sínu veldi. Talið frá vinstri: Axel Oxsmá Jóhannesson, Hrafnkell Oxsmá Sigurðsson, Grynhildur Oxsmá Þorgeirsdóttir og Óskar Oxsmá Jónasson. Oxtór-ferðalag til annarrar menningar NÚ ER unnið að uppsetningu sýn- ingarinnar Oxtór í Tjarnarbíói en það er listframleiðslufyrirtækið Oxsmá og Stúdentaleikhúsið sem heiðurinn eiga að þessari sýningu. Oxtór er ekki venjuleg leiksýning heldur er um að ræða tónlistar- umhverTisverk og er það félags- skapurinn Oxsmá sem sér um upp- setningu verksins og samningu þess en Stúdentaleikhúsið átti upp- haflegu hugmyndina að verkinu og býður alla aðstöðu. Oxsmá setur því verkið upp í boði Stúdentaleikhússins og haft til þess algjörlega frjálsar hend- ur og hafa þau fengið um 50 manns til liðs við sig. Tónlistarumhverfisverkið „Oxtór“ er einskonar ferðalag yfir í aðra menningu, þar sem hljóð og leikmynd i sameiningu skapa ákveðið andrúmsloft. Það kom fram á blaðamannafundi að með uppsetningu þessarar sýn- ingar gæfist myndlistar- mönnum, leikurum og tónlistar- fólki tækifæri til að starfa í sameiningu. „Fram að þessu hef- ur verið fremur lítið um tæki- færi til að setja upp sýningar sem ekki eru af hefðbundinni gerð en nú hefur Stúdenta- leikhúsið bætt þar um og boðið aðstöðu sína í Tjarnarbíói til sýningarinnar. Lítið hefur verið um sýningar hér á landi þar sem farið hefur verið út fyrir hið hefðbundna leiklistarform og því er það kærkomið tækifæri að fá að setja upp „multi art“-sýningu sem þessa," sögðu aðstandendur Oxsmá. Sýningar á verkinu verða 6 og verða þær í Tjarnarbíói, sem hefur hlotið nafnið Svarthol meðan á sýningunum stendur. Fyrsta sýningin verður 17. maí og sú síðasta 27. maí. Miðar í „ferðalagið" verða seldir í and- dyri Svarthols sýningardagana en sýningar hefjast kl. 21.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.