Morgunblaðið - 16.05.1984, Page 37

Morgunblaðið - 16.05.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1984 37 Kæru ráðherrar og alþingismenn — eftir Dagrúnu Kristjánsdóttur Verið ekki of fljótir á ykkur að gleðjast yfir svo innilegu ávarpi, þið ættuð bezt að vita að veröldin er full af flærð og fláttskap og að fögrum orðum fylgja sjaldnast heilindi. Svo mun ykkur reynast einnig nú, þetta verður engin lofgjörð, heldur blákaldur veru- leikinn, eins og hann blasir við mér og efalaust fjölda annarra ís- lendinga. Mér er það ljóst að það er aldrei hægt að gera neitt svo að öllum líki og Islendingar eru fæddir með þeim ósköpum að það er ekki hægt að stjórna þeim, þeir vilja „sjálfir ráða“ eins og Káinn kvað — ekki aðeins á meðan þeir vaka — heldur einnig á meðan þeir sofa. Drottinn er orðinn svo alger hornreka í íslenzku þjóðlífi að víðast fær hann hvergi að koma, nema sem gestur á sunnu- dögum og hátíðisdögum, en gleymist jafnskjótt og annir hversdagsins byrja. Þið undrizt sennilega, að verið sé að blanda Himnaföðurnum inn í svo háveraldlegt málefni, sem á eftir mun koma. En það er ekki undrunarefni, í kristilegu þjóðfé- lagi eiga kristileg viðhorf að ríkja og kristilegur hugsunarháttur samrýmist ekki misrétti. órétt- læti í hverskonar myndum, eigin- hagsmunapot, auðsöfnun á ann- arra kostnað og ranglát skipting þjóðartekna, svo nokkuð sé nefnt, blasir svo við allra augum, að jafnvel blindir sjá. Já, og jafnvel daufir heyra öll þau ósannindi sem dynja yfir þjóðina úr öllum áttum. Víst er það, að fleiri segja ósatt en þið, háttvirtir ráðherrar og alþingismenn, en það er ætlazt til þess, að þeim sem falin er stjórn lands og þjóðar sé treyst- andi. Velferð allra þegna þessa lands liggur í ykkar höndum, þið megið ekki bregðast þeim vegna eigin hagsmuna eða flokkspóli- tískrar togstreitu, en því miður virðist þetta hvorutveggja vega þyngst hjá flestum. Já, allir vilja ráða, vilja hvorki virða lög eða al- menn mannréttindi, og það eru alltof margir sem komast upp með það, þó lögin séu réttlát, en stund- um er nokkur misbrestur á því. Alvarlegra er þó ef misrétti er beitt vegna aðstöðumunar og jafn- vel þeir sem bezt eru settir eru verndaðir með lögum eða reglu- gerðum, og þeim heimilað að breikka enn bilið, milli láglauna- fólks og hátekjumanna — með allskonar fríðindum — sem ein sér mundu nægja venjulegu fólki til að lifa góðu lífi. Það er siðlaust og alls ekki von að nokkur taki fag- nandi þeim boðskap, að herða verði sultarólina — þegar vitað er að þeir sem flytja þann boðskap eru vel haldnir í mat og drykk, ef dæma má út frá þeim fjárupphæð- um sem þeir taka úr ríkiskassan- um um hver mánaðamót sem „laun“ og sem fríðindi, sem eru næstum jafnhá upphæð og „laun- in“. Ég nota gæsalappir um þetta litla orð, því að ég heyrði eitt sinn kvartað sáran yfir því, í viðtali við einn úr ykkar hópi, er talið barst að fríðindum ráðherra og alþing- ismanna, „að þau hrykkju bara alls ekki fyrir útgjöldum". Það var sannarlega bágt að heyra að ráð- herrann þyrfti að svelta, enda skiljanlegt því að hann fékk ekki nema: Allar ferðir greiddar, greitt húsnæði, greiddir fæðispeningar, greitt fyrir síma (ekki ófáar krón- ur) og sennilega líka hita og raf- magn. Á ferðalögum daggjald, þ.e. greitt fyrir fæði og gistingu og svo frv. Já, þetta var grátlegt að hlusta á, en mér flaug nú í hug að ef til vill bættu „LAUNIN" þetta svolítið upp, svo að aumingja mað- urinn þyrfti ekki að deyja úr hungri þrátt fyrir allt, en svo sá ég að ég gerði sjálfa mig að flóni, því að blessaður maðurinn minntist ekki á að hann fengi nein laun, svo að líklega hefur hann bara veslazt upp í volæði. Það er víst svipað ástandið enn- þá, ef marka má ummæli fjár- málaráðherra. „Launin eru sízt of há.“ Hvernig er eiginlega ástandið vítt og breitt um landið hjá fólki sem hefur engar tekjur, hjá ellilíf- eyrisþegum með sín 5—7 þúsund á mánuði eftir atvikum, hjá fjöl- skyldufólki þar sem fyrirvinnan hefur 10—12 þús. á mánuði, hjá þeim sem sjúkir eru og óvinnufær- ir, ef hátt í hundrað þúsund krón- ur í laun og fríðindi til ráðherra og um sjötíu þúsund til þing- manna a.m.k. nægja ekki? Eg spyr, hvernig fáið þið rétta út- komu úr þessu dæmi? Þið eruð með tíu og hátt í tuttuguföld laun á mánuði miðað við lægst launaða fólkið og ellilífeyrisþega og aðra sem eru jafnvel réttlausir til allra launa, hverju nafni sem nefnast. Hvernig dettur ykkur í hug að segja að ykkar laun séu sízt of há? Með því viðurkennið þið að laun allra annarra séu ekki bara lág, heldur smánarleg hungurlús, á þessum tímum, þegar allt hækkar stöðugt og ekki um neinar smá- upphæðir, það eru hreinustu há- stökk, sem verðlagið tekur og það með stuttu millibili. Já, ég býst við því að þið segið að bensínið hafi lækkað, og ég fari með ósannindi ef ég haldi því fram að ALLT hækki. Jú, það var sannarlega snilld að finna svo litla og netta tölu sem SEXTÍU AURA. Það munaði um minna! En viljið þið ekki festa ykkur þessa tölu í minni og nota hana líka þegar þarf að hækka vörur, en þá eru ekki notaðir neinir smáskammtar, það dugar ekki minna en tugir og hundruð króna í þá áttina. Rétt- látt eða hvað? Og hvernig stendur á því að allt má hækka, NEMA LAUN ÞEIRRA SEM VERST ERU STADDIR? í Morgunblaðinu í dag (13. des. ’83) er getið um hækkun á kíiómetragjaldi, fyrir opinbera 3tarfsmenn, hækkun dagpeninga (gisting og fæði) og svo nákvæmir eru þeir sem hafa tugi þúsunda í laun á mánuði að þeir geta ekki verið HÁLFAN DAG að heiman án þess að fá borgaðar 339 kr. í fæði! Margur verður víst að láta sér lynda að vera matarlaus hálfan dag, og þykir ekki neitt þrekvirki. En það er auðvitað ekki nema sjálfsagt að þeir sem bera ábyrgð á velferð þegna sinna reyni að halda sig vel í mat, drykk og öðr- um lífsins gæðum, svo að bein þeirra bogni ekki af þungum áhyggjum, um aldur fram. Það er nefnilega afar erfitt að neyðast til að stagla sömu setninguna æ ofan í æ af miklum sannfæringar- þunga: „en umfram allt þarf að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin" o.s.frv. — en meina ekkert með því annað en að slá ryki í augu fólks. En það tekst ekki. Þessi setning hefur klyngt í eyrum ár eftir ár, af öllum sem einhverju geta ráðið þar um, að ekkert breytist, þvert á móti breikkar bil- ið stöðugt á milli hátekju- og lág- tekjufólks. Það er engu líkara en að mannlegan mátt þrjóti gjör- samlega, nákvæmlega þegar kom- ið er niður á visst launastig, þ.e. þar sem mörkin eru á milli sæmi- legra launa og þeirra sem ósæmi- legt er að bjóða fólki, þegar allt verðlag er svo hátt sem nú er og fer sífellt hækkandi. Hver getur orsökin verið fyrir þessum vanmætti? Hvernig væri að taka rögg á sig og breyta þessu, eða er kannski þarna vöntun á kristilegu innræti og réttlæti? Það skyldi nú aldrei vera að minna þyrfti á nokkur orð úr Biblíunni til þess að rétta hag lítilmagnans, til dæmis þetta? „Það sem þú vilt að aðrir menn gjöri þér, það skalt þú og þeim gjöra." „Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig.“ Ef farið væri eftir þessum orðum, þá væri minna um misréttið og óréttlætið sem svo víða viðgengst, „Ég spyr, hvernig fáið þið rétta útkomu úr þessu dæmi? Þið eruð með tíu og hátt í tutt- uguföld laun á mánuði miöað við lægst launaða fólkiö og ellilífeyrisþega og aðra sem eru jafnvel réttlausir til allra launa, hverju nafni sem nefn- ast.“ en varla þarf að óttast neina stökkbreytingu í þá átt, eins og nú er ástatt yfirleitt allstaðar og fjarskalega ótrúlegt að jafnvel á þessu litla landi okkar taki nokkur upp á þeirri ósvinnu að fara að elska náunga sinn svo „af öllu hjarta og ofurheitt" að hann vilji fórna nokkurum sköpuðum hlut fyrir hann. Eða er það ekki ótrú- legt þegar það blasir allstaðar við, að eigingirnin ræður öllu hjá flestum. Það er ekkert annað en eigingirnin sem ræður því að ekki er hægt að hækka laun þeirra lægst launuðu — hinir vilja og verða líka að fá hækkun. Þegar láglaunamaðurinn fær nokkur hundruð kr. hækkun, þá fær hinn heil mánaðarlaun hans, til viðbót- ar sínum háu launum. Réttlætið enn á ferð? Og hvar er samvizka þeirra sem hafa svimandi há laun SUNNUDAGINN 20. maí kl. 15 býður Húnvetningafélagið í Keykjavík eldri Húnvetningum til skemmtunar og kaffidrykkju í Domus Medira, Egilsgötu 3. Á síðasta ári keypti félagið 180 fm húsnæði í Skeifunni 17, og krefjast svo til viðbótar heilla mánaðarlauna venjulegs fólks ofan á allt saman. Mér finnst að allir sem í hlut eiga hljóti að roðna af skömm, þegar þeir taka við þess- um fúlgum, vitandi um allan fjöld- ann, sem berst í bökkum og hefur sumt ekki neitt. Manni hlýtur að verða óglatt af því þegar þeir sem vita ekki hvað skortur er eru að hvetja hina til að „herða sultaról- ina“, sem varla sjá pening á móts við „þá sem sitja í nógu þægilegu sæti“. Ég legg það til að skorið verði rækilega ofan af toppnum og þá meina ég alla sem eru ofan við 40—50 þús. í launum. Það er nefnilega öruggt að ef verkafólk á að geta lifað á 10—20 þús. kr. á mánuði, þá hljóta allir aðrir að geta það. Það er nefnilega ekki annar vandinn en sá að sníða sér stakk eftir vexti. Þjóðfélagið er í vanda statt og það er skylda allra að taka þátt í því að leysa þann vanda. Ég hefði haldið að það mætti bæta laun þó nokkurra með þeim upphæðum sem eru umfram 40—50 þús. Fróðlegt væri að vita hvaða „sannleikur" kæmi þá í ljós. En líklega yrði hann ekki meiri né betri en þegar andstæðingar í öll- um umræðum um stjórnmál og þjóðmál ræðast við. Þá er alltaf viðkvæðið: „Sannleikurinn er sá“ og þegar sannleikurinn er búinn að fara hringinn í kring um borð- ið, er hann orðinn dálítið undar- legur „á svipinn" og einkennilega mótsagnakenndur. Engin furða þó að stjórnmálin séu flókin og taki á sig svolítið óviðkunnanlega mynd, fyrir þá sem ekki þekkja klæki og bragðvísi þeirra. Hæstvirtu ráðamenn þjóðarinn- ar. Ef til vill lesið þið þetta með vorkunnlátu brosi á vör og virðið að vettugi, því að ekki sé ástæða til að taka alvarlega mína rödd eða annarra, sem ekki hafa virð- ingarstöðum að gegna. En gætið að, stundum túlkar ein rödd radd- ir fjölda annarra, sem ykkur skipti nokkru ef kosningar stæðu fyrir dyrum, og verið getur að þó að þið eigið erfitt með að sjá sannleikskornin í þessum pistli að þá sjái þau aðrir. Dagrún Kristjánsdóttir er hús- mæórakennari. Rvk., fyrir félagsheimili og er nú unnið við að innrétta það. Félagið efnir um þessar mundir til happdrættis til fjár- öflunar. Aðalvinningar eru veiðileyfi í laxveiðiám í Húna- vatnssýslu. Dregið verður 1. júlí. Kaffiboð Húnvetninga- félagsins í Reykjavík Ritsafn Gunnars Gunnarssonar J V- j v. Saga Borgarættarinnar Vargur í véum Svartfulg Sælir eru einfaldir Fjallkirkjan I Jón Arason Fjallkirkjan II Sálumessa Fjallkirkjan III Fimm fræknisögur Vikivaki Dimmufjöll Heiðaharmur Fjandvinir S f ^ r Almenna Bókafélagiö AusturatrMti 18, •imi 25544. Skammuvagur 30 •ími 2554« Gunnar Gunnarsson öefur um langt skeið verið einn virtasti hofund ur á Norðurlöndum c Verö rs Utb. 0 V k r. kr. 7.000,- 1 .400- O ' ' k r. 5.6QO - Inriheimtuk. . - . Q'% kr. 400 - ÍEftistööv. ,r kr. 6.000,- Hringið og við sendum sölumann til ykkar sem má greiöa a sex mánuöum, kr. 1.000 pr. mánuö. 'A j #

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.