Morgunblaðið - 29.06.1984, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.06.1984, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1984 „Ekki bara eitt tímaritið í viðbót“ — segir Herdís Þorgeirsdóttir, ritstjóri Mannlífs í DAG kemur út nýtt tímarit sem ber nafnið Mannlíf. Er hér um að ræða tímarit sem fjallar um mannlífið á fjölbreyttan hátt og á vera eins konar „spegill samtíðarinnar“ eins og fram kemur í bréfi ritstjóra í fyrsta tölublaðinu. Útgefandi tímarits- ins er Kjölnir hf. og er ætlunin að það komi út annan hvern mánuð. Ritstjóri er Herdís Þor- geirsdóttir sem er nýlega komin frá námi erlendis. „Það var ekki hægt að velja víðtækara nafn á blaðið," sagði Herdís og brosti, þegar blaðamaður kom að máli við hana, „enda á hér allt að vera komið í einu og sama tímarit- inu. Hér á landi hefur mér alltaf fundist skorta alhliða tímarit sem spannar vítt svið eins og þessu er ætlað að gera, hér er allt fullt af sérritum. Mannlíf á að vera allt í senn, áhugavert, fræðandi og skemmtilegt. Það fjallar jafnt um efnahagsmál, tísku, stjórnmál og listir." í fyrsta tölublaðinu eru tvær greinar af erlendum stjórnmálavettvangi, annars vegar er grein eftir Herdísi Þorgeirsdóttur og fjallar um hægri öflin í Bandaríkjunum og Reagan, hins vegar skrifar Þórður Ægir Óskarsson um friðarhreyfingu á krossgötum. „Það má segja að erlendar fréttaskýringar séu nýnæmi í íslenskum tímaritum, og út- tektir á stjórnmálum al- mennt,“ segir Herdís, en hún er menntuð í stjórnmálafræð- um og alþjóða samskiptum. „Blaðið á þó alls ekki að fjalla meira um stjórnmál en annað. Blaðamennska hefur breyst Herdís Þorgeiredóttir með fyrsta tölublað Mannlífs. Morjfunblaðið/Emilía. mjög mikið síðustu árin, eða til dæmis síðan ég var á Mogg- anum fyrir nokkrum árum. Samkeppnin hefur aukist, blöðum og tímaritum hefur fjölgað, þótt magn - sé ekki sama og gæði. Ég held að það sé orðinn til grundvöllur fyrir tímarit sem mætir auknum kröfum fólks um innlend og erlend mál.“ Á forsíðunni er mynd af Valgerði Bjarnadóttur, ekkju Vilmundar Gylfasonar og við- tal er við hana í blaðinu þar sem hún ræðir um reynslu sína og lífsviðhorf. „Viðtölin í blaðinu eiga að vera ítarleg og sérstök," segir Herdís, þegar talið berst að viðtölum. „Þau eiga ekki að vera í stíl við þau sófasetta- og kaffibollaviðtöl eins og aðallega tíðkast hérna,“ bætir hún við og kím- ir. „Þetta á að vera blandað blað og opið.“ Af öðru efni blaðsins má nefna greinar um bækur og kvikmyndir, lífsstíl, svip- myndir af forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, að loknu hennar fyrsta kjörtíma- bili, og Ásgeiri Sigurvinssyni knattspyrnuhetju. Ungir leik- arar úr Svörtu og sykurlausu sjá um tískuþátt. Greinarhöf- undar eru úr hópi sérfræð- inga, rithöfunda og blaða- manna. Jónas Haralz ræðir viðreisnarárin, Oddur Bene- diktsson prófessor skrifar um tölvuhugbúnað, Eiríkur Guðnason um efnahagsmál og Steinunn Sigurðardóttir um ungu kynslóðina og svona mætti áfram telja. „Útlit blaðs skiptir mjög miklu máli,“ segir Herdís. „Það var okkur því mikill fengur að fá til liðs við okkur Jón Óskar myndlistarmann sem útlitsteiknara blaðsins." Og hún heldur áfram: „Þetta blað á að vera kraftmikið og lifandi, það á að hafa eitthvað að segja fólki. Því kjarni máls- ins er sá að allt sem maður skrifar er maður að skrifa fyrir aðra. Ég vil að fólk geti vitað þegar það fær eintak af Mannlífi í hendurnar, að þetta er nýtt og öðruvísi, en ekki bara eitt tímaritið í viðbót.“ Myndvefnaðar- sýning í Aðaldal HíuTÍk, 12. júnl. Myndvefnaðarnámskeið var hald- ið að Ydölum í Aðaldal sl. haust og kenndi þar Hólmfríður Bjartmars- dóttir, myndvefnaðarkennari frá SandL Að námskeiðinu loknu ákváðu konurnar sem á því voru að hittast einu sinni f viku sl. vetur og vinna áfram að vefnaðinum og í vor áttu þær svo margar myndir, að þær ákváðu að halda sýningu, sem var nú um hvítasunnuna. Þarna sýndu 11 konur 36 verk, sem vöktu undrun þeirra sem sáu hve miklum árangri þær höfðu náð í þessari listgrein og hyggja konurnar á áframhaldandi starf, sem er vel og full ástæða til að hvetja þær svo að gera. Piéttarttarf Húsavík: Ljón norðursins með málverkasýningu HöMTÍk 27. júaí. LEÓ Anton Árnason, öðru nafni Ljón norðursins, opnar málverka- sýningu í Safnahúsinu á Húsavík miðvikudag. Leó er fæddur 27. júní 1912 að Víkum í Austur-Húnavatns- sýslu; hann er því 72 ára í dag. Ljón nerðursins er byggingar- meistari að mennt, Jafnframt hef- ur hann lagt stund á fjölbreyttan atvinnurekstur, en hann hefur þó einkum helgað krafta sína skáldskap og myndlist. Málverka- sýningin í Safnahúsinu verður opin fimmtudags- og föstudags- kvöld frá kl. 20 til 22. Auk mynd- listarinnar gefst gestum sýningar- innar kostur á að hlýða á ljóða- lestur skáldsins og tónlist. FréttariUri Nýtt kanínu- bú í Njarðvík Kanínurækt og kanínubúskapur er atvinnugrein sem á undanrórnum arum hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Nýlega var sett á stofn í Ytri-Njarðvík kanínubú sem er í eigu Járn- og pípulagningaverktaka Kefla- víkur, og hefur búið hlotið nafnið „Kanínumiðstöðin Njarðvík". Fyrstu kanínur kanínubúsins komu til landsins fyrir u.þ.b. hálfum mánuði frá Vestur-Þýskalandi og verða þær eing Stefán ólafsson, rekstrarstjóri kanínumiðstöðvarinnar, sagði að hugmyndin að stofnun kanínubús- ins hefði komið fram fyrir rúmu ári og þá hefði verið ráðist í það að reisa sérstaklega hannaða bygg- ingu, með kanínurekstur í huga, við iðnaðarhúsnæði sem fyrirtæk- ið átti. „Síðan má segja," sagði Stefán, „að rekstur búsins hafi hafist þegar fyrstu 126 kanínurn- ar komu hingað til okkar 14. júní. Kanínurnar eru af svonefndu angora-kyni og til að byrja með höfum við hugsað okkur að rækta þær aðallega til að nýta af þeim hárin en seinna kemur til greina að nýta einnig af þeim feldinn og jafnvel kjötið en það á enn eftir að koma í ljós hvort íslendingar eru reiðubúnir til að láta eitthvað fleira ofan í sig en kindakjöt. Þá munum við e.t.v. selja skítinn, en hann er ákaflega hentugur til áburðar, og einnig gæti farið svo að við seldum dýr á fæti til ann- arra búa. igu notaðar til undaneldis. Til að byrja með eru þetta ein- ungis 126 dýr sem við höfum og ætlum að nota til undaneldis en við reiknuðum með að eftir svona eitt og hálft til tvö ár verði fjöldi kanínanna orðinn u.þ.b. 2.500 og er stærð búsins miðuð við að geta haft þann fjölda hér.“ Stefán sagði að hérlendis væri ágætur markaður fyrir hárin af angora-kanínunum því hægt væri að blanda þeim saman við ull og væri oft gert í því skyni að mýkja ullina. Sagði hann að hárin af kanínunum væru t.d. mikið notuð í peysur, nærföt og margskonar annan fatnað í Þýskalandi. „Af hverri kanínu fást um 250 grömm við hverja klippingu en þær eru klippar á þriggja mánaða fresti. Karldýrin gefa reyndar eitthvað minna af sér en kvendýr- in en með því að gelda þau er hægt að fá jafnmikið magn af hári og af kvendýrinu. Þegar reksturinn verður kominn í fullan gang reikn- um við með að fá þrjú tonn af hári Kanínurnar eru einungis 126 eins og stendur en eiga eftir að margfaldast verulega. Stefán ólafsson, rekstrarstjóri Kanínumiðstöðvarinnar, heldur á einu dýrinu sam eflaust á eftir að eignast fjölda afkomenda. á ári. En til þess að fá sem mest verð fyrir hárin verður að gæta þess að klippa þær á réttum tíma. Við fengum dýrin frá Schweitz- erhof-búinu í Suður-Þýskalandi en þar hefur Eric Zimmermann, prófessor í gen- og litningafræði, alið upp mjög góðan stofn ang- ora-kanína. Miðað við þá mögu- leika sem þessi dýr gefa þá virðist mér sem það sé alveg ljóst að kan- ínubúskapur eigi framtið fyrir sér þó svo margt sé óljóst hérlendis varðandi búskap af þessu tagi og óvarlegt að fullyrða nokkuð um hvernig tekst að skapa markað fyrir þessa vöru. Eins og stendur eru Kínverjar með 90% af al- heimsmarkaðinum og þeir eru ekki einu sinni með jafn góða ull eða hár eins og þessar kanínur geta gefið af sér þannig að kannski er möguleiki að reyna að afla markaða erlendis, en auðvitað verður fyrst reynt að afla markað- ar hérlendis," sagði Stefán. Stefán sagði að lokum að núna á meðan kaninurnar væru ekki farnar að fjölga sér, og því ekki farið að klippa þær, væru starfs- menn Kanínumiðstöðvarinnar í Njarðvík einungis tveir en líklega þyrfti að bæta við þremur til fjór- um mönnum til viðbótar þegar dýrunum færi að fjölga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.