Morgunblaðið - 28.07.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984
3
Kaupir Grímsneshreppur jörðina Ásgarð?:
Fimm aðilar vilja
styrkja kaupin
„EF EKKI verður þurrkur á morg-
un þá má búast við að fundur verði í
hreppsnefndinni og þá verða þeir
möguleikar skoðaðir sem til greina
koma, en það eru einir fimm aðilar
sem nú þegar hafa sýnt áhuga á að
styrkja okkur til kaupa á jörðinni
Ásgarði," sagði Böðvar Pálsson,
varaoddviti Grímsneshrepps, en eins
og Morgunblaðið hefur þegar skýrt
frá hefur hreppurinn forkaupsrétt á
þeirri jörð, samkvæmt úrskurði
Hæstaréttar.
Boðvar sagði að undanfarið
hefði hreppsnefndin verið að viða
að sér upplýsingum um þá aðila
sem hafa boðist til að styrkja
kaupin gegn því að þeir fengju þar
m.a. veiðiréttindi og lóðir til að
byggja á sumarbústaði en enn
hefði ekki verið tekin nein formleg
ákvörðuin um hvort Grímsnes-
hreppur nýtti sér forkaupsréttinn
á jörðinni eður ei.
Grímsneshreppur verður að
ákveða hvort hann festir kaup á
jörðinni fyrir 10. ágúst næstkom-
andi og þá verður jafnframt að
greiða kaupverðið að fullu, en það
mun vera samkvæmt úrskurði
hæstaréttar 15.136.500 krónur.
Aðspurður um hvort ekki yrði
fljótlega ljóst að hve miklu leyti
þeir aðilar, sem hafa lýst sig
reiðubúna til að leggja hreppnum
til fé, kæmu til með að styrkja
hreppinn til kaupanna sagði Böðv-
ar að það væri ekki enn fyrirliggj-
andi. „Það hafa verið fundir með
þessum aðilum bæði hér fyrir
austan og einnig i Reykjavík og
þeir hafa sýnt þessu mikinn áhuga
en þessi mál eiga öll eftir að skýr-
ast betur nú um helgina," sagði
Böðvar. „íbúar Grímsneshrepps
hafa haft mikinn áhuga á þvi að
hreppurinn keypti þessa jörð og
vilja leggja talsvert af mörkum til
þess að það verði hægt en það á
eftir að koma i ljós hvernig samn-
ingar takast við þá aðila sem hafa
sýnt þessu áhuga. Við viljum nátt-
úrlega fórna sem allra minnstu
landi við gerð þessara samninga
og þá kemur til greina að slá lán
til nokkurra ára til að fjármagna
kaupin," sagði Böðvar Pálsson að
lokum.
Isinn þokast norður
ÍSINN undan Húnaflóa hefur þok-
azt nokkuð til norðurs frá því staða
hans var könnuð síðastliðinn mánu-
dag. Þrátt fyrir það má búast við
stökum jökum á siglingaleiðum, að
minnsta kosti frá Horni að Flatey.
ísinn var kannaður af Land-
helgisgæzlunni í gær og kom þá
meðal annars fram, að ísflákar og
stakir jakar væru einkum undan
og i mynni Eyjafjarðar og undan
Siglufirði og Málmey. Sum staðar
á könnunarsvæðinu var skyggni
slæmt vegna þoku, en samkvæmt
Forsetinn
settur í
embætti á
miðvikudag
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir tekur á
ný við forsetaembætti miðvikudag-
inn 1. ágúst nk. Athöfnin hefst í
dómkirkjunni klukkan hálf fjögur,
en afhending kjörbréfs fer síðan
fram í Alþingishúsinu. Er kjörbréf
hefur verið afhent, mun forseti
koma fram á svalir þinghússins.
Þeir, sem ætla að vera við
kirkjuathöfnina, eru beðnir að
vera komnir í sæti fyrir klukkan
hálf fjögur segir í frétt frá forsæt-
isráðuneytinu og ennfremur að í
Alþingishúsinu rúmist ekki aðrir
en boðsgestir. Gjallarhornum
verður komið fyrir úti svo að
menn geti fylgst með því, sem
fram fer í kirkju og þinghúsi.
Lúðrasveit mun leika á Austur-
velli.
niðurstöðum Landhelgisgæzlunn-
ar er megin ísbrúnin eins og með-
fylgjandi kort sýnir.
Fjölmargar myndir hafa birzt í Morgunblaðinu teknar í þessu herbergi. Þá hefur jafnan verið öðruvísi umhorfs í
því þar sem um er að ræða fundarherbergi ríkisstjórnarinnar.
Ekki fundarfært
í Stjórnarráðinu
Velflestir fundir í Ráðherrabú-
staðnum vegna málningarvinnu
ERFITT hefur verið um vik
við fundahöld í Stjórnar-
ráðshúsinu við Lækjargötu
undanfarna daga og hafa
velflestir fundir verið
haldnir í Ráðherrabústaðn-
um við Tjarnargötuna.
Að sögn Guðmundar Bene-
diktssonar, ráðuneytisstjóra í
forsætisráðuneytinu, hefur
undanfarið verið unnið við
veggfóðrun og málun í húsinu
og því ekki hægt að athafna
sig sem skyldi. Þá sagði Guð-
mundur ennfremur að múrað
hefði verið upp í glugga á suð-
urhlið hússins en með því væri
verið að færa þá hlið í upp-
runalegt horf.
Ekki kvaðst ráðuneytis-
stjórinn geta sagt til um hven-
ær málningarvinnunni yrði
lokið en bjóst þó við að það
yrði einhvern tíma í næstu
viku. „Þetta eru vaskir menn,“
sagði hann og vísaði til iðnað-
armannanna sem máluðu af
kappi.
Suóurgafl Stjórnarráöshússins. Fyllt hefúr verið upp ( ghiggann.
Við erum
komnir I
Olympíu-
liðið
FUJI-liðið er kátt núna.
Framkvæmdanefnd Olympiu-
leikanna í Los Angeles 1984
hefur valið FUJI filmur fyrir allar
myndatökur í sambandi við
Olympiuleikana 1984.
Á Olympiuleikunum eru aðeins
þeir bestu - þeir sem skara fram
úr, - i þeim hópi er FUJI.
Nýlega kom á markað ný FUJI
filma - FUJICOLOB HR, sem gefur
þér bjartari skarpari og litrikari
myndir en áður hefur þekkst.
Nýja FUJICOLOR HR filman markar timamót i
litfilmuframleiðslu og er örugglega skarpasta
filma, sem þú átt kost á.
Þess vegna á FUJI vel heima á OLympíuleik-
unum - þvi þar eru aðeins þeir bestu.
Officia! Fikn of
the Los Ange/es
1984 Ofympics
l A Oy*npæ SymOott C 1900 L A 0*t Com TW
HK3H RESOLUTION
FUJI PHOTO FILM CO., LTD.
Tokyo, Japan
€>1903
/
0101331123^^
SKIPHOLTI31
Ný
filma HRiœ?HR400