Morgunblaðið - 28.07.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984
7
Mikill munur á
hlutföllum kynja
— í einstökum deildum Háskólans
EF ATHUGAÐUR er fjöldi karla
og kvenna sem þreyttu lokapróf
við Háskóla Islands árið 1983 og
hlutfoll kynja í einstökum deild-
um kemur í Ijós að enn eru til
ákveðin „kvennafög" og „karla-
fög“. Þetta kemur fram í frétta-
blaði Jafnréttisráðs.
Munurinn á fjölda kvenna og
karla er langmestur í verkfræði
þar sem einungis 1 kona á móti 28
körlum þreyttu lokapróf og í
hjúkrunarfræðum þar sem kon-
urnar voru 22 á móti 1 karli.
í raungreinum, læknisfræði,
viðskiptafræði, lögfræði og guð-
fræði voru karlar í miklum meiri-
hluta eða um 70—80%.
í félagsvísindum voru konur í
miklum meirihluta, en þaðan luku
alls 47 manns BA-prófi, og voru
þar af 34 konur.
öllu jafnari var skiptingin í
heimspekideild, en af þeim sem
luku BA-prófi þaðan var hlutfall
kvenna 58%, en kandidatsprófi í
sagnfræði lauk einungis 1 kona á
móti 5 körlum.
óhætt er að fullyrða að þessar
tölur eru athyglisverðar á tímum
kvennabaráttu og jafnréttis.
Fyrsti fund-
ur BSRB og
ríkisvaldsins
Ríkissáttasemjari hefur boðað til
fundar með Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja og rikisvaldinu, næst-
komandi fimmtudag 2. ágúst, klukk-
an 13.30.
BSRB sagði upp kjarasamningi
sínum við ríkisvaldið fyrr í vik-
unni frá og með 1. september og
vísaði kjaradeilunni þegar til rík-
issáttasemjara, en það hefur hvor
deiluaðila um sig rétt til að gera.
Póstur og srnii:
Fær ný innanhúss-
símkerfi til sölu
PÓSTUR og sími hefur nýlega
gert samning við norska fyrir-
tækið EB Scanword um að
markaðsfæra fyrir þá hér á ís-
landi lítil innanhússsímkerfi.
Hafa nú þegar verið pöntuð
hingað 15 kerfi og verða þau til
sölu hjá Pósti og síma innan
skamms.
Síldveiðar í
lagnet hefjast
10. ágúst nk.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
ákveðið, að sfldveiðar í lagnet megi
befjast þann 10. ágúst næstkomandi.
Síldveiðar í lagnet eru leyfis-
bundnar og skal sækja um leyfi til
þeirra til ráðuneytisins. Leyfi til
veiða þessara eru bundin við báta
minni en 50 brúttórúmlestir.
Sigurður Þorkelsson, yfirverk-
fræðingur Pósts og síma, sagði að
þessi innanhússsímkerfi væru af
tveimur gerðum, annað með 8 inn-
anhússlínur og þrjár línur út í bæ
og hið stærra væri með 16 línur
innanhúss og 6 linur út í bæ. Kvað
hann samninginn hljóða upp á
viss kjör á þessum tækjum miðað
við magn og ætlunin væri einungis
að selja þetta á frjálsum markaði
en ekki að nota þessi kerfi innan
fyrirtækisins.
Sagði Sigurður að kerfin væru
af gerðinni FOX og hefðu ýmsa
möguleika umfram þau kerfi sem
nú væru á markaðnum, svipaðrar
tegundar.
INNLENT
Doktor í
jarðfræði
í JÚLÍ 1983 varði Guðmundur
Omar Friðleifsson doktorsrit-
gerð í jarðfræði við háskólann
í Edinborg.
Ritgerðin nefnist á ensku „The
Geology and the Alteration
History of the Geitafell Central
Volcano, Southeast Iceland", og
fjallar einkum um tilurð og
þróun háhitavirkni í fornri meg-
ineldstöð í Hornafirði. 1 víðara
samhengi tengist verkefnið
rannsóknum Orkustofnunar á
háhitasvæðum landsins, en jarð-
hitadeild Orkustofnunar stóð
straum af kostnaði við útvinnu
rannsóknarinnar, sem að öðru
leyti var fjármögnuð af LÍN.
Guðmundur Omar er sonur
Guðrúnar Ingvarsdóttur og
Friðleifs E. Guðmundssonar,
skrifstofustjóra. Guðmundur er
fæddur 12. júní 1950, lauk stúd-
entsprófi frá MR 1970, og
BS-prófum frá HÍ 1975 og 1976.
Dr. Guðmundur Ómar Friðleifsson
Hann hefur starfað við háhita-
rannsóknir í jarðhitadeild
Orkustofnunar á árunum
1975-1977 og síðan 1981.
Guðmundur er kvæntur Sig-
rúnu Jakobsdóttur og eiga þau
tvö börn.
Móðiihefur
Vonin um verölaun á Olympíuleikun-
um er bjartari en oftast áöur.
Þó þátttaka í drengilegum leik sé aö
sjálfsögöu aðalatriðið - þá kitlar
vonin um að ísland komist á verö-
launapall aö sjálfsögöu.
Hver þeirra sem nú eru komnir til vits
og ára gleymir t.d. þeirri stundu
þegar ísland komst í fyrsta og eina
skipti á verðlaunapallinn -
í Melbourne 1956.
VQN PÍN UM EINNAF14
CLÆSILECUM BÍLUM AÐ VERÐ-
MÆTI 4.7 MILLlONIR KRONA.
StuóningurvióæslfufólkoRkariljosAngeks
ÓLYMRUNEFNDAR (SLANDS