Morgunblaðið - 28.07.1984, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984
Ingimundur hf. —
eina rækjuvinnslan í Reykjavík
*•. , * i*r*i. § ■
Ásgeir ÞonirianoD verkstjóri í vinnslusalnum.
Morgunbladid/Árni Sœberg.
Rækjan hefur veitt
fulla vinnu í sumar
- að öllum líkindum komið í veg fyrir stöðvun á
þessum tíma, segir Ásgeir Þorvarðarson verkstjóri
Rjekjuverksmiðjum hefur fjölgað
mjög hér á iandi að undanförnu f
kjölfar samdráttar á hefðbundnum
veiðum og síaukinnar rckjuveiði
svo varia heyrir til tíðinda þó ein
bætist í hópinn. Þó þykja það ef til
vill tíðindi, að aðeins ein slfk hefur
litið dagsins Ijós f Reykjavfk, þó
rckjumiðin taki ekki mið af stað-
setningu böfuðborgarinnar. Það eru
þeir feðgar Ármann Friðriksson og
Ármann Ármannsson, eigendur
Hskverkunarinnar Ingimundar hf.,
sem riðið hafa á vaðið og gera út tvö
skip á rækjuna og veita þannig 40 til
50 manns stöðuga vinnu í sumar,
sem annars hefði að öllum líkindum
verið dauður tími hjá fyrirtækinu.
Morgunblaðsmenn heimsóttu
fiskverkunina Ingimund hf. í vik-
unni og hlutu þar leiðsögn Ás-
geirs Þorvarðarsonar, verkstjóra.
Hann sagði, að vinnsla hjá Ingi-
mundi hefði hafizt 14. júní síð-
astliðinn, en skipin hefðu hafið
veiðar nokkru fyrr. Það væru
Helga RE 49 og Helga 11 RE 373,
skip fyrirtækisins, sem veiðarnar
stunduðu. Þær hefðu verið með
um 10 lestir á túr að meðaltali og
hvor um sig væri komin með 60 til
70 lestir. Veiðarnar hefðu gengið
vel að undanskildum smávægi-
legum byrjunarörðugleikum.
Veiðarnar stunduðu skipin aðal-
lega fyrir Norðurlandi, en einnig í
Kolluál, þegar ís hamlaði veiðum
nyrðra. Rækjan væri hins vegar
skipanna frá veiðum minnkuðu
verulega auk þess, sem þau losn-
uðu við þann fisk, sem slæddist
með rækjunni, í vinnslu þar. Hér
syðra væri nánast ómögulegt að
losna við fiskinn og ylli það þeim
nokkrum erfiðleikum að þurfa að
vinna hann með rækjunni.
Ásgeir sagði, að vinnslan gengi
mjög vel enda rækjan góð, þó eng-
inn af starfsmönnum fyrirtækis-
ins hefði komið nálægt rækju-
vinnslu áður og hún væri þeim því
algjör nýjung. Þeir væri því alveg
hissa á þvi hve vel þetta hefði
gengið, en það hefði vissulega
hjálpað mikið, að aðstoð hefði
fengizt hjá Sölumiðstöðinni í upp-
hafi. Að meðaltali tækju þeir á
móti um 20 lestum á viku og væri
þá unnið frá 8 til 7 virka daga, en
um þessar mundir hefðu þeir
einnig tekið á móti afla af einum
báti til viðbótar og álagið á
starfsfólkinu því mikið. Vinna
þessa vikuna hefði því farið upp í
það, að vera frá 6 á morgnana til 9
á kvöldin og liklega yrðu þau að
vinna um helgina til að forða hrá-
efni frá skemmdum og ná góðu
fríi um verzlunarmannahelgina.
Það væri gaman að fást við
rækjuna, þegar allt gengi svona
snurðulaust fyrir sig enda fylgdi
henni ekki mikið líkamlegt erfiði
fyrir starfsfólkið, þó hinn langi
vinnudagur gæti verið þreytandi.
Þetta væri allt annað en saltfisk-
urinn, sem hefði ásamt síldinni
verið uppistaðan í vinnslunni til
þessa. Hins vegar skyggði það dá-
lítið á ganginn, að illa gengi að
losna við rækjuna og markaðs-
verð væri alltaf að lækka. Nú væri
búið að framleiða um 20 lestir af
rækju og ekki einn einasti kassi
farinn fyrir utan nokkra kassa af
blokk, sem hefðu farið í einhverja
prufusendingu. Rækjan hefði
bæði verið fryst í blokk og laus-
fryst. Meira verð væri fyrir hana
lausfrysta, en það háði þeim i
verkuninni að vera ekki með full-
komin lausfrystitæki. Eins og er
væri rækjan lausfryst í pönnum.
„Hér hefur verið stöðug vinna
siðan ég byrjaði hjá fyrirtækinu i
ágúst í fyrra og rækjan hefur
bjargað miklu eða öllu fyrir
starfsfólkið í sumar. Án hennar
hefði skipunum ábyggilega verið
lagt og vinna varla hafizt fyrr en
með sildinni i haust. Annars er
framhaldið ekki endanlega skipu-
lagt, óákveðið er hve lengi verður
haldið áfram á rækjunni, þar sem
veiðileyfum á síldina hefur enn
ekki verið úthlutað og óvfst hve-
nær loðnuveiðar hefjast," sagði
Ásgeir Þorvarðarson.
Linda Hrönn Eggertsdóttir sagði, að mikill munnr væri á því að vinna í
rækjunni og saltfiskinum. Rækjan væri miklu léttari, en það væri hálf
kalt að sitja lengi við færibandið. Það væri léttara að vinna í rækjunni, að
minnsta kosti Ifkamlega, en það væri ekki sérlega uppbyggjandi að vera
við bandið.
stærri fyrir norðan og þvi væri
lögð meiri áherzla á veiöar þar.
Þegar veitt væri fyrir norðan
lönduðu skipin á Sauðárkróki og
væri rækjan flutt suður með
flutningabílum. Útreikningar
sýndu, að af þvi hlytist svipaður
kostnaður og að láta skipin sigla
með aflann suður. Þá fylgdi þessu
fyrirkomulagi sá kostur, að frávik
Séð yfir vinnslusalinn.
Hollandspistill
eftir Eggert H.
Kjartansson
Atvinnuleysi meðal
ungs fólks
Nú í vor luku um 250.000 ung-
menni námi og komu út á vinnu-
markaðinn i leit að atvinnu. Sam-
kvæmt þeim rannsóknum sem
gerðar hafa verið af hagfræði-
stofnun Hollands munu aðeins um
150.000 þessa fólks finna eitthvað
að gera á næstu mánuðum. í júlí
1985 er gert ráð fyrir að enn verði
um 25% af þessum hóp atvinnu-
laus. Ctlitið er því svart ef haft er
í huga að nú eru 790.000 til 800.000
á atvinnuleysisskrá.
Fyrir nokkru komu tvö stærstu
félög atvinnurekenda og tvö
stærstu verkalýðsfélögin sér sam-
an um það að vinna að því að gefa
öllum þeim sem nýloknir væru
námi og búnir að vera atvinnu-
lausir í lengri og skemmri tíma
tækifæri til þess að fá starfsþjálf-
un úti á vinnumarkaðinum. Þessir
aðilar eru sammála um að þetta
fólk verði að fá tækifæri því ann-
ars komi til með að halla enn meir
undan fæti fyrir því í þeirri sam-
keppni sem ríkir. Rætt hefur verið
um hvoru tveggja launuð og
ólaunuð störf.
Félagsmálaráðherrann Drs.
Konings sem kemur til með að
þurfa að leggja sitt af mörkum ef
af veröur heldur að sér höndunum.
Hann vill meira öryggi fyrir því
að það fjármagn sem kemur úr
ríkiskassanum ávaxti sig. Á með-
an þessir valdamiklu aðilar eru að
reyna að koma sér saman um það
hvernig, hvar og hvort peningum
verði veitt til þessarar tíma-
bundnu lausnar fyrir atvinnulaust
ungt fólk bíður hollenskt samfélag
næstu öldu sem útskrifast eftir
u.þ.b. niu mánuði.
KLM og íran
Um þessar mundir fer fram
rikisrannsókn á því hvort sá
samningur sem KLM (konunglega
hollenska flugfélagið) hefur við Ir-
an Air innihaldi á einhvern hátt
hernaðarlega samvinnu. í júni
kom í ljós að tvær af þeim Boeing
747 frá íran sem hafa verið á við-
gerðarlista hjá KLM eru notaðar
af íranska hernum til þess að
orustuþotur geti tekið eldsneyti á
flugi. Samningurinn milli KLM og
Iran Air þurfti ekki samþykki
utanríkisráðuneytisins hollenska
þar sem sagt var að eingöngu væri
um að ræða viðgerðir á flugvélum
sem notaðar væru til farþega-
flutninga.
Sendiherra íraks í Haag sagði
að hann væri undrandi á því að
KLM væri að gera við herflug-
vélar fyrir Irani og hélt því fram
að ekki væri lengur hægt að tala
um hlutleysi Hollands gagnvart
stríðsaðilum. I siðustu viku var
gert við tvær Boeing 747 hlið við
hlið í KLM-skýlinu á Schiphol,
önnur var frá írak og hin frá Iran.
Prins Claus aftur
til fullra starfa
Prins Claus, eiginmaður Beatrix
drottningar, er farinn að starfa
fullan vinnudag eftir tveggja ára
fjarveru vegna veikinda. Þessi tvö
síðastliðin ár hefur hann verið i
meðferð vegna þunglyndis sem
hann átti við að stríða. Mikilvæg-
asta starfið sem prinsinn kemur
til með að inna af höndum í fram-
tíðinni er Inspectur-General (eft-
irlitsframkvæmdastjóri) þróun-
arlandasamvinnudeildarinnar i