Morgunblaðið - 28.07.1984, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JtTLÍ 1984
13
Grundarfjarðarkirkja fær
styrk til kaupa á orgeli
ÞEGAR Sparisjóður Eyrarsveitar,
Grundarfirði, hætti starfsemi í
nóv. 1982 og Búnaðarbanki ís-
lands tók við rekstri hans, var
stofnaður sjóður um eignir Spari-
sjóðsins, sem skyldi varið til
styrktar menningar- og líknarmála
í Eyrarsveit.
Fyrst var veitt úr sjóðnum 17.
júní sl. að lokinni messu, kr.
500.000 til oreglsjóðs Grundar-
fjarðarkirkju til kaupa á pípu-
orgeli, sem er í smíðum í Þýska-
landi.
Á myndinni afhendir Halldór
Finnsson, fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri, Vilhjálmi Péturs-
syni sóknarnefndarformanni
ávísunina, einnig er á myndinni
sr. Jón Þorsteinsson sóknar-
prestur.
Annað friðarþing Alþjóða
Rauða krossins 2.—6.
september á Álandseyjum
Annað friðarþing Alþjóða
Rauða krossins verður haldið I
Álandseyjum dagana 2.-6. sept-
ember. Hátt á þriðja hundrað
fulltrúar frá rúmlega 200 lands-
félögum sækja ráðstefnuna og
eru þeir alls staðar að úr heimin-
um. Frá íslandi fara þrír full-
trúar, formaður RKI, fram-
kvæmdastjóri og einn stjórnar-
maður.
Að sögn Jakobínu Þórðardótt-
ur, deildarstjóra alþjóðadeildar
RKÍ, var fyrsta friðarþingið
haldið í Belgrad árið 1977. { lok
þess komu fram starfsreglur
fyrir landsfélögin þar sem þau
skyldu vinna að friði og hafa þau
starfað síðan að friðarmálum á
grundvelli þeirra. Á Álandseyja-
þinginu verður rætt um hvað
hefur áunnist í friðarbaráttunni
og hvað megi fara betur. Fyrir
þinginu liggja vinnuplögg fjölda
landsfélaga og eru tíu þeirra
send sameiginlega frá Norður-
Iöndunum. fslendingar eru vita-
skuld aðilar að þeim en senda
ekki aðrar sértillögur. Meðal
þeirra mála sem tekin verða
fyrir eru nýjar reglur um vernd
óbreyttra borgara í hernaðar-
átökum, aðgerðir gegn ómannúð-
legum styrjöldum og ræddar
verða leiðir til að hindra að börn
séu send út á vígvellina.
Jakobína sagði að lokum að
þingið sem slíkt hefði ekki vald
til að skylda aðildarþjóðir Rauða
Krossins að fylgja þeim ályktun-
um sem samþykktar verða í lokin
en þau ríki sem hefðu skrifað
undir Genfarsáttmálann og
gengist undir skilmála hans
fengju hvatningu til að sinna
mánnúðarmálum heima fyrir og
annars staðar.
hollenska utanrikisráðuneytinu.
Prins Claus mun heimsækja og
skoða verkefni sem unnin eru með
aðstoð Hollendinga i þróunar-
löndum. Hann mun gera tillögur
um framhald þeirra verkefna og
aðstoðar sem veitt verður til
þeirra til utanrikisráðuneytisins
og ráðherra. Einnig mun prinsinn
taka sæti þróunarlandaráðherr-
ans sem um þessar mundir er frú
Schoo á alþjóðaráðstefnum sem
hún getur af einhverjum ástæðum
ekki setið. Auk þessa aðalstarfs
mun prinsinn sitja áfram í stjórn
hollenska Seðlabankans og sem
formaður þeirrar nefndar sem fer
með yfirumsjón og hönnun hafna í
þróunarlöndunum og heyrir undir
samgöngumálaráðuneytið.
Viðskipti
Fokker-flugvélaframleiðend-
urnir hafa nú gengið frá fyrstu
sölusamningunum á nýrri tegund
flugvéla F-100. Um er að ræða
sölu á átta vélum til svissneska
flugfélagsins Swiss Air og er verð-
ið um 5 milljarðar króna. Með
þessari nýju tegund sem taka mun
107 farþega er Fokker kominn á
fulla ferð í samkeppninni við risa-
fyrirtækin McDonnell og Boeing.
F-100 er sérstaklega hönnuð með
tilliti til þess að geta lent og tekið
á loft við slæmar veðuraðstæður.
Til þess að þetta nýja flugvéla-
verkefni hjá Fokker komi til með
að borga sig og skila eilitlum arði
þarf minnsta kosti að framleiða og
selja 150 vélar. Fokker-fyrirtækið
fékk sem svaraði 8 milljörðum
króna í ríkistryggðu láni til að
hanna flugvélina á þeirri forsendu
að mikilvægt sé að „know-how“
haldist í landinu.
Ferðaskrifstofa Vest-
mannaeyja í nýju húsnæði
VcKtfnannju-TÍum. 16. nlf.
UM HELGINA var opnuð Ferða
skrifstofa Vestmannaeyja hf. f nýj-
um húsakynnum við Vesturveg þar
sem skrifstofan leigir 60 fm í ný-
byggingu húsgagnaverslunarinnar
Reynistaðar.
Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja
var stofnsett 4. mars sl. eftir lang-
an undirbúning, skraf og ráða-
gerðir, en mörg ár eru liðin frá því
menn gerðu sér grein fyrir þeirri
þörf að hafa hér starfandi ferða-
skrifstofu. Mjög vaxandi ferða-
mannastraumur hefur verið
hingað, sérstaklega eftir gos, og
hefur ýmsum þótt á skorta í
skipulagi ferðamannaþjónustunn-
ar hér í bæ. Tilfinnanlegast hefur
mönnum þótt hvað flestir hinna
fjölmörgu erlendu túrista sem
hingað koma árlega stansa stutt
og skilja þar af leiðandi lítið eftir
síg.
Skriður komst á hugmyndina
um ferðaskrifstofu árið 1982 þegar
Arnar Sigurmundsson flutti til-
lögu þar um í bæjarstjórn en lítið
gerðist í málinu þar til i janúar í
vetur þegar 30 áhugamenn um
ferðamál komu saman til fundar
og kusu sérstaka undirbúnings-
stjórn i málið. Eftir mikið og
vandasamt undirbúningsstarf var
endanlega gengið frá stofnun
Ferðarskrifstofu Vestmannaeyja
hf. 4. mars sl. og eru nú tilskilin
leyfi komin innrömmuð upp á
vegg í hinum nýju húsakynnum og
starfsemin komin i fullan rekstur
eins og áður hefur komið fram hér
í Morgunblaðinu.
í stjórn Ferðaskrifstofu Vest-
mannaeyja eru: Andri Valur
Hrólfsson formaður, Kristmann
Karlsson og Engilbert Gíslason. t
varastjórn eru Pálmi Lórensson
og Bragi I. ólafsson og kjörnir
endurskoðendur ólafur Elisson og
Ólafur Gráns. Framkvæmdastjóri
FV er Engilbert Gislason og auk
hans starfar við fyrirtækið Ing-
veldur Gyða Kristinsdóttir sem
sölumaður. Hluthafar i FV eru 25
að tölu, fyrirtæki og einstaklingar.
— hkj.
Námskeiö
fyrir leiöbeinendur í almenningsíþróttum
veröur haldið dagana 10., 11., og 12. ágúst n.k. og
hefst kl. 18.00 í Kennaraháskóla íslands.
Kennari verður dr. Kenton Finanger prófessor við
Luther College í Bandaríkjunum.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu ÍSÍ sími 83259 fyrir
1. ágúst n.k., og eru nánari upplýsingar gefnar þar.
íþróttasambands íslands og
íþróttanefnd ríkisins.
VANTAR ÞIG
N0TAÐAN BÍL?
Hjá Heklu færðu óskir
þínar uppfylltar
□ Stóran bíl □ Lítinn bíl □ Fólksbíl
□ sendibíl □ Camlan bíl □ Nýlegan bíl
FLESTAR CERÐIR — ÝMSIR CREIÐSLUSKILMÁLAR
VERÐ VIÐ ALLRA HÆFI
hjTPTi
í NÝJA BÍLASALNUM
í HEKLUHÚSINU
[h]HEKIA
Laugavegi 170-172 Sír
HF
Sími 21240