Morgunblaðið - 28.07.1984, Page 18

Morgunblaðið - 28.07.1984, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984 Aldraðír þurfa líka athvarf Hve lengi geta aldraðir foreldrar með góðu móti haldið áfram að búa í skjóli barna sinna? Geta þrjár kynslóðir í raun og veru búið í sátt og samlyndi undir einu þaki? Hvenær má telja, að tími sé til kominn að aldrað fólk fari á elli- eða hjúkrunar- heimili? Um þessi og önnur álíka viðkvæm vandamál mannlegra samskipta er fjallað í þeirri grein, sem hér fer á eftir. Dr. Stanley Cath er yfirlæknir við stofnun, sem annast alhliða fjölskylduráðgjöf og meðferð félagslegra vandamála, en hún er rekin í Belmont í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum. Hann ræðir í þessari grein af mikilli hreinskilni um viðbrögð mið- aldra barna við þeim aðstæðum, sem oft á tíðum skapast, þegar aldraðir foreldrar þeirra þarfnast orðið umönnunar og marg- víslegrar aðstoðar. Hann segir frá því, á hvern hátt sé unnt að skera úr um, hvenær timi sé til kominn aö koma öldruðu foreldri fyrir á elli- heimili, og auk þess gefur dr. Cath mönnum ýmsar ábendingar um, hvað teljast megi gott elli- eða hjúkrunarheimili, hverjir þeir þættir eru, sem menn ættu alveg sérstaklega að gefa gaum að, áður en ákvörðun er tekin um það, hvar vista skuli gamalmenni til fram- búðar. Sp.: Dr. Cath, þegar því fólki fjölgar stöóugt, sem nær orðið 75 ára aldri eða meira, eru það þá ekki að verða sífellt fleiri miðaldra börn, sem lenda í þeirri aðstöðu að sjá sig beinlínis knúin til að taka endanlega ákvörðun um það, á hvern veg umönnun for- eldra þeirra skuli vera háttað? Sv.: Á þessu leikur ekki nokkur minnsti vafi. Eftir því sem hlut- fallið milli yngri manna og gam- alla hækkar þeim öldruðu í vil má alveg gera ráð fyrir því, að um það bil 25— 50 prósent allra þeirra sem ná 65 ára aldri eða meira, og þá alveg sérstaklega þeir, sem verða áttræðir eða komast nokkuð á níræðisaldurinn, verði annað- hvort algjörlega eða þá að minnsta kosti að nokkrum hluta upp á umönnun annarra og forsjá komnir. Hitt má svo reyndar líka telja athyglisvert, að það eru einungis um það bil 5—10 prósent allra aldraðra, sem hafna á hjúkrunar- heimilum sökum þess, sem oftast er í daglegu máli kallað kölkun, eða svo nákvæmar sé til orða tek- ið: viðvarandi truflanir á heila- boðum, þ.e. andleg hrörnun og elli- sljóleiki. Um það bil hálft prósent heildaríbúatölu landsins hjarir við slíkar aðstæður, og er meðalaldur þessa fólks um 82 ár. Það eru því um það bil nítuíu af hundraði þeirra, sem náð hafa 65 ára aldri eða eru þaðan af eldri í þjóðfélaginu, og af þessu fólki verður verulegur hluti að treysta að nokkru eða að öllu leyti á hjálp vina sinna eða ættingja. Mikiö um aö einstakl- ingar aöstoöi aldraöa í kyrrþey Það fara að vísu ekki miklar fréttir af því, en staðreyndin er þó sú, að mjög margt miðaldra fólk eða aldraðir annast í kyrrþey að nokkru leyti um sér eldra fólk, sem býr í næsta nágrenni. Þessi hjálp einstaklinga felst í því að mata öldunga og klæða þá, hjálpa til við að halda hreinu og snyrti- legu í kringum þá, annast innkaup fyrir þá eða jafnvel að baða hina öldruðu. Sp.: Hverjar má þá telja helstu vís- bendingarnar um, að aldrað fólk sé tekið að tapa hæfileik- anum til þess að búa út af fyrir sig, og sjá um sig sjálft? Sv.: Auk vaxandi minnisleysis, aukins sljóleika eða þegar aldraðir eru jafnvel farnir að tapa áttum og eiga erfitt með að rata um sitt nánasta umhverfi; þegar það reyn- ist orðið vandkvæðum bundið fyrir þá að nema og tileinka sér á eðlilegan hátt það, sem fyrir augu og eyru ber, og þegar öldruðum hættir orðið til að lenda í ákafri geðshræringu af minnsta tilefni, þá getur líka komið til alvarleg einkenni líkamlegrar fötlunar af völdum gigtarsjúkdóma, langtíma endurhæfing eftir sjúkdóma eða slys, lömun af völdum heilablóð- falls og loks má nefna vaxandi heyrnarleysi eða sjóndepru. Þá koma líka oft á tíðum til enn aðrir þættir, tilfinningalegs eðlis eða af fjárhagslegum, staðbundn- um og félagslegum toga spunnum, alveg sérstaklega hvað snertir ekkjur eða ekkjumenn. Við dauoa maka kann nefnilega að vakna upp á nýjan leik viss óttatilfinn- ing frá bernskuárunum með eldra fólki; þar má sérstaklega nefna skyndilegan ótta við að þurfa að vera einn. Það er algengt meðal fólks á áttræðis- eða níræðisaldr- inum, sem að öllu öðru leyti held- ur fullkomlega geðheilsu sinni og sálarkröftum, en fer allt í einu að sýna ummerki slíks ótta. Þetta getur meðal annars komið fram í því, að svo virðist sem þetta fólk verði ófært um að muna lengur atvik og hluti og geti einfaldlega ekki séð um sig sjálft og það af einskærum ótta, sem það er grip- ið. Ástand af þessu tagi getur svo orðið ættingjum viðkomandi gam- almennis ærið áhyggjuefni, þegar daglegt líf þeirra verður fyrir truflunum, til dæmis af sífelldum símhringingum um hánótt eða þá öðru áþekku ónæði af hálfu hins aldraða. Við slíku sálarástandi hjá öldr- uðu fólki er hins vegar til læknis- fræðileg meðferð, sem bætir oftast úr þessum vandkvæðum. Æskilegast, aÖ aldraðir búi á sínum eigin heimilum Sp.: En getur þá aldrað fólk í raun og veru búið eitt út af fyrir sig, jafnvel þótt það eigi við ein- hverja þess háttar erfíðleika og vandkvæði að stríða? Sv.: Vissulega, en þá verður líka að ganga út frá því sem vísu, að þetta aldraða fólk njóti raunverulega vissrar bráðnauðsynlegrar aðstoð- ar og þjónustu. Mjög margt aldrað fólk getur lagt mikið af mörkum til fjölskyldulifsins og gegnt þar veigamiklu hlutverki, ef hægt er að veita því andlega hressingu og endurnæringu við og við. En það eru hins vegar hin mannlegu samskipti, sem eru meginmálið. Reglubundnar heim- sóknir fólks, sem hinir öldruðu treysta vel og eru þeim til uppörv- unar, geta oft á tíðum verið þeim nægileg stoð til þess að hinum öldruðu finnist, að þeir geti vel bú- ið út af fyrir sig á sínum eigin heimilum, og það þótt sumt aldrað fólk þarfnist þar viss eftirlits hjúkrunarfræðings og eins lyfja- meðferðar. Sp.: Hvers konar þjónusta við aldr- aða er helst fyrir hendi í sveit- arfélögum víðs vegar um landið í því skyni að gera öldruðum kleift að búa áfram á heimilum sínum? Sv.: Auk þeirrar þjónustu við aldr- aða, sem hefðbundin samtök sjálf- boðaliða inna af hendi, eins og til dæmis á vegum kirkjunnar, hefur víða verið komið á fót stofnunum af hálfu bæjarfélaganna til að veita öldruðum fasta heimilisað- stoð og umönnun i heimahúsum; verður þetta að teljast mjög þýð- ingarmikið atriði í félagslegum skilningi. Þá eru einnig fyrir hendi margs konar þjónustustofn- anir, bæði á vegum hins opinbera og einnig einkafyrirtæki, þar sem hinir öldruðu geta fengið aðstoð við að matreiða heima hjá sér eða aðstoð við þrif og meiri háttar hreingerningar, sendiferðir og þess háttar. Þessi ráðgjafar- og meðferðar- stofnun okkar á sviði félagsmála hér i Belmont annast reglulegar heimsóknir og aðstoð við aldraða, og er einnig ætluð til hjálpar mið- aldra fólki við að meta réttilega og ráða fram úr ýmsum flóknum vandamálum í sambandi við aldr- að fólk, sem það hefur í sinni um- sjá. Þarna getur verið um spurn- ingar að ræða eins og til dæmis, hvenær sé rétt að grípa inn í, hvenær ekki; hvernig hjálpa eigi aldtaðri móður eða öldruðum föð- ur tiÁ að lifa áfram sjálfstæðu, óháðu lífi, fremur en að losa þau undan þeirri ábyrgð; hvenær veita eigi öldruðum vissa aðstoð í heimahúsum, hvenær heppilegast sé að koma þeim fyrir á hjúkrun- arheimili. Áþekka þjónustu og þá, sem við veitum hérna, er nú víða að finna hér í Bandaríkjunum. Sp.: Að hve miklu leyti geta aldraðir fengið nauðsynlegustu læknis- hjálp í heimahúsum? Sv.: Það er hægt að fá slíka hjálp í heimahúsum, en það eru hins veg- ar ekki alltaf læknar, sem annast hana. Þetta á alveg sérstaklega við um fátækrahverfi stórborg- anna, enda þótt sumir heimilis- læknar fari ennþá í sjúkravitjanir heim til fólks. Það færist hins veg- ar stöðugt í vöxt um allt land, að aldraðir leiti sér læknishjálpar hjá neyðarvökt.um sjúkrahúsanna eða á slysavarðstofum. Þegar kraftarnir þverra Sp.: Er hægt að segja. að til séu ein- hver viss mörk, sem gefí greini- lega til kynna, að það sé bein- línis orðið hættulegt fyrir aldr- aða manneskju að búa lengur út af fyrir sig? Sv.: Já; á heimilum aldraðra rek- umst við iðulega á mjög svo greinileg ummerki algjörs van- máttar viðkomandi, ellihrörnunar, sem gerir það alveg óhjákvæmi- legt, að þegar í stað sé gripið í taumana: Brunnar eldhúsþurrkur rétt við eldavélina, tómur ísskápur eða þá skemmdur matur í kæli- skáp. Þá kemur oft í ljós, að hinn aldraði hefur mörgum sinnum orðið fyrir því að detta kylliflatur á gólfinu heima hjá sér eða hefur ekki lengur fulla stjórn á þvag- og saurláti sínu, er farinn að fá legu- sár eða orðinn ófær um að bera kennsl á sín eigin börn og vina- fólk; er jafnvel farinn að gleyma að borða. Sp.: f þeim tilvikum, þcgar aldraðir foreldrar verða að flytjast frá heimilum sínum, er ástæðan þá oftar líkamleg eða geðræn hrörnun, freraur en fjárhagsleg- ir erfíðleikar? Sv.: Já. Það eru yfirleitt ekki fjár- hagsleg vandræði, sem valda því, að aldrað fólk getur ekki lengur haldið áfram að búa á heimili sínu. Það eru oftar nánustu að- standendur hins aldraða, sem ekki vilja lengur taka því með þegjandi þögninni, hve gáleysislega gamal- mennið er tekið að fara með eld, hve lítt háaldrað foreldri skeytir orðið um að halda sér snyrtilegu, er farið að vera sífellt á ferli að næturþeli en sofa á daginn eða hefur orðið ekki fulla stjórn á þvagláti sínu og hægðum. Maður getur komið i heimsókn til aldraðrar móður sinnar um helgi og sýnst hún vera að öllu leyti við eðlilega heilsu, hún getur verið glöð og hress í bragði, full sjálfstrausts og að því er virðist fullfær um að sjá um sig sjálf, en bara orðin svólítið gleymin eða komið eins og eitthvað rjátl á hana. En svo um þrjú- eða fjögur- leytið næsta morgun, en það virð- ist vera sá tími sólarhringsins, sem er mönnum erfiðastur að þessu leyti, þá hringir skyndilega síminn hjá manni: „Jæja, hvenær eigum við þá að leggja af stað? Þú áttir að koma og ná i mig til að fara með mig á hárgreiðslustof- una, þar sem ég á pantaðan tíma.“ Þegar eitthvað þessu líkt hefur endurtekið sig nægilega oft, fara aðstandendur hins aldraða jafnan að taka til sinna ráða. Sú systirin, sem býr í Detroit, hringir í þá systur, sem býr í De Moines og báðar tvær flýta sér norður til Boston til þess að hitta móður sína. Þegar þangað er komið, er eins líklegt, að þær skeri úr um, að gamla konan geti ekki lengur búið ein og út af fyrir sig. Margs ber að gæta Sp.: Hver eru helstu atriðin, sem fólk ætti að hafa í huga, áður en tekin er ákvörðun um, að aldr- að foreldri flytjist inn á heimili sonar síns eða dóttur sinnar? Sv.: Fólk verður að gera sér grein fyrir því, hversu mikið umburðar- lyndi það raunverulega hafi til að bera, þegar þrjár kynslóðir eiga að búa saman undir einu þaki, og svo verða menn að spyrja: Á húsmóð- urinni á heimilinu eftir að lynda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.