Morgunblaðið - 28.07.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.07.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 1984 19 við viðkomandi gamalmenni, sem flytur inn á heimilið? Þrátt fyrir allar þær breytingar, sem orðið hafa á stöðu kvenna á seinni ár- um, þá eru það samt í 90% tilvika einmitt konurnar, sem aðallega munu annast gamalmenni á heim- ilinu. Eru þær færar um að taka því með jafnaðargeði, þegar faðir eða móðir húsfreyju eða húsbónda taka upp á því að vakna skelfingu lostin um hánótt, eða gamalmenni setur allt á annan endann við mat- borðið eða tekur upp á því að fara að segja barnabörnunum skringi- legar sögur af foreldrum þeirra, þegar þeir voru smábðrn? Sp.: Er um einhver sérstök vanda- má! að ræða, sem snerta alla aðila, þegar aldrað foreldri flyt- ur inn til barnanna sinna? Sv.: Sé um aldraða ömmu að ræða, sem flytur inn á heimili sonar síns eða dóttur, þá kann svo að fara, að sjálf húsmóðirin þurfi að eftirláta ömmunni vissan hluta húsmóður- sviðs síns eða ákveðinn hluta heimilisins. í löndum, eins og Kína og Rússlandi, er litið á slíka tilhögun sem nánast sjálfsagðan hlut, en konur á Vesturlöndum eiga ekki eins auðvelt með að sætta sig við slíkt fyrirkomulag á heimilum sínum. En eftir því sem fleiri bandarískar konur eru tekn- ar að stunda vinnu utan heimilis- ins, kann vel að vera að fleiri kon- ur sætti sig fullkomlega við að veita afa eða ömmu aukið valdsvið innan heimilisins, sérstaklega að þvi er varðar barnauppeldið. En á mörgum heimilum eru uppi harð- vítugar deilur um það, á hvern hátt eigi að haga uppeldi barn- anna eða þá hvernig eigi að verja þeim fjármunum, sem ætlaðir eru til heimilisþarfa og svo framvegis. Stundum kemur það fyrir, að afinn eða amman ætla sér að koma á bandalagi við barnabörn- in, sem stefnt er gegn foreldrun- um. Það bakar þeim foreldrum, sem fyrir slíkum samblæstri verða, oft miklum sársauka að verða þannig eins og milli steins og sleggju á sínu eigin heimili, á milli uppreisnargjarna barna og aldraðs foreldris, sem vegna ein- hverra fornra væringa ætlar sér að sýna viðkomandi á þennan hátt ærlega í tvo heimana. Svo getur það vitanlega líka komið fyrir, að uppi verði ákafar deilur út af ráðstöfunum á eignum aldraðs foreldris. Sp.: Hverjir eru þá kostirnir við að láta aldrað foreldri flytja inn á heimili sonar eða dóttur? Sv.: Það er einmitt fyllsta ástæða til að undirstrika það, hvernig aldraðir móður- eða föðurforeldr- ar geta auðgað fjölskyldulífið og gefið því aukið inntak. Afinn og amman ganga sjálf oft í endurnýj- un lífdaganna, þegar þau hafa þannig komist í öllu nánara sam- band við barnabörnin sín, en börn og unglingar vekja iðulega nýjar vonir og nýja trú á framtíðina í brjóstum aldraðra. Afi eða amma eru hins vegar í augum barnabarnanna afar mikil- vægur tengiliður við fortíðina. Þegar fólk eldist vel og öðlast virðuleika ellinnar, gerist það oft umburðarlyndara gagnvart ung- viðinu, sem er að slíta barnsskón- um og er oft heldur galgopalegt í háttum, einkum er þó barnabörn- unum fyrirgefið margt. Hinir öldruðu sýna þannig barnabörn- um sínum og yfirsjónum þeirra oft á tíðum mun meira umburðar- lyndi heldur en þeir sýndu sínum eigin börnum og brekum þeirra hér áður fyrr á árunum. Vistun á elli- eða hjúkrunarheimili Foreldrar, sem komnir eru á miðjan aldur, gefa börnum sínum líka gott fordæmi, þegar þeir sýna öldruðu foreldri sínu, sem býr á heimili þeirra, ástúð, kærleika og umhyggju; á þann hátt kenna for- eldrar börnunum sínum að sýna þeim alúð og tillitssemi, sem ekki eru lengur í fullu fjöri og komnir fremur á fallanda fót, og þetta sé sá æviþáttur, sem hver og einn fái að reyna, nái hann (eða hún) há- um aldri. Aldrað fólk við sæmilega lík- amlega heilsu ætti þá líka að geta tekið ofurlítið til hendinni við dagleg störf á heimilinu og létt þannig undir, enda veitir vinnan þeim aukna hlutdeild í fjölskyldu- lífinu og eflir sjálfsvirðingu þeirra. Sp.: Eru fjölskyldur oft á tíðum of fljótar á sér að senda aldraða foreldra á hjúkrunarheimili? Sv.: Að því er ég best þekki til af langri reynslu minni í þessum málum, er þessu yfirleitt ekki þannig varið. Það er altítt, að full- orðin börn lofi foreldrum sínum því hátíðlega að senda þá aldrei frá sér á hjúkrunarheimili. Flestir eiga síðar eftir að naga sig í hand- arbökin fyrir að hafa tekið sllka ákvörðun. Ég man eftir tilviki, þar sem ég hafði mælt með því við fjölskyldu eina í janúarmánuði, að hún sendi afann á heimilinu, sem orðinn var illa haldinn af lömun eftir alvarlegt heilablóðfall og sýndi sívaxandi merki andlegrar hrörnunar, á hjúkrunarheimili, en það var svo ekki fyrr en í júní það ár, að þessi fjölskylda hafði sig loksins í að koma þessari vistun gamla mannsins á góðu hjúkrun- arheimili í kring. Mér finnst þetta mjög svo einkennandi fyrir af- stöðu margra. Um það bil níutíu af hundraði af því aldraða fólki, sem við fylgjumst með nokkru með hér á stöðinni, hefur réttilega verið vistað á hjúkrunarheimilum, en venjan er þó sú, að það sé ekki gert, fyrr en nánustu aðstandend- ur hafa gert allt, sem í þeirra valdi stóð til að þurfa ekki að láta aldrað foreldri frá sér fara. Sp.: Hvernig getur fólk best dæmt um það, hvort elli- eöa hjúkrun- arheimili sé verulega góð stofn- un? Sv.: Menn ættu að hitta einhvern að máli, sem á náinn ættingja á viðkomandi heimili. Svo á líka að skoða eldhúsið á elli- eða hjúkrun- arheimilinu, og það þarf að hafa tal af félagsráðgjöfum, sem starfa á stofnuninni. Þá þurfa menn að hafa í huga, að aldraðir þurfa á margs konar læknishjálp og ná- kvæmri hjúkrun að halda, þannig að það skiptir máli, hvernig hátt- að er læknisþjónustu á viðkom- andi heimili, og hvort nægilega margt þjálfað hjúkrunarfólk sé þar starfandi. Það gefur alltaf besta raun, þegar hjúkrunarheim- ili hefur á að skipa fastráðnu liði lækna og hjúkrunarfólks, sem er vel samhent og kanna vel til sinna verka, af því að aldraðir eiga oft við margs konar kvilla að stríða samtímis. Sp.: Hve há er undraðstala þeirra starfandi elli- og hjúkrunar- heimila, sem kallast geta virki- lega góðar, öruggar og vistlegar stofnanir? Sv.: Ég myndi segja svona um það bil 80% þeirra heimila, sem starf- rækt eru í þessu skyni. Eins og raunar er hægt að segja um allan áþekkan rekstur, er oftast um góða viðleitni að ræða til að gera vel, þótt sú virðingarverða við- leitni beri hins vegar ekki alltaf árangur sem skyldi. Við höfum hér I Bandaríkjunum bestu elli- og hjúkrunarheimili í heimi, en mörg þeirra eiga þó við ýmiss konar vandamál að stríða. Enda þótt rekstur elli- og hjúkrunarheimila sé feikilega arðvænleg starfsemi, halda sumir forstjórar slíkra heimila því samt fram, að stofn- anir þeirra hafi ekki efni á því að framkvæma ýmsar þýðingarmikl- ar endurbætur, sem oft eru orðnar mjög aökallandi. Ég á oft mjög erfitt með að fallast á siík rök. Sp.: Hvað er hægt að gera til að auð- velda öldruðu fólki að venjast þeirri breytingu, sem verður á högum þess, þegar það er vistað á elli- eða hjúkrunarheimili? Sv.: Þetta er einmitt mjög þýð- ingarmikið atriði, sem aðstand- endur þurfa alltaf að gefa gaum, af því að mörgu öldruðu fólki finnst það fyrst í stað vera skilið eftir eitt og yfirgefið, líkt og því hafi verið ýtt til hliðar fyrir fullt og allt. Það er mjög mikilvægt, að hinn aldraði sé fyrst búinn undir þær breytingar, sem eiga eftir að verða á högum hans. Það ætti að lýsa hjúkrunarheimili í áheyrn allrar fjölskyldunnar og auðvitað í áheyrn hins aldraða sem mjög gagnlegum og hentugum stað fyrir fólk, sem þarfnast þess að hafa stöðugt einhvern til að líta til með sér, einhvers, sem alltaf er á næsta leiti. Og svo skiptir það auðvitað höfuðmáli, að börn hins aldraða og barnabörnin komi stöð- ugt í lengri eða skemmri heim- sóknir til vistmannsins. Sp.: Hvað er algengasta daggjaldiö, sem fólk þarf ad greiða fyrir elli- eða hjúkrunarheimili? Sv.: Verðið getur verið þetta frá 28 til 35 dollarar á dag (þ.e. 780—980 ísl. kr.) fyrir aldraða manneskju, sem ekki þarf sérstaka umönnun eða hjúkrun sérþjálfaðs hjúkrun- arfólks, og svo getur daggjaldið farið allt upp í 125 dollara (3.500 ísl. kr.) fyrir aldraðan sjúkling, sem þarfnast mikillar umönnunar hjúkrunarfólks. Það skiptir því miklu máli, að öll sjúkdómsgrein- ing á hinum aldraða hafi verð vel og samviskusamlega af hendi leyst, svo að ekki sé verið að leggja fólk inn á hjúkrunarheimili að óþörfu. Þá þarf jafnvel að gæta þess, að ekki sé beinlinis verið að færa sér í nyt þá sektarkennd, sem aðstandendur aldraðs foreldris kunna að vera haldnir yfir því að þurfa að láta leggja hinn aldraða inn á hjúkrunarheimili eða vista á elliheimili, sem gæti leitt til þess að fjölskyldan sé t.d. látin borga dýrum dómum fyrir læknis- og hjúkrunarþjónustu, sem hinn aldraði í raun og veru alls ekki þarfnast. Lisle- bréfin Erlendar bækur Sigurlaugur Brynleifsson The Lisle-Letters. An Abridge- ment edited by Muriel St. Clare Byrne. Selected and Arranged by Bridget Boland. Foreword by Hugh Trevor-Roper. Secker & Warburg — The University of Chicago Press 1983. „Sagnfræðingurinn á að lesa frumheimildir hvers tíma, þar til hann heyrir fólkið tala.“ Þetta er góð regla um þá tima sem nægar heimildir eru til um, bæði opin- berar heimildir og einkaheimildir. Verra er að fást við tímabil, þegar heimildir eru af skornum skammti. Einkaheimildir eru eðli- lega gagnlegar og veita skýrari innsýn í tímabilið en opinberar heimildir og um þær má stundum heyra á tal þeirrar tíðar manna. Paston-bréfin frá 15. öld veita þannig innsýn i öld Rósastríðanna og þessi bréf, Lile-bréfin, eru enn betri heimildir og þá um 16. öldina öndverða, tíma Hinriks VIII og siðaskiptatímana. Þetta tímabil sem bréfin spanna, 1533—40, ein- kenndust af terrorisma stjórn- valda, tengslin við Róm voru slit- in, konungur skipaði sjálfan sig yfirmann kirkjunnar, klaustrin voru lögð niður og eignir þeirra gerðar upptækar, ríkisvaldið var styrkt og allir þeir sem mögluðu voru miskunnarlaust teknir af lífi. Svik, lygi og græðgi einkenndu samskipti manna í ríkara mæli en áður hafði verið og yfir þessu öllu gein sá sárasjúki Hinrik VIII. Það fór svo að þeir margir hverjir sem ákafastir voru í ofsóknaræðinu gegn kaþólikkum fóru sömu leið og fórnardýr þeirra, á höggstokk- inn. Það sannaðist sem oftar „að byltingin etur börnin sín“. Því þessar aðgerðir Hinriks VIII voru bylting. Þessi bréf hafa lengi verið kunn og ýmsir sagnfræðingar hafa not- að þau sem heimildir frá þessum árum, eða hluta þeirra. En það var Miss Byrne sem fyrst sá að þessi bréf voru heild, og sem slík höfðu þau geysilegt gildi sem heimild um lifnaðarhætti, fjölskyldutengsl og hag og pólitíska sögu tímabils- ins. Bréfin kasta skæru ljósi á líf þessa fólks fyrir 450 árum. Útgef- andinn, Miss Byrne, notaði % hluta safnsins, skrifaði bréfin upp og flokkaði þau og raðaði. Hún vann við þetta um fjörutíu ára skeið og með hinum næma sögu- lega skilningi og þekkingu á tfma- bilinu tókst henni að endurvekja og blása lífi í fjölmargar persónur og tímaskeið, sem er nú fyrir hennar tilverknað risið upp og lif- ir sínu lífi á þessum blaðsiðum. Miss Byrne notaði 1900 bréf til þessa verks, sem kom út hjá Uni- versity of Chicago Press á 86. af- mælisdegi Miss Byrne í maí 1981. Útgefandinn gefur bréfin út með ítarlegum athugasemdum. Þetta urðu sex bindi og útgáfan er dæmi um hvernig best verður gengið frá merkum heimildarritum. Þessi út- gáfa er úrval frumútgáfunnar, og hefur vinkona útgefandans séð um valið. Þessum bréfum var upphaflega safnað saman sem sönnunargögn- um í ákæru á hendur Arthur Plantagenet, Lisle lávarðar, fyrir drottinssvik á dögum Hinriks VIII. Bréfin voru rituð á árunum 1533—40 og meðan Lisle lávarður hafði aðsetur f Calais sem stjórn- sýslumaður þar og þurfti því að hafa stöðug bréfaskipti við fólk sitt og umboðsmenn á Englandi. Hér segir frá skólagöngu barn- anna, rekstri búa lávarðarins, inn- heimtu landsskulda, málastappi og ráðstöfunum margvfslegum f sambandi við öflun ýmiskonar nauðsynja. Þetta úrval er ágætur inngang- ur að heildarsafninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.