Morgunblaðið - 28.07.1984, Side 22

Morgunblaðið - 28.07.1984, Side 22
22 Mexíkó: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLl 1984 Ný ráðstefna um fólksfjölgun Sex milljarðar jarðarbúa árið 2000 Mexfkóborg, 27. júlí. AP. FULLTRÚAR rúmlega 150 þjóða munu koma saman á ráðstefnu í Mexíkóborg í næsta mánuði til þess að ræða fólksfjölgun í heiminum. Ráðstefnan verður haldin að frumkvæði Sameinuðu þjóð- anna, sem einnig skipulögðu ráðstefnu um þetta mál fyrir tíu árum. Komið hefur fram að íbúar jarðar muni verða sex milljarðar árið 2000 og gefur auga leið, að vandinn sem við er að etja vegna þessa er mik- ■II. einkum í löndum þriðja heimsins. Framkvæmdastjóri ráðstefn- unnar, Rafel M. Salas, sagði að menn gerðu sér nú langtum betri og gleggri grein fyrir þess- um vanda en fyrir tíu árum og á síðustu tíu árum hefur dregið úr fólksfjölgun, frá því að vera um 2 prósent á ári í 1,7 prósent nú. Salas sagði þó, að þetta segði ekki alla söguna, vegna þess að einkum hefði dregið úr fólks- fjölgun í þeim löndum, þar sem iðnvæðing og velmegun væri mest. Einnig hefði dregið úr fólksfjölgun í Kína og örfáum þróunarlöndum. Salas sagði að í Kína hefði fólksfjöldi nánast staðið í stað síðustu tíu ár vegna aðgerða og tilmæla stjórnvalda um að hjón eignuðust ekki fleiri en eitt barn en til skamms tíma hefði það verið algengt að kín- versk hjón eignuðust fleiri en tíu börn. Árið 1950 voru aðeins 11 borg- ir í heiminum með 4 milljónir íbúa eða fleiri, en voru 38 árið 1980. Árið 2000 er búizt við að 66 borgir verði með 4 milljónir íbúa eða fleiri, þar af 50 þeirra í löndum þriðja heimsins. í skýrslu sem undirbúningsnefnd ráðstefnunnar hefur tekið sam- an segir að mannfjölgun á ári í heiminum sé nú um 78 milljónir en muni sennilega fara mest í 89 milljónir. Farah Dibah Pahlavi keisaraynja, ekkja transkeisara, virðir fyrir sér hús það í Williamstown í Massachusetts, sem hún hefur búið í ásamt börnum sínum fjórum undanfarin fjögur ár, eða síðan þau fóru í útiegð. Fjölskyldan áformar nú að flytjast til Greenwich í ConnecticuL Nígeríumenn vilja ná sáttum við Breta Nýja-Sjáland: Nýja stjórn- in tekin við Wellington, Nýjn HjáUndi, 26. jnlf. AP. NÝKJÖRIN ríkisstjórn Verkamannaflokksins tók við af stjórn Roberts Muldoons i dag, tveimur vikum eftir að flokkurinn vann stórsigur í þingkosningunum. Muldoon og ráðuneyti hans af- hentu afsagnarbeiðni sína snemma á fimmtudag og voru David Lange og 19 ráðherrar hans svarnir i embætti á eftir. Lange stjórnin hefur heitið því að bæta efnahagsástand í landinu, með því að draga úr atvinnuleysi, minnka erlendar skuldir og koma á samvinnu milli iðnaðar og versl- unar til að auka framleiðslugetu. Einnig er búist við að Lange banni heimsóknir bandariskra herskipa sem eru kjarnorkuknúin, eða bera kjarnorkuvopn og jafnvel að hann banni heimsóknir allra herskipa frá Bandaríkjunum, ef stjórnin heldur áfram að neita að gefa upp hvort kjarnorkuvopn séu um borð. London, 27. jólf. AP. LEIÐTOGI byltingarstjórnar Nígeríu Muhammadu Buhari sagði í dag, að hann vonaðist eindregið til að ágreiningur við Breta vegna Dikkó- málsins, yrði leiddur til lykta farsællega og sambúð ríkj- anna kæmist í eðlilegt horf á ný enda væri báðum aðilum það áhyggjuefni hversu stirt væri nú milli þessara vina- þjóða. Brezka útvarpið sagði í frétt í morgun, að nígeríska stjórnin hefði sent frá sér ítarlega frétt um þetta þar sem vitnað væri í ofangreind orð Buharis og tek- ið fram að hann hefði tjáð erkibiskupnum af Kantara- borg, Robert Runcie, sem er í Nígeríu, að hann væri mjög áfjáður í að málið yrði leyst með friði og í bróðerni. Runcie Ungverjaland biðlar til þeirra sem stofna vilja leynireikninga Kftir Oidier Pouqoeui, fréturitara AFP I Vfn. VIÐ VORUM í þann veginn að Ijúka við aðra ölkolluna, ég og bæverski verkfræðingurinn, á barnum í lestinni. Vorum að koma frá Búdapest. „Okkar á milli sagt,“ sagði hann. „Þús- undir Vesturlandabúa leggja erlendan gjaldeyri inn á banka í Búdapest. Ég bæti alltaf nokkrum mörkum við í bankanum mínum, þegar ég á ieið hér um. Þetta er besta fjárfesting, sem mér er kunnugt um.“ Það var enn eftir u.þ.b. þriggja klukkutíma ferð til Vínar, svo að ég bað hann að segja mér fleira. „Þetta er eins og í Sviss,” sagði hann, „leynilegir spari- fjárreikningar. Maður skrifar bara undir og er einskis spurð- ur, ekki einu sinni um nafn eða heimilisfang.“ Ég spurði um vextina. „Þeir eru misjafnlega háir,“ svaraði Bæjarinn, „en það er hægt að fá allt að 13 prósent vexti fyrir dollara, ef innstæð- an er bundin í eitt ár.“ Ég hafði heyrt það í Búda- pest, að það væru fleiri en ítalskir mafíuforingjar, sem ættu leynireikninga í Ung- verjalandi. Þetta væri opin leið til að gera „óhreina" pen- inga „hreina". Fyrir venjulegt dauðlegt fólk er aðalfreistingin við Búdapest sú, að þar er hægt að sniðganga allar gjaldeyrisregl- ur, sem gilda heima fyrir. Þrjár virðulegar peninga- stofnanir í Búdapest hafa rauða teppið til reiðu fyrir þá sem stofna vilja leynireikn- inga: National Savings Bank, Foreign Trade Bank og Hung- arian National Bank. Ungverjaland hefur það orð á sér að vera fúsast komm- únistaríkjanna til að skipta við Vesturveldin. Bankafulltrúi nokkur í Búdapest sagði við mig: „Vin- sældir leynireikninganna hjá okkur sýna glögglega það traust, sem ungverskur efna- hagur nýtur erlendis." En vestrænn bankamaður sagði: „Ungverjaland er ekkert Sviss ennþá. Og það er alls ekki mikið um svona reikn- inga. Ef átök yrðu milli aust- urs og vesturs, þá gæti Ung- verjaland ekki verið hlutlaust, á sama hátt og Sviss. Hvernig ættu eigendur leynireikning- anna þá að nálgast peninga sína?“ Hann benti einnig á, að leyniþjónustumenn fyrir aust- an kynnu að notfæra sér vitn- eskju um inneignir þar til þvingunaraðgerða gagnvart eigendum reikninganna. En ungverska bankakerfið segist sjá við slíku. „Þeir standa ekki leyniþjónustu- mönnum okkar á sporði," sagði bankafulltrúinn í Búdapest. Mohammed Buhari hershöfðingi tal- aði við Runcie erkibiskup á kirkju- þingi í Lagos. er á kirkjuþingi í Lagos, en hann hefur einnig rætt við ráðamenn um ágreininginn milli landanna. í yfirlýsingu stjórnar Níg- eríu endurtekur Buhari fyrri staðhæfingar um að stjórn hans hafi hvergi komið nálægt því að reyna að ræna Dikkó þann 5. júlí sl. Bretar hafa rekið tvo dipló- mata frá Nígeríu úr landi og Howe utanríkisráðherra hefur sagt að það væri „óheppilegt" að Haldu Hananiya sendiherra Nígeríu í London kæmi aftur til Englands að sinni. Nígeríu- menn svöruðu með því að reka tvo brezka diplómata frá Lag- os og kröföust þess að Bretar kölluðu heim sendiherra sinn. Dularfullir heila- sjúkdómar finnast Bar lUrbour, Maine. 26. Júlí. AP. Sérfræðingar sem rannsakað hafa sérstaka tegund hæg- verkandi vírusa sem valda hrörn- unarsjúkdómum í heila og leiða ávallt til dauða, hafa fundið mjög svipaðan vírussjúkdóm í rann- sóknarstofumúsum. Er þar með talið að fyrsta skrefið hafí verið stigið í þá átt að fínna lækningu á þessum dularfullu heilasjúkdóm- um. Vírusar þeir sem um ræðir eru taldir búa í líkamanum jafnvel árum saman áður en þeir taka til starfa og valda ólæknandi heila- rýrnun. Um nokkur afbrigði er að ræða, en kunnastur er svokallað- ur Creutzfeld-Jacob-sjúkdómur. Sérfræðingar í Bar Harbour- rannsóknarstofunni fengu pata af því að nokkrar af músum þeirra væru haldnar sams konar heilarýrnun og var þá fylgst grannt með þeim. Ekki er vitað hvað ýtir virusunum af stað í lík- amanum og enn síður vitað hvernig þeir eru þangað komnir. Heilar veiku músanna voru stappaðir saman og nokkrar heil- brigðar mýs sprautaðar með efn- inu. Eftir 24 mánuði voru sjö mýs rannsakaðar og reyndust þær þá allar haldnar heilarýrnum af völdum hægvirkandi vírusa. Heil- ar fórnarlamba þessa sjúkdóma verða „eins og svampar" eins og talsmaður vísindamannanna í Bar Harbour komst að orði. Tals- maðurinn, Richard Sidman, sagði að stigið hefði verið mikilvægt skref í þá átt að skilja betur eðli hinna hægvirkandi vírusa og það myndi í framtíðinni hjálpa til við að greina sjúkdómanna og leita lækningar við þeim. Norskir hvalfangarar: 70 þús. n.kr. trygging fyrir tvær vikur Ófllé, 26. jílf. Fri J»n Erik Uure, frétUriUra Mbl. BORIST hafa fregnir af mikilli hvala- gengd við Austur-Grsnland. Einn af norsku bátunum fimm, sem hvalveiðar stunda á þessum slóðum, landaði nýlega 46 tonnum. Á hverjum bát eru sex manns og nemur kauptrygging þeirra 70.000 norskum krónum á mann. Veiði- tímabilið stendur aðeins í tvær vik- ur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.