Morgunblaðið - 28.07.1984, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚLl 1984
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
ci, TIL FÖSTUDAGS
Fögnum vistgötunni
Sveinn skrifar:
Vinur minn Velvakandi.
Nú kumrar í mér kætin, við að
fylgjast með þróun lifnandi götu-
menningar, í okkar fögru borg.
Sölutjöldin í Austurstræti setja
skemmtilegan svip á bæinn og
uppákomur ýmsar úti við, þá helst
í þau fáu, dýrmætu skipti, þegar
veður leyfir.
Misjafnlega misskildir lista-
menn iðka listir sínar og fá stund-
um silfur í þvældan hattkúf fyrir,
eins og tíðkast í borgum hámenn-
ingar. Leiðist mér þegar kok-
hraustir lögreglumenn okkar eru
að stugga við þessu fólki, sem
sjaldnast er með ósóma eða til
ama.
Fögnum tilvist vistgötunnar,
Þórsgötu, og verum samtaka um
að þar megi verða fróm viðbót
götulífs í bænum sem þegar er í
blómlegri framrás. Eitthvað hafa
framkvæmdir hökt við götuna, en
langeygir sem aðrir, lofum þetta
framtak fegrunar- og framafor-
kólfa borgarinnar.
Bréfritara er það gleðiefni að fylgj-
ast með lifandi götumenningu í
Reykjavík og hvetur hann lesendur
til að fagna vistgötunni Þórsgötu.
Þessir hringdu . .
Sem flakandi sár
M.A. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
— Eitt er það svæði hér í
Reykjavík sem ég ber ákaflega
mikið fyrir brjósti. Það er svæð-
ið norðan Stekkjarbakka í Breið-
holti, sem er eins og flakandi sár
fyrir augunum á mér og fleirum,
dag hvern.
Alls kyns drasli og óþverra er
sturtað á þetta svæði, öllum til
ómældra leiðinda, sem í hverfinu
búa. Langar mig í þessu sam-
bandi að leggja hér eina fyrir-
spurn fyrir borgarstjórann, Dav-
íð Oddsson:
Væri ekki hægt að efna til
samkeppni um það hvernig hægt
væri að fegra þennan stað á sem
bestan hátt, svo íbúar nærliggj-
andi húsa losni við að horfa upp
á óþverrann sem ber fyrir augu
dag hvern?
Við stokkinn
F.K. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
— Við sem erum orðin gömul
vorum ekki lítið ánægð með
þáttinn „Við stokkinn" er hann
hóf göngu sína í útvarpinu sl.
vetur. Það var eins og fallið
hefði geisli á veginn frá æskuár-
unum og við þökkum Akureyr-
ingum kærlega fyrir.
Því miður var þættinum svo
breytt og bænastundin felld
niður. Væri nú ekki hægt að
hafa þáttinn eins og hann var í
upphafi, bænin gerir öllum gott.
Framboð
neytenda við
næstu kosningar?
8384-2059 hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Ágæti Velvakandi.
Síðan að sjónvarpsþátturinn
„Sólarlandaferðir* var á skján-
um 17. þ.m. hefur fólk almennt á
vinnustöðum hér í Reykjavík og
sennilega um land allt vart haft
annað umræðuefni. Ekki fer það
á milli mála i umræðum fólks
um þennan þátt, að fulltrúi
Neytendasamtakanna, Jón
Magnússon, átti hylli fólksins.
Páll Magnússon, fréttamaður
sjónvarpsins, annaðist þáttinn
af mikilli röggsemi. í þættinum
komu fram tveir þrautþjálfaðir
ferðaskrifstofumenn, ásamt
tveim fulltrúum flugfélaganna,
sennilega toppmenn á sínu sviði.
Hins vegar tók aðeins einn full-
trúi neytenda í landinu þátt i
umræðunum, en stóð sig þó, eins
og áður segir, með prýði.
Er það sannarlega gleðiefni og
tími til kominn, að augu ráða-
manna sjónvarpsins opnist fyrir
málefnum neytenda. Það fer
ekki á milli mála, að neytendur
eru almennt hlunnfarnir í við-
skiptum á öllum sviðum, ekki
sist i sólarlandaferðum, eftir
þættinum að dæma.
Neytendur, gerið ykkur grein
fyrir því hvað þið eruð sterkt afl,
ef þið standið einhuga saman og
beitið Neytendasamtökunum
fyrir ykkur. Hvernig væri nú, að
athuga framboð neytenda við
næstu kosningar?
Bréfritari fagnar því að tekið hafi verið á málum neytenda með þættinum „Sólarlandaferðir“, sem nýlega var á
dagskrá sjónvarpsins.
Stórmót
sunnlenskra hesta-
manna
veröur haldiö á Rangárbökkum helgina 11.—12. ág-
úst.
Þátttaka kynbóta og keppnishrossa tilkynnist í sím-
um 99-4430, 99-1801, 99-6055, 99-8173, fyrirs föstu-
dagskvöldiö 3. ágúst.
Framkvæmdanefndin.
Fornbílaklúbburinn
fer í sumarferö sína á morgun sunnudag
kl. 14.00 frá Hótel Esju.
Fariö veröur til Þingvalla.
Fjölmenniö.
Feröanefndin.
VISA kynnir vöru
Qg pjónustustaöi
HJÓLBARÐASALA — VIÐGERÐIR:
S
Bifreiðaþjónustan, Borgarbraut,
Borgarnesi 93-7192
Dekkiö, Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði 91-51538
Gúmmivinnustofan, Skipholti 35 91-31055
Hekla, Laugavegi 170—172 91-21240
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24 91-81093
Hjólbarðasólun Hafnarfjaröar,
Drangahrauni 1 91-52222
Hjólbarðaverkstæði Björns Jóhanss.,
Lyngási 5, Hellu 99-5960
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns,
Hátúni 2a 91-15508
Hjólbarðaviðgerö Vesturbæjar,
Ægisíðu 68 91-23470
Hjólbarðaþjónusta Heiöars,
Draupnisgötu 7K, Akureyri 96-24007
Hjólið, v/Noröurlandsveg, Blönduósi 95-4275
Holtadekk, v/Bjarkarholt, Mosfellshr. 91-666401
Höfðadekk, Tangarhöfða 15 91-685810
Kaupfélag Árnesinga, Austurvegi,
Selfossi 99-2000
Smurstöö SHELL-OLÍS,
Fjölnisgötu 4A, Akureyri 96-21325
Sólning, Smiðjuvegi 32—34,
Kópavogi 91-43988
Víkurbaröinn, Garðarsbraut 18A,
Húsavík 96-41940
Víkurklettur, Smiðjuvegi 17A, Vík
Mýrdal 99-7303
Verslió meó V7SA
VISA ÍSLAND