Morgunblaðið - 02.09.1984, Page 2
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984
SVIPMYND Á SUNNUDEGI: MULRONEY — LEIÐTOGI ÍHALDSMANNA TURNER — LEIÐTOGI FRJÁLSLYNDRA
Sigurviss Mulroney á kosningafundi.
tveggja, sem þó hafa þrefaldast
á 10 árum.
Brian Mulroney
Brian Mulroney, formaður
Ihaldsflokksins, hefur nú fulla
ástæðu til að vera öruggur með
sjálfan sig, þar sem nýlegar
skoðanakannanir sýna að hann
hefur um 19% meira fylgi en
Turner. Flokkur hans hefur um
49% fylgi, meðan Frjálslyndi
flokkurinn fær aðeins 32%. Þeg-
ar kosningar voru boðaðar fyrir
tæpum átta vikum hafði íhalds-
flokkurinn um 10% minna fylgi
en frjálslyndir og er ástæðan
fyrir auknu fylgi íhaldsmanna
talin vera klúðursleg kosninga-
barátta Turners, fremur en
glæsitilboð Mulroneys.
Helsta boðorð Mulroneys í
þessum kosningum er að nú sé
kominn tími fyrir breytingar í
Kanada, eftir 22 ára valdaferil
frjálslyndra. Eins og bent hefur
verið á, ber ekki mikið á milli i
stefnuskrám frambjóðendanna
dansgólfum með Margréti Breta-
prinsessu.
Mulroney varð síðar lögfræð-
ingur og sérhæfði sig í málefn-
um verkalýðsins. Hann bauð sig
fram til formannsstöðu í íhalds-
flokknum 1976, en tapaði fyrir
Joe Clark og réðst þá til starfa
hjá Iron Ore Company og var
gerður að yfirmanni þar. Einn
hængur er talinn vera á kosn-
ingaherferð Mulroneys og það er
ræðutækni hans, sem sumum
finnst kjarnlítil og veik.
Mulroney lofaði 9. júlí sl. að
bera á borð fyrir kjósendur úr-
ræði í atvinnumálum og skatta-
lækkanir, en gaf þó ekki upp
neinar tölur. Turner bar það si-
fellt upp á Mulroney í kosn-
ingaræöum sínum að loforðin
væru einskis verð þar sem engar
tölur væru fyrir þeim, nema
Mulroney væri að halda þeim
leyndum. Nú hefur Mulroney til-
kynnt að hann muni verja 3,2
milljörðum Bandaríkjadala í
nýjar áætlanir og lofar skatta-
breytingum, m.a. þannig að
Kosningar í Kanada framundan
Kosningar fara fram I Kanada
þriðjudaginn 4. september nk. og
standa tveir stærstu flokkarnir,
íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi
flokkurinn, í mikilli baráttu um
meirihluta á þingi og forsætisráð-
herraembættið.
John Turner
Þegar John Turner, forsætis-
ráðherra Kanada, tók við emb-
ætti af Pierre Trudeau fyrr i
sumar var hann fullur vissu um
að Frjálslyndi flokkurinn færi
með öruggan sigur af hólmi i
kosningunum. Turner hafði birst
aftur í stjórnmálaheiminum eft-
ir að hafa verið nánast i útlegð
frá honum um tíma. Hann hafði
betur í baráttunni við flokksfé-
laga sína um forsætisráðherra-
embættið eftir að Trudeau
kvaddi og naut mikillar hylli al-
mennings í skoðanakönnunum.
Nú þegar skammt er til þess að
gengið verði að kjörborðinu, hef-
ur Frjálslyndi flokkurinn misst
töluvert fylgi og eru íhaldsmenn
orðnir næsta sigurvissir í kosn-
ingunum sem framundan eru.
Skipulagsleysi
Kosningabarátta Tumers hef-
ur verið fremur illa skipulögð og
það uppnám sem varð þegar
Turner varð á að klappa tveimur
stjórnmálakonum á bakhlutann
hefur ekki unnið honum stuðn-
ing kvenna né aukið á vinsældir
hans almennt. Fylgi kvenna við
Turner síðan það gerðist hefur
minnkað úr 50% í 34%.
í upphafi kosningabaráttunn-
ar komst Turner í vanda þar sem
hann hafði lofað Pierre Trudeau
að ráða 17 dygga stuðningsmenn
Frjálslynda flokksins í háttsett
embætti hjá stjórninni. Loforðið
kom honum í klípu, þar sem það
var síður en svo vinsælt hjá and-
vígismönnum hans og keppi-
nautum. í umræðuþætti í sjón-
varpi fyrir stuttu gagnrýndi
íhaldsmaðurinn og aðalkeppi-
nauturinn, Brian Mulroney,
Turner harðlega fyrir að ráða
mennina. Turner svaraði því til
að hann hefði átt engra kosta
völ, en Mulroney svaraði: „Þú
áttir annan kost — það var að
segja að þetta væri rangt fyrir
Kanada og þú þvertækir fyrir
það.“
Tvisvar sinnum hefur Turner
einnig mismælt sig i ræðum og
þurft að biðjast afsökunar. Einu
sinni ásakaði hann t.d. Mulroney
fyrir að ætla að segja upp
600,000 ríkisstarfsmönnum, þeg-
ar í reynd einungis 500,000
starfa hjá ríkinu.
Ferill Turners
John N. Turner fæddist á
Englandi 1929, en var alinn upp i
Kanada. Alla tiö var hann fram-
úrskarandi nemandi og gekk
m.a. í Oxford-háskóla á sérstök-
um styrkjum. Hann var kosinn á
þing í Kanada árið 1962 og
gegndi ýmsum embættum i
stjórninni áður en hann sagði af
sér sem fjármálaráðherra í
stjórn Pierre Trudeaus árið 1975
til að gegna stöðu lögfræðings
við vel stætt stórfyrirtæki. Hann
er talinn myndarlegur maður og
hlýr og talar bæði ensku og
frönsku reiprennandi, sem er
lykilatriði við að ná skjótum
frama í stjórnmálum i Kanada
þar sem bæði málin eru töluð.
Það dugir þó ekki til, þar sem
keppinautur hans, Mulroney, er
talinn hafa sömu persónuein-
kenni og nýtur hylli almennings.
Kosningaloforð
Hagvöxtur í Kanada er nú að-
eins 3,5% á ári og halli á fjárlög-
um hefur þrefaldast á þremur
árum og nemur nú um 30 millj-
örðum kanadískra dala. Margir
vilja kenna frjálslyndum um lé-
legt ástand í efnahagsmálum og
einnig um atvinnuleysið, sem er
um 11%. Bæði Turner og Mul-
roney hafa á stefnuskrá sinni að
ráða bót á þessum vanda og í
raun eru stefnumál þeirra í
mörgu svipuð. Báðir vilja efla
stöðu Kanada í varnarmálum og
aðgerðir innan Atlantshafs-
bandalagsins. Einnig lofa báðir
að bæta samvinnuna við Banda-
ríkjamenn, s.s. með tilraunum á
stýriflaugum í Kanada. Báðir
virðast einnig líta bjartari aug-
um á auknar fjárfestingar
Bandaríkjamanna í Kanada, en
Pierre Trudeau gerði og auka
þar með viðskipti milli þjóðanna
tveggja og má vera að persónu-
hylli skilji á milli, ef úrslit verða
tæp.
Ferill Mulroneys
Brian Mulroney er sonur raf-
virkja og einn sex systkina sem
ólust upp í bænum Baie Comeau
í austurhluta Quebec. Hann tefl-
ir sífellt fram uppruna sínum í
kosningabaráttunni og segist
hafa ekið flutningabíl og unnið
fyrir sér með erfiðisvinnu, með-
an Turner, glæsilegur pipar-
sveinninn, var að spóka sig á
skattar lækki í orkuiðnaði. Hann
segist ætla auka atvinnutæki-
færi fyrir ungt fólk, bæta heilsu-
gæslu- og félagsmál og efla
varnir landsins. Fjármagn til
þessara framkvæmda ætlar
hann að fá með því að draga al-
mennt úr eyðslu stjórnarinnar
og endurskipuleggja núgildandi
félagsmálapakka. Svar Turners
við úrræðum Mulroneys var, að
Mulroney væri að láta sig
dreyma og hann kynni örugglega
lítið fyrir sér í bókfærslu.
Þriðji aðilinn
íhaldsflokkurinn og Frjáls-
lyndi flokkurinn eru þó ekki ein-
ir í framboði og svo gæti farið að
hvorugur þeirra hlyti meirihluta
í þingkosningunum, þvi nú kem-
ur þriðji flokkurinn, Nýi Demó-
krataflokkurinn, til sögunnar.
Ed Broadbent, leiðtogi flokksins,
hefur reynt allt hvað hann getur
til að notfæra sér lítinn mun á
stefnuskrám hinna tveggja til að
bæta ímynd flokks síns. Hann
segir að álíka mikill munur sé á
íhaldsflokknum og Frjálslynda
flokknum og á Visa- og Master-
card-kreditkortunum. Hann
kveður á um nýtt blóð, líkt og
Mulroney, en býður upp á sósíal-
íska hugsun sem lausn. Broad-
bent hefur stuðning um 15%
kjósenda, en samt er allt að
þriðjungur kjósenda óráðinn enn
og úrslitin verða ekki ljós fyrr en
öll atkvæði hafa verið talin.
Helst er þó talið að Mulroney
beri sigur úr býtum og komist á
spjöld sögunnar fyrir að koma
íhaldsmönnum aftur í stjórn eft-
ir 22 ára hlé. Jafnframt myndi
þá John Turner komast i sögu-
bækur fyrir að hafa gegnt emb-
ætti forsætisráðherra styst allra
í sögu Kanada, eða einungis 67
daga. Metið á Sir Charles Tupp-
er sem ríkti í 69 daga árið 1896.
Heimildir: Newsweek, UX News
and World Report, The Times, New
York Times og AP.
John Turner berst nú við að halda flokki sfnum á flotL
Húsgagnasýning
sunnudag kl. 2—5.
BORGARHÚSGÖGN, HREYFILSHÚSINU VIÐ GRENSÁSVEG.