Morgunblaðið - 02.09.1984, Blaðsíða 12
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984
Óskað upplýsinga um
japönsku ferðamennina sem
létust í Rjúpnabrekkukvísl
Um 9 % fjölgun nýnema
í Háskóla íslands
— konur í meirihluta
Síðastliðinn sunnudag, 26. ág-
úst, gaf að líta auglýsingu í Morg-
unblaöinu, þar sem Sigurður Jak-
obsson hjá Kaunvísindastofnun
Háskólans biður þá að hafa sam-
band við sig, sem varir urðu við
ferðir Japananna þriggja sem lét-
ust í Rjúpnabrekkukvísl 10. ágúst
sl.
Hjá Sigurði fengust þær upp-
lýsingar að enn hefði enginn lát-
ið frá sér heyra í sambandi við
auglýsinguna. Auglýsinguna
kvaðst Sigurður hafa sett í blað-
ið að ósk aðstandenda Japan-
anna, sem af skiljanlegum
ástæðum er mikið í mun að fá
nánari upplýsingar um ferðir
þeirra hér á landi. Einnig bað
Háskólinn í Tókýó Raunvísinda-
stofnun að reyna að afla upplýs-
inga um ferðir Japananna, sem
voru hér á landi í rannsóknar-
ferð á vegum Háskólans.
Vitað er að Japanirnir lögðu
af stað frá Reykjavík 3. ágúst en
ekkert spurðist til ferða þeirra
fyrr en í Öskju, 8. eða 9. ágúst.
Þeir sem urðu varir við ferðir
Japananna, frá 3. til 8. ágúst,
eru því vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við Sigurð
Jakobsson hjá Raunvísinda-
stofnun Háskólans.
SKRÁÐIK nýnemar í Háskóla Is-
lands eru 1.614, en voru á sama tíma
í fyrra 1.476. Er því um rúmlega 9%
fjölgun að ræða. Af einstökum
námsdeildum er fjölgunin mest í
lagadeildinni eða 38%. Á hælana
fylgir líffræðideildin með 37 % aukn-
ingu frá því í fyrra. Þá er kvenfólk í
meirihluta skráðra nýnema. 836
konur eru skráðar í skólann í ár, en
778 karlar. í fyrra voru karlar í
meirihluta, 777 á móti 699 konum.
Skráningu í Háskólann lýkur
formlega 15. júlí, en samkvæmt
upplýsingum frá starfsmanni
skrifstofu Háskólans eru á hverju
ári veittar undanþágur og nem-
endur innrita sig í skólann þó að
formlegur umsóknarfrestur sé
runninn út. Eftirfarandi upplýs-
ingar miðast við 29. september
1984 annars vegar og 23. ágúst
1983 hins vegar.
Skráðir nemendur í lagadeild
voru í fyrra 129, en eru í ár 178,
þannig að um er að ræða um 38%
aukningu.
I líffræðideild eru skráðir ný-
nemar 41, en voru í fyrra 30, sem
þýðir um 37% aukningu.
Verkfræði- og raunvísindadeild
er fjölmennasta deild Háskólans
með 344 skráða nemendur fyrir
næsta námsár. í fyrra voru skráð-
ir nýnemar 325, og er því um u.þ.b.
6% aukningu að ræða.
í heimspekideild eru skráðir 278
nýnemar en voru í fyrra 253, sem
samsvarar um 10% aukningu frá
síðasta ári.
Nemendum í matvælafræði
fjölgar í ár um 33,3% eða úr 15
nemendum í 20. í félagsvísinda-
deild er hins vegar fækkun úr 191
nemanda í 188.
Skráðir nýnemar í guðfræði-
deild eru í ár 13 talsins, en voru 10
í fyrra. Þá hefur skráðum nýnem-
um í tannlæknadeild fækkað um
fjóra úr 33 í 29, eða sem samsvar-
ar um 14% fækkun.
Undir læknadeild Háskólans
flokkast læknisfræði, lyfjafræði,
hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun.
í læknisfræði eru í ár skráðir 106
nýnemar, en voru í fyrra 138. Hér
er þvi um 30% fækkun að ræða. 1
lyfjafræði eru nú skráðir 32 ný-
nemar, en í fyrra voru þeir 28,
þannig að aukningin liemur um
14%. Nemendum í hjúkrunarfræði
fjölgar í ár um ein 48%, eða úr 89
1 132. Þar er kvenfólk í áberandi
meirihluta, 125 konur á móti sjö
körlum. Hlutfallið milli kynja var
svipað í fyrra.
Nemendafjöldi í sjúkraþjálfun
er takmarkaður við 18 nemendur.
Kynskiptingin þar í ár er þannig
að fimm karlmenn eru skráðir
nýnemar, en 13 konur.
Cterkur og
kD hagkvæmur
auglýsingamioill!
Ehh
HÆKKUM \JB
IhhlÁhSVEKTI
V/axtabreytingar frá 27. ágúst:
5parireiKningar með 18 mán. uppsögn hækha í 25%, ársávöxtun 26,6%
InnlánssKírteini 6 mánaða_haekka í 24,5%, ársávöxtun 26%
Verðtryggðir sparireikn. 3ja mánaða binding hækka í 3%
Verðtryggðir sparireikn. 6 mánaða binding hækka í 6,5%
Tékkareikningar___________hækka í 10%
Aðrir vextir eru óbreyttir frá 13. ágúst 5.1.
HÆ5TU
BAhHAVEKTIRhlR!
5parireikningar Búnaðarbankans með 18 mánaða uppsögn
bera 26,6% ávöxtun á ári.
Þetta eru hæstu bankavextir sem bjóðast
Búnaðarbankinn mun ávallt leitast við að veita sparifjáreigendum
hæstu vexti sem í boði eru hverju sinni.
fjfBlJNAÐARBANKI
VCy ÍSLANDS