Morgunblaðið - 02.09.1984, Blaðsíða 28
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984
KROSSGATA
fVesturþýzka
ðeðapostulíniö frá
HUTSCHENREUTER
Velhannað matar- og kaffistell,
skreytt af hinum kunna listamanni
Ole Winther — er nú til hjá okkur
á sérstöku Afmælisverði vegna
170 ára afmælis Hutschenreuter
postulínsframleiðandanna
(tjuUkistan
FRAKKASTÍG 10 SÍMI 13160
Bandaríkin:
Kappræður
forsetaefna
WishÍDKtoii. I. september. AP.
FULLTRÚAR Ronalds Reagans,
Bandaríkjaforseta, og Walters
Mondales, forsetaefnis demó-
krata, komust í gær að sam-
komulagi um að þeir keppinaut-
arnir reyndu með sér a.m.k.
einu sinni fyrir kosningarnar.
Enn er þó margt ófrágengið
varðandi kappræðurnar en
Mondale er áfjáður í að mæta
Reagan sem oftast en Reagan
vill sem minnst við Mondale
tala. Vildu demókratar, að
kappræðurnar yrðu sex en repú-
blikanar nefndu eina en útilok-
uðu ekki fleiri. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvort varaforseta-
efnin, Bush og Ferraro, takist á
frammi fyrir alþjóð.
Reagan fékk í gær stuðning
samtaka flutningaverkamanna
og er jafnvel talið líklegt, að
fleiri verkalýðssambönd muni
lýsa yfir stuðningi við hann.
Mondale hefur svo gert það lýð-
um ljóst hvernig hann vill
minnka hallann á fjárlögunum.
Skal það gert með því að verja
öllum frekari skattahækkunum
til þess eins að greiða hann
niður.
Þúsvalar I
SÍöum Móggansf