Morgunblaðið - 02.09.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.09.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984 93 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS 'PÞING HF O 68 69 88 Rússneska þjóðin aldr- ei spurð um neitt HúsmóAir skrifar: Þjóðfrelsisbarátta Þjóðviljans hefur alltaf verið eins og allra blaða sem berjast fyrir heims- valdastefnu kommúnismans. Þjóðin sem átt er við hjá Þjóð- viljanum er rússnesk stjórnvöld. Rússneska þjóðin er aldrei spurð um neitt, það er KGB sem Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Hver tapaði páfagauk? fris hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Sonur minn fann í gær ákaflega spakan páfagauk á horninu á Suð- urgötu og Lynghaga. Páfagaukur- inn er grænn á lit og sá sem sakn- ar síns páfagauks getur hringt í síma 21548. úthlutar ferðaleyfum og ferða- frelsið finnst ekki frekar en verkfallsrétturinn og tjáningar- frelsið. Kommúnistaflokkur ís- lands, sem stofnaður var 1930, hefur oft skipt um nafn og læt ég aðra um að skýra það. Á þessum tíma hefur Þjóðviljinn ekkert breyst. Leynilögregla Rússlands, sem einnig hefur oft skipt um nafn og heitir nú KGB, hefur alltaf ráðið stefnu blaðs- ins. Er fyrst að nefna baráttu blaðsins gegn Bretum, sem hingað komu í staðinn fyrir her Hitlers. Skýringin á þessu er sú að þá hafði Hitler enn ekki ráð- ist inn í Rússland. Þegar stríðið var á enda heimtuðu þingmenn KGB-útibúsins hér á landi, að við hættum hlutleysisstefnu okkar og segðum Hitler stríð á hendur. Meirihluta Alþingis fannst ekki taka því, enda fram- di Hitler sjálfsmorð nokkrum dögum seinna. Þjóðviljinn hóf svo seinna baráttu fyrir hlut- leysi, af því að það hentaði Stal- ín, og baráttan er nú eins fyrir KGB. Blaðið hefur ávallt varið utanríkisstefnu rússneskra stjórnvalda, og er fyrst að nefna innrásina í Ungverjaland, Tékkóslóvakíu, Afganistan og herstjórnina í Póllandi. Ekki hefur blaðið mikið á móti árás- um Víetnama á nágranna sína, og ekki að víetnamskir verka- menn séu látnir þræla í Síberíu, og tekið sé 60% af kaupi þeirra upp í skuldir við Rússa. Stjórnvöld í Suður-Víetnam, sem eru bara leppar Rússa, eru búin að jarða Víet Kong og án allrar viðhafnar, þá er að nefna stuðning blaðsins við morðsveit- ir Castros og pólitískar ofsóknir hans heima fyrir, því kommún- isminn leyfir engin mannrétt- indi þar sem hann ræður. Ekki hefur blaðið horft á móti áður þekktri fjáröflunarleið Austur- Þýskalands, að selja menn fyrir offjár til Vestur-Þýskalands, þegar stjórnvöld eru búin að gera lífskjörin óþolandi. Islenskt starfsfólk á erlenda flugvelli Þessir hringdu . . . Þór skrifar: Kæri Velvakandi! Ég vil taka undir orð Hafliða Helgasonar í dálkum þínum 22. ágúst sl. þar sem hann spyr: Hver man vísuna? Elísabet Helgadóttir hringdi og hafði eftirfarandi fyrirspurn fram að færa: Ég vildi koma því á fram- færi hvort enginn kannaðist við eftirfarandi vísubrot: Þeir koma frá kærleikans heimi þeir koma úr friðarins geimi. Þá óskaði hún eftir upprifjun á kvæði sem hefst á þessa leið: Uppundan bænum í blómskrýddri hlíð, í blákyrru veðri um hásumartfð. Þá sólin í heiðríkju seig oni mar, og svalandi skugga á hlíðarnar bar. „Hví ekki íslenskt starfsfólk á flugvöllum erlendis?" Móðir mín og vinkona hennar hafa reglu- lega heimsótt systur mína sem er búsett á vesturströnd Banda- ríkjanna. Fyrir tveimur árum lentu þær í verulegum vandræð- um á Chicago-flugvelli en þar er ekki lengur íslenskur starfsmað- ur eins og áður var. í fyrra flaug systir mín frá Seattle til Chicago til að taka á móti og aftur til að fylgja móður okkar, — með ærnum tilkostn- aði. Hún segir að þjónustan á flugvellinum sé slæm og enginn sérstakur fulltrúi þar á vegum Flugleiða. í ár varð ekkert úr Ameríkureisu, aðallega af fyrr- nefndum ástæðum. Vonandi geta Flugleiðir bætt úr þessu en mér skilst að ís- lenskir starfsmenn séu á flest- um aðalflugvöllum erlendis sem Flugleiðir hafa viðkomu á. VEÐSKULDABRÉF VERÐTRYGGÐ Hvenær kemur Hjartarbaninn? Guðrún Kristjánsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Ég vil koma þeirri fyrirspurn á framfæri hvort myndirnar Hjart- arbaninn og Fílamaðurinn verði ekki teknar til sýningar á næst- unni í sjónvarpinu. Þetta eru það góðar myndir að vert er að sýna þær í sjónvarpinu. Þá vil ég segja það um myndina Æskuglöp, sem Ringó Starr lék eitt aðalhlut- verkið í, að hún gekk alveg framaf mér. Mér finnst að sjónvarpið hefði átt að tilkynna það um þessa mynd að hún væri ekki við hæfi barna, og yfirleitt að tilkynna það vel þegar myndir eru ekki við hæfi barna. Hefur þú fundið bestu ávöxtun á sparifé þitt eftir vaxtabreytinguna? - Bankar bjóða 4—6,5% ársvextiáö mánaða verðtryggðum reikningum, sem auka verðgildi sparifjár um 48—88% á 10 árum. - Verðtryggð veðskuldabréf einstakl- inga sem nú gefa 14% raunvexti, auka verðgildi sparifjár um 271% á 10 árum. Auk þess bjóðast: - 8% vextir umfram verðtryggingu á spariskírteinum ríkissjóðs. - 50-70% ársvextir á óverðtryggðum veðskuldabréfum. kaupþing veitir ráðgjöf þér að kostnaðarlausu um þá ávöxtunarmöguleika sem í boði eru. Sölugengi verðbréfa 3. september 1984 SPAfílSKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: s6lugtngimiét»v<i»% vtxtlumtnm*r»tr,pr. 100kr. 1. FLOKKUR 2. FLOKKUR Útg. Sölugengi pr. 100kr. 8% vextirgildatil Sölugengi pr. 100kr. 8%vextirgildatll 1970 1971 15.701 15.09.1985 D 1972 14.197 25.01.1986 11.388 15.09.1986 1973 8.443 15.09.1987 8.639 25.01.1988 1974 5.169 15.09.1988 - 1975 4.303 10.01.1985 3.191 25.01.1985 1976 2.898 10.03.1985 2.398 25.01.1985 1977 2.0892' 25.03.1985 1.808 10.09.1984 1978 1.41631 25.03.1985 1.155 10.09.1984 1979 969 25.02.1985 749 15.09.1984 1980 654 15.04.1985 499 25.10.1985 1981 424 25.01.1986 309 15.10.1986 1982 304 01.03.1985 222 01.10.1985 1983 169 01.03.1986 107 01.11.1986 1984 104 01.02.1987 1) InnlautnarverA SeAlabankans pr. 100 NÝKR. 5.«ebrúar 17.415,64 2) InnlauanarverASeðlabankanspr. 100 NÝKR. 25.mars1964 2.122,16 3) Innlauanarverfi Sedlabankana pr. 100 NÝKR. 25. mars 1984 1.436,89

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.