Morgunblaðið - 02.09.1984, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 02.09.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984 61 Ný barnaplatæ Ævintýri úr Nykurtjörn Hljómplötuútgáfan Þor hefur sent frá sér nýja barnaplötu sem ber heit- ið „Ævintýri úr Nykurtjörn“. Plöt- unni fylgir myndskreytt bók, sem Aðalsteinn Ásberg Sigurösson hefur skrifað og eru allir söngtextar í bók- inni. Tónlistin er samin af þeim Bergþóru Árnadóttur og Geir Atla Johnsen og eru þau að auki aðal- flytjendur. Garðar Pétursson myndlistarmaður hefur mynd- skreytt bæði bókina og plötuum- slagið. Til þessara tveggja nykra sást í bæn- um um daginn, höfðu þeir þó engan mennskan mann á brott eins og sið- ur þeirra er. rsr ■ a Bókin verður kynnt á sýning- unni Heimilið ’84 í Laugardalshöll og hvern dag er þar sýndur leik- þáttur. Meðal hljóðfæraleikara sem koma við sögu á plötunni eru Helgi E. Kristjánsson, Tryggvi Húbner, Steingrímur Guðmunds- son og Arnþór Helgason. Ársskýrsla Borgar- spítala 1983: „Hagræðingar- átak í fjölmörg- um starfsþáttum“ „Rekstrakostnaður Borgarspítal- ans í Fossvogi og allra fjarliggjandi deilda hans var árið 1983 kr. 541,9 m.kr. og rekstrarhalli kr. 32,2 m.kr. eða 5,9%. Er það minnsti hlutfallsleg- ur rekstrarhalli um margra ára skeið og má rekja aðallega til meiri legu- dagafjölda, en undanfarin ár og auk- ins aðhalds í rekstri". Þannig er frá greint í ársskýrslu Borgarspítalans fyrir árið 1983. Fyrsta sjúkradeildin í B-álmu var tekin í notkun á árinu. Samningur var gerður við Há- skóla tslands um kennslu lækna- nema og hlutverk Borgarspítalans sem kennslusjúkrahúss. í skýrslunni kemur fram að stjórn spítalans hefur fallizt á til- lögu framkvæmdastjóra, þess efn- is, að danska hagræðingarfyrir- tækið IKO geri forkönnun á hag- ræðingarátaki í fjölmörgum starfs- þáttum spítalans. Með opnun B-álmu í júnímánuði sl. var sett í gang endurskoðað ræstingarkerfi með aðstoð sænsks hagræðingar- fyrirtækis. Kerfi þetta hefur um- talsverðan sparnað í för með sér og byggist á nákvæmri skipulagningu vinnunnar, stórbættum tækjabún- aði og í heildina minnkaðri ræst- ingu.“ Á árinu létu Ásmundur Brekkan, yfirlæknir röntgendeildar, og Haukur Kristjánsson, yfirlæknir slysadeildar, af störfum, en þeir hafa starfað við spítalann frá upp- hafi þessara deilda og skipulagt þær frá grunni. Stórkostlegur sumarafsláttur *» - wi P AMPERS Pampers bleyjur+buxur hlífa litlum bossum og með nýja „lásnum“ getur þú opnað ^ og lokað að vild Aðeins það besta er nógu gott fyrir barnið PAMPERS fást íverslunumum land allt ihíWAW/i . | FRAM TOLVUSKOLI Elsti og reyndasti tölvuskóli landsins Námskeiðaalmanak septembermánaðar: ★ Almenn grunnnámskeið um tölvur og tölvuvinnslu Hefjast 10. og 24. september. ★ Einkatölvur og stýrikerfi MS-DOS Hefjast 10. september ★ Töflureiknirinn MULTIPLAN Hefjast 17. september. ★ Ritvinnslukerfið Ritvinnsla II (Easy Writer II) Hefjast 17. september. ★ BASIC 1 forritun Hefjast 10. september. ★ BASIC 2 forritun Hefjast 11. september. Hægt er að velja milli dagnámskeiða og tveggja kvöldnámskeiða. Leiðbeinendur skólans eru þaulreyndir og vel menntaðir á sínu sviði og kennt er á nýjan og fullkominn tölvubúnað í nýju og glæsilegu húsnæði Hinir fjölmörgu ánægðu nemendur eru okkar bestu meðmælendur. Nemendafjöldi á hverju námskeiði er takmarkaður. Hringið því sem fyrst, reynslan sýnir að fljótlega fullbókast á námskeiðin. Framsýn tölvuskóli, Síðumúla 27, sími 39566

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.