Morgunblaðið - 02.09.1984, Side 8
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984
Einar Bollason kennari:
Fáránlegt að draga
eina stétt útúr
„Það má til sanns vegar færa
miðað við mína reynslu og umfjöll-
un fjölmiðla um mín mál, að mér
hafí óneitanlega fundist blaða-
mennirnir stundum of fljótir á sér
og kaldir að birta fréttir af gangi
mála, án þess að hafa kynnt sér
þau nógu vel. En mér fínnst þeir
heldur ekki liggja á liði sínu við að
draga hið sanna fram í dagsljós-
ið,“ sagði Einar Bollason, kennari,
sem var mikið í fréttum fjölmiðla
þegar Geirfínnsmálið stóð sem
hæsL
„Þar fyrir utan hefur öll mín
reynsla af blaðamönnum og
fréttamönnum verið góð,“ sagði
Einar ennfremur. „Þeir eru heið-
arlegir og leggja sig í líma við að
greina frá fleiri en einni hlið
mála. Ég er ekki frá því að hin
mikla öld rannsóknarblaða-
mennskunnar, sem hér hófst í
kringum 1976, hafi gripið um sig
innan fjölmiðlanna hér og sett
skjálfta í menn. Ég held að það
sé fráleitt að dæma heila stétt
þótt einum verði á í messunni.
Það er mannlegt að gera mistök.
Mín kynni af blaðamönnum
gefa mér þá mynd af þeim að
þeir séu siðavandaðri, ef eitt-
hvað er, í sínum málflutningi ef
miðað er við kollega þeirra er-
lendis.
Ég veit ekki hvort það kemur
þessu beint við en almenningur
er oft að ræða um það, og mér
skilst að Morgunblaðið leggi það
ekki í vana sinn, að birta nöfn á
afbrotamönnum eða mönnum,
sem á einhvern hátt komast í
kast við lögin. Allt er það gott og
blessað og oft hlýtur sakamaður-
inn samúð almennings, en það er
síður hugsað um þá, sem verða
fyrir barðinu á þeim. Og það er
spurning hvort það sé rétt stefna
að hlifa slíkum mönnum."
Varðandi þá spurningu hvort
setja ætti strangari reglur um
Einar Bollason
ábyrgð fjölmiðla gagnvart því,
sem þeir fara með, sagði Éinar:
„Þarna er alltaf erfitt að rata
meðalveginn. Mér finnst sjálf-
sagt að veita blaðamönnum að-
hald og vanda vel til ráðninga á
þeim. En ég vil líka taka undir
það sem Omar Valdimarsson,
formaður Blaðamannafélags ís-
lands, sagði í útvarpsviðtali fyrir
stuttu, þegar hann benti rétti-
lega á að forseti Hæstaréttar
ætti að líta sér nær. Félag lög-
fræðinga hefur siðareglunefnd
og svo er einnig um lækna en
kærur á þá koma aldrei fram i
dagsljósið. Það væri hollt og gott
að opna allar þessar siðanefndir
og gera það opinbert sem þar fer
fram svo mistök innan þessara
stétta verði gerð mönnum kunn.
Það er fáránlegt að draga eina
stétt útúr. Auk þess vinna
fréttamenn fyrir opnum tjöld-
um, öðruvísi en margir aðrir,“
sagði Einar Bollason i lokin.
40 þúsund nem-
endur við nám í
grunnskólunum
SKÓLASTARF er nú að hefj-
ast á ný eftir sumarfrí og
munu þúsundir ungra íslend-
inga setjast á skólabekk nú í
vetur eins og endranær.
Fjöldi nemenda í grunnskól-
um landsins verður um 40
þúsund nú í vetur og eru
áætluð útgjöld ríkis og sveit-
arfélaga um 1,3 milljarður
króna vegna þessa skóla-
halds. Er þá ótalinn fjöldi
nemenda og kostnaður vegna
skólahalds í framhaldsskól-
um landsins.
Áætlaður fjöldi nemenda á
skyldunámsstigi, þ.e. frá 1. og
upp í 9. bekk er rúmlega 36 þús-
und. Flestir eru í Reykjavík og á
Reykjanesi, tæplega 11 þúsund í
Reykjavik og um 9.500 á Reykja-
nesi. Þar að auki bætast við
nemendur í forskóla, 6 ára börn,
sem eru um 3.900 á öllu landinu.
Að sögn Örlygs Geirssonar,
deildarstjóra í Fjármála- og
Pú svalar lestrarþörf dagsins
ásWum Moggans!
áætlunardeild Menntamálaráðu-
neytisins eru greiðslur ríkisins
við þetta skólahald tæpur millj-
arður og gera má ráð fyrir að
útgjöld sveitarfélaga verði um
300 milljónir, þótt sú tala liggi
ekki endanlega fyrir. Ekki væri
þó fjarri að áætla, að grunnskól-
inn í heild kosti um 1,3 milljarð.
Hvaða leikmenn munu berjast fyrir íslands hönd
gegn Wales-búum á Laugardalsvellinum 12.
september næstkomandi í heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu?
Svar við þessari spurningu fæst á blaðamanna-
fundi sem haldinn verður á Hótel Loftleiðum á
morgun kl. 12.30.
HÓTEL LOFTLEKMR
FLUGLEIDA HÓTEL
ODYR VETRARDVOL
í Majorkasól
Vegna hagsiæöra og traustra sambanda getum viö nú boðiö ótrúlega ódýra
vetrardvöl í Majorkasól, þar sem appelsínurnar falla af trjánum í sólríkum dölum í
janúar.
Hægt aö velja um dvöl í vel búnum íbúöum, eöa hóteli meö rúmgóöum setustofum,
veitingasölum, spila- og sjónvarpsstofum. Innisundlaug og útisundlaug í stórum
garði meö trjám og túni.
Verðið það er ótrúlegt. Hótel með morgunmat, hádegismat og kvöldmat. 15
dagar kr. 17.940, fimm mánuöir kr. 67.940 eða aöeins kr. 13.588 ó mánuði meö
gistingu, fullu fæði og flugferðum. Já, ódýrara en eyöa vetrinum heima í kulda,
snjó, rigningu og blástri.
Nauösynlegt aö panta snemma því við höfum aðeins pláss fyrir 62 á þessu verði
■'iiiiJiRf iiii » r ^
aw yjai i iu oi lomma yj v i
Flugferðir
— Sólarflug Vesturgötu 17. Símar: 10661, 15331 og 22100.