Morgunblaðið - 09.09.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
7
Sjónvarp mánudag
kl. 21.10:
Ferðin
Á dagskrá sjónvarps á
mánudag er sænska sjón-
varpsmyndin Ferðin, eftir
Ann-Charlotte Alverfors og er
það jafnframt hennar fyrsta
verk sem hún vinnur fyrir
sjónvarp. Myndin fjallar um
Karin sem flýr sem ung kona
frá Finnlandi og fær hæli í
smábæ í Svíþjóð. í þorpinu
reynir hún að ná fótfestu og
kemst að því að lifnaðarhættir
fólksins í bænum eru allólíkir
hennar. Hennar helsta áhuga-
mál er lestur bóka. Bæjarbúar
eru hins vegar ekki hrifnir af
því og vilja ekki hafa við hana
að sælda þar sem hún vinnur
ekki í verksmiðjunum eins og
hinir og telja að hún eigi að
Isýna meira þakklæti fyrir að fá
að búa í þorpinu. Aðalhlut-
verkið leikur Stina Ekblad sem
fer með hlutverk Karin, en
önnur hlutverk leika Jan Dol-
ata, Monica Nielsen, Evert
Lindkvist, Ove Tjerneberg og
Doris Svedlund. Leikstjóri er
Arne Hedlund.
FÍI efnir til
samkeppni
um umbúðir
FÉLAG íslenskra iðnrekenda gengst
nú fyrir umbúðasamkeppni í sjöunda
sinn.
Samkeppnin er fyrir allar gerðir
umbúða, svo sem flutningsumbúð-
ir, sýningarumbúðir og neytenda-
umbúðir. Verða þær að vera hann-
aðar á íslandi og hafa komið á
markað hér eða erlendis. Allir ís-
lenskir umbúðaframleiðendur og
umbúðanotendur geta tekið þátt í
samkeppninni, svo og aðrir þeir
sem hafa með höndum gerð og
hönnun umbúða. Einungis er
leyfilegt að senda inn umbúðir,
sem komið hafa fram frá því að
umbúðasamkeppnin fór síðast
fram eða frá miðju ári 1981.
Hið mikla framboð iðnvarnings
í heiminum í dag hefur gert um-
búðir að einum þýðingarmesta
þætti í nútíma vörudreifingu. Ný
efni hafa komið til sögunnar og
valdið byltingu í umbúðafram-
leiðslu. Það hefur mikla þýðingu
fyrir hverja þá þjóð, er horfir
fram til aukningar framleiðslu og
fullvinnslu iðnvarnings að hafa
vakandi auga með þeim framför-
um, sem verða á sviði vörupökkun-
ar.
Vinna við umbúðir verður að
byggjast á náinni þekkingu á þeim
kröfum, sem gera verður til
þeirra, að því er snertir vernd,
pökkun, flutning á markað og
hönnun. Með hönnun er í þessu
sambandi átti við lögun umbúða
með tilliti til vöru, hagkvæmni í
meðferð og notkun, svo og listrænt
útlit og sölueiginleika.
Fimm aðilar skipa dómnefnd og
eiga sæti í henni, formaður er Orri
Vigfússon, fulltrúi Félags ísl. iðn-
rekenda en aðrir í dómnefnd eru
Guðbergur Auðunsson frá Félagi
ísl. teiknara, Ragnar Guðmunds-
son frá Kaupmannasamtökum ís-
lands, Sigurður Brynjólfsson frá
Myndlista- og handíðaskólanum
og Steinar Harðarson frá Neyt-
endasamtökunum.
Umbúðirnar ásamt upplýsing-
um um nafn og heimilisfang þátt-
takenda, umbúðaframleiðanda,
umbúðanotanda og þann sem hef-
ur séð um hönnun umbúðanna,
skal senda til Félags íslenskra
iðnrekenda, fyrir 15. október nk.
Ritari nefndarinnar er Þórarinn
Gunnarsson, skrifstofustjóri FÍI.
(Frétutilkynning.)
Noregur:
Óvenjulegt gæludýr
ÚTGERÐARBÆRINN Skervogur
í Finnmörku í Noregi hefur eignast
óvenjulegt eftirlæti. í meira en eitt
og hálft ár hefur rostungur hafst
við í sjónum fyrir utan plássið og
hann er orðinn svo elskur að
heimamönnum, að hann leyfir
þeim að klappa sér og gefa sér
bita.
Rostungur þessi er kvenkyns
og hefur hlotið nafnið „Martha".
Þó að hún róti lítils háttar til í
veiðarfærum í firðinum, þykir
öllum vænt um hana. Og henni
geðjast vel að því að hafa fólk í
kringum sig.
Það var í aprílmánuði í fyrra
sem menn tóku fyrst eftir mynd-
arlegum rostungi, allt að fjög-
urra metra löngum og tveggja
tonna þungum, sem var að
brölta og bisast í fjörunni út
með firðinum.
Skömmu seinna sást hann
með unga í för með sér, og það
var Martha. En svo var mamm-
an allt i einu horfin og Martha
litla, sem nú er reyndar orðin
stór og stæðileg, var ein og yfir-
gefin.
Menn eru farnir að halda, að
Martha muni ílengjast og taka
sér „bólfestu" fyrir utan hafnar-
garðinn í Skervogi.
Rostungurinn „Martha“ leyfir heimafólki í Skervogi í Finnmörku að
mata sig og klappa sér. Hér er hún að krækja sér I miðdegisverð í
fjörunni í Skervogi.
ocr þar kom að'ðí/
rimini
í kjöllar endalausra vinsœlda Rómarlerðanna írd Rimini d undaníörnum summm eínum vió nú til sérstakrar
vikuferdar til Rómar. Nú nýtum viö annars auð sœti í leiguílugsferöinni sem fer 20. september til þess að
sœkja síðustu Rimini-farþega sumarsins — og íyrir vikið getum við boðiö þessa einstöku ferð á ótrúlega
hagstœðu veröi. Nú sönnum viö rœkilega hagkvœmi þess að nýta „tóma leggi" í leiguílugi — einíöld
aðgerd sem lœkkar verð fyrir alla sem hlut eiga að máli.
Og í Róm þomm við að ábyrgjast að dagarnir fimm munu verða öllum ógleymanlegir. í fylgd íslensks
fararstjóra skoðum við Vatikaniö, Péturstor0ð, Péturskirkjuna Sixtinsku kapelluna, Colosseum hring-
leikahúsið, Forum Romanum, Panþeon hofið og ótal fleiri sögufraega staði, förum i spennandi kvöldferðir
um borgina og bryddum upp á öðmm skemmtilegum skoðunaríeröamöguleikum. Á eigin vegum er
síöan upplagt að eyða kvöldunum á írábœrum veitinga- og skemmtistöðum íylgjast með íorvitnilegu
listamanna- og götulííi á gosbrunnatorginu Piaza Navona o.s.írv. o.s.frv. Og nú skartar Róm sínu allra
fegursta, haustlitir náttúrunnar allsráðandi og þœgileg verörátta allan sólarhringinn.
VERD FRÁ KR. 15.500
FERDATILHÖGUN
20. sept. Flug Keflavík-Rimini. Kvöldið fijálst á Rimini
og gist þar um nóttina
2L sept. Ökuíerð og skoðunarferð sameinuð í eitt.
Ekið frá Rimini til Rómar I hrikalegri náttúru-
fegurð á leið yíir ítaliuskagann.
22.-26. sept. Dvalist í Róm í 5 daga (6 nœtur). Skipulagðar
skoðunaiferðir, trjáls tími Við minnum
sérstaklega á hínn víðfrœga tískulatnað Itala.
Nú eru allar verslanir fullar al vetrartatnaði
á einkar hœgstœðu verði ef við þekkjum
ítölsku verslanimar rétt.
27. sept. Flug Róm-London-Keflavík.
miöcrð viö tvo saroan í herbergi
Inniíallö: Flug. gisting m/morgunverði allan timann
akstur Rimini-Róm akslur til og frá ílugvöUum erlendis og
islensk lararstjóm Gist er ó góðum hótelum á Rimini
og góðu .túristá' hóteli í miðborg Rómar Aukagjald v/tyrsta
Uokks hótels í Róm kr. 1.300.
Og þá ei bcna aö smella séi til Római — ódýrara getui þaö ekki veiiö!
z—Sviss seldist upp á þiemui klst.
ei um aö geia aö panta stiax!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRi: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 « 23727