Morgunblaðið - 09.09.1984, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
36
Dulspekiskóli
á vatnsberaöld
F.v. Jytta Eiriksson, Öyvind T. Halborg og Racel Eiriksson.
Rætt við Jytta Eiriks-
son um Skandinavisk
Healerskole sem
starfar í Danmörku
Viömslandi okkar er Jytta Ei-
riksson, sem stödd er hér á landi í
því skyni að kynna sérstæðan
skóla er starfar í Danmörku. í ferð
með henni er dóttir hennar, Racel
Eiriksson, félagsráðgjafi, og Öy-
vind T. Halborg, tónlistarnemi, og
hafa þau haldið kynningarfundi
um „Healerskolen" hér að undan-
förnu.
Healerskolen var stofnaður í
Kaupmannahöfn 1978 af Jeanne
Morashti og hefur verið starf-
ræktur þar síðan. Hin seinni ár
hefur skólinn einnig verið starf-
ræktur í Árósum, Oðinsvéum og
nú siðast var stofnuð deild í
Næstved á Sjálandi.
Við höfum áhuga á að stofna
deildir víðar á Norðurlöndunum,
sagði Jytta Eiriksson i samtali
við blm. Mbl., og það er einmitt
tilgangur okkar með komunni
hingað til íslands núna að kynna
skólann og athuga hvort áhugi
sé fyrir hendi um að stofnuð
verði sérstök deild hér á íslandi.
— Hvað er það sem fólk lærir
í þessum skóla?
Almennt sagt þjálfar fólk með
sér hæfileika á andlega sviðinu i
þessum skóla og lærir um hina
andlegu hlið manns og heims.
Tilgangurinn er sá að hjálpa ein-
staklingnum til að efla hæfileika
og vilja til að hefja sjálfan sig og
aðra upp, þ.e. að skapa andlegt
jafnvægi, rósemi og vingjarnleik
með sjálfum sér og öðrum. Það
má segja að við kennum aðferðir
til að breyta neikvæðri orku í
jákvæða, — þessar aðferðir gera
einstaklingnum fært að leysa
vandamál sín og — ef þannig má
að orði komast — sundra því
andlega myrkri sem oft verður á
vegi okkar í daglegu lífi.
Skólahaldið fer fram um helg-
ar, á laugardögum og sunnudög-
um og stendur skólinn í 9 mán-
uði. Síðan er boðið upp á fram-
haldsnámskeið fyrir þá sem hafa
lokið þessum fyrsta áfanga.
— Nú talið þið m.a. um sál-
rænar lækningar, hugleiðingu,
endurholdgun og vatnsberaöld á
kynningarfundum ykkar — legg-
ur skólinn stund á stjörnuspeki?
Stjörnuspekin er ein leið til að
skilja lifið, en auðvitað ekki sú
eina. Stjörnuspeki sem slík er þó
ekki kennd við skólann. Stað-
reyndin er sú að við erum að þró-
ast inn í vatnsberaöldina og
reyndar erum við komin inn í
hana með annan fótinn. Síðustu
2 þúsund árin hefur fiskamerkið
verið ráðandi með öllum sínum
tilfinningahita. Nú fer nýtt
tímaskeið í hönd og þeirri um-
breytingu fylgja nokkrir erfið-
leikar. Það er þó ekki svo að
skilja að vatnsberamerkið taki
yfir í einni svipan — þess sjást
merki að vatnsberinn hafi verið
farinn að hafa áhrif á gang mála
allt frá 1960. En áhrif hans
verða sífellt sterkari og um árið
2000 mun vatnsberinn verða
allsráðandi, þannig að miklar
breytingar eru í vændum.
— Og þið trúið líka á endur-
holdgunarkenninguna?
Við göngum út frá því sem
vísu að allir menn hafi endur-
fæðst margoft hér á jörð og ég
vil leyfa mér að fullyrða að hver
og einn sem vill geti gengið úr
skugga um það. Við „Healerskol-
en“ hefur verið þróuð aðferð,
sem gerir fólki fært að rifja upp
fyrri jarðlíf og reynslan sýnir að
flestir eiga auðvelt með það.
— Byggir þessi aðferð á dá-
leiðslu?
Nei, með þessari aðferð getur
hver og einn fengið glögga inn-
sýn í fyrri jarðvistir með fullri
vitund og án þess að vera beittur
sefjun af neinu tagi. Þetta getur
verið hagnýtt fyrir fyrir fólk,
sem á við andlega erfiðleika að
stríða — oft stafa þeir frá erfiðri
reynslu i fyrri jarðlífum. Þess
utan gerir þetta manni fært að
skilja sjálfa sér, hæfileika sína
og vankanta — og jafnvel að
sætta sig betur við það sem fram
við mann kemur. Því allt á sér
orsök og afleiðingu.
— Manst þú sjálf eftir fyrri
jarðlífum?
Já, mér gekk mjög vel að rifja
þau upp. Það er alveg einstök
reynsla en svo hefur maður líka
mikið gagn af því. Ég held að
flestir hafi orðið þess varir í
samskiptum sinum við fólk, sem
þeir hitta í fyrsta sinn. Sumum
kynnist maður auðveldlega og
fellur strax vel við þá — aðra á
maður í erfiðleikum með og það
er eins og eitthvað hindri að góð
kynni takist. Skýringin er einkar
einföld — þetta er fólk, sem við
höfum umgengist áður og þannig
eru það með minningar úr fyrri
lífum — þær eru til staðar í sál-
arlífinu og hafa áhrif á daglegt
líf okkar en eru þó ekki meðvit-
aðar. Þessi aðferð, sem ég talaði
um, gerir fólki fært að nálgast
þennan minningabanka og skoða
minningar frá liðnum æviskeið-
um að vild.
Við skólann er kennd hug-
leiðsluaðferð, sem byggir á litum
— hún er sérstaklega sniðin
fyrir hinn vestræna mann, og á
sér ekki austurlenskan uppruna
eins og flestar hugleiðsluaðferð-
ir, sem kenndar hafa verið af
hinum ýmsu dulspekiskólum.
Það er erfitt að gera grein fyrir
þeim fræðum og aðferðum, sem
skólinn kennir, í stuttu viðtali.
Fyrir þá sem vilja kynna sér
málið frekar vil ég benda á þær
bækur, sem gefnar hafa við út á
vegum skólans. Þá vona ég að
okkur takist að koma upp skóla-
deild hér á íslandi, því hér virð-
ist vera mikill áhugi fyrir þess-
um nýju vísindum.
— bó.
Canon
^©“ÍKÖJ/Ks)
Canon
PC-cartridge
j þessum hleöslum er duftiö en þaö
endist á 3000 Ijósrit. Einfalt aö
skipta og þú getur valiö um sex liti,
svart, brúnt, blátt, rautt, grænt eöa
Ijósblátt. Svört hleösla fylgir vélinni.
PC-10
Hentug Ijósritunarvél fyrir einstakl-
inga meö litla Ijósritun. Einföld, skýr
Ijósrit og Ijósritar á allan venjulegan
pappír. Verö 37.500.-
PC-25
Lítil Ijósritunarvél meö stórkostlega
möguleika. Hún stækkar um 120%
og minnkar um 67% og 78%. Tekur
8 Ijósrit á mín. Verö 59.800.-
Ljósritunarvél fyrir minnl fyrirtæki og
deildir stærri fyrirtækja, 8 Ijósrit á
mín. Kassetta fyrir 100 blöð (sölu-
hæsta Ijósritunarvólin í heimlnum í
dag). Verö 46.800,-
Skrifuélin hf DBI
Suðurlandsbraut 12 Sími 685277
*
Utisýning ungra
listamanna
TÍU UNGIR myndlisUrmenn halda
nú útisýningu í landi Dallands í
Mosfellssveit. Verkin eru flest unn-
in með tilliti til þeirra möguleika,
sem staðhættir leyfa, annað hvort
beint í landið, eða sem sjálfstæðir
skúlptúrar úr aðfengnum efnum.
Þeir sem sýna eru Sigríður Elliða-
dóttir, Nanna K. Skúladóttir, Gunn-
ar Arnason, Þórdís A. Sigurðardótt-
ir, Ólafur Sveinn Gíslason, Anna
Guðjónsdóttir, Kristinn E. Hrafns-
son, Ragnhildur Stefánsdóttir,
Helga Júlíusdóttir og Anna Sigríður
Sigurjónsdóttir.
Til að komast á sýningarsvæði
er Suðurlandsvegur ekinn frá
Reykjavík að afleggjaranum um
Geitháls. Þar er beygt til vinstri
og ekið sem leið liggur u.þ.b. 5 km
langan malarveg. Leiðin er merkt,
væntanlegum gestum til leiðbein-
ingar. Sýningarsvæðið er opið frá
kl. 14—20 daglega, en sýningunni
lýkur sunnudaginn 16. september.
(FrétUUIkjBBÍBg.)
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að hörðum árekstri á
Vesturlandsvegi þegar bræður lét-
ust síðastliðinn sunnudag. Á eftir
Volkswagen-bifreið bræðranna
var Saab-bifreið ekið i austurátt.
Lögreglan biður ökumann bifreið-
arinnar vinsamlega að gefa sig
fram.