Morgunblaðið - 09.09.1984, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 09.09.1984, Qupperneq 40
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 Ný mynd í elsta bíói bæjarins Kvikmyndír Olafur M. Jóhannesson Fjölskyldan sem um getur I myndinni á góðri stundu. Ný mynd í elsta bíói bæjarins. Nafn á frummáli: SHOOT THE MOON llandrit Bo Goldman. Framleióandi: Alan Marshall. Myndatökustjóri: Michael Seresin. Sýningaretaóur: Nýja Bíó. Oftastnær finnst mér nú borg- in okkar líkjast hálfsofandi skepnu sem mókir malandi, en er til alls vís, og þær stundir koma vissulega að hún ris af dvalanum og sýnir sitt sanna stórborgar- eðli. Þannig fannst mér hún verða síðastliðið fimmtudags- kveld, eins og svart pardusdýr, sem horfði á mig glitrandi rán- dýrsaugum í gegnum bílrúðuna í mynd marglitra bílljósa, sem köstuðust yfir svartan gljáandi feldinn og fylltu miðbæinn iðandi lífi. Það var einsog þetta rándýr hefði tekið af mér öll völd og leitt bílinn minn — inn að hjarta borgarinnar — og þegar loks stálfákurinn varð haminn við stöðumælinn, þennan hestastein nútrhans, leiddi skepnan mig inní sal elsta starfandi biós landsins, sem heitir þvi skondna nafni Nýja Bió. Kannski vissi borgin að sá er þetta ritar var á sinni hinstu ferð i bíósal i þeim til- gangi að skoða þar mynd gagn- rýnum augum. Hver veit nema við séum sem fruma i skrokki dýrsins. Það þekkir allar hugsan- ir okkar og tilfinningar og þegar við höfum einu sinni gefist borg- inni á vald, þá séum við hluti af hljómfalli hennar og þóknist henni að breytast úr malandi heimilisketti í rándýr með brugð- inn skolt, þá fyllumst við á samri stundu rándýrseðli. Hver veit? Slíkar hugsanir sóttu á mig síðastliðið fimmtudagskveld þeg- ar ég horfði á nýjustu mynd Nýja Bíós, ég hafði nefnilega ætlað að sjá allt aðra kvikmynd, i bíói sem staðsett er í hinum enda borgar- innar. En borgin tók mig að hjarta sínu — svona i tilefni dagsins. Nú, en svo við vikjum nokkrum orðum að nýjustu mynd þessa elsta biós landsins, sem ég rataði þarna inná i miðbænum fyrrgreint fimmtudagskveld, þá nefnist sú á frummálinu Shoot the Moon. í prógrammi hefir myndin hlotið heitið Á krossgötum. Mér finnst allt í lagi að kalla hana bara Skjótió mánann. Djörf þýð- ing máski. En einsog lesendur vita, þá er sá er hér stýrir penna býsna óhræddur við hið prentaða orð — þetta hefði aldrei gengið öðruvísi, skal ég segja ykkur. En sum sé við köllum nýjustu mynd Nýja Bíós Skjótió mánann. I mynd þessari er greint frá rithöfundi nokkrum George Dunlap að nafni er Albert Finney leikur og konu hans Faith er Di- ane Keaton leikur af sinni al- kunnu snilld. Hjónin eru i þann mund að slíta samvistir eftir fimmtán ára sambúð. En sá bögg- ull fylgir skammrifi að þau hjón- in eiga fjórar telpur. Lýsir mynd- in átökunum innan fjölskyldunn- ar, þá sú staðreynd er orðin ljós að heimilisfaðirinn er horfinn á vit annarrar konu — lambakjöts- ins margfræga. Allt er þetta svo sem gott og blessað, því leikur Finneys er óaðfinnanlegur og ekki er að kvarta yfir frammi- stöðu Keatons. Telpurnar njóta sn máski síður nema sú elsta, Sandy, er Karen Allen leikur. Myndataka er einnig til hinnar mestu prýði og handrit Bo Goldman fagmannlega unnið. Samt fannst mér vanta hárs- breidd uppá að hér ynnist sá list- ræni sigur sem greinilega var stefnt að. Vafalaust eru fjölmargir les- endur hér á öðru máli, en ég get ekki að því gert, að mér fannst mynd þessi eiginlega of listræn til að þar næðust sannfærandi tök á þeim hráslagalega veruleika sem um skyldi fjallað. Og þegar ég lít svona í kveðjuskyni yfir þær óendanlega mörgu kvik- myndir, sem ég hef augum litið sem forfallinn bíóáhugamaður, þá verður mér æ betur ljóst, að það eru ekki ætíð þær myndir sem státa af fagmannlegastri kvikmyndatöku eða fullkomnasta handriti eða styrkustu leikstjórn sem leysa sálina úr viðjum hvers- dagsleikans. Það sem gerir kvikmynd að kvikmynd er hljómfallið. Að þessu leyti er hún ekki ólfk borg- inni sem stundum breytist f rán- dýr sem hrífur mann á ólíkleg- ustu staði, innf nýjan heim. Það er hljómfallió í skrokki dýrsins sem öllu máli skiptir. Þessi mjúka áreynslulausa hreyfing, sem fyrr en varir er orðin sam- gróin manni sjálfum, uns maður hverfur á vit hins frumstæða eðl- is, sem fær mann ti að gleyma hversdagsleika hins borgaralega samfélags, sem gerir alla hluti svo stirðlega og hindrar gjarnan eðlilegt streymi líkamsvessanna, þessara frumhvata er knýja afl- vél sálarinnar á góðri stundu. Slíkt undur gerist gjarnan þeg- ar maður upplifir góða bíómynd einsog til dæmis The Producers eftir Mel Brooks eða The Fearless Vampire Killers eftir Polanski, að ekki sé minnst á Átta börn á einu árí með Jerry Lewis, svo dæmi séu tekin af léttara taginu. Eng- inn getur vitað með vissu hvenær hömlurnar falla og fugl sálarinn- ar flýgur út úr búrinu, til móts við þá „fugla“, er baða út vængj- unum á hvita tjaldinu. Hláleg staðreynd, en þannig held ég nú að þetta sé f pottinn búið, eins og þeir segja hjá sjónvarpinu, að mannskepnan sé alltaf að leita á vit dýrsins f sjálfri sér og það sem við köllum listaverk séu þau mannanna verk er bera með sér dýrseðlið, klætt í þann búning er vér viðurkennum á hverjum tíma. Tekið skal fram, að hér er átt við þá lifandi list er hrærist fyrir augum fjöldans á hverjum tfma, en ekki þann listheim sem aðeins er opinn hinum innvfgðu, rfku og iðjulausu. Þökk fyrir samfylgdina um þá tvo heima, er gjarnan mætast í listinni, ég vona að ég hafi farið bil beggja f minum fá- tæklegu skrifum um bfó og leik- hús. Afmælisrit Klemensar Tryggvasonar Klemens Tryggvason hagstofustjóri verður sjötugur 10. september nk. í tilefni afmælisins hefur verið ákveðið að gefa út afmælisrit til heiðurs Klemensi. í samráði við Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga var sett á laggirnar ritnefnd til að annast útgáfuna. Ritnefnd skipa: Jónas H. Haralz formaður, Bjarni Bragi Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Ingimar Jónasson, Jóhannes Nordal, Jón Sigurðsson, ólafur Björnsson, Torfi Ásgeirsson, Tryggvi Pálsson og Þórður Friðjónsson. Ritnefnd fól Sigurði Snævarr að hafa með höndum efnisrit- stjórn og gerði útgáfusamning við Almenna bókafélagið. í afmælisritinu, sem koma mun út í október, verða 23 ritgerðir eftir íslenska og erlenda hagfræðinga, samtals rúmlega 300 blaðsíður. Auk greina eftir velflesta ritnefndarmenn skrifa í ritið Brynjólfur Sigurðsson, Gamalíel Sveinsson, Guðmundur K. Magnússon og Tór Einarsson, Guðni Baldursson, Hallgrímur Snorrason, Haraldur Jóhannsson, Hjalti Krist- geirsson, Poul Höst-Madsen, Jón Þór Þórhallsson og Jón Zóphoníasson, Ingvar Ohlsson, Vilhjálmur ólafsson og Þráinn Eggertsson. í ritinu verða greinar um íslenska hagþróun, íslenska tölfræði (statistik) og hagfræðikenningar. Fremst í ritinu verður heillaóskalisti (Tabula Gratulatoria) til Klemensar. Yður er hér með boðin áskrift að ritinu og eruð vinsamlegast beðin um að útfylla og senda viðfest eyðublað til Almenna bókafélagsins, Austurstræti 18, 101 Reykjavík, eigi síðar en 20. september. Merkið umslagið „Afmælisrit Klemensar Tryggvasonar“. Sendir verða út póstgíróseðlar og verður ritið sent yður í póstkröfu um hæl. Bókin verður gefin út í tvenns lags bandi, annars vegar í venjulegu bandi og verður áskriftarverð þeirrar útgáfu 865 krónur. Hins vegar verður gefið út takmarkað upplag í skinnbandi með prentuðum saurblöð- um og verður áskriftarverð þeirrar útgáfu 1200 kr. Áskrift að afmælisriti Klemensar Tryggvasonar Ég óska eftir aö gerast áskrifandi aö afmælisriti Klemensar Tryggvasonar _ og láta skrá nafn mitt á heillaóskalista _____________________________________________ Ég óska eftir dýrari útgáfunni ( ), ódýrari útgáfunni ( ) (Krosslö vlö þaö sem viö á) Nafn: ________________________________________________________________________________ -»«-«-- Staöa: --------------------------------------------------—---------------------------- Siml: ..............—----------- Sendist Almenna bókafélaginu, Austurstræti 18,101 Reykjavík. NORDIA 84 Dregiö hefur veriö í aðgöngumiðahapp drætti norrænu frímerkjasýningarinnar NORDIU 84 hjá borgarfógetaembættínu í Reykjavík. Upp komu eftirtalin númer: íslenzk frímerki í 100 ár: Nr. A488, A732, A1060, B54, B358, B394. 10 stk. af hverri frímerkjaörk sýningarinnar (1982, 1983, 1984): Nr. A48, A297, A787, A1821, B246, B391. Vinninga má vitja í Frímerkjahúsinu, Lækjargötu 6A, Reykjavík. Old boys leikfimi Garðabæ Innritun fer fram þriöjudaginn 10. sept. kl. 18.00—19.00 og sunnudaginn 16. sept. kl. 11.00—12.00. Nú er tækifæriö til allrar líkams- ræktar — þrektæki, heitir pottar og æfingar. Veriö með frá byrjun. Allir velkomnir. Uppl. í síma 53066 á innritunartíma. Ungmennafélagiö Stjarnan. íþróttahúsiö Ásgaröur Garöabæ.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.