Morgunblaðið - 09.09.1984, Qupperneq 42
46 Þ
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
Vidkun Quisling og María kona hans á heimili sínu í Ósló eftir heimkomuna frá Rússlandi áríð 1929.
Quisling eins og hann kemur fram í skjölunum:
Fékk bréf frá SS-foringjanum
Heinrich Himmler árið 1933
Það var þegar í janúarmánuði árið 1933 — áður en Adolf
Hitler komst til valda í Þýskalandi og áður en Vidkun Quisl-
ing, sem þá var varnarmálaráðherra í stjórn Bændaflokksins
í Noregi, hafði stofnað nasistaflokk sinn — að samband hafði
komist á milli SS-foringjans Heinrichs Himmlers og norska
fóðurlandssvikarans.
í forsendum dauðadómsins yfir Quisling árið 1945 sagði
m.a., að það hefði verið valdagræðgi af verstu tegund, sem
rekið hefði hann til þess að taka völdin. Nær virðist þó að
ætla að hann hafi talið sig knúinn til þess af guðlegri köllun.
Á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina var Vidkun Quisl-
ing hlunnfarinn í peningamálum, þegar hann var að bera sig
til að afla fjár til að halda uppi starfí hins nýja flokks síns,
Nasjonal Samling, m.a. með listaverkasölu.
orðið pólitískur banabiti varnar-
málaráðherrans," skrifar Hans
Fredrik Dahl og bætir við, að þá
hefði heldur ekkert orðið úr frek-
ari stjórnmálaframa Quislings.
En bréfið fór aðeins i einkaskjala-
safn ráðherrans.
Himmler kom ekki til Noregs á
þeim tíma, sem tiltekinn hafði
verið í bréfi hans. Aðeins nokkr-
um vikum eftir að hann sendi það
af stað frá höfuðstöðvum þýsku
nasistanna í Múnchen, komst
Hitler til valda í Þýskalandi. Það
var 30. janúar. SS-foringinp fékk
þá um annað að hugsa og gleymdi
majórnum í Ósló.
Bréfið frá Himmler hefur
endurvakið gamalt ágreiningsefni
um það, hvenær Vidkun Quisling
hafi gerst svikari; hvort það hafi
verið árið 1933 eða árið 1939, þeg-
ar hann fór til Þýskalands á fund
Hitlers. Bréfið sannar, hvað sem
öðru líður, að Quisling var
snemma á ferli sínum kominn í
slagtog með þýsku nasistunum.
Flest málverkanna
reyndust fölsuð
Þegar ekkja Quislings lést árið
1980 urðu á ný miklar bollalegg-
ingar um málverkasafn það, sem
verið hafði í eigu þeirra hjóna.
Menn veltu því fyrir sér, hvort
málverkin hefðu verið ekta eða
svikin. Skjölin, sem nú hafa komið
fram, rekja hrakfallasöguna um
Heinrich Himmler.
Ofangreindar upplýsingar um
norska nasistaleiðtogann er að
finna í einkaskjalasafni hans,
þ.e.a.s. þeim hluta þess, sem ný-
lega kom fram f dagsljósið og út-
drættir hafa verið birtir úr í
Óslóar-blaðinu Dagbladet. Skjölin
gefa einkum glögga mynd af per-
sónu Quislings, en hafa einnig að
geyma upplýsingar, sem valda því,
að endurskoöa verður sögu hans.
Hefði leitt til
stjórnarkreppu
Meðal þess athyglisverðasta,
sem safn þetta hefur að geyma, er
bréf, sem þýski SS-foringinn
Himmler sendir Quisling, sem þá
gegnir embætti varnarmálaráð-
herra Noregs, í janúarmánuði
1933.
í bréfinu getur Himmler þess,
að hann muni áreiðanlega koma
til Óslóar þá um vorið, að hann
segist hlakka til þess að eiga fund
með Quisling til að „stuðla að var-
anlegum tengslum milli okkar,
þýskra nasista, og skoðanabræðra
okkar í Noregi."
Menningarritstjóri Dagbladet,
Hans Fredrik Dahl, sem þekktur
er fyrir fræðimennsku um nas-
ismann í Noregi, hefur kynnt efni
skjalasafnsins og fylgt því úr
hlaði í blaði sínu. Hann segir m.a.
að ef vitnast hefði um bréfið frá
Himmler á þessum tíma, hefði það
leitt til stjórnarkreppu. Hann ef-
ast einnig um, að Quisling hefði þá
reynst fært að bjóða sig fram í
kosningunum sem fram fóru um
haustið.
„Hefði bréf þetta lent í annarra
höndum en hans eigin, hefði það
það, þegar Quisling ætlaði að afla
flokki sínum fjár með lista-
verkabraski.
Flest málverka þeirra hjóna
reyndust fölsuð, en þau sem voru
ekta, og þar með einhvers virði,
lentu í klóm slunginna listaverka-
sala, sem plötuðu Quisling og
fengu verkin fyrir smánarverð.
Eitt þessara verka var „Hollensk
fjölskylda" eftir Frants Hals.
Rctd)éfuf>rutifl ber (B£>uí$affeltt
■Burau-----------------------------
840*5->7 a. 84041
9>tl4<4Ull(:
M4>Wnni| *« •« n «.•.«.«.
888*4««
• »««««*9 r«l* <8
»i«ii*«|: Der ReichsfUbrer-33
Tgb.Nr. M
Kíh(...m J. Juuar 19J2.
Statsrod Vidkun Quisling,
0 s 1 o
Sehr geehrter Herr Minieter I
Durch Pg. Pferdekaenper erhielt ioh Jhre Anachrift.
Jch hoffe in Laufo des eraten Vierteljahres 1933 eine Roise nach
Horwegen nochen zu können und werde 8ie dann bestÍBat in Oslo aufeucher
mid aich dort eln paar Tage aufhalten, sodass in ntindlicher /.usspraohe
eine dauerhafte Verbindung zwischen uns deutechen Hatlonalsozialisten
und sinnesrerwandten Uenschen in Horwogen hergestellt wird.
Jch werde mir crlauben, aeine /rtkunft in Oslo rechtzeitig, un-
gefdhr 8 Tege voihcr, Bltzuteilen.
Jch bin Bit nordischoa Gruss
und Heil Hltler 1
Der HeichsfUhrer-SS
Jhr sehr ergebener
sK&nmítf.
Bréf Himmlers er rangt dagsett Dagsetningin á aó vera 3. janúar 1933. Heinrich Himmler, einn mesti bödull nasismans, skrifaði Quisling og bauö honum samvinnu áriö 1933.