Morgunblaðið - 09.09.1984, Page 73

Morgunblaðið - 09.09.1984, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 77 „I sídustu viku vidurkenndu meira aö segja harösvíraöar repúblíkönur frá Texas, meö lýsta lokkana haröa af há rlakki yfir stífmáluöum ásjónum, aö systirin stæöi sig meö prýöi“ fangsefni þingfulltrúa utan dagskrár. Þeir sveipuðu sig í rauða, hvíta og bláa dúka, sungu ættjarðarlög, fögnuðu verðlauna- höfum frá Olympíuleikunum fölskvalaust. (Það þurfti náttúr- lega ekki að taka það fram að hefði Carter-Mondale hörmungin verið við lýði þá hefðu Bandarikin mátt þakka fyrir að vinna þrjú brons.) Umræður um Grenada-málið, hernaðarsigurinn þegar Banda- ríkjamenn létu Kúbu-menn bara fjúka sína leið, fengu litlar undir- tektir aðrar en „amen“ eins og í messu. Dapurlegri vopnaskipti, eins og þau sem eiga sér stað í Beirút, voru varla nefnd. „Ekki einn þumlungur lands,“ þrumaði Reagan, hefur fallið í hendur kommúnistum." Allt ætlaði um koll að keyra i fagnaðarlátum þeg- ar Reagan og Bush komu upp á sviðið með Ray Charles (blinda negrasöngvarann) á milli sín. Jesse Jackson má fara að vara sig. Og víst er að Regan lék hið mót- sagnakennda hlutverk sitt aðdá- anlega vel. Hann er hershöfðing- inn sem aldrei hefur farið í stríð. Hann er tákn fjölskyldudyggðar og hann er fyrsti fráskildi forset- inn í sögu Bandaríkjanna. Hann er langelsti forsetinn í sögu Bandaríkjanna og þó hópast unga fólkið um flokkinn hans. Hann fer aldrei í kirkju og samt er hann yndir og eftirlæti hins móralska meirihluta. Hann er bara venju- legur maður sem gæti sem bezt verið í „bowling“-liðinu i bænum og samt veitir hann forystu ríkis- stjórn sem rekur afdráttarlausa stefnu. Hann er hugsjónamaður en hagar þó seglum eftir vindi. Þessi galdaruppskrift gerir það að verkum að hann hefur áunnið sér landsföðurlegt yfirbragð Eis- enhowers án þess að missa tök sín á flokknum. Og þau tök eru mjög sterk. Hvað sem endurfædda og strangtúaða liðsmenn Krists, sem berjast gegn fóstureyðingum, og harðsvíraða kaupsýslumenn kann að greina á um, þá mætast þeir undir regnhlíf Reagans. Á flokks- þinginu voru 2.235 fulltrúar og að- eins tveir þeirra sátu hjá og greiddu Reagan ekki atkvæði. (Jafnvel vinirnir í Kreml hljóta að vera gulir og grænir.) Það lítur sem sé út fyrir að hann sé einstaklega farsæll forseti sem er í þann veginn að sigla þöndum seglum inn í annað kjör- tímabil og muni sfðan skila sam- einuðum flokki í hendur þeirra sem á eftir koma. Hvorugt er rétt. Hann er gallagripur, kærulaus og latur, og hann á framundan gíf- urlega erfitt kjörtímabil þar sem mistökin blasa við. Hann er leið- togi flokks þar sem hrægammar munu berjast um bein hans, jafn- vel áður en hann hverfur af sjón- arsviðinu. Þar til flokksþingið hófst hafði ágúst-iránuður verið honum erfið- ur í skauti. Hann hafði haft það í flimtingum að hann ætlaði að gjöreyða Rússum, Nancy hafði orðið að endurtaka einfalda spurningu af því að hann er orð- inn heyrnarsljór, hann var kom- inn í ógöngur með skattastefnu sína, starfsmaður nokkur hafði skýrt frá því að Reagan dottaði á ríkisstjórnarfundum. Það kann að virðast ótrúlegt hverjum þeim sem ekki þekkir til í Bandaríkjunum en ekkert virðist hrína á Reagan. Á því eru margar skýringar og ein er sú að fólk geri ekki lengur miklar kröfur og hafi litlar væntingar. Hvað sem um það er þá er það staðreynd að flestir Ameríkanar eru farnir að kunna vel við Reagan í Hvíta hús- inu og þá langar ekkert til að heyra um galla hans ef þeim er þá ekki nákvæmlega sama um þá. Þeir sem gerzt þekkja til í Washington fá hroll við tilhugs- unina um vaxandi viðskiptahalla, brigðula utanríkisstefnu og öfga- full samskipti við Sovétríkin, og stundum klípa þessir menn sig í handlegginn til að fullvisssa sig um að þá sé ekki að dreyma. Hvernig getur maður á áttræðis- aldri, með takmarkaða hæfileika til að setja sig inn í flókin mál, umkringdur fólki sem fæst er lík- legt til afreka, ráðið öllu sem hann vill ráða í krafti sólskinsbross og hunangsraddar? Þeir geta huggað sig við það að þetta ástand muni ekki vara lengi úr þessu, að næstu hveitibrauðsd- agar verði skammvinnir, bæði með tilliti til þings og þjóðar, að maður sem bjóði pólitisku þyngd- arlögmáli birginn muni falla að lokum. Þeir spá efnahagsörðug- leikum sem verða muni til þess að repúblikanar stórtapi í kosningum til þings á árinu 1986. Og þeir spá stöðnun í samskiptum stórveld- anna. Mikið veltur á því hvort hinir ungu íhaldssömu hugmyndasmiðir sem Reagan hefur á að skipa halda áfram að fá hugmyndir eða hvort mistök verða til þess að draga úr þeim kjark þannig að eina leiðin sé að róa á gömul mið og stjórna samkvæmt aðferðum sem þegar hafa sannað gildi sitt. Undir sigurvissu og einingu repúblikanaflokksins kraumar baráttan um flokkssálina og æðstu völd í flokknum. Þetta mun koma upp á yfirborðið um leið og sá gamli lætur bilbug á sér finna. í stórum dráttum þá eru þetta átök milli hófsamra afla í flokkn- um annars vegar og „nýju hægri- sinnanna" hins vegar. Hinir hóf- sömu hafa ekki roð við andstæð- ingnum og eru beizkir og vondauf- ir. Heilztu forvígismenn þeirra njóta virðingar í flokknum, menn eins og George Bush og Howard Baker. Vegna aldurs og eiginleika sinna standa þeir vægast sagt illa að vígi gagnvart skæruliðinu sem tók flokksþingið í sínar hendur og er í þann veginn að tryggja Reag- an forsetaembættið næsta kjör- timabil. Líkur eru á því að þá verði fylgt stefnu sem verður enn róttækari en sú sem nú er við lýði, og skæruliðarnir láta sig dreyma Ijúft um þannig megi fylkja liði sem duga muni í ameriskri pólitík næstu þrjátiu ár. Hinir uppreisnargjörnu leiðtog- ar eru ungir fulltrúadeildar- þingmenn sem ganga undir nafn- inu „C-Span strákarnir" síðan þeir tóku þátt i sögufrægri útsendingu C-Span kapalsjónvarpsins frá fundum í fulltrúadeildinni. Sagan segir að ónafngreindir starfsmenn Hvíta hússins hafi reynt að vernda Reagan fyrir strákunum en einn góðan veður- dag hafði forsetinn ekkert sér- stakt fyrir stafni. Hann naut þess að taka það rólega i einkaíbúð sinni og þrýsti áhvern rásar- hnappinn af öðrum á sjónvarp- stækinu sínu þangað til hann rakst á C-Span strákan sem ruddu úr sér kenningum um efnahags- legt og félagslegt gildismat. Þetta átti nú við forsetann. Hann drakk í sig boðskapinn og síðan sér hann ekki sólina fyrir drengjunum. Þeir standa fast saman um kenningar sínar. 15 úr hópnum hittast vikulega til að bera saman bækur sínar. Á sama hátt og Gary Hart eru þeir sannfærðir um að þeir hafi komið auga á grundvall- arbrest í þvi skipulagi sem á að tengja fortíð og framtíð. Þeir eru líka sannfærðir um að þeir einir eigi framtíð fyrir sér sem í senn hafi skilning á þessu og hafi póli- tiskan styrk til að taka því. Þeir átelja flokkinn fyrir að hafa sætt sig við það hlutverk að vera í andstöðu frá því í tíð Roose- velts. Ef frjálslyndir demókratar segja „málum stofuna skær- græna,“ segja C-Span strákarnir, þá svara repúblikanar yfirleitt með því að leggja til að liturinn verði mildaður ofurlítið. En skyn- samlegasti kosturinn er vitaskuld sá að mála stofuna alls ekki. Þeir álíta Reagan mjög ákjósanlegan til að brúa bilið og telja þvi nauð- synlegt að endurkjósa hann en þeir eru með langtímaáætlanir á prjónunum og ætla að fram- kvæma þær löngu eftir að Reagan er úr sögunni. Þeir eru klárir, fyndnir og kot- rosknir. Þeir aðhyllast Taoisma, vilja útflutning á „ameríska draumnum" til þróunarlandanna og dýrka tölvur meira en nokkur villimaður hefur nokkurn tíma dýrkað tunglið. „Þjóðfélag tæki- færanna" nefna þeir framtíðar- sýnina. Þeir vilja að enn verði dregið úr skattlagningu. Þeir vilja á ný hefja gullið til vegs og virðingar. Þeir vilja gelda Seðlabanka Bandaríkjanna. þeir vilja bæna- hald í skólum, stöðvun fóstureyð- inga og tölvu á hvert baðherbergi í hvern moldarkofa. Þeir segja að þeir séu neðst í S-beygju (dæmi um orðalagið sem þeir hafa tamið sér), þ.e. á fyrstu stigum þeirrar þjóðfélagsgerðar sem kemur í kjölfar iðnþjóðfélagsins, og þeir álíta að með því að hagnýta ímyndunarafl ungs fólks séu þeir í vann veginn að gera repúblikana að yfirburðaflokki í bandarísku stjórnmálum. Þingmaðurinn Jack Kemp verð- ur merkisberi þeirra í kosningun- um sem fram fara 1988. Hann skipulagði fyrstu skattalækkanir Reagans. Hann er sannkölluð hetja, myndarlegur með afbrigð- um, fyrrverandi atvinnumaður 1 fótbolta, og eini maðurinn á flokksþinginu sem fékk állka hlý- legar viðtökur og Reagan sjálfur. Verði síðara kjörtímabil Reagans farsælt getur Kemp með réttu krafizt þess að verða heimspeki- legur lærifaðir hans og arftaki í senn. Ef Reagan mistekst þá getur Kemp haldið þvi fram að það sé af því að hinn aldraði leiðtogi hafi ekki haft þrek eða framsýni til að komast á leiðarenda. Veslings George Bush er sagður vera dyggur og nýtur — hvort tveggja vonlaust í pólitík — en hann skortir gjörsamlega það að- dráttarafl sem Kemp hefur gagn- vart flokksmönnum. Meðal manna hans er upplausn ríkjandi. Blaða- mannafundir þeirra eru dauflegir og óspennandi. Þeir hímdu f horn- unum á flokksþinginu og tuldruðu: „Okkar tími kemur.“ Hinir hóf- sömu líta svo á að repúblikanar geti aukið fylgi sitt með að flokk- urinn breikki þann grundvöll sem hann stendur á. C-Span strákarnir trúa á hugmyndafræði sem er ein- föld og telja að um hana eigi að láta fjöldan fylkja sér. „Flokkur okkar,“ sagði Reagan á flokksþinginu í Dallas „er flokkur nýrra hugmynda og nýs frum- kvæðis, flokkur afls og eftirvænt- ingar, flokkur framttíðarinnar... GOP (stendur fyrir Grand Old Party og er gælunafn repúblik- anaflokksins) hefur fengið nýja merkingu. Nú þýðir það Great Opportunity Party (flokkur mik- illa tækifæra). Reagan hefur heitið þvi að leggja sig allan fram i kosninga- baráttunni en sitja ekki aðeins við stjórnvölinn. Árið 1988 gætu það hæglega orðið C-Span strákarnir gegn Gary Hart. Hvilik framtið! (ílr The Obeerver.) Þeir eru klárir, fyndnir og kotrosknir. Þeir aöhyllast Taoisma, vilja útflutn- ing á „ameríska draumnum“ til þróun- arlandanna og dýrka tölvur meir en okkur villimaöur hefur nokkurn tíma dýrkaö tungliö. „Þjóöfélag tækifær- anna“ nefna þeir framtíöarsýnina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.