Morgunblaðið - 24.10.1984, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
Sáttafundur f BSRB-deilunni í dag:
Timinn rcnn-
ur frá okkur
— segir ríkissáttasemjari
„ÉG GET ekki svarað því hvað lagt verður fram á þessum fundi“, sagði
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, er blm. Morgunblaðsins spurði
hann um sáttafundinp i deihi BSRB og ríksins, sem boðað var til í dag. „Það
voru engar línur lagðar fyrir fundinn, en tíminn er að renna frá okkur svo að
ég taldi mig ekki geta frestað því lengur að boða til fundar,“ sagði ríkissátta-
semjari ennfremur.
„Við teljum að fjármálaráð- samningnum, sem samþykktur
Töf á losun olíuskipsins:
herra eigi næsta leik,“ sagði Krist-
ján Thorlacius, formaður BSRB, á
fundi með fréttamönnum í gær
þar sem BSRB menn gerðu grein
fyrir sínum sjónarmiðum í deil-
unni. Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu er þar lögð höfuð-
áhersla á kaupmáttartryggingu (
einhverju formi. Einnig leggja
BSRB-menn áherslu á sérstakar
launahækkanir vegna launaskriðs,
eða yfirborgana, á vinnumarkað-
inum. í þriðja lagi er lögð áhersla
á að sérkjarasamningar verði
teknir upp eins og lög gerðu ráð
fyrir, að sögn þeirra BSRB-
manna. Að sögn Kristjáns Thor-
lacius mun BSRB ekki ganga að
sömu samningum og gerðir hafa
verið að undanförnu, svo tekið sé
mið af nýgerðum kjarasamningi
bókagerðarmanna og Akureyrar-
var í fyrradag. „Við teljum að
þessir samningar feli ekki i sér
nægilegar kjarabætur", sagði for-
maður BSRB.
Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, var í miklum önnum í
gærdag og er blaðamaður Morg-
unblaðsins hitti hann að máli i Al-
þingishúsinu i gær kvaðst hann
ekki geta á þessu stigi sagt um
hvert framhaldið yrði í þessari
viðkvæmu kjaradeilu. Albert lýsti
því m.a. yfir í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær að síðasta
tilboð rikisins væri langt umfram
það sem hann teldi að rikissjóður
þyldi. BSRB-menn héldu hins veg-
ar fast við upphaflegar kröfur sin-
ar um 30% hækkun eða meira og
taldi fjármálaráðherra það ekki
sýna mikinn samningsvilja af
þeirra hálfu.
Olían hækkar um
100 þús. kr. á dag
— Verður skipið losað í dag?
SOVÉSKT olíuflutningskip, sem
kom til landsins meö 18.800 tonn af
svartolíu þann 16. október sl., lá í
gærkvöldi enn við festar á Kollafirði
þar sem skipið hefur ekki fengist
losað vegna verkfalls BSRB. Undan-
Kristján Thorlacius um bréf fjármálaráðuneytis:
„Minnir á Pólland
og Suður-Ameríku“
í BRÉFI, sem stjórn BSRB sendi al-
þingismönnum í gær, er greint fri tii-
lögu sem samþykkt var á fundi stjórn-
ar bandalagsins, þar sem mótmælt er
harðlega „þeirri einræðislegu fram-
kvsmd fjármálaráðherra, sem fram
komi í þremur bréfum hans, dagsettum
25.9, 8.10. og 22. 10., en með bréfum
þessum sé stefnt að þvf að afnema þau
mannréttindi og það lýðfrelsi, sem ís-
lenskt þjóðfélag byggi á“, eins og segir
í bréfi BSRB.
í fyrsta bréfinu var m.a. fjallað
um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins, einkum hvað varðar störf
forsööumanna stofnana i verkfalli.
Sagði þar m.a. að forstöðumenn
gætu gengið i hver þau störf sem
undir verksvið stofnunar þeirra
heyrðu. 1 bréfinu frá 8.10. segir m.a.
að fjármálaráðuneytið telji mjög
brýnt að ráðuneyti og forstöðumenn
stofnana skrái þau tilvik, sem telja
má að varði við lög og valdi ríkis-
sjóði tjóni sem telja verði bótaskyld.
Þriðja bréfið frá fjármálaráðu-
neytinu er dagsett í fyrradag, 22.
október, en þar er m.a. fjallað um
tollafgreiðslu í verkfalli BSRB og að
tollverðir, sem kjaradeilunefnd úr-
skurðaði til starfa, hafi verið hindr-
aðir í störfum sínum. í niðurlagi
bréfs fjármálaráðuneytisins segir
síðan: „Með vísan til ákvæða 106. og
107. greinar almennra hegningar-
laga telur ráðuneytið eðlilegt að mál
það sem hér um ræðir sæti opinberri
rannsókn. Áður en ákvörðun um
slíka aðgerð er tekin vill ráðuneytið
hvetja BSRB til að létta af þeim
hindrunum sem settar hafa verið 1
veg tollvarða!"
I samþykkt stjórnar BSRB, sem
send var alþingismönnum, er vakin á
því athygli, að í bréfum þessum fel-
ist fyrirskipun til forstöðumanna
ríkisstofnana að ganga f verk undir-
manna, sem séu í verkfalli, og þar
með fremja verkfallsbrot. í öðru lagi
sé það ögrun við féiagsmenn um
skrásetningu á gjörðum þeirra og
framkomu að viðlögðum brottrekstri
síðar. í þriðja lagi sé hér um aö ræða
hótun um beitingu hegningarlaga
samkvæmt lagagreinum, er varðað
geti margra ára fangelsi, eins og
komist er að orði í bréfi BSRB.
Stjórn BSRB beinir því til alþing-
ismanna, „hvort þeir telji að i lög-
gjöf, sem Alþingi hefur samþykkt,
feiist þessi stefna og hvort það sé
vilji Alþingis að réttarríkið sé af-
numið með þessum hætti af fram-
kvæmdavaldinu", eins og segir í
bréfi BSRB.
Á fundi með fréttamönnum, sem
haldinn var á skrifstofum BSRB síð-
degis í gær, var greint frá efni bréfs
þessa og sagði Kristján Thorlacius,
formaður BSRB, að innihald þessara
þriggja bréfa fjármálaráðuneytisins
væri mjög alvarlegt mál, ekki aðeins
fyrir samtök opinberra starfs-
manna, heldur einnig fyrir önnur
launþegasamtök og raunar allt þjóð-
félagið. „Hér er verið að stiga nýtt
skref í islenskri þjóðmálaumræöu,
sem einna helst minnir á Pólland
eða Suður-Ameriku,“ sagði formaður
BSRB. Kristján Thorlacius kvaðst
ekki vilja segja um á þessu stigi
hvort bréfaskriftir þessar hefðu
áhrif á gang samningaviðræðna og
sagði hann, að BSRB myndi i engu
breyta um aðferðir í verkfallsað-
gerðum sínum „þrátt fyrir þessar
hótanir", eins og hann orðaði það.
þágubeióni olíufélaganna var til at-
hugunar hjá verkfallsnefnd BSRB í
gærkvöldi og en þá var búist við að
undanþága til losunar skipsins yrði
veitt með skilyrðum.
Olíufélögin þurfa að greiða út-
gerð skipsins bætur vegna tafar
þess hér við land. Ekki er búið að
semja um bæturnar en samkvæmt
heimildum Mbl. gæti kostnaður-
inn verið nálægt 100 þúsund krón-
um á dag, eða samtals 800 þúsund
miðað við að skipið fáist losað í
dag. Kostnaður þessi verður lagð-
ur ofan á cif-verð svartolíunnar.
Skipstjóri olíuskipsins og yfir-
menn hans i Sovétríkjunum eru
órólegir yfir þessari töf á losun
skipsins og hafa margsinnis hótað
að sigla með farminn eitthvað
annað ef það fæst ekki losað fljót-
lega.
Annað sovéskt olíuflutninga-
skip er á leiðinni með gasolíu og
bensín. Er það væntanlegt til
landsins síðar i vikunni. Birgðir af
þessum vörum eru taldar duga í
nokkra daga, jafnvel fram að
Fólskuleg árás á
aldrada konu
LAUST fyrir klukkan 20.30 I gær-
kvöldi var gerð fólskuleg árás á aldr-
aða konu á Bjarnarstíg í Reykjavík.
Var stolið af henni veski en konan
flutt á slysadeild Borgarspítalans.
Konan, sem er 77 ára gömul, var
felld í götuna svo að hún hruflað-
ist á hnjám og höndum. í veskinu
voru um 1.200 krónur i peningum
auk persónuskilríkja. Ekki var i
gærkvöldi búið að hafa upp á árás-
armanninum en talið að þarna
hafi einn unglingur verið að verki.
Konunni var ekið aftur heim af
slysadeildinni í gærkvöldi.
1
Kaupfélag Eyfirðinga og Dalvíkurbær:
Eaupa hlutafé
Söltunarfélagi
Kaupin gerð í þeim tilgangi að styrkja rekstur félagsins og atvinnu-
öryggi í bænum, segir Kristján Ólafsson, fulltrúi kaupfélagsstjóra
einstaklinga
Dalvíkur hf.
NÚ HEFUR nánast verið gengið frá
kaupum Kaupfélags Eyfirðinga og
Dalvíkurkaupstaðar á hlutabréfum
einstaklinga í Söltunarfélagi Dalvík-
ur. Bærinn á fyrir 30% í fyrirtækinu,
KEA á 5%. 45% hlutabréfa fyrirtæk-
isins eru í eigu Snorra Snorrasonar,
útgerðarmanns, og 20% í eigu ann-
arra einstaklinga og félagsins sjálfs.
Eignir Söltunarfélagsins eru fast-
eign þar sem rækjuverksmiðja er til
húsa, togarinn Dalborg og helming-
ur í togaranum Baldri.
Rekstur fyrirtækisins hefur
gengið erfiðlega að undanförnu og
mun það meðal annars skulda
KEA um 8 milljónir króna. Kaup
þessi, sem samþykkt hafa verið
einróma í bæjarstjórn, eru meðal
annars í þeim tilgangi, að sögn
Kristjáns ólafssonar, fulltrúa
kaupfélagsstjóra, að renna nýjum
stoðum undir rekstur Söltunarfé-
lagsins til að auka atvinnuöryggi i
bænum.
Snorri Snorrason, útgerðarmað-
ur á Dalvík og eigandi 45% hluta-
fjár Söltunarfélagsins, sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins,
mánaðamótum miðað við venju-
lega sölu samkvæmt heimildum
Mbl. Eftir það má búast við bens-
ínskorti ef skipið fæst ekki losað.
Starfsmaður
RARIK í gæzlu-
varðhaldi
STARFSMAÐUR Rafmagns-
vcitna ríkisins situr nú í gæzlu-
varðhaldi eftir að kæra barst frá
RARIK þess efnis að maðurinn
sé grunaður um misferli í starfl.
Hann er grunaður um að hafa
beint vörukaupum til fyrirtækis í
Reykjavík gegn því að reikn-
ingar, sem RARIK voru sendir
fyrir vörurnar, væru hærri en
næmi söluverði og síðan stungið
mismuninum í eigin vasa. Mað-
urinn var úrskurðaður í gæzlu-
varðhald 17. október síðastlið-
inn að kröfu Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og rennur gæzlu-
varðhaldið út 31. október.
Rannsókn málsins er á
frumstigi, en maðurinn er
grunaður um að hafa tekið fé á
þennan hátt svo nemur hundr-
uðum þúsunda króna.
að rekstur Söltunarfélagsins hefði
gengið erfiðlega að undanförnu
eins og rekstur annarra fyrir-
tækja í 8jávarútvegi. Hefðu hlut-
hafar og væntanlegir kaupendur
þvi orðið sammála um, að helzta
leiðin til að renna styrkari stoðum
undir reksturinn væri að selja fé-
lagið bænum og kaupfélaginu.
Með þeim hætti væri hægt að
samræma rekstur Söltunarfélags-
ins og Útgerðarfélags Dalvíkinga
en eina frystihús staðarins væri í
eigu kaupfélagsins.
Athugasemd
borgarstjóra
við leiðara
Morgunblaðsins
í LEIÐARA Mbl. í dag er sagt
að ég hafi boðið borgarstarfs-
mönnum sömu kjör og Kópa-
vogur hefði gert. Þetta er reg-
inmisskilningur. í framhaldi af
samningum við borgarstarfs-
menn lýsti ég yfir því, af því
tilefni, að ríkið gaf óvænt til
kynna skömmu fyrir atkvæða-
greiðslu borgarstarfsmanna,
að það gæti teygt sig ívið
lengra en borgin, að borgar-
starfsmenn myndu fá það sem
almennt yrði um samið við
opinbera starfsmenn. 1 þvi
fólst engin yfirlýsing um að
borgin myndi elta einstök
sveitarfélög úti á landi í þær
áttir, sem þau kynnu að teygj-
ast eða togast.
Þokast í sam-
komulagsátt
SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu blaða-
manna og blaðaútgefenda hófst hjá
sáttasemjara klukkan 14 í gærdag.
Fundinum var framhaldið
klukkan 20 í gærkvöldi eftir mat-
arhlé. Samkvæmt upplýsingum
deiluaðila þokaðist í samkomu-
lagsátt á fundinum.