Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
Múlakvfalin hefur rerið að brjóU úr svonefndum Höfðabrekkujðkli, og er nú eingöngu mjótt haft eftir milli
Múlakvfalar og Kerlingardafaár. Morgunblmðið/Reynir.
Vík í Mýrdal:
Opnar Múlakvísl leið
fyrir Kötluhlaup?
— ekki ástæöa til aö óttast, segir formaöur AlmannavarnaráÖs
FARVEGUR Múlakvfalar í Mýrdal
hefur á undanförnum árum brotió úr
svonefndum Höföabrekkujökli og er
nú aðeins mjótt haft eftir á milli
Múlakvfalar og Kerlingardafaár.
I*egar áin hefur náð að brjóU haftið
á hún greiðan aðgang til Víkur og
hefur opnað leið þangað fyrir Kötlu-
hlaup. Af þessu sUfar mikil hætu
fyrir Víkina, verði ekkert gert til að
halda Múlakvfal í farvegi sínum,
skv. upplýsingum frá frétUriUra
Mbl. í Vík í Mýrdal.
Morgunblaðið hafði samband
við Snæbjörn Jónasson, vegamála-
stjóra og formann Almanna-
varnaráðs, og spurði hann hvað
Almannavarnir hygðust gera í
málinu.
Sagði Snæbjörn að fylgst hefði
verið með þessu og bæði í fyrra og
í ár hefðu verið gerðar mælingar á
því hvernig Múlakvísl brýtur af
jöklinum. Þó sagðist hann enga
ástæðu sjá til að óttast það að áin
næði til Víkur og gat þess að fjall-
að yrði um málið á fundi Al-
mannavarnaráðs, sem haldinn
verður síðar í þessum mánuði.
Hús & Híbýli komið ut
HÚS & Híbýli, fjórða tölublað, er
komið út. f blaðinu er grein um fa-
lenskan myndlfaUrmann, Elías
Hjörleifsson, sem býr ásamt konu
sinni, Elísabetu, í aldargömlum
bóndabæ í Danmörku. Húsið hafa
þau verið að endurbæU um nokkurt
skeið og einnig 200 ára gamalt útk
hús.
Þá er einnig litið inn hjá þeim
Pétri Maack og Ragnheiði ólafs-
dóttur, sem hafa gert umtalsverð-
ar endurbætur á gömlu húsi við
Bergstaðastræti. Sömuleiðis er lit-
ið inn í hús í Keflavík þar sem
stofuveggirnir eru klæddir íben-
holti og svartviði.
Af öðru efni þessa tölublaðs má
svo nefna greinar um húsgögn,
smíðar, innréttingar, kamínur,
bækur og sérverslun með te og
kaffi.
Loks má nefna kynningu á ía-
lenskum innanhússarkitekt og
húsgagnahönnuði. Hann heitir
Leó Jóhannesson og starfar í Sví-
þjóð.
H&H kemur út sex sinnum á
ári. Næsta blað kemur út í októ-,
ber. Ritstjóri er Þórarinn Jón
Magnússon, útgefandi er SAM-
útgáfan.
(ÍJr frétutilkyaningn.)
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stál 37.2 DIN 17100
Allar algengar stærðir
Hh.e.b. 31
U.N.P.
SINDRA
STALHF
I.P.E.
Borgartúni 31 sími 27222
12 nýjar bækur
um Smjattpatta
BÓKAÚTGÁFAN Vaka hefur nú
sent á markað tólf nýjar sögubækur
um Smjattpattana. Bækurnar eru
hver um sig 32 síður með litmyndum
á hverri síðu.
Söguhetjurnar í Smjattpatta-
bókunum eru allar úr jurtaríkinu,
persónugerfingar ávaxta og
grænmetis, þar á meðal Kalli
kartafla, Lúlli laukur, Jóna jarð-
arber, Tommi tómatur og Emma
epli. Smjattpattarnir urðu fyrst
vinsælir i bókunum, en síðar voru
gerðir sjónvarpsþættir um ævin-
týri þeirra, sem meðal annars
hafa verið sýndir í íslenzka sjón-
varpinu.
Fyrstu bækurnar um Smjatt-
pattana komu út hjá Vöku árið
1982 og eru titlarnir nú orðnir 34,
en 22 þeir fyrstu eru alveg upp-
seldir segir í frétt frá útgefanda.
Þar segir ennfremur, að kannanir
erlendis hafi sýnt að bækurnar
höfði einkum til barna á aldrinum
3—8 ára.
Höfundar bókanna eru brezkir,
Angela Mitson og Giles Reed, en
Þrándur Thoroddsen hefur þýtt
allar bækurnar á íslensku og hlot-
ið góða dóma fyrir. Prentsmiðjan
Oddi annaðist setningu og filmu-
vinnslu textans, en bækurnar eru
prentaðar í Englandi.
Góður afli hjá
Ólafsvíkurbátum
Ókforík, 22. október.
ALLGÓD tíð hefur verið hér síðustu
vikur, varla komið frostnótt og enn
sést ekki snjór nema til fjalla. At-
vinna hefur verið nokkuð mikil, því
gæftir hafa verið góðar og mikið
ffakiævintýri verið á Gömluvík hér
skammt undan landi.
Þar hafa margir bátar verið á
veiðum með dragnót og afli verið
góður, allt upp í 12 til 14 tonn eftir
dagstundina. Nú mun þó vera að
tregðast aftur. Breyttar reglur
heimila nú stórum bátum veiðar
með dragnót og hefur þvi verið
meiri ös á blettunum en áður. Eins
og menn muna voru margir bátar
hér búnir eða langt komnir með
kvóta sína i vor sem leið. Enginn
hefur þó stöðvast ennþá og virðast
ýmsar matarholur í ráðuneytinu
ekki síður enn á miðunum.
Helgi.
. iII— Ó !■—111111111' „ v*í!í!P»r-
„Borgin og landið“
á Kjarvalsstöðum
Á Kjarvalsstöðum stendur um
þessar mundir yfir sýningin
„Borgin og landið". Þar sýnir
Katrfn H. Agústsdóttir 62 vatns-
litamyndir. Aðsókn hefur verið
góð. Meðfylgjandi mynd er af
einu verka Katrínar.