Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
61
Enskir punktar:
Todd til
Luton
Fré Bob Hennmsy, fréttamanni
Morgunblaðaina i Englandi.
• Colirt Todd, fyrrum landsliðs-
maður Englands í knattspyrnu,
hefur nú gerst leikmaður Luton
Town. Hann kom til félagsins frá
Vancouver Whitecaps, þar sem
hann lék í sumar. Todd er 35 ára.
• David Johnson, sem lék með
Ipswich, Liverpool og Everton fyrir
nokkrum árum, er nú kominn til
Englands frá Bandaríkjunum —
þar sem hann lék með Tulsa
Roughnecks. Hann mun leika meö
Preston North End.
• Englendingar munu mæta Bras-
ilíumönnum í vináttulandsleik á
Wembley-leikvanginum í London
miövikudaginn 27. marz. Síöast er
liöín léku á Wembley, í maí 1981,
komu 75.000 áhorfendur.
• Coventry hefur keypt enska
landsliðsframherjann Cyrelle Regis
frá West Bromwich Albion fyrir
300.000 sterlingspund. Kom salan
mjög á óvart — en Regis hefur
reyndar ekki komist í Liö Albion aö
undanförnu, þar sem Gary Thomp-
son hefur leikiö vel í framlínunni.
Albion keypti Regis fyrir nokkrum
árum á 5.000 pund frá utandeild-
arliöinu Hayes — Johnny Giles,
framkvæmdastjóri Albion, sá hann
þá leika meö liöinu á heimavelli
þess viö hliðina á Heathrow-
flugvelli.
• David Cross, gamla kempan
sem m.a. lék meö Coventry, WBA
og West Ham á Englandi, áöur en
hann hólt til Bandaríkjanna, er
kominn aftur yfir Atlantshafsála.
Hann hefur veriö lánaöur til WBA. í
Bandaríkjunum lék hann meö
Vancouver Whitecaps.
• Craig Johnston hefur undirritaö
nýjan samning viö Englandsmeist-
ara Liverpool — hann er kominn
frá Astralíu þár sem kona hans ól
þeim hjónum barn. Þess má geta
aö tátan hefur verið skýrö og hlaut
nafniö Chelsea Johnston, en 1.
deildarliöið Chelsea haföi elnmitt
mikinn áhuga á aö fá Johnston til
liös viö sig.
• Tveir framkvæmdastjórar voru
reknir i ensku knattspyrnunni i vik-
unni. Larry Lloyd frá Notts County,
sem er á botni 2. deildar og John
Hore frá Plymouth.
Notts County féll úr 1. deild í
fyrra og í vetur hefur liöiö tapaö
níu af ellefu leikjum sínum í deild-
inni. Jimmy Sirrell mun stjórna liö-
inu á næstunni.
Plymouth er frægt fyrir að reka
framkvæmdastjóra sína — llöiö
hefur haft sextán stjóra síöustu
tuttugu árin. Meöal þelrra sem
sóttu strax um stööuna hjá liöinu
voru John Bond, Dave Smith, John
Megson, Ken Murphy og Malcolm
Allison.
Peter Ward
semur vel!
Fré Bob HonnMsy, fréttamanni
MorgunbtaMim i Englandi.
Peter Ward, sem til skamma
tíma lék knattspymu meö Bright-
on og Nottingham Forest á Eng-
landi, leikur nú í Bandaríkjunum.
Hann er einn margra leikmanna
sem seldir hafa veriö fré Van-
couver Whitecaps nýlega.
Hann geröi samning viö Cleve-
land Ohio — sem eingöngu leikur
innanhússknattspyrnu. Samning-
urinn er til fjögurra ára og fær
Ward 500.000 pund fyrir samning-
inn. 125.000 pund á ári, en þess
má geta að keppnistímabiliö
stendur aöeins yfir í sex mánuði.
Þessi samningur þykir sýna hversu
gífurlegar fjárhæöir mönnum
standa til boöa í Bandaríkjunum.
Sögulegur leikur Beveren og ÍA:
Dómarinn dæmdi
slnn
FH í 2. umferð
FH er komiö í aöra umferö Evr-
ópukeppni meistaraliöa í hand-
knattleík. Liöiö sigraöi norska liö-
ið Kolbotn í báöum leikjum fyrstu
umferöar — fyrst 34:16 i Hafnar-
firöi og síðan 39:31 í Noregi.
Þess má og geta aö FH sigraði á
Reykjanesmótinu sem lauk 26.
september. Liðiö sigraöi Stjörnuna
úr Garöabæ í úrslitum 20:19.
Morgunbt»ölö/Frlðþ|ótur
• Sveinbjörn Hákonarson skoraöi þrívegis í Evrópuleikjunum gegn
belgíska liöinu Beveren — en tvö markanna voru daemd ógild.
síðasta Evrópuleik!
ÖLL íslensku knattspyrnuliöin
sem tóku þátt í Evrópukeppninni
í knattspyrnu duttu út í fyrstu
umferð. Akurnesingar töpuöu
fyrir belgísku meisturunum Bev-
eren, KR fyrir QPR frá Englandi
og ÍBV fyrir pólska liöinu Wisla
Krakow.
Leikur Akurnesinga og Belg-
anna á Laugardalsvelli er mjög
minnisstæöur. Eftir aö Beveren
haföi komist í 2:0 náöu Skaga-
menn aö jafna 2:2 meö mörkum
Karls Þóröarsonar og Sveinbjarn-
ar Hákonarsonar. Síöari leiknum
tapaöi ÍA hins vegar 0:5 i Belgíu —
þó eftir aö Sveinbjörn haföi skor-
aöi tvívegis í upphafi leiksins en
bæði mörkin dæmdi dómari frá
Lúxemborg af — hiö fyrra er
Sveinbjörn hljóp uppi sendingu
varnarmanns aftur til markvaröar.
Sveinbjörn var dæmdur rangstæö-
ur! Þess má geta að dómarinn
missti réttindi til aö dæma Evrópu-
leiki eftir aö eftirlitsdómari þessa
leiks haföi gefiö skýrsiu sína.
Vestmanneyingar töpuöu 2:4 í
Póllandi. Viöar Elíasson og Snorri
Rútsson skoruöu mörk þeirra. Þeir
töpuöu síöan 1:3 á heimavelli í Eyj-
um. Viöar Elíasson geröi þá mark
ÍBV.
KR-ingar töpuöu 0:3 fyrir QPR í
Laugardalnum og 0:4 á Highbury í
London.
• Colin Todd mun leika meö
Luton í vetur.
Höröur hættir
HÖRÐUR Jóhannesson, leikmaö-
ur íslands- og bikarmeistara ÍA,
hefur ákveöiö aö hætta aö leika
knattspyrnu. Höröur varö sem
kunnugt er annar markahæsti
leikmaður nýyfirstaöins ís-
landsmóts meö átta mörk. Hann
er þrítugur aö aldri.
Veröhrun!
Sængur.
Verð áður kr. 1.395.
Verð nú kr.
Koddar.
Verð áður kr
Verð nú kr.
Odýr sængurverasett!
TnRgn
AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211
Meira en venjuleg verslun!