Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984 5 50.000 lestir af loðnu komnar á land — þrívegis hefur verið landað erlendis á vertíðinni LOÐNUVEIÐAR hafa gengið bæði vel og illa frá því þær hófust um mánaðamót að sögn Andrésar Finnbogasonar hjá loðnuncfnd. Alls höfðu í gær borizt um 60.000 lestir loðnu á land. Á mánudag var til- kynnt um 9.000 lesta afla og síðdeg- is í gær hafði verið tilkynnt um 6.000 lesta afla. Á síðasta hausti var fyrstu loðnunni ekki landað fyrr en 10. nóvember. Alls hefur loðnu verið landað þrívegis erlendis það sem af er vertíð. Andrés sagði, að veiðarnar hefðu farið rólega af stað en nú væru 42 af 50 bátum, sem leyfi hafa til veiðanna, farnir af stað. Loðnunni væri landað frá Vest- MIKIÐ hefur verið um það að undan- lornu að íslenzk fiskiskip hafi selt afla sinn erlendis, aðallega í Englandi og býzkalandi. Þá hefur loðna verið seld í Færeyjum og Danmörku. All- gott verð hefur fengizt fyrir aflann samkvæmt upplýsingum L(Ú og eru töluverðar landanir fyrirhugaðar er- lendis á næstunni. Á mánudag seldi Ögri RE 268,9 lestir í Bremerhaven. Aflinn var að mestu karfi og varð heildarverð 5.673.400 krónur, meðalverð 21,10. Guðbjörg ÍS seldi í gær og fyrradag 208,9 lestir, mest karfa, f Cuxhaven. Heildarverð var 4.158.300 krónur, mannaeyjum og norður um land allt til Krossaness. Aðeins ein löndunarstöð á Austurlandi hefði tekið við loðnu til þessa, Eski- fjörður, en þar hafa heimabátar landað. Loðnan veiddist nú aðal- lega út af Vestfjörðum og væri hún allt að 20% feit og því gott hráefni. Andrés sagði ennfremur, að verkfall BSRB hefði valdið nokkr- um erfiðleikum við að fylgjast nákvæmlega með afla og við fitu- og þurrefnisinnhaldsmælingar. Sérstaklega hefði lokun strand- stöðvanna valdið erfiðleikum. Hilmir SU hefur landað einu sinni í Hirtshals í Danmörku og meðalverð 19,19. Á mánudag seldi Dalarafn VE 47 lestir í Grimsby. Heildarverð var 1.379.900 krónur, meðalverð 29,40. 14 lestir af keilu í afla Dalarafns drógu heildarverðið nokkuð niður. Sama dag seldi Drangey SK 120 lestir 1 Hull. Heild- arverð var 3.612.300 krónur, meðal- verð 30,10. Talsvert magn af grá- lúðu í aflanum dró heildarverðið nokkuð niður. í gær seldi Tálknfirð- ingur BA 129,5 lestir í Grimsby. Heildarverð 4.442.300 krónur, með- alverð 34,31. Helga Jóh. VE kom til Grimsby í gær og var þá byrjað að landa úr henni, en löndun lýkur ekki fyrr en í dag. einu sinni í Fuglafirði i Færeyjum og Júpíter hefur einu sinni landað í Fuglafirði. Áætlað hráefnisverð í Færeyjum er 1.750 krónur fyrir loðnulestina og 2.150 í Danmörku. Af því verði þurfa seljendur að greiða útflutningsgjöld og löndun- arkostnað, en það þarf ekki við löndun hér. Lágmarksverð á loðnu til skipta var í haust ákveðið 900 krónur fyrir hverja lest miðað við 15% fitufrítt þurrefnisinnihald og 16% fituinnihald loðnunnar. Verðið breytist til hækkunar eða lækkun- ar í samræmi við þurrefnis- og fituinnihald. Verksmiðjurnar greiða 39% ofan á þetta verð, sem rennur til útgerðar og í stofnfjár- sjóð og auk þess greiða þær út- flutningsgjöld af framleiðslunni. Þær greiða því 1.251 krónur fyrir hverja lest hráefnis og auk þess um 145 krónur fyrir hverja hrá- efnislest umreiknað frá útflutn- ingsgjöldum. Verksmiðjurnar greiða því alls um 1.400 krónur fyrir hverja hráefnislest. Fiski- mjölsverksmiðjan I Krossanesi hefur frá upphafi vertíðar boðið 10% hærra verð fyrir loðnuna. Markaðsverð loðnuafurða er, að sögn Jóns Reynis Magnússonar, framkvæmdastjóra Síldarverk- smiðja ríkisins, mjög lágt um þessar mundir. Lýsisverð er um 300 dollarar fyrir lestina og 5 doll- arar fást fyrir próteineiningu mjöls. Jón Reynir sagðist telja ólíklegt að verðið lækkaði frekar, en var ekki heldur bjartsýnn á verulegar hækkanir. Mikið um fisk- landanir erlendis Morffunblaðid/G. Berg. Verkfallsverðir BSRB á verði í gámi einum á bryggjunni. Strandferöaskipið Hekla: Kyrrsett á Ak- ureyri í 11 daga Akurejri, 23. október. Strandferðaskipið Hekla hefur legið við Togarabryggjuna á Akur- eyri frá því föstudaginn 12. okL, en þá kom skipið hingað með um 500 tonn af áburði og ca. 8 tonn af öðr- um vörum. Frá sama tíma hafa með- limir BSRB komið í veg fyrir að skipið verði afgreitt og hefur verið vakt við skipið allan sólarhringinn síðan. Deilan snýst um það hvort for- stjóri Skipaútgerðar ríkisins, Guðmundur Einarsson, hafi geng- ið í störf BSRB-félaga með því að ganga sjálfur frá fylgiskjölum varðandi flutning skipsins. Full- trúi útgerðarinnar á Akureyri tjáði Mbl., að varðandi þau ca. 500 tonn af áburði, sem í skipinu væru, þá hefði verið gengið, að venju, frá fylgiskjölum vegna þeirra í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, enda hefði skipið verið lestað þar. Ekkert væri því tii fyrirstöðu í sjálfu sér að skilja þau 8 tonn af öðrum vörum, sem deil- an virtist snúast um, eftir en það hefði ekki verið leyft heldur. G.Berg. Laxá siglir aftur út á ytri höfnina I Reykjavík eftir að hafa gert árangurslaus- ar tilraunir til að leggjast við bryggju í Sundahöfn í gærdag. Morgunblaðið/Bjarni. Sviptingar við Sundahöfn VERKFALLSVERÐIR BSRB létu til sín taka við Sundahöfn í gærdag er reynt var að leggja flutningaskip- inu Laxá þar við bryggju. Tókst þeim að koma í veg fyrir losun skipsins, og sigldi það aftur út á ytri höfnina eftir nokkur þóf. Kjaradeilunefnd hafði úr- skurðað að heimilt væri að toll- afgreiða skipið, og hafði það reyndar verið gert á Eskifirði fyrir nokkrum dögum. Farmur þess var aðallega svina- og kjúkl- ingafóður og taldi verkfallsstjórn BSRB, að kjaradeilunefnd hefði gengið út fyrir verksvið sitt með þeim úrskurði, samkvæmt ákvæðum laga um starfssvið hennar, og úrskurði um starfs- svið tollvarða í verkfalli. Að sögn Guðrúnar Árnadóttur, formanns verkfallsstjórnar BSRB, var það einkum þrennt sem verkfalls- stjórn taldi verkfallsbrot varð- andi mál þetta, en það var að hafnsögumaður sigldi skipinu í höfn, tilraun var gerð til að binda skipið, og skipinu var haldið óbundnu við bryggju með aðstoð hafnsögubáta, en hafnsögumenn væru í verkfalli eins og aðrir opinberir starfsmenn. Eftir nokkurt þóf sigldi skipið út á ytri höfnina án þess að losna við farm sinn. Þá gerðist það við Sundahöfn um svipað leyti í gær, að tvö af skipum Hafskips slitu sig frá bryggju og eru þau nú á leið til hafna á meginlandi Evrópu, vegna þess að þau fengu ekki af- greiðslu hér heima. Eru það leiguskipin María Katalína og Hvítá. Hluti af farmi þeirra átti að fara um borð í annað skip hér og til Bandaríkjanna. Verður þessum farmi skipað um borð í önnur skip sem sigla með hann til Bandaríkjanna. Skaftá kom til Reykjavíkur í gærmorgun og lá á ytri höfninni í Reykjavík þegar Morgunblaðið hafði síðast spurn- ir af í gærkvöldi. Sumargleðin hefur svo sannarlega glatt borgarbúa undanfarnar helgar í Broadway og enn heldur hún áfram á föstudags- og laugardagskvöld._________________________ Nú er um að gera að fagna vetri á gleöikvöldi með SumargleÖinni í Broadway.___ Miðasala og boröapantanir í Broadway daglega. Sími 77500.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.