Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984 Kaupmannahöfn: Rausnarleg gjöf til Jónssafns Jóubási, 10. seft GÍSLI Sigurbjðrnsson, forstjóri Elii- heimilisins Grundar, og kona hans Helga Björnsdóttir komu hingaó í dag fsrandi hendi. Höfðu þau meðferðis nýju útgífuna á Guðbrandsbiblíu og er hún gjöf Ellibeimilisins Grundar til safns Jóns Sigurðssonar til minningar um hjónin Carl og Johanne Sæmund- sen. Carl Sæmundsen stórkaupmaður og kona hans gáfu Alþingi íslend- inga húsið hér við öster Voldgötu 12 eins og kunnugt er og var gjöfin af- hent 17. júní 1966 í minningu Jóns forseta. Carl Sæmundsen var af ís- lenzku bergi brotinn, mikill at- hafna- og framkvæmdamaður. Var Gísli Sigurbjörnsson vel kunnugur honum og fjölskyldu hans og vill nú heiðra minningu hans og þeirra hjónanna með hinni góðu gjöf. Það eintak þessarar ljósprentun- ar Guðbrandsbiblíu, sem nú prýðir safnið, mun vera hið fyrsta, sem sent er frá íslandi, og er vel að þess- ari miklu bók skuli valinn staður á einum hinum íslenzkasta bletti á erlendri grund. Ljósprentun Guð- brandsbiblíu frá 1957 er orðin tor- gæt og hin önnur ljósprentun nú á 400 ára afmæli frumútgáfunnar á Hólum i Hjaltadal hinn bezti fengur í Islands Kulturhus eins og hér heit- ir á dönsku. F.h. formanns stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, sendiherra íslands í Dnmörku, skulu bornar fram fyllstu þakkir fyrir hina virðulegu og vel þegnu gjöf. G.L.Ásg. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum: 44.800 manns fóru um aðalhliðið á 16 dögum Jón Arnarr forstöðumaður t.v. og Eyjólfur Pálsson stjórnarformaður íslensks húsbúnaðar hf. Morgunblaðið/Emilla. Séð yfir hluia af nýja sýningarsalnum á Langholtsvegi 111. Nýr 600 fm sýningarsalur Islensks húsbúnaðar hf: Sérstök vöruvals- nefnd velur hús- búnað til NÝTT fyrirtæki, íslenskur húsbún- aður hf., opnaði fyrir nokkru 600 fer- metra sýningarsal að Langholtsvegi 111 í Reykjavík. f salnum verða opnar sýningar á íslenskum húsbún- aði frá 10 húsbúnaðarfyrirtækjum sem að þessu nýja fyrirtæki standa. Fyrirtækin eru Álafoss, Axis, Epal, Gamla kompaníið, Hús- gagnaiðja Kaupfélags Rangæinga, Iðnaðardeild Sambandsins, Málmsteypa Ámunda Sigurðsson- ar, Stálhúsgagnagerð Steinars, Topphúsgögn (Smíðastofa Eyjólfs Eðvaldssonar) og Trésmiðjan Víð- ir. Möguleiki er á að seinna geti bæst við fleiri fyrirtæki, jafnvel þó þau verði ekki eignaraðilar að fyrirtækinu. Fyrirtækið var stofnað í apríl sl. og að sögn forsvarsmanna þess mun það sjá um kynningu á ís- lenskum húsbúnaði. Fyrst i stað mun fyrirtækið eingöngu kynna vörur á íslenskum markaði, hvað sem síðar verður. Allir hlutir sem sýndir verða í salnum þurfa að uppfylla ströng skilyrði um góða hönnun og gott handbragð. Reglulega verður skipt um hluti í sýningarsalnum og eru sýningar þeir valdir af sérstakri vöruvals- nefnd, sem skipuð er tveimur hönnuðum og einum markaðssér- fræðingi. Um verður að ræða áklæði, gluggatjöld, gólfteppi, lampa og húsgögn í borðstofu, for- stofu, svefnherbergi, barnaherb- ergi og fyrir sjúkrahús, skrifstof- ur og skóla. Eyjólfur Pálsson er stjórnarfor- maður íslensks húsbúnaðar hf., en forstöðumaður er Jón Arnarr, inn- anhúss- og húsgagnaarkitekt. Jón sagði m.a. að það sem hafi staðið framleiðslu á islenskum húsbún- aði fyrir þrifum væri það að oft vantaði herslumuninn á að hönn- un og frágangur á vörum af þessu tagi væri nógu góður. Við opnun sýningarinnar sagði Eyjólfur Pálsson m.a.: „Það er ein- læg von íslensks húsbúnaðar hf. að þær sýningar sem hér verða haldnar á íslenskri framleiðslu, opni augu manna fyrir þeim miklu framförum, sem orðið hafa í þess- ari iðngrein að undanförnu. Einn- ig er það von okkar, að tilvist þessa sýningarsalar megi verða til þess að hvetja innlenda framleið- endur til enn betri hönnunar og framleiðslu." UMFERÐ um Þjóðgarðinn á Þing- völlum hefur verið svipuð í sumar og undanfarin ár. Fyigst var með aðal- hliði Þjóðgarðsins og er talið að um 44.800 manns hafi farið þar um á 16 dögum. I fréttatilkynningu frá Þjóð- garðsverði segir að tjaldsvæði og hjólhýsastæði opnuð þriðjudaginn 12. júní, en tveimur mánuðum síð- ar höfðu selzt u.þ.b. sextán hundr- uð leyfi vegna tjalda og annarra sumardvalartækja. Mest er gist- ing í Þjóðgarðinum um helgar, og að meðaltali verður hér um að ræða tvö hundruð tjöld í hver vikulok. Næturgestir í tjöldum og öðrum sumardvalartækjum voru einkum fjölskyldufólk. Umgengni var alla jafna góð og óregla flestar helgar lítil sem engin. 44.800 manns um aðal- hlið á 16 dögum Fylgzt hefur verið með umferð um aðalhlið Þjóðgarðsins í sumar. Talning leiðir í ljós að á laugar- dögum og sunnudögum fara að meðaltali fjórtán hundruð bifreið- ar um hliðið dag hvern. Ef hafðar eru í huga þær átta helgar, sem hér eru gjörðar að umtalsefni, verður fjöldi bifreiða u.þ.b. tutt- ugu og tvö þúsund og fjögur hundruð. Sé gjört ráð fyrir, að í hverju tjaldi dveljist tveir menn, en það er varlega áætlað, verða nætur- gestir í Þjóðgarðinum þrjú þúsund og tvö hundruð á tveim mánuðum. Ætla má, að hver bifreið flytji a.m.k. tvo einstaklinga að meðal- tali og sýnir talning þá, að um að- alhlið Þjóðgarðsins fara eigi færri en fjörutíu og fjögur þúsund og átta hundruð einstaklingar á þeim sextán dögum, sem hér eru til við- miðunar hafðir. Rétt er að geta þess, að að þessu sinni voru fólks- flutningabílar (rútur) taldar með sama hætti og einkabílar. Hlýtur því tala þeirra, er um hliðið fara þessa daga að verða nokkru hærri en nú var til getið. Göngusvæði, en ekki útileguvöllur Af ofangreindu verður ljóst, að Þjóðgarðurinn á Þingvöllum nýt- ist mun betur sem dagvistarsvæði en útileguvöllur. Kemur það ekki á óvart og er vísast engin nýlunda: Þjóðgarðurinn er i næsta ná- grenni Reykjavíkur. „Þingvalla- hringurinn" er hefðbundin dægra- dvöl höfuðborgarbúa, og göngu- ferðir um Þingvelli eru mönnum tíðar. Með batnandi vegi yfir Mosfellsheiði styttist ökuleiðin til Þingvalla, og Þjóðgarðurinn verð- ur í vaxandi mæli gönguleið („park") fólks af Faxaflóasvæðinu og víðar að af landinu. Umhverfisfræðsla sú, sem höfð var í frammi á vegum Þjóðgarð- sins í sumar, var tilraun til að sinna þeirri þörf, sem þessi þróun vitnar um. Gaf sú þjónusta all- góða raun. Aðrir hópar ferðamanna Skylt er að benda á, að framanr- itað ágrip tekur ekki til þess mikla fjölda útlendinga, sem fer í stór- um fólksflutningabifreiðum um Þingvelli virka daga hásumarsins. Drjúgur hluti erlendra ferða- manna, sem til íslands koma yfir sumarið, fer um Þjóðgarðinn í fylgd leiðsögumanna hinna ýmsu ferðaskrifstofa. Vilji menn reyna að gjöra sér heildarmynd af um- ferð um Þjóðgarðinn, verður að bæta áætlaðri tölu þessara ein- staklinga við það, sem að ofan greinir. Ofur varleg mun sú ágizkun, að fjórar langleiðabifreiðir fari dag- lega um völl að meðaltali, en fimmtíu farþegar í hverri. Verða slíkir ferðalangar þá eitt þúsund Á dögunum efndi sólbaðsstofan Sól og sæla, Hafnarstræti 7, til kynningar á nýrri tegund sólbekkja frá danska fyrirtækinu MA Solari- um International. Sólbekkirnir eru þeim kostum búnir að ljósið frá perunum nær að sóla allan kroppinn, og nýtist því sú orka sem bekkirnir nota mun betur, og líkaminn tekur lit á skemmri tíma. Ætti fólk venju- lega að verða brúnt eftir að hafa farið í bekkinn i fimm skipti. John Krog, framkvæmdastjóri MA Sol- að tölu fimm virka daga vikunnar eða átta þúsund þann tima, sem að framan ræðir. Einnig er þráfaldlega um að ræða verulega umferð íslendinga á einkabifreiðum og í ferða- mannahópum þá fimm daga vik- unnar, sem bifreiðir ekki voru taldar í aðalhliði Þjóðgarðsins. Þjóðgarðsvörður tók t.a.m. form- lega á móti fjörutíu hópum, stór- um og smáum, margnefndar átta vikur, og urðu þær heimsóknir eigi síður á virkum dögum en helgum. Heildartölur í þessu yfirliti eru því mjög hóflega áætlaðar. Stangaveiði í Þingvallavatni Stangaveiði hefur að vanda ver- ið stunduð í Þingvallavatni innan Þjóðgarðsins sem annars staðar. Á þeim tveimur mánuðum, sem hér hafa verið gjörðir að umtals- efni, seldust u.þ.b. fimm hundruð veiðileyfi eða liðlega sextíu í hver vikulok. Fengur var misjafn, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. arium International, kom til landsins á ddgunum til þess að kynna hinn nýja sólbekk. Krog sagði að fýrirtæki hans væri það stærsta á markaðnum í dag og ætti t.d. stærstu markaðshlutdeild í Bandaríkjunum. Aðspurður um aðra eiginleika bekkjanna sagði Krog að í þeim væri sérstök loft- ræsting sem hindraði það að lík- aminn ofhitnaði. Þá væri bekkur- inn búinn hljómtækjum svo að sá sem liggur á honum getur unað sér við Ijúfa tónlist. John Krog skoðar einn hinna nýju sólbekkja. Nýir sólarlampar Fólk brúnt eftir 5 skipti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.