Morgunblaðið - 24.10.1984, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
Fólk getur
greitt skattana
með gíróseðlum
ÞRÁTT fyrir að Gjaldheimtan í
Reykjavík og skrifstofur innheimtu-
manna ríkissjóðs og sumra sveitar-
stjóra úti um land séu nú lokaðar
vegna verkfalls BSRB er stlast til að
fólk greiði skatta sína á gjalddögum.
Guðmundur Vignir Jósefsson
gjaldheimtustjóri sagði i samtali
við blaðamann Mbl. í gær að gjald-
endur í Reykjavík gætu greitt gjöld
sín í bönkum og sparisjóðum með
gíróseðlum gjaldheimtunnar sem
lægju frammi á þessum stöðum.
Sagði Guðmundur Vignir að vexti
ætti að reikna næst út um næstu
mánaðarmót en það yrði ekki hægt
að gera nema verkfallinu væri þá
lokið þar sem starfsfólk Skýrslu-
véla ríkisins og Reykjavíkurborgar
væri í verkfalli. Þó sagði hann að
vaxtaútreikningurinn yrði miðaður
við mánaðarmót eins og áður þeir
ekki felldir niður vegna verkfalls-
ins. Hinsvegar sagði hann að ekki
væri hægt að fylgja innheimtunni
eftir með ýmsum aðgerðum svo
sem nauðungaruppboðum á meðan
að verkfall BSRB stæði.
V estmannaeyjar:
Loönuilm-
urinn kitlar
Vestmannaeyjum, 23. október.
Þrátt fyrir mikla fjarlægð frá
loðnumiðunum út af Vestfjörðum er
loðnuilmurinn farinn að kitla þeffæri
bæjarbúa hér í Eyjum. í dag eru tvö
loðnuskip að landa góðum afla, Sig-
urður RE 1.100 lestum og Sighvatur
Bjarnason VE 650 lestum. Þá er
Gígjan RE á leið hingað með full-
fermi en hátt í tveggja sólarhringa
sigling er hingað af loðnumiðunum.
Að meðtöldum þeim afla sem landað
verður í dag hafa þá um 4.200 lestir
af loðnu borist hingað á þessari ver-
tíð.
Allt athafnalíf hér er nú sem
óðast að færast í eðlilegar skorður
eftir hálf aumlegt ástand undan-
farnar vikur og mánuði. Frysti-
húsin hættu móttöku hráefnis og
sögðu upp kauptryggingarsamn-
ingum verkafólks 20. september
síðastliðinn vegna rekstrarörðug-
leika og stóð sú lokun yfir í rúmar
þrjár vikur, eða til 15. október, að
aftur var farið að taka við fiski til
vinnslu. Þessi stöðvun fylgdi í
kjölfar árlegrar sumarlokunar
frystihúsanna í ágústmánuði og
bitnaði lang harðast á verkakon-
um. Um 250 manns voru á atvinnu-
leysisskrá þegar mest var á þessu
tímabili og þar af 235 verkakonur.
Frekar rólegt hefur verið yfir
síldarlöndunum, enda bræla verið
á miðunum við Eyjar síðustu dag-
ana. Aðeins um 600 lestum af síld
hefur verið landað á vertíðinni.
Togaralandanir hafa verið tíðar og
því nóg að starfa við sjávarsíðuna
og verður svo vonandi áfram.
hkj.
Á Norðurlöndum hefur verið fylgst náið með vinnudeilunum hér á landi. Morgunblaðið
sneri sér til sendiherra íslands á Norðurlöndum; Páls Ásgeirs Tryggvasonar í Osló,
Benedikts Gröndal í Stokkhólmi og Einars Ágústssonar í Kaupmannahöfn og bað þá
segja frá skrifum og umræðum um vinnudeilurnar og fara svör þeirra hér á eftir.
Deilurnar eru Norðmönnum
framandi og lítt skiljanlegar
— segir Páll Ásgeir Tryggvason, sendiherra í Osló
„KJARADEILURNAR heima á fs-
landi koma fólki hér f Noregi
spánskt fyrir sjónir og eru því
framandi. í Noregi er allt í föstum
skorðum og rólegt, ólíkt æsingnum
sem manni finnst vera heima á ís-
landi. Ef Norðmenn deila um kaup
og kjör eru deilurnar settar í eins
konar gerðardóm til úrskurðar.
Verkföll og hatrömm átök á vinnu-
markaði eru þeim næsta framandi.
í Noregi var fyrir skömmu deilt
um eina krónu til eða frá í laun-
aumslögunum og því eiga þeir erf-
itt með að skilja kröfur upp á
30%,“ sagði Páll Ásgeir Tryggva-
son, sendiherra íslands í Osló, í
samtali við Mbl. um umræður í
Noregi um kjaradeilurnar hér á
landi.
„Mest hefur verið skrifað um
kjaradeilurnar í Aftenposten, en
einnig hefur talsvert verið skrif-
að í önnur blöð. Það hefur verið
haft eftir Albert Guðmundssyni,
fjármálaráðherra, að verkfall
BSRB væri af pólitískum toga.
Allt er málið framandi fyrir
Norðmenn og ólíkt því sem þeir
eiga að venjast. Margir hafa í
viðræðum við mig furðað sig á
hve víðtækt verkfallið sé; að í
raun skuli vera hægt að lama
heilt þjóðfélag og loka útvarpi og
sjónvarpi.
Norðmenn hafa á undanförn-
um árum lesið um gífurlega
verðbólgu og á síðustu misserum
undraverðan árangur í barátt-
unni við hana. Þeir hafa lesið um
minnkandi þjóðartekjur, stöðv-
un loðnuveiða og að þorskveiðar
hafi dregist saman. Því hrista
þeir bara höfuðið þegar þeir
heyra kaupkröfurnar nú.
Almennt talað er fréttaflutn-
ingur frá íslandi lítill. Það er
helst að fréttir birtist þegar
eitthvað bjátar á hjá okkur og
því afmyndast sú mynd sem
dregin er upp af íslandi. í Aft-
enposten var fyrir nokkru viðtal
við kennarahjón, sem voru að
gefa öndunum á Tjörninni. Þau
höfðu búið í Danmörku og kváð-
ust sjá eftir að flytja heim til
íslands í allt baslið þar og vildu
helst til baka. Þessi grein vakti
talsverða athygli og í kjölfarið
tók forstöðumaður stofnunar sig
til og bauð hjónunum til Noregs
þar sem þeim yrði útveguð
vinna, húsnæði og bifreið. Og
Páll Ásgeir Tryggvason, sendi-
herra íslands í Noregi.
tekið var fram að þau mættu
taka kunningja sína með sér.
Ég hafði á tilfinningunni að
hugarfarið í garð fslendinga
væri hið sama og í garð Pakist-
ana, en sem kunnugt er búa fjöl-
margir Pakistanar í Noregi sem
annars flokks borgarar," sagði
Páll Ásgeir Tryggvason.
Enn eitt dæmið í huga Svía
um sérkennilegt land og þjóð
— segir Benedikt Gröndal, sendiherra í Stokkhólmi
„VINNUDEILURNAR heima hafa
vakið mikla athygli hér í Svíþjóð.
Mikið er skrifað um verkföllin í
blöð um allt landið og fréttir eru
nánast daglega í sjónvarpi.
Svenska Dagbladet skrifaði leið-
ara um deilurnar á íslandi og var
hann skrifaður af þekkingu.
Niðurstaða leiðarahöfundar er á
þá leið, að íslenzka efnahagsundr-
ið hafi ekki náð að festa sig í sessi
á spjöld sögunnar. Að ekki sé út-
séð um hvort þjóðinni takist að
sigrast á verðbólgunni," sagöi
Benedikt Gröndal, sendiherra í
Stokkhólmi, í samtali við Mbl. um
umræður í Svíþjóð um kjaradeil-
urnar hér.
„Huvudstadtbladet í Helsinki
skrifaði ítarlegan leiðara um
deilurnar. Þar var reynt að
skýra hvernig baráttan við verð-
bólguna hefði leitt til átaka, sem
nú eiga sér stað.
Ég verð að segja, að Svíar sem
þekkja til málefna fslands,
glöddust yfir og undruðust hve
vel hefði tekist að koma verð-
bólgunni niður á íslandi og að
þeir hafi áhyggjur af hvað fram-
tíðin beri í skauti sér. Fréttir um
kjaradeilurnar hafa verið
dramatískar — en segja má um
Svía, að þeim finnist allt drama-
tískt við land og þjóð. Þeir eru
undrandi á því að þjóðfélagið
skuli lamast eins og raun ber
vitni. Vinnudeilurnar nú eru enn
eitt dæmið í huga Svía um sér-
kennilegt land og sérkennilega
þjóð,“ sagði Benedikt Gröndal.
Benedikt Gröndal, sendiherra ís-
lands í Svíþjóð.
Danir spyrja hvort verðbólgan
blossi ekki upp á nýjan leik
— segir Einar Ágústsson, sendiherra í Kaupmannahöfn
„DANIR hafa fylgst náið með
kjaradeilunum heima á íslandi.
Þeir hafa dáðst að því hve ís-
lendingum hefur tekist vel að
ráða niðurlögum verðbólgunnar
— að tekist hafi að lækka verð-
bólgu úr yfir 100% í um það bil
15%. Hér spyrja menn ekki
hvernig leysa megi deilurnar,
heldur hvort verðbólgan gjósi
upp á nýjan leik og til hvers var
þá unnið — hafið þið þá ekki
glatað því sem þið unnuð, spyrja
menn gjarnan," sagði Einar Ag-
ústsson, sendiherra í Kaup-
mannahöfn, í samtali við Mbl.
„Fréttaflutningur í Dan-
mörku hefur einkum byggst á
fréttum frá Ritzau og stóru
blöðin Politiken og Berlingske
hafa birt daglega klausu um
gang verkfallsins. Því er ljóst
að verkfallið heima hefur vak-
ið mikla athygli hér,“ sagði
Einar Ágústsson.
Einar Ágústsson, sendiherra ís-
lands í Danmörku.
Reykjayfkursamningarnir:
Tilfærsla milli launaflokka
samningstíma
tvisvar á
í FRKTT í Morgunblaðinu í gær, þar
sem sagt var frá kjarasamningi þeim
er Reykjavíkurborg gerði við
Ntarfsmannafélag Reykjavíkurborg-
ar urðu þau leiðu mistök, að það
láðist að geta tilfærslu starfsmanna
milli launaflokka.
Hinn 1. desember var gert ráð
fyrir að allir starfsmenn borgar-
innar færðust upp um tvo launa-
flokka og er það metið sem 3,5%
launahækkun. Gert var ráð fyrir
annarri tilfærslu 1. júlí 1985 og
var það metið til 1,75% hækkunar.
Önnur efnisatriði samningsins
voru, eins og greint var frá í frétt-
inni, 8,3% hækkun launa við und-
irritun samningsins, þar af 3% frá
1. september, 3.800 króna greiðslu
til starfsmanna 1. desember, mið-
að við fullt starf, persónuuppbót
eftir 12 ára starf og endurskoðun
á launakerfi borgarinnar. Samn-
ingurinn var við það miðaður að
nettó-lækkanir tekjuskatts og út-
svars ríkis og sveitarfélaga yrðu
eigi lægri en 400 milljónir króna á
árinu 1985, auk þess sem beinir
skattar ríkisins yrðu lækkaðir um
200 milljónir króna, sem mætt
yrði með óbeinum sköttum. Sér-
kjarasamningur var opinn og var,
að sögn Haraldar Hannessonar,
formanns Starfsmannafélagsins,
talað um að nota hann til að jafna
við borgarstarfsmenn það launa-
skrið, sem orðið hefði á almennum
vinnumarkaði.
Mosquito-vél í Reykjavík
Þessa dagana hefur afar sjaldgæf flugvél viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli.
Flugvélin er af gerðinni deHavilland DH 98 Mosquito en vélar þessarar
tegundar voru sem kunnugt er mikiö notaðar af Bretum í síðari heimsstyrj-
öldinni. Flugvél þessi er ein þriggja véla sem eftir eru flughæfar f heiminum
svo vitað sé, af þeim 7700 flugvélum sem smíðaðar voru. Flugvélin á að fara
á flugsafn bandaríska flughersins.