Morgunblaðið - 24.10.1984, Page 23

Morgunblaðið - 24.10.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984 23 Vonast til að geta greitt fyrir hráefni eftir gæðum — segir Þorsteinn Gfslason, eigandi Seafood Int- ernational Inc., sem innan tíðar mun hefja fram- leiðslu fiskrétta í Bandaríkjunum ÞOR8TEINN Gíslason, verkfræðingur og fyrrum forstjóri Coldwater, sölu- fyrirtækis SH í Bandaríkjunum, festi fyrir nokkru kaup á fasteign í Banda- ríkjunum í því skyni að hefja rekstur fiskréttaverksmiðju þar. Verður verk- smiðjan við höfnina í New Bedford í Massachusetts, en fyrirtæki Þorsteins heitir Seafood International Inc. Þorsteinn Gíslason sagði að- spurður í samtali við blaðamann Morgunblaðið, að ætlun sín væri að koma þarna á fót fullkominni fiskiðnaðarverksmiðju auk þess að stunda innflutning og sölu á fryst- um sjávarafurðum í Bandaríkjun- um. Þorsteinn sagði, að saman- lagður gólfflötur verksmiðjunnar yrði um 5.000 fermetrar í byrjun, en yrði stækkaður í 7.500 fermetra síðar. Byggingin væri enn óinn- réttuð og stæði á um tveggja hekt- ara eignarlóð. Það tæki sennilega fjóra til fimm mánuði þar tii frystigeymslur og öll vinnslutæki yrðu komin upp. Þetta væri fjölskyldufyrirtæki hans og fjár- magnað meðal annars með lánum af almennum lánamarkaði vestra. Verður starfsemi þín í sam- keppni við islenzku fisksölufélögin í Bandaríkjunum? „Nei, þvert á móti. Ég reikna með að verða þýðingarmeiri fyrir þau sem viðskiptavinur, en keppi- nautur. Auk þess verður fram- leiðsla verksmiðjunnar hjá mér mun sérhæfðari heldur en hjá ís- lenzku félögunum svo ég tel að ekki verði um neina beina sam- keppni að ræða. Það er áform mitt að kaupa frystan fisk til hráefnis fyrir verksmiðjuna frá hvaða framleiöendum, sem hafa hann til sölu og geta uppfyllt þau vöru- gæði, sem ég sækist eftir. Því gætu fiskkaupin orðið frá ýmsum löndum og vafalaust að einhverju leyti frá Islandi." Nú talar þú um sérstök vöru- gæði, muntu greiða fyrir fiskinn eftir gæðum? „Ég vonast til þess, að fram- leiðslunni verði þannig háttað, að ég muni geta borgað meira fyrir hráefnið en hingað til hefur verið gert, byggt á sérstakri vöruvönd- un og fullnægingu ýmissa nýrra krafna um framleiðsluform. Að mínu mati hefur það aldrei verið rétt að borga sama verð fyrir lé- lega framleiðslu og góða fram- leiðslu. Ég tel að ég muni ein- göngu hafa áhuga á því að kaupa framleiðslu i hæsta gæðaflokki, sem þá muni verðskulda hærra verð.“ Dregur núverandi lægð í mark- aðsmálum ekki úr möguleikum þínum á velgengni? „Mér er ljóst, að markaðsástand hér í Bandarfkjunum hefur sjald- an verið erfiðara hjá fisksölufyr- irtækjum, en ég er samt mjög bjartsýnn á að starfsemi Seafood International Inc. muni takast vel vegna þess, að hún mun algjörlega beinast inn á þau svið, þar sem áherzla verður lögð á óvenjulega mikil vörugæði og nýjungar í vöruvali. Ég vonast til þess, að það geti hafið okkur yfir þau vand- ræði, sem aðrir eiga við að stríða í dag. Mitt fyrirtæki verður það lít- ið og sjálfstætt að það er ekki háð þeim kröfum, sem íslenzku sölu- s terkurog hagkvæmur auglýsingamióill! fyrirtækin þurfa að uppfylla, það er að segja að taka við miklu magni af framleiðslutegundum, hvort sem þær henta markaðnum eða ekki. Eg mun aðeins kaupa það, sem ég þarf og get selt. Eg hef ennfremur hugsað mér að höfða til þeirra, sem sækjast eftir meira verði fyrir framleiðslu sína og vilja leggja á sig til þess að gera hana sem verðmesta og bezta, bæði í samsetningu og gæðum. Þeir aðilar eru til og með þessum hætti verða þeir verðlaunaðir, sem eiga það skilið," sagði Þorsteinn Gíslason. Þær eiga heima í Brekkuseli f Breiðholtshverfinu þessar ungu dömur. Þær efndu til hlutaveltu til ágóia fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og söfnuðu 400 kr. Þær heita: Þuríður, Guðrún Lind, María og Guðrún Kristín. PB snjúbræðslurörin kaupir þú i eitt skipti fyrir ull. Á íslandi skiptir f rostþolið öllu máli! Snjóbrœðslurör undir bílastœði, heimkeyrslur, gangstéttir o.íl. leggur þú í eitt skipti íyrir öll. Tímafrek undirvinna, kostnaðarsöm malbikun, steypu eða hellulagning getur öll eyðilagst ef rörin sjdlí, sem þó eru aðeins um 15% aí heildarkostnaði fram- kvœmdanna, þola ekki íslenska írosthörku eða t.d. of mikinn hita íslenska hitaveituvatnsins. Með þetta að leiðarljósi höfum við fyrstir d íslandi haíið íramleiðslu Helstu kostir PB-röranna eru: Meira írost- og hitaþol: PB-rörin þola meiri hitasveiílur en nokkur önnur rör á markaðinum eða á snjóbrœðslurörum úr Polybutylene-plasteíni, - grimmsterku eíni sem býr yíir ótrúlegu frost-og hitaþoli. Eftir nákvœman samanburð muntu komast að því að PB-rörin frá Berki h.f. haía aídráttarlausa sérstöðu á íslenskum markaði. Óskar Jónsson hjá Óskari & Braga s.f.: .Við leitumst við að velja það besta á markaðinum hverju sinni. Þess vegna notum við PB-rörin írá Berki hí."' allt írá -30°C til 90°C án þess að bresta. Þau þola því að vatn frjósi í þeim eða renni í þeim að staðaldri allt að 95°C heitt. Þetta reynir á við skyndilegt frostálagvegnahitaveitulokunareða eí hraða á snjóbráðnun á planinu með háu vatnshitastigi. Þettaþýðirumleið fullkomið öryggi án þess að notast sé við lokað keríi með írostlegi og forhitun. Auðveldari lagning og örugg samsetning: PB-rörin þarí ekki að hita þegar þau eru beygð. Þau eru aígreidd í lengdum samkvœmt ósk kaupenda og unnt er að samtengja þau með venjulegum tengistykkjum. Hagstœtt verð: PB-snjóbrœðslukerfi er einföld og varanleg framtíðarlausn þar sem gœðin sitja á oddinum. Við bjóðum þau nú á sérlega hagstœðu verði. HJALLAHRAUNI 2 ■ SIMI 53755 ■ POSTHOLF 239 ■ 220 HAFNARFIROI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.