Morgunblaðið - 24.10.1984, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
30
Norður-Kóreumenn:
Enn andvígir OL
í Suður-Kóreu?
Tókýó, 22. október. AP.
NORÐOR-Kóreumenn hafa gefið til
kjnna, að þeir aéu enn þeirrar skoðun-
ar, að ekki eigi að halda Óljmpfuleik-
ana 1988 í Suður-Kóreu.
Hin opinbera fréttastofa í Norð-
ur-Kóreu hefur sent frá sér viðtal
við Caslav Veljic, framkvæmda-
stjóra ólympíunefndar Júgóslavfu,
þar sem sú skoðun kemur fram, að
halda beri leikana í Belgrad. Bendir
Veljic á að mörg ríki hafi ekki
stjórnmálasamband við Suður-
Kóreu og hafi beinlínis lýst andstöðu
við að leikarnir verði haldnir þar.
Norður-Kóreumenn hafa áður lýst
andstöðu við að leikarnir yrðu i
Seoul, en talið var að þeir kynnu að
hafa skipt um skoðun þar sem sam-
skiptin við Suður-Kóreu hafa aukist
og batnað að undanförnu. M.a. hafa
átt sér stað viðræður milli fulltrúa
ríkjanna um að ríkin tvö, sem hafa
verið aðskilin frá lokum síðari
heimsstyrjaldar, sendu eitt sameig-
inlegt lið á ólympíuleikana.
Byggðu kirkju á
einum sólarhring
ColdKster, EngUndi, 22. okL AP.
A fófrtudas og laugardag bjggðu
Vottar Jehóva í Colchester i
Austur-Englandi kirkju í heima-
byggó sinni og tók byggingarstarf-
ió alls 24 klukkustundir.
Frá því klukkan sjö á föstu-
dagsmorgun til klukkan sjö á
laugardagsmorgun luku bygg-
ingarmennirnir, 250 að tölu, við
að gera kirkjuna og nutu þeir
aðstoðar nokkurra hundraða
sjálfboðaliða, innlendra og er-
lendra. Kirkjan var byggð úr
hleðslusteini og er 23 metra löng
og 5 metrar á breidd og tekur
tæplega 200 manns í sæti. Hófst
byggingarstarfið á föstudags-
morgun með einnar mínútu
bænarstund.
Um hádegi á sunnudag hafði
kirkjan verið máluð, teppalögð
og skreytt með blómum, lóðin
umhverfis hafði verið hellulögð
og bílastæðin sléttuð og malar-
borin. Hefur kirkjan hlotið nafn-
ið „Kingdom Hall“.
David Sleeman, einn af öld-
ungum safnaðarins, sagði að
kirkjubyggingarstarfið hefði
verið skipulagt fyrir þremur
mánuðum. Þá hefðu bygg-
ingarmenn i söfnuðinum og
Vottar Jehóva annars staðar að
á Englandi, svo og erlendis frá,
verið kallaðir til liðsinnis.
Indland:
Ástandið í Eþíópíu hefur stórum versnaó undanfarió, bæði fyrir börn og fulloröna.
Eþíópía:
Hungurvofan ógnar
10 milljónum manna
ÁSTANDIÐ í Eþíópíu hefur stór-
versnað i undanlornum mánuðum
og veldur mestu um, hve lítið rigndi
þar yfir regntímann. Maísuppskeran
skrælnaði, kornbirgðirnar eru
gengnar til þurrðar og tala þeirra
sem leitað hafa ásjár hjá hjálpar-
stöðvum hefur tvöfaldast
I Wollo-héraði rigndi, en of lítið,
svo að uppskera skrælnaði. Sunn-
an vatna, í Gamgofa, varð algjör
uppskerubrestur. í Sidamo-héraði,
þar sem hirðingjar búa, er beitar-
laust með öllu og búpeningur
sveltur.
Stjórnarandstöðuflokkar
mynda kosningabandalag
Nýju Delhí, 22. október. AP.
Talsmaður indverska þjóð-
arflokksins, Bihari Vajpayee,
skýrði frá því í gær, mánu-
dag, að flokkur hans myndi
ganga til liðs við nýtt kosn-
ingabandalag sem stofnað
var um helgina. Markmið
kosningabandalagsins er að
hnekkja veldi Congress I,
flokks Indiru Gandhi. Það
þykir styrkja bandalagið
nýja, að flokkur Biharis skuli
lýsa yfír samvinnu við það,
þó svo að hann hafí tekið
fram að hún væri tímabund-
in.
Flokkar þeir þrír sem mynda
kosningabandalagið eru Lok Dal
— alþýðuflokkurinn, lýðræðislegi
sósíalistaflokkurinn og þjóðlegi
Congress-flokkurinn. Þá hafa
ýmsir frammámenn í einum
stjórnarandstöðuflokknum til
viðbótar, Janata-þjóðarflokknum,
lýst yfir stuðningi við bandalagið.
Forystumaður þess arms Janata-
þjóðarflokksins, sem mun styðja
það, er Charan Singh fyrrverandi
forsætisráðherra.
Indira Gandhi gagnrýndi
stjórnarandstöðubandalag þetta
harkalega í ræðu í dag og sagði að
innbyrðis sundrung og valda-
græðgi myndi verða þvf að falli.
Hún sagði, að í stefnuskrá þess
kæmi ekkert fram sem horfði til
hagsbóta fyrir Indland og gamlir
menn og hugmyndasnauðir stjórn-
uðu bandalaginu. Það myndi líka
koma í ljós að þeim væri mest f
mun að skara eld að eiginhags-
munaköku.
Gandhi hefur stjórnað Indlandi
í fimmtán af síðustu átján árum.
Congress I hefur þó aldrei fengið
meira en 50 prósent atkvæða. Bú-
ist er við að boðað verði til kosn-
inganna i desember.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STANGAÁL
(ALMgSi 0,5) Seltuþolið.
Fjölbreyttar stærðir og þykktir.
ÁLPRÓFÍLAR FLATÁL
□ □nizjn —-i
VINKILÁL SÍVALT ÁL
LlLLL i • •• 1
sindraÆ |\STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
{ maímánuði var talið að 5
milljónir manna hefðu orðið fyrir
barðinu á þurrkunum. Nú er það
álit Sameinuðu þjóðanna, að mat-
ur sé til handa um 30 af 40 millj-
ónum íbúa landsins. Þannig munu
það vera um 10 milljónir manna,
sem hungurvofan ógnar um þessar
mundir.
Persaflóastríðið:
Mikið
mannfall
Miuma, lUhrain. 23. oklóber. AP.
ÍKAKAR sögðust í dag hafa látið til
skarar skríða gegn írönum síðasta
sólarhring á hinum ýmsu stöðum
víglínunnar og fellt 400 hermenn
andstæðinganna og sært fjölda ann-
arra. Sögðu þeir lítið mannfall eða
ekkert hafa orðið í sínum röðum.
Bardagarnir geisuðu einkum um
miðbik víglínunnar og síðustu 6 dag-
ana hafa Irakar að eigin sögn drepið
2.499 íranska hermenn í átökum á
þessum slóðum.
íranir hafa aðra sögu að segja
frá sömu bardögum. Þeir láta lítið
uppi um mannfall i eigin röðum,
en segjast hafa vegið 3.800 íraska
hermenn og handtekið nærri 200
til viðbótar. Strfðsaðilar báðir
telja sig hafa grandað miklu
magni vígvéla fyrir óvinum sínum,
skriðdrekum, fallbyssum og fleira
af liku tagi.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
hefur tekist á hendur það vanda-
sama verk að koma á friði í stríði
íran og Irak. Hann hefur sagt að
mestar vonir bindi hann við að fá
Iraka til að fallast á friðartillögur
sem lagðar verða fram af 7-landa
nefnd á vegum samtaka Moham-
eðstrúarríkja, sem telur 45 ríki.
Segir hann frani hafa tekið frem-
ur vinsamlega í þær málaleitanir,
en Iraka ekki. Það þurfi hins veg-
ar að kynna þeim málið betur og
því sé ekki öll von úti.