Morgunblaðið - 24.10.1984, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
Arnarhóll og Arnarhvoll
— eftirÖnund
Asgeirsson
Borgaryfirvöld hafa nýlega sýnt
af sér þá röggsemi að bjóða út
nýtt skipulag eða tillögur um frá-
gang á Arnarhóli. Er þetta mesta
nauðsynjaverk, og vel sé þeim,
sem að þeirri tillögugerð stóðu.
Væntanlega fáum við því fljótlega
að líta nýjar tillögur um ytra útlit
þessa svæðis, sem þá ætti að verða
til frambúðar.
En það er um þetta mál að
segja, eins og um svo mörg önnur,
að ekki dugir að líta aðeins á yfir-
borðið, það verður að kafa dýpra.
Það verður að líta til umhverfisins
í heild og þarfa þess.
Arnarhvoll
I meir en hálfa öld hefir helzta
stjórnsýslustöð íslenzka ríkisins
verið í hálfgerðum leiðinda kumb-
alda, sem byggður var um 1930 og
nefndur Arnarhvoll. Þetta hús er
þó ekki verra en það, að góður
arkitekt gæti gert úr því sæmi-
legustu byggingu, með því að
hækka það um nokkrar hæðir og
byggja út úr því kálf til suðurs,
yfir Lindargötu og í átt að Safna-
húsinu. Kálfurinn þyrfti væntan-
lega að hafa bílastæði undir sér á
tveimur hæðum, svo að sjálf bygg-
ingin byrjaði væntanlega á 2. hæð
miðað við núverandi Arnarhvol.
Jafnframt því að koma fyrir lyft-
um í þessu húsi væri unnt að koma
þar fyrir snyrtingum, fatageymsl-
um og öðru því, sem gleymdist f
flaustrinu 1930. Bílastæðin undir
kálfinum myndu væntanlega vera
notuð af gestum stofnananna i
Arnarhvoli á daginn, en af gestum
Þjóðleikhússins á kvöldin, og
þannig verða tvísetin. Ég þykist
geta séð það fyrir, að þetta sé eðli-
leg framkvæmd í sambandi við
þessa stjórnsýslustöð, og ennfrem-
ur væri það eðlilegt, að svæðið
umhverfis Arnarhvol yrði í fram-
tíðinni nýtt í þágu stjórnsýslu,
þannig að þarna myndi þá með
tímanum myndast einskonar
stjórnsýsluhverfi, Capitol. En þá
þarf einnig að sjá til þess, að sam-
göngur til hverfisins séu í lagi.
Einhverjum kann nú að detta í
hug, að þetta séu óraunhæfar
hugmyndir, einkum eins og nú er
ástatt í þjóðfélaginu. En menn
verða jafnan að hafa í huga, að
það er nútíðin sem skipuleggur og
byggir fyrir framtíðina. Menn
mega ekki vinna sér til óþurftar.
Bflageymslur í
Arnarhóli
öllum ætti að vera ljóst, að á
þessu svæði vantar tilfinnanlega
mikinn fjölda bílastæða, því að
engin frambúðarlausn er í að
leggja bílum á aðalumferðargötur
svæðisins. Nýlega hefir verið
ákveðið, að svæðið austan Klapp-
arstígs skuli byggt með íbúðar-
húsum, svo að ekki verða bíla-
stæðin þar. En nýja bílgeymslan í
Arnarhóli vísar hér veginn. Sumir
hafa viljað kalla þessa bílgeymslu
„Kolaport", sem mér finnst þó
hjárænulegt. Það hefir ekkert
sögulegt gildi, að kolabingur var
hafður á þessum stað um nokk-
urra ára skeið. Staðurinn verður
eftir sem áður hluti af hinu forna
Arnarhólslandi. Réttnefni er því:
Bílgeymslan í Arnarhóli.
Hin nýja bílgeymsla í Arnar-
hóli, sem er á tveim hæðum, er vel
greiðfær og hentug. Mér sýnist
það liggja f augum uppi, þegar
fara á að ræða um skipulagningu
Arnarhóls, að þessa bílgeymslu á
að stækka, þannig að hún verði
undir öllum hólnum allt að Hverf-
isgötu og að eða undir Ingólfs-
stræti, eftir því, sem bezt hentar.
Þá væri eðlilegt, að innangengt
væri í Arnarhvol úr bílgeymsl-
unni, og að ríkið keypti bílstæði
fyrir starfsmenn Arnarhvols í
þessari bílgeymslu. Þetta er ein-
falt verk, þar sem bílgeymslan
myndi vera á tveim hæðum og
með sömu innkeyrslu og nú hefir
verið byggð. Þannig myndi enginn
aukakostnaður verða í rekstri
bílgeymslunnar, þótt hún yrði
þannig stækkuð.
Nú kemur einhver spekingur og
Önundur Ásgeirason
.....menn veröa jafnan
að hafa í huga, aö þaö er
nútíöin sem skipuleggur
og byggir fyrir framtíö-
ina. Menn mega ekki
vinna sér til óþurftar.“
segir að þetta sé alltof dýrt, það
kosti morð fjár að sprengja burt
allt þetta grjót. En þetta er ekki
rétt. Það er hægt að selja Reykja-
víkurhöfn allt þetta grjót með
góðum hagnaði, sökum hinnar
hagstæðu legu svæðisins, og höfn-
in á enn eftir að nota mikið grjót.
Auk þess tekur verkið ekki nema
6—8 mánuði.
Umferöarnefndin enn
Það brást ekki fremur venju, að
Umferðarnefnd Reykjavíkur ætti
vitlausustu tillöguna í bíla-
geymslumáli gamla miðbæjarins.
Þeir lögðu til að byggð yrðu tvö
bílgeymsluhús, annað yfir lóð
Akraborgar við Tryggvagötu, hitt
á lóð Hafskips á horni Tryggva-
götu og Kalkofnsvegar, þ.e. hinu-
megin götunnar, gegnt bílgeymsl-
unni í Arnarhól. Hvorug tillagan
fær staðist, enda um að ræða tvær
af sárafáum byggingarlóðum í
miðbænum, sem vissulega mætti
nýta á annan hátt.
Hvernig væri að forframa þessa
umferðarnefndarmenn upp í um-
ferðarráð? Þá gætu þeir gasprað
um umferðina í útvarpið. En þeir
myndu gera miklu minna ógagn
þar, þótt kvíðvænlegt sé að þurfa
að hlusta á þá, en menn eru nú
ýmsu vanir í þessum efnum.
Samstarfsverkefni
Margir munu hafa áhyggjur af
kostnaði við þessa framkvæmd.
En þegar tekið er tillit til þess, að
hér er um að ræða nýtingu lóðar,
sem ella yrði ekki að gagni, er hér
um nauðsynlega framkvæmd að
ræða. Auk þess, sem full þörf er
fyrir grjótið úr tóftinni, ætti að
vera möguleiki að selja verulegan
hluta bílastæðanna, sem þarna
myndast, til aðila 1 nágrenninu,
t.d. alla efri hæðina. Myndi ríkið
þannig verða verulegur aðili,
vegna starfsmanna i Arnarhvoli
og öðrum nærliggjandi stofnun-
um. Þessvegna væri eðlilegt að
verkefnið yrði einskonar sam-
starfsverkefni milli ríkis og
Reykjavíkurborgar. Kostnaðar-
hliðina getur svo skrifstofa borg-
arverkfræðings eða aðrir reiknað.
Varnaöarorö
Látið ekki þennan, sem teiknaði
slysadeildina við Borgarspítalann,
koma nærri viðbyggingunni við
Arnarhvol. (Ég veit ekki, hver
hann er, en verkin tala.) Þessi við-
vörun leiðir svo til þess að sagt sé,
að gott væri, ef arkitektar f bygg-
ingarnefnd gerðust eilítið ábyrg-
ari í störfum, og samþykktu ekki
allt, sem fyrir þá er lagt, jafnvel
þótt af kollegum sé teiknað.
Önundur Ásgeirsson er fyrrverandi
forstjóri OUs.
Siglufjörðun
11.200 lestir af
loðnu komnar á land
S4((l»nrti, 22. október.
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins
hér í Siglufirdi hafa nú tekið á móti
11.200 lestum af loðnu. Nýting hefur
verið mjög góð og löndun og vinnsla
gengið með igetum. Vegna þess hve
loðnan er nú feit hefur verðið fyrir
hverja lest verið rúmar 1.500 krónur.
Nokkuð góð loðnuveiði mun
hafa verið siðastliðna nótt, en
veiði hefur verið treg hjá bátum
þeim, sem héðan róa. Þó hafa
rækjubátar aflað þokkalega eða
allt upp í 6 lestir í róðri, þegar
gefið hefur á sjó.
Þá er nú að ljúka lengingu
flugbrautarinnar hér og verður af
henni mikil samgöngubót. Verkið
hefur gengið fljótt og vel og mun
kostnaður hafa verið f lágmarki.
Fréttaritari
Þessi börn gáfu fjárupphæð sem rennur til nýbyggingar sjúkrahússins í Stykkishólmi.
Þau heita: Bjarki Jóhannsson, Reynir Eggertsson, Sóley Sigþóradóttir, Elín Eggerts-
dóttir, Rakel María Magnúsdóttir, Hugrún Birgisdóttir, Sigurður Birgisson, Krístín
Klara Grétarsdóttir og Guðrún Antonfussen.
Þessi börn, sem heita Alexía Björg Jóhannesdóttir, Elías
Halldór Jóhannesson og Eva Guðbrandsdóttir héldu hluta-
veltu í Stykkishólmi og afhentu ágóða hennar nýbyggingu
sjúkrahússins í Stykkishólmi.
Afhentu
peninga
til nýbygg-
ingar Sjúkra-
hússins í
Stykkishólmi
Þessir þrír drengir gáfu peninga sem þeir höfðu safnað með Þessar stúlkur, sem beita Gerður Björg Sveinsdóttir, Ragn-
tombólu. Peningarnir renna til nýbyggingar sjúkrahússins í heiður Harpa Sveinsdóttir og Alexia Björg Jóhannesdóttir
Stykkishólmi. Þeir heita: Kristján Emil Pálsson, Vilhjálmur seldu blóm í Vallarflöt og Víkurflöt og afhentu ágóða sölunn-
Hjaltalín Jónsson og Þorbjörn Geir Ólafsson. ar til nýbyggingar sjúkrahússins í Stykkishólmi.
Erla Halldóradóttir, Kristbjörg Huld Kristbergsdóttir og
Ragnhildur Þóra Ágústsdóttir afhentu peninga sem komu inn
frá tombólu sem þær héldu. Þeir renna til nýbyggingar
sjúkrabússins í Stykkishólmi.