Morgunblaðið - 24.10.1984, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÖBER 1984
Niðursuðudós sem skipverjum á Geir var færð á stríðsárunum:
Hefur geymt niðursuðu-
dósina síðan 1941
„16.maí 1941 kl.5.30 e.h. gefið
af „breskum“ kafbát 25—30
mílur N.W. Barrahead," stendur
utan á niðursuðudós sem
Magnea G. Magnúsdóttir hefur
geymt vandlega síðan maður
hennar, Helgi Kr. Helgason vél-
stjóri á togaranum Geir, lét hana
fá dósina til varðveislu fyrir
rúmum 43 árum. Hvernig dós
þessi komst í hendur Helga á
sér skrítna sögu, og merkilegt
að hún skuli vera til enn þann
dag í dag.
Fyrir þá sem ekki þekkja sög-
una af því þegar togarinn Geir var
á leið frá Fleetwood á Bretlandi til
íslands á stríðsárunum og var
stöðvaður af kafbát á leiðinni skal
hún að nokkru rifjuð upp.
Matthías Johannessen segir svo
frá í grein er hann reit af þessum
atburði: „Þegar Geir var svo kom-
inn 50 sjómílur norður fyrir Bar-
rahead, er þar hægviðri, en mistur
í lofti og því meir sem nær dregur
sjónum, því að nær albjart er há-
loftið. Þá sjá þeir allt í einu hvar
kafbátur kemur á móti þeim og
hefur brezkan fána við hún.“ í lýs-
ingu af atburðinum segir að kaf-
báturinn hafi siglt framhjá þeim
en síðan snúið við og haft fallbyss-
una mannaða þegar upp að Geir
var komið og miðað henni á hann.
Kafbátsmenn skipuðu þeim að
fara í bátana og um fátt var að
ræða annað en að hlýða. Bátarnir
voru settir út og fór skipstjórinn
ásamt öðrum í bát og réri til kaf-
bátsins.
{ grein Matthíasar segist skip-
stjóranum svo frá: „Geir var ný-
málaður og mér þótti helvíti hart,
ef hundarnir skytu hann niður
fyrir mér, en mér datt ekki annað
í hug, þegar ég sá að þeir mönnuðu
byssuna. Og ég þóttist viss um að
þetta myndu vera Þjóðverjar, eins
og þeir létu.
Þegar við nálguðumst kafbátinn,
segja þeir okkur að koma að
gönguþrepum, sem voru á ytra
byrðingi hans framan við bóginn.
Við gerum það.
Þá koma tveir menn frameftir
og segjast vilja fara með okkur
yfir í Geir. Við rérum með þá yfir
í togarann, og þeir fara með mér
niður í káetu.
Áður en við lögðum frá kaf-
bátnum, spurðu þeir, hvort við
hefðum sent nokkur skeyti. Ég
sagði það ekki vera. Þá kallar ann-
ar kafbátsmannanna strax til yf-
irmannsins i turninum og segir, að
við höfum ekkert skeyti sent. Það
er eins og fargi sé af þeim létt. Ég
spurði: „Hvers vegna eruð þið að
stöðva okkur, fyrst við erum með
réttan dagfána?" „Við erum búnir
að vera svo lengi úti, að við höfum
ekki heyrt um þessi merki," sögðu
þeir. Þeir kváðust hafa haldið að
þetta væri þýzkur togari, og ætl-
uðu að sökkva honum. Við spurð-
um hvers vegna. Þeir sögðust hafa
hitt þýzkan togara með íslenzk
einkenni og samskonar skorsteins-
merki og hjá okkur — og þeir
hefðu sökkt honum.
Ég vildi helzt losna við kafbáts-
mennina strax og hægt var, svo að
ég talaði ekki við þá meir en ég
þurfti. Þeir vildu ekki líta í skips-
skjölin, heldur aðeins siglinga-
pappírana frá Bretunum og leið-
ina sem við áttum að fara. Og sið-
an skoðuðu þeir dagmerkin.
Að svo búnu kvöddu þeir og
sögðust mundu senda okkur smá-
vegis til minja. Það kom aftur með
bátnum: Þrjár dósir af enskum
ávaxtasafa, tvær dósir af enskri
uxahalasúpu."
Magnea sagði að svo virtist sem
þeir hefðu skipt dósunum á milli
sin, því maðurinn hennar kom
með eina þeirra heim eins og áður
sagði. Dósina hefir hún siðan
geymt vandlega fram á þennan
dag, vafða inn í brúnan bréfpoka.
Hún sagði að daginn eftir að
Geir kom hingað til hafnar hefðu
skipverjar verið kvaddir til yfir-
heyrslu um þennan atburð hjá
breska setuliðinu. Hvort þetta
hefði verið þýskur eða breskur
kafbátur vissi hún ekki og vissa
þar að lútandi hefur ekki fengist
staðfest. Kannski hæfir þögnin
best þessari minningu sem með
okkur lifir.
Magnea heldur hér á niðursuðudósinni sem hún hefur geymt svo vandlega.
Tvær kynningarmyndir um sjávarútveg:
„Á fiskislóð“ og
„Fiskur á þurru landi“
Morgunblaðið/J6n Bjarnason.
Kldur laus í fiskimjölsverksmiðjunni á Tálknafirði. Lýsistankarnir standa við verksmiðjuvegginn en þeim tókst að
bjarga.
Sjávarútvegsráðuneytið
hefur nú látið gera tvær
fræðslu- og kynningarmyndir
um sjávarútveg. Eru þær á
myndböndum og verður
dreift til skipa og fyrirtækja í
fískvinnslu. Fjallar önnur um
togaraveiðar og nefnist „Á
fískislóð“ og hin um vinnu í
hraöfrystihúsum. Nefnist
hún „Fiskur á þurru landi“.
„Á fiskislóð" er tekin um borð í
skuttogaranum Kolbeinsey frá
Húsavík. í myndinni er leitast
við að lýsa réttum vinnubrögðum
við veiðarnar til að tryggja sem
allra mest gæði aflans. Lögð er
áherzla á þátt togtíma í aflameð-
ferð, mikilvægi þess, að blóðgun
og slæging sé rétt framkvæmd,
góðan þvott og ísun og frágang
og greint frá mikilvægi kassa-
merkinga. Höfundar handrits
myndarinnar eru Björn Vignir
Sigurpálsson og Hafþór Rós-
mundsson, en lsmynd annaðist
gerð myndarinnar.
Tálknafjörður:
8 milljóna króna tjón af völdum
elds í fiskimjölsverksmiðjunni
Tálknaíirdi, í neptember.
ÞRIÐJUDAGINN 11. sept-
ember urðu miklar skemmd-
ir á fískimjölsverksmiðju
Hraðfrystihúss Tálknafjarð-
ar hf. af völdum elds sem
upp kom í húsinu. Tjón á
húsi, vélum og birgðum er
áætlað um 8 milljónir kr.
Eldurinn kom upp í hádeginu
og komst maður sem staddur
var í húsinu ómeiddur út úr
því.
Talið er að eldurinn hafi komið
upp cftir sprengingu sem varð
þegar olíuleiðsla við brennara á
þurrksílói, sem var i gangi, hrökk
í sundur. Slökkvilið Tálknafjarð-
ar kom fljótt á vettvang og tókst
að slökkva eldinn á skömmum
tíma. Kom nýr slökkvibíll
slökkviliðsins þar í góðar þarfir.
Húsið er um 20 ára gamalt og
brann það að stórum hluta og
allt sem i því var. Þak þess er
alveg ónýtt og allt tréverk í hús-
inu. Allar rafleiðslur eru ónýtar
og vélar meira og minna
skemmdar. Þá eyðilagðist allt
það mjöl sem í húsinu var, um 70
tonn.
Fiskiþró sem er í öðrum enda
hússins og aðskilin er frá öðrum
hlutum hússins með eldvarnar-
vegg slapp alveg og einnig tókst
að verja lýsistanka sem standa
við húsið svo og olíutanka ESSO
og frystihúsið sem stendur
skammt frá. Um 6—7 þúsund
fiskikassar stóðu við fiskimjöls-
verksmiðjuna en þeim tókst að
bjarga lítið skemmdum. Endur-
FYR.STU háskólatónleikarnir á
þessu starfsári verða haldnir í
Norræna húsinu í hádeginu mið-
vikudaaginn 24. október nk.
Á efnisskrá eru verk eftir
Hallgrím Helgason: Þrjú lög
fyrir selló og píanó og Tríó fyrir
bygging hússins hófst fljótlega
eftir brunann en óvíst er hvort
fiskimjölsverksmiðjan verður
sett af stað aftur. Fiskúrgangur-
inn er nú malaður og honum ekið
til Patreksfjarðar til bræðslu.
— Jón.
fiðlu, selló og píanó. Flytjendur
eru: Þorvaldur Steingrímsson,
fiðla, Pétur Þorvaldsson, selló, og
höfundurinn sjálfur sem leikur á
pianó.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30
og standa u.þ.b. hálftíma.
Háskólatónleikar
„Fiskur á þurru landi" er þátt-
ur í kynningarstarfi sjávarút-
vegsráðuneytisins fyrir bættum
fiskgæðum. Hún er tekin hjá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, Út-
gerðarfélagi Akureyringa og
frystihúsi KEA á Dalvík svo og í
Fiskvinnsluskólanum. Ismynd sá
um gerð myndarinnar, en hún
var unnin í samvinnu við sér-
fræðinga Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og sjávarafurða-
deildar Sambandsins. í myndinni
er farið yfir helztu þætti vinnsl-
unnar, löndun, geymslu, slæg-
ingu, ísingu, hreinlæti, flokkun,
flökun, snyrtingu, pökkun og
frystingu.
Listasafn ASÍ:
Málverka-
sýning
Málverkasýning Jakobs Jónss-
onar í Listasafni ASl, sem opnuð
var 6. október, hefur verið fram-
lengd til sunnudagsins 28. októ-
ber og lýkur henni þá um kvöldið.
Hún er opin daglega frá klukkan
14 til 22.
Jakob Jónsson