Morgunblaðið - 24.10.1984, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
45
Ljósm. Mbl./Júlíus.
Hluti sjúkraþjálfaranna í húsnæði fyrirUekisins Sjúkraþjálfun hf., en alls eru
eigendur þess fimm þjálfarar.
Fimm sjúkraþjálfar
ar opna eigin stofu
SJÚKRAÞJÁLFUN hf. heitir fyrir-
tæki, sem tók til starfa í byrjun ág-
ústmánaðar. Það er f eigu fimm
sjúkraþjálfara, sem allir starfa í 140
m2 leiguhúsnæði fyrirtækisins að
Laufásvegi 11.
Hanna Ásgeirsdóttir, sjúkra-
þjálfari, er stjórnarformaður hins
nýja fyrirtaekis. Hún sagði, í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins, að sjúkraþjálfararnir fimm
Árni Johnsen
formaður tóbaks-
varnanefndar
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
hefur skipað í tóbaksvarnanefnd, sem
starfar til næstu fjögurra ára:
Árni Johnsen, alþingismaður er
formaður og aðrir nefndarmenn
Þorvarður Örnólfsson, fram-
kvæmdastjóri, og Þorsteinn Blöndal,
yfirlæknir. Varamenn hafa verið
skipaðir. Þórhallur Halldórsson, for-
stöðumaður, Jónas Ragnarsson, rit-
stjóri og Þórður Harðarson, prófess-
or.
væru allir löggiltir og með reynslu
í starfinu. „Við ákváðum að stofna
þetta fyrirtæki til að geta unnið
sjálfstætt," sagði Hanna. „Það eru
langir biðlistar eftir þessari þjón-
ustu hjá þeim stofnunum sem
veita hana. Aðsóknin hingað til
hefur einnig sýnt að þörfin er
brýn, en hingað hafa komið að
meðaltali 15 manns daglega til
hvers þjálfara. Fyrirmyndina að
þessum rekstri höfum við fengið
erlendis frá, en þar er algengt að
sjúkraþjálfarar starfi sjálfstætt.
Hingað kemur fólk eftir tilvísun
frá lækni og greiðir fyrir sam-
kvæmt samningstaxta Félags ís-
lenskra sjúkraþjálfara við Trygg-
ingastofnun ríkisins."
Sjúkraþjálfararnir fimm hafa
allir starfað að sjúkraþjálfun áður
á ýmsum stofnunum hér á landi
og á stofum sambærilegum þess-
ari erlendis. Hluti þjálfaranna
hefur einnig stundað framhalds-
nám við erlenda 3kóla. Hanna Ás-
geirsdóttir sagði, að ef eftirspurn-
in héldist jafn mikil áfram væri
vel hugsanlegt að fyrirtækið réði
fleiri til starfa.
Nýtt rit um móð
urmálskennslu
TÍUNDA ritið í flokki Smárita
Kennaraháskóla íslands og Iðunnar
er nú komið út. Nefnist það „Nokkr-
ar hugmyndir um móðurmáls-
kcnnslu fyrir byrjendur" og er höf-
undur þess Þóra Kristinsdóttir.
Riti þessu er sérstaklega ætlað
að miðla nýjum hugmyndum varð-
andi lestrarkennslu og móður-
málsnám. í fyrsta hluta bókarinn-
ar fjallar höfundurinn um for-
kennslu og undirstöðu lestrar-
námsins. Er þar sérstaklega fjall-
að um þjálfun sjón- og heyrnar-
skynjunar, sem telja má grundvöll
alls lestrarnáms. í öðrum hluta er
fjallað um hópskiptingu í bekk
eftir lestrargetu, settar eru fram
hugmyndir að málörvunarverk-
efnum og verkefni fyrir skriflega
tjáningu á þessu fyrsta stigi móð-
urmálskennslu. í þriðja hluta rits-
ins eru svo lýsingar á nokkrum
spilum, sem nota má í lestri, staf-
setningu og málfræði. Slík spil
auka á fjölbreytni kennslunnar og
gera hana að leik og hafa verið
notuð með góðum árangri við æf-
ingakennslu.
Þora Kristinsdottir
Nokkrar luigmvndir
um móðurmálskcnnslu
fyrir bvrjendur
10
Smártt Kennarihátkola Islands og Idunnar
Ritið er 64 bls., Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði, en Iðunn gefur
ritið út.
(Fréttatilkynning.)
Til vinstri Gösta Bring, sölustjóri sænska fyrirtækisins Unifos Kemi AB, sem framleiðir hráefnið í nýju snjóbræðslu-
rörin, ásamt Sigurði Grétari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Pípulagna sf. Mbl./Júliua
Pípulagnir sf. hefur framleiðslu
á frostþolnum snjóbræðslurörum
FYRIRTÆKIÐ Pípulagnir sf. í
Kópavogi hefur nú hafið framleiöslu
á nýrri tegund snjóbræðsluröra sem
nefnast kóbra og framleidd eru úr
polyten-hráefni frá sænska fyrirtæk-
inu Unifos Kemi AB. Af þvf tilefni
var sölustjóri Unifos, Gösta Bring,
staddur hér á landi fyrir nokkru og
var nýja snjóbræðslukerfið þá kynnt
fyrir blaðamönnum.
Sigurður Grétar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Pípulagna sf.,
sagði að fyrirtækið hefði áður
flutt inn svokölluð pex-snjó-
bræðslurör en nú væri það hætt
þeim innflutningi. „Kóbra-snjó-
bræðslukerfið er mun ódýrara en
það sem ég var áður með,“ sagði
Sigurður „og auk þess að hafa
sömu eiginleika og pex-rörin hafa
kóbra-rörin meira hitaþol, eða 50
gráður á Celsíus. Aðrir mikilvægir
kostir nýju röranna er að þau eru
frostþolin, þola 10 kílóa þrýsting
og endast að meðaltali i 50 ár.
Kóbra-snjóbræðslurörin má
leggja undir malbik, steinsteypu
og hellur en einnig má nota þau i
gólfhitakerfi.
Tortryggni hefur gætt meðal
manna í garð nýju röranna þar
sem þau eru svört og þvi áþekk
kaldavatnsleiðslum. Þvi vil ég
benda hér á að sérstök ástæða er
fyrir því að rörin eru höfð svört en
ekki í upprunanlega ljósa litnum,
þar sem dökki liturinn ver þau
fyrir sólarljósinu," sagði Sigurður.
Rafbúð
Domus Medica, Egilsgötu 3 Simi 18022.
OSRAM
LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR
KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyða broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM CIRCOLUX “ stílhreint,
fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar
stundum í eldhús, stundum í stofu eða hvar annars
staðar sem er - allt eftir þínum smekk.