Morgunblaðið - 24.10.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
47
Frá 25 ára afmælishátíð Landsambands eigenda íslenskra hesta í Hollandi:
Morgunblaöið/Valdimar Kristinsson.
Sjö íslendingar tóku þátt í alþjóðlega afmaelismótinu og voru fjórir með í setningaratböfninni. Frá vinstri talið:
Herbert Ólason á Seif, Jón Steinbjörnsson á Gáska, Þórður Jónsson á Hvelli og Reynir Aðalsteinsson á
stóðhestinum Nasa frá Geirshlíð.
Fjölbreytt dagskrá með vel-
heppnuðu alþjóðlegu móti í lokin
Dagana 10.—16. september hélt Landsamband eigenda íslenskra hesta
í Hollandi upp á 25 ára afmteli sitt í Uddel. Á þessari viku var boðið upp
á ýmislegt fræðslu- og skemmtiefni og má þar nefna fyrirlestra um
ýmislegt varðandi íslenska hestinn, myndbandasýningar frá landsmótum
hérlendis og frá „Hestadögum í Garðabæ". Að síðustu var svo haldið
alþjóðlegt hestaíþróttamót með sama sniði og Evrópumótin, sem haldin
eru annað hvert ár. Til leiks mættu keppendur frá flestum aðildarþjóðum
FEIF (Evrópusamband eigenda íslenskra hesta) og þar á meðal voru
nokkrir ísienskir keppendur, sem ýmist komu með hesta frá íslandi til að
keppa á eða fengu lánaða hesta ytra. Var árangur þeirra allþokkalegur
svona miðað við aðstæður. Mánudaginn 17. september var síðan haldinn
aðalfundur FEIF. Var á þessum fundi kosinn nýr forseti samtakanna en
Ewald Isenbiigel frá Sviss, sem gegnt hafði þessari stöðu frá stofnun
FEIF 1969, gaf ekki kost á sér. í hans stað var kosinn Volker Ledermann
frá Vestur-Þýskalandi með öllum greiddum atkvæðum.
Afmælishátíðin var sett
mánudagskvöldið 10. september
en á þriðjudag hófst ræktunar-
ráðstefna FEIF, sem fjallar um
ræktun íslenska hestsins í Evr-
ópu. Hinn þátturinn í þessari
ráðstefnu var námskeið í kyn-
bótadómum og voru þeir Walter
Feldmann jr. frá Vestur-Þýska-
landi og Friðþjófur Þorkelsson
frá íslandi leiðbeinendur. Einn
megin tilgangurinn með þessu
námskeiði var að samræma
kynbótadóma milli landa þar
sem íslensk hross eru tekin til
dóms. Aðspurður um það hvort
komið hafi fram mikill skoðana-
ágreiningur milli einstakra
þjóða kvað Friðþjófur hann
minni en búast hefði mátt við,
taldi hann að það væru helst
Hollendingar sem skæru sig úr
og sagði hann þá horfa full mik-
ið á fegurð í reið, sem er eitt
dómsatriði í hæfileikadómi, þeg-
ar þeir væru að dæma gangteg-
undir. Aftur á móti legðu þeir
minna upp úr gæðum gangteg-
undanna.
Ræktunarráðstefnunni lauk á
fimmtudag og voru menn sam-
mála um að hún hafi verið mjög
gagnleg og þyrfti meira af slíku.
Island átti engan fulltrúa á þess-
ari ráðstefnu en það virðist vera
stefna Búnaðarfélags íslands að
taka ekki þátt í þessum ráð-
stefnum, sem haldnar hafa verið
reglulega undanfarin ár.
Samtímis ræktunarráðstefn-
unni var keppt í svokallaðri
„Long distance ride“ en í frétt
Morgunblaðsins í byrjun sept-
ember, þar sem sagt frá þessari
hátíð, var minnst á þetta fyrir-
bæri og þess jafnframt getið að
ekki hafi fundist gott íslenskt
heiti á þetta. Má geta þess að
daginn eftir kom tillaga um ís-
lenskt nafn og var lagt til að
þetta yrði kallað „Skúlaskeið" og
er þessari hugmynd hér með
komið á framfæri. En það er af
þessu „Skúlaskeiði" að segja að
fáir virtust vita um þessa keppni
og þaðan af síður að vitað væri
hvar hún færi fram og töldu
keppnina ekki hafa farið fram
þar til verðlaun voru afhent í lok
mótsins. Þrír fyrirlestrar voru
haldnir af þeim Friðþjófi Þor-
Á ræktunarráöstefnunni leiöbeindu þeir Friðþjófur Þorkelsson (til
vinstri) og Walter Feldmann jr. (til hægri) á námskeiöi fyrir kynbótadóm-
ara. Á milli þeirra er Siguröur Ragnarsson sem sá um að túlka þegar þess
geröist þörf.
Þóröur Jónsson keppti í tölti, fimmgangi og skeiði á Hvelli og hafnaöi
hann í 8. sæti í tölti og 7. sæti í flmmgangi.
kelssyni, sem fjallaði um dóma á
kynbótahrossum 4ja til 6 vetra,
Þorvaldi Árnasyni, sem gerði
grein fyrir rannsóknum á erfða-
styrk kynbótahrossa og Ewald
Isenbúgel ræddi um skyldleika-
rækt hrossa.
Á íþróttamótinu urðu helstu
úrslit þau að Evrópumeistarinn
Hans Georg Gundlach, Vestur-
Þýskalandi, sigraði bæði i tölti
og fjórgangi á hesti sfnum
Skolla, en þeir skutust upp á
stjörnuhimininn á síðasta Evr-
ópumóti er þeir sigruðu í þessum
sömu greinum. Í fimmgangi
sigraði Johannes Hoyos, Austur-
ríki, á Fjölni frá Kvíabekk, sama
hesti og Tómas Ragnarsson reið
er hann varð Evrópumeistari í
Roderath í fyrra. I 250 metra
skeiði sigraði danska stúlkan
Dorte Rasmussen á danskfædda
hestinum Blossa frá Endrup og
tíminn var 23,9 sek. Í 150 metra
skeiði sigraði Walter Feldmann,
Vestur-Þýskalandi, á Vini frá
Víðidal á 16,1 sek. Feldmann
sigraði einnig á gæðingaskeiði á
sama hesti. Nánar verður fjallað
um íþróttamótið síðar.
KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyöa og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM DULUX “ handhægt Ijós þar
sem mikillar lýsingar er óskaö. Mikið Ijósmagn, einfalt í
uppsetningu og endist framar björtustu vonum.
OSRAM CIRCOLUX “ stílhreint,
fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar
stundum í eldhús, stundum í stofu eöa hvar annars
staðar sem er - allt eftir þínum smekk.
OSRAM COMPACTA - og
fremst nytsamt Ijós sem varpar Ijósgeislunum langt og
víöa jafnt innanhúss sem utan.
GLÓEY HF. OSRAM
LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR