Morgunblaðið - 24.10.1984, Side 64
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
VSÍ býður ASÍ um
11% launahækkun
— auk þess komi til 1.400 millj. kr. skattalækkanir á næsta ári
Vinnuveitendasamband íslands
gerdi fimm landssamböndum við-
semjenda sinna tilboð á fundi í
garkvöldi. Tilboðið hljóðar upp á
6,1% kauph»kkun við undirritun
samninga. Flokkatilfærslur á sama
tíma, sem metnar eru á 2,2—2,4%,
og flokkatilfærslur 1. janúar nk.,
sem metnar eru á sömu prósentu-
upphieð, eða samtals 4,4—4,8%. Þá
byggist tilboð forsvarsmanna VSÍ
ennfremur á tekjuskatts- og út-
svarslækkunum á næsta ári, sem
þeir segja ríkisstjórnina hafa gefið
fyrirbeit um. Er þar um að raeða
1.100 millj. kr. tekjuskattslækkanir
og 300 millj. kr. útsvarslækkanir.
Telja fulltrúar VSÍ, að meta megi
hvert 1 % í skattalækkun til móts við
2% launahækkun.
Landssamböndin fimm eru
Landssamband verzlunarmanna,
Verkamannasamband Islands,
Landssamband iðnverkafólks,
Málm- og skipasmíðasamband ís-
lands og Rafiðnaðarsamband ís-
lands. Fundurinn hófst um kl. 21 í
gærkvöldi og lauk um kl. 22. Ekki
komu fram nein viðbrögð fulltrúa
landssambandanna á fundinum,
en ætlunin mun að kynna tilboðið
innan landssambandanna og
kanna viöbrögð.
Flokkatilfærslurnar, sem boðið
er upp á við undirskrift samninga,
eru þannig að sögn Magnúsar
Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra VSl, að fyrst er ætlunin að
Lögbanns-
kröfu hafnað
BORGARDÓMUR hefur kveðið upp
þann úrskurð, nð lögbannskrafa Eim-
skipafélagsins, vegna verkfallsaðgerða
BSRB við llrriðafoss á Grundartanga,
sknli ekki ná fram að ganga. Var úr-
skurður kveðinn upp í gærmorgun.
í forsendum segir m.a.: „Eins og
hér hagar til, þar sem ágreinings-
efni aðila tengist víðtækri vinnu-
deilu og með hliðsjón af því hvernig
atvik hafa þróast í máli þessu, verð-
ur ekki talið, að eðlilegt sé, að beita
lögbanni sem réttarúrræði í deilu
aðila, sem eiga þess kost að fá úr-
lausn þar um i venjulegu dóms-
máli.“ Úrskurðast því, „að umbeðið
lögbann skal ekki ná fram að
ganga“. Málskostnaður fellur niður.
Þórður Sverrisson hjá Eimskip
sagði í gær, að þeim hjá Eimskip
þætti dómur þessi nokkuö sérstæð-
ur, þar sem ekki er tekin afstaða til
hins eiginlega ágreiningsmáls, held-
ur er vísað til dómstóla.
Eggert óskarsson, skipaður setu-
dómari, dæmdi í málinu, en sýslu-
maður Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu, Rúnar Guðjónsson, vék sæti.
Morgunblaðið:
Blaðið seldist
upp og áskrift-
um rigndi inn
GÍFURLEG eftirspurn var eftir
Morgunblaðinu í gær, fyrsta
tölublaði eftir sex vikna blaða-
verkfall. Var blaðið uppselt á af-
greiðslunni um hádegi og því
ekki hægt að uppfylla fjölmargar
pantanir frá verzlunum og sölu-
turnum.
„Ég man ekki eftir öðrum
eins hamagangi á afgreiðsl-
unni þau 36 ár sem ég hef
starfað hér,“ sagði Sigurþór
Sigurðsson afgreiðslustjóri í
gær. „Það var byrjað að
hringja í okkur frá sölustöðum
strax klukkan níu í gærmorgun
til að biðja um fleiri blöð og á
hádegi voru öll blöð búin. Það
komu beiðnir frá öllu landinu.”
Sigurþór sagði ennfremur að
áskriftarbeiðnum hefði rignt
inn. „Sjö stúlkur höfðu vart
undan við að taka við áskrift-
arbeiðnum hér á afgreiðslunni
og ég geri ráð fyrir að sömu
sögu sé að segja af umboðs-
mönnum okkar úti á landi.
Fólk er greinilega þyrst í frétt-
ir eftir verkfallið og fjölmiðla-
leysið," sagði Sigurþór.
flytja þrjá neðstu launaflokkanna,
þ. e. 9., 10. og 11. upp í 12. flokk, en
þar á eftir verða allir, sem þá
verða í 12. flokki og þar fyrir ofan,
færðir upp um einn flokk og ein-
um flokki því bætt ofan á. 1. janú-
ar nk. verða síðan allir færðir upp
um einn flokk á ný. Magnús sagði
að þetta mætti meta frá 4,4—4,8%
í launahækkun.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSl, sagði í viðtali
við blm. Mbl. i iok fundarins, að
með þessu tilboði væri VSÍ að
reyna að vinda ofan af þeim yfir-
lýsingum, að samningar 1.000—
1.500 íslendinga gætu eyðilagt
möguleikann fyrir hin hundruð
þúsundin, sem enn gætu farið
þessa leið. Hann sagðist sann-
færður um, að þessi samsetning á
prósentuhækkunum og skatta-
lækkunum, auk tilfærslna í launa-
flokkum, væri sú leið sem hag-
kvæmust yrði fyrir launþega og
þjóðfélagið í heild.
Fulltrúar landssambandanna
vildu lítið tjá sig um málið, er þeir
gengu af fundi. Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, sagðist vilja
kanna til hlitar hvort ríkisstjórn-
in gæti staðið við þetta. Guðjón
Jónsson, formaður Málm- og
skipasmíðasambandsins, sagðist
ekki búinn að skoða þetta ræki-
lega, en sér sýndist ýmislegt þurfa
lagfæringa og endurbóta við.
Magnús Geirsson, formaður Raf-
iðnaöarsambandsins, sagðist ekk-
ert geta sagt um málið að óathug-
uðu máli, en sér sýndist að taka
þyrfti til skoðunar atriði varðandi
kaupmáttinn og fleira.
Morgunblaöið/RAX.
120 tonn af vörum
MIKIÐ magn af vörum og pósti er
nú í geymslum Fiugleiða á Kefla-
víkurflugvelli, þar sem ekki hefur
verið unnt að afgreiða nema neyð-
arsendingar á meðan á verkfalli
hefur staðið.
Blm. Morgunblaðsins fékk þær
upplýsingar í gær að um
115—120 tonn af alls kyns varn-
ingi og nokkrir tugir tonna af
pósti hefðu safnast fyrir. Flug-
leiðir hafa nú reynt að takmarka
móttöku á vörum erlendis því að
í Kaupmannahöfn biða nú 5 tonn
af vörum, 7—8 tonn í New York
og um 15 tonn í Lúxemborg.
Tollgæslan á Keflavíkurflug-
velli geymir einnig nokkurt
magn af varningi sem tekinn
hefur verið af farþegum og ekki
verður hægt að afgreiða fyrr en
að loknu verkfalli.
Formenn stjómarflokkanna um samningamálin:
Vísitölutrygging launa
kemur ekki til greina
ÞORSTEINN Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins sagði í viðtali
við Mbl. í gærkvöldi, að það væri
alveg Ijóst að ekki stæði til að taka
upp vísitölutryggingu launa. Þor-
steinn var spurður í tilefni af kröfu
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja um vísitölutryggingu launa I
„Markmiðið er að koma
íslenzku stjórninni frá“
— segir Einar Karl Haraldsson í viðtali við Ny Dag, blað sænska kommúnistaflokksins
Htðkkhólmi, 23. oklébvr. Frí frétUriUr. MorpubUAmBm Erik Liden.
„NU ER bara eftir að skipta um
ríkisstjórn með hraði. Þá höfum
við náð öllum þeim markmiðum,
sem við stefndum að.“ Þannig
komst Einar Karl Haraldsson,
nýskipaður framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins, m.a. að orði í
dag í viðtali við blaðið Ny Dag,
blað kommúnistaflokksins f Sví-
þjóð.
Blaðið hefur það ennfremur
eftir Einari Karli, að helzta
hættan sé nú fólgin í því, að
stjórninni takist að koma á að-
skildum samningum við Verka-
mannasambandið og Landssam-
band iðnverkafólks. Þá muni
samstaðan gegn stjórninni
rofna.
„Markmiðið með verkfallinu
er jú að koma stjórninni frá og
að gera samninga á sama grunni
um leið. Ef samningar verða
ekki gerðir á neinu sviði nú,
verður stjórnin að fara frá,“ seg-
ir Einar Karl Haraldsson í við-
talinu við sænska kommúnista-
blaðið.
„Verkfallið hefur haft í för
með sér, að verkalýðsflokkarnir
hafa eflzt fyrir kosningar, sem
fram kunna að fara og ættu að
leiða til nýrrar ríkisstjórnar
verkalýðsflokkanna," hefur blað-
ið ennfremur eftir Einari Karli
Haraldssyni.
Þá segir blaðið, að íslenzka
ríkisstjórnin sé að áliti margra í
Svíþjóð mun harðari stjórn en
hin umdeilda hægri stjórn
Margaret Thatcher í Bretlandi.
kjarasamningaviðræðunum. Forsæt-
isráöherra, Steingrímur Hermanns-
son, sagði einnig í utandagskrárum-
ræðum á Alþingi í gær um samn-
ingamálin, aö vísitölutrygging launa
kæmi ekki til greina, um það væri
ríkisstjórnin sammála.
Þorsteinn Pálsson sagði enn-
fremur: „Tilboð ríkisstjórnarinnar
um skattalækkunarleið og hófleg-
ar kjarabætur var eina færa leiðin
til þess að gera samninga út frá
kaupmáttarviðmiðun. Það var
eina leiðin til þess að gera samn-
inga, sem menn gætu haft eitt-
hvað traust á. Þannig er það ljóst,
að ríkisstjórnin hefur verið reiðu-
búin til þess að taka þátt i samn-
ingum með þeim hætti, en enn
sem komið er hafa félögin ekki
náð saman á þeim grundvelli og
BSRB ekki sýnt því mikinn áhuga.
Að því er varðar gömlu vísitölu-
trygginguna þá er það alveg ljóst,
að það stendur ekki til að taka
hana upp aftur.“
Sjá nánar á þingsíðu á bls. 36 og
37, en samningamálin voru rædd
utan dagskrár á Alþingi í gær.