Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984 Kosið hjá BSRB 7.—9. nóvember Kjörstjórn Bandalags starfs- manna ríkis og bæja kom saman til fundar í gær til að fjalla um Flugið að komast í eðlilegt horf STARFSEMI flugfélaganna er smám saman að komast í eðlilegt horf eftir að verkfalli BSRB lauk. Miklar annir eru í voruflutningum félaganna, enda hafa vörur hlaðist upp erlendis. Búast forsvarsmenn flugfélag- anna við að miklir vöruflutningar verði það sem eftir er ársins. Snemma í gærmorgun millilenti DC 8-þota Flugleiða á Keflavíkur- flugvelli á leið sinni austur yfir haf og síðdegis kom önnur þota Flug- leiða þar við á leið sinni frá Lux- emborg til Bandaríkjanna. Með þotunni frá Luxemborg voru um 100 flugliðar sem sinnt hafa Amer- ikufluginu en þotur Flugleiða hafa sem kunnugt er ekki millilent hér á þessari leið frá því verkfall BSRB hófst í byrjun október. allsherjaratkvæðagreiðslu innan BSRB um nýgerðan kjarasamn- ing BSRB og ríkisins. Fyrirhug- að er að atkvæðagreiðslan fari fram á Reykjavíkursvæðinu 7. og 8. nóvember en Ijúki úti á landi 9. nóvember. Hörður Zophaníasson, formaður kjörstjórnarinnar, sagði að hafist yrði handa við talningu atkvæða laugardaginn 10. nóvember en bjóst hann við að þá yrði eitthvað eftir af atkvæðum í póstinum og yrði þá að skilja verulegan hluta atkvæðanna eftir og bíða þar til öll atkvæði hefðu borist til að halda nafnleyndinni. Endanleg niðurstaða ætti þvi að liggja fyrir 12. eða 13. nóvember. Hörður sagði að atkvæðagreiðslan yrði bréfleg og færi fram með sama hætti og fyrri atkvæðagreiðslur BSRB. Morgunblaðið/Árni Sæberg. Samninganefndir VSÍ og landsambanda innan ASÍ komu saman til samningafundar klukkan 14 í gær. Stóð fundurinn enn þegar Mbl. fór í prentun í gærkvöldi. Á myndinni eni Ásmundur Stefánsson, Magnús L Sveinsson og Sigfínnur Sigurðsson að bera saman bækur sínar. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Útilokað að verja þann kaupmátt sem fæst nú Hafnarfirði Veldur að minnsta kosti 20 % verðbólgu á næsta ári Bensínskip- ið landar í SOVÉSKA olíuskipinu, sem legið hefur við festar á Kollafirði síðan fyrir helgi vegna verkfalls BSRB, var siglt inn til Hafnarfjarðar síð- degis í gær og hafin dæling á bensíni í olíugeyma Olíufélagsins hf. Áður hafði bensíni og gasolíu verið dælt yfir í olíuskipin Kyndil og Stapafell sem sigldu áleiðis til hafna á Vestur- og Norðurlandi. Olíuskipið mátti ekki sigla inn til Reykjavíkur vegna þess að starfsmenn Reykjavíkurborgar voru í verkfalli, en þangað á mest- ur hluti farmsins að fara. „ÉG fagna því að deilunni er iokið en hún hefur staðið alltof lengi og orðið til tjóns. Samningurinn er að mínu mati mjög erfiður og hefði að mínu mati verið skynsamlegra að fara skattalækkunarleiöina. Ég held að það verði ákaflega erfitt, hvað sem hver segir, að verja þann kaupmátt sem fæst í upphafi samninganna og reyndar útilokað,“ sagði Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra þegar álits hans var leitað á nýgerðum kjarasamningi BSRB og ríkisins. Sjónvarp í kvöld I kvöld, fimmtudag, verður sjón- varp þrátt fyrir að fimmtudags- kvöld séu venjulega sjónvarpslaus eins og alkunna er. Sjónvarps- dagskráin hefst klukkan 20 með fréttum. Sjá sjónvarpsdagskrána á bls. 6 í blaðinu í dag. © INNLENT „Það hefði verið skynsamlegra að hafa jafnari launahækkun yf- ir tímabilið en svona mikla í upp- hafi,“ sagði Steingrímur einnig. „Ef þessi samningur gengur yfir launakerfið allt, sem ekki er ólíklegt, þá óttast ég og tel reyndar alveg ljóst, að hann veldur kostnaðarhækkunum sem þjóðartekjur standa ekki undir eins og nú er ástatt." — Þú átt við að hann sé verð- bólguvaldandi? „Ég held að það hljóti að vera. Ég held að það geti hver maður spurt sjálfan sig að því hvort fiskvinnslufólkið og sjómennirn- ir, svo dæmi sé tekið, sætti sig við minna. Sagt er að staða fisk- vinnslunnar sé ákaflega erfið í dag, þetta hefur meðal annars komið fram hjá stjórnarandstöð- unni og er vissulega rétt, og því ber hún ekki svona miklar kostn- aðarhækkanir án þess að fá hækkun á verðlagi." — Hvað telur þú að þetta leiði mikla verðbólgu af sér? „Ég skal ekki segja til um það. Vitanlega vilja stjórnvöld leita allra leiða til að draga úr áhrif- um svona samnings í efnahags- lífinu. Það er ekki enn búið að semja á milli VSÍ og ASÍ og því erfitt að gera þetta fullkomlega upp. í þjóðhagsáætlun var gert ráð fyrir 9 til 10% launahækkun á milli ára og þá var gert ráð fyrir að verðbólga á árinu 1985 yrði 12 til 13% frá upphafi til Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra loka ársins. Þessir samningar hafa tvöfalt meiri kostnaðarauka fyrir atvinnulífið í för með sér og lauslega reiknað gæti þetta vald- ið verðbólgu sem væri á næsta ári að minnsta kosti yfir 20%. Líklega veldur þetta þó meiri verðhækkunum í upphafi ársins því að samningarnir eru þannig að launahækkanirnar koma mest í upphafi samningstímabilsins. Vitanlega verður ríkisstjórnin nú að endurskoða efnahags- stefnu sína og hún er ákveðin í því að gera þær ráðstafanir sem leiða aftur til minnkandi verð- bólgu. Það má ekki gefast upp við það, því það er þjóðinni lífsnauð- syn að ná verðbólgunni niður á svipað stig og er í nágrannalönd- unum. Þeirri baráttu verður að halda áfram." Qlympíumótið í bridge: ísland í sjötta sæti EFTIR átta umferðir á ólympíumótinu í bridge, sem fram fer í Seattle í Bandaríkjunum, eru íslendingar í sjötta sæti í sfnum riðli með 142 stig. Argentínumenn eru efstir í riðlinum með 162,5 stig, Svfar í öðru sæti með 162 stig, Indónesía í þriðja sæti með 156 stig, Norðmenn fjórðu með 149 stig og ítaiir fimmtu með 142 stig. Þá eru Bandarfkjamenn ekki langt undan, en þeir hafa hlotið 136 stig. tslendingar léku síðustu tvo leiki sína gegn Hollensku Antillu- eyjunum og Noregi. Fyrri leikur- inn vannst 20—10, en leikurinn fegn Norðmönnum tapaðist 5—25. gær átti liðið að spila gegn Kína, Filippseyjum og Pakistan. Staðan í A-riðli eftir átta um- ferðir var sú að Pólland hafði tek- ið forystu með 172 stig, en Frakk- ar komu fast á hæla þeirra með 171 stig. Næstir koma Danir með 144,75 stig, ísrael og Japan með 144 stig, og Bretar Kanadamenn og Hollendingar jafnir með 143 stig. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæóisflokksins: Sé ekki aö launahækk- anirnar feli í sér raun- verulegar kjarabætur „Mér er eins farið og mörgum öðrum að mér er létt að þessu langa verkfalli skuli lokið. Hitt er annað mál að þessir kjarasamningar hafa breytingar í för með sér til hins verra,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann álits á kjarasamningum BSRB og ríkisins. „Ég sé ekki að launahækkanirn- ar feli í sér raunverulegar kjara- bætur og því síður að þær bæti stöðu þeirra sem lakast eru settir. Það eru komnar upp nýjar að- stæður f efnahagsmálum, sem gera að litlu þann mikla árangur er náðst hafði í baráttunni við verðbólguna. Sjálfstæðismenn höfðu forustu um að gera tillögur til lausnar verkföllunum, er höfðu það að markmiði að viðhalda Þorsteinn Pálsson jafnvægi, tryggja kaupmátt ráðstöfunartekna og treysta stöðu þeirra er lökust hafa kjörin. Ég hlýt auðvitað að harma að forustumenn BSRB skuli ekki hafa haft skilning á því að með þeim hætti var best hægt að tryggia hagsmuni umbjóðenda þeirra. En þeir höfðu afl til að knýja fram lausn með þeim gamla hætti, sem ég hygg að flestir hafi í raun verið orðnir þreyttir á. Þetta samkomulag markar að þessu leyti þáttaskil bæði í efna- hagsmálum og í stjórnmálalegu tilliti." Aðspurður um uppsagnar- ákvæði samningsins sagði Þor- steinn Pálsson, að í raun þýddi það einungis styttri samnings- tfma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.