Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
211. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sonur Gandhi tekinn
við stiérnartaumum
Nýja Ðelhí, 31. oklóber. AP.
RAJIV Gandhi sór í dag embsttiseið sinn sem forsætiráðherra Indlands og eftirmaður móður sinnar, Indiru
Gandhi, sem lést í dag af banvænum sárum, sem hún hlaut í kúlnaregni frá þremur öryggisvörðum hennar af
trúflokki sikha. Indverska hernum, sem telur milljón manns, hefur verið skipað í viðbragðsstöðu um allt landið
og hefur höfuðborgin verið girt áf. Mikil og djúp sorg ríkir nú í Indlandi þótt mestu öfgamennirnir meðal sikha
hafi fagnað ódæðisverkinu. Sums staðar hefur komið til uppþota þar sem hindúar hafa skeytt skapi sínu á
sikhum en ekki er vitað um meiriháttar ólgu í landinu í kjölfar morðsins. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa í
dag tjáð indversku þjóðinni samúð sína vegna hörmulegs dauða Indiru Gandhi, sem þeir segja hafa verið meðal
mestu merkismanna vorra tíma.
Þegar Indira Gandhi var að yf-
irgefa heimili sitt í Nýju Delhí á
tíunda tímanum í morgun að stað-
artíma hófu tveir menn eða þrír
úr öryggisverði hennar skyndilega
skothríð að henni og er talið, að
hún hafi orðið fyrir a.m.k. 10 kúl-
um. Aðrir öryggisverðir hennar
felldu strax einn eða tvo mann-
anna en sá þriðji náðist lifandi.
Var farið strax með Indiru í
sjúkrahús í borginni þar sem hún
lést fjórum stundum síðar eftir
örvæntingarfulla baráttu lækna
fyrir lífi hennar. Mörg hundruð
þúsund manns söfnuðust saman
fyrir utan sjúkrahúsið og annars
staðar í borginni strax þegar
fréttist af árásinni og beið fólkið
þar grátandi þar til ljóst var, að
leiðtogi þess var látinn.
Á skyndifundi indversku stjórn-
arinnar og helstu leiðtoga
Kongress-flokksins var Rajiv
Gandhi, sonur Indiru, einróma
valinn eftirmaður hennar og sór
hann að því búnu embættiseið
sinn sem forsætisráðherra. Öllum
indverska heraflanum, milljón
manns, var jafnframt skipað að
vera við öllu búinn af ótta við ólgu
í landinu og hermenn girtu höfuð-
borgina af og heimili ráðamanna.
„Drepum sikha. Þeir hafa deytt
móður okkar,“ mátti víða heyra
meðal æstra hindúa og á nokkrum
stöðum kom til uppþota þar sem
æstur múgur misþyrmdi þeim
sikhum, sem náðist til. Ekki er þó
vitað til, að verulegar blóðsúthell-
ingar hafi orðið í landinu í kjölfar
morðsins.
Það voru eins og fyrr segir
menn af trúflokki sikha í öryggis-
verði Indiru, sem réðu henni bana,
en eins'og kunnugt er hefur ríkt
hálfgert striðsástand i ríkinu
Punjab, þar sem þeir eru fjöl-
mennastir, vegna krafna þeirra
um aukna sjálfstjórn og jafnvel
sjálfstæði. I júní sl. réðust ind-
verskir hermenn til atlögu við
vopnaða öfgamenn í Gullna must-
erinu í Amritsar í Punjab og féllu
þá mörg hundruð manna. Sikhar
hafa löngum verið fjölmennir í
indverska hernum og jafnan skip-
að þar háar stöður sem og í örygg-
isverði þjóðarleiðtogans. Höfðu
margir orðið til að vara Indiru við
áhrifum þeirra og aðstöðu en hún
vildi ekki, þrátt fyrir margar líf-
látshótanir að undanförnu, hrófla
við stöðu þeirra í von um sættir.
Helstu leiðtogar sikha hörmuðu í
dag dauða Indiru Gandhi en aðrir
öfgafyllri drógu enga dul á fögnuð
sinn.
Indira Gandhi hafði lengi bund-
ið vonir við, að yngri sonur henn-
ar, Sanjay, tæki við forystuhlut-
verki hennar í indverskum stjórn-
málum en hann lést í flugslysi ár-
ið 1980. Eldri sonur hennar, Rajiv,
sem nú hefur tekið við stjórnar-
taumunum að móður sinni látinni,
er fertugur að aldri og hefur að
undanförnu gegnt embætti fram-
kvæmdastjóra Kongress-flokks-
ins. Hans bíður nú mikið og erfitt
hlutverk, sem framtíðin ein fær
skorið úr hvernig hann fær leyst
af hendi.
Þjóðarleiðtogar um allan heim
hafa í dag vottað indversku þjóð-
inni samúð sína og lýst yfir djúpri
hryggð sinni vegna fráfalls Indiru,
sem þeir segja meðal merkustu
manna á þessari öld.
Sjá „Að Indiru Gandhi lát-
inni“ og fl. á bls 32 og 33 og
aðrar fréttir á bls. 24 og 25.
Kajiv Gandhi, sonur Indiru Gandhi, sem öfgamenn af trúflokki síkha myrtu í
gær, sór embættiseið sinn sem nýr forsætisráðherra Indlands aðeins nokkrum
klukkustundum eftir lát móður sinnar. Það er forseti landsins, Zail Singh, sem
hér les honum eiðstafinn. simamynd ap.
„Pólska þjóðin hefur
eignast nýjan dýrling“
Vmrsjá, 31. oktdbcr. AP.
LOGINN á mörgum þúsundum kerta
lýsti í morgun upp kirkju heilags
Stanislaws Kostka og næsta ná-
grenni, en í alla nótt var beðið þar
fyrir sálu pólska prestsins Jerzy Popi-
eluszko, sem foringjar f öryggislögr-
eglunni rændu og myrtu. í Wroclaw í
Suðvestur-Póllandi hefur verið til-
kynnt um stofnun mannréttindasam-
taka.
Mörg hundruð manns voru í alla
nótt á bæn í kirkju Popieluszko í
Varsjá en í gær fannst lík hans í
vatnsbóli við Vislu-á. öll kirkjan
og nágrenni hennar er eitt blóma-
haf og borða- þar sem Popieluszkos
er minnst og látinn í ljós stuðning-
ur við Samstöðu. Við altarið stóðu
verkamenn frá Huta-stálsmiðjun-
um með fána Samstöðu en fjöl-
mennur hópur pólskra tónlistar-
,,Ef ég
Nýju Delhi, 31. oklóber. AP.
„Ef ég dey f dag mun hver dropi
af blóði mínu verða til blessunar
fyrir þjóðina og hleypa í hana nýju
lífi,“ sagði Indira Gandhi aðeins
nokkrum klukkustundum áður en
hún var ráðin af dögum, kvöldið
fyrr á fjölmennum fundi stuðn-
ingsmanna hennar f borginni
Bhubaneswar.
Á fundinum sagði Indira, sem
var 66 ára að aldri, að henni væri
sama þótt hún næði ekki háum
aldri, hún væri hreykin af því að
hafa varið ævi sinni til að berjast
dag...“
fyrir bættum kjörum indverskrar
alþýðu og það væri henni næg
umbun þótt árin yrðu ekki fleiri.
Hún minntist á fjölmargar
morðhótanir, sem henni höfðu
borist að undanförnu, og sagði
frá því, að hún hefði orðið fyrir
steini, sem kastað var að henni á
fundi kvöldið áður.
„En ég óttast ekkert,“ sagði
hún, „og harma það ekki þótt ég
láti líf mitt í þjónustu fyrir land
mitt og þjóð.“
manna og kvikmyndafólks fyllti
kapelluna.
„Pólska þjóðin hefur eignast nýj-
an dýrling," sagði ungur stærð-
fræðingur í kirkjunni. „Hann er
kominn í hóp bestu sona Póllands.“
í kirkjunni hefur verið komið fyrir
miklu málverki af Popieluszko þar
sem hann birtist sem heilagur
Georg að berjast við drekann en á
pólsku er mannsnafnið Jerzy dreg-
ið af Georg.
Haft er eftir heimildum innan
kirkjurtnar, að Popieluszko verði
borinn til grafar á laugardag og er
búist við, að hundruð þúsunda
manna muni fylgja honum til graf-
ar.
í borginni Wroclaw í Suðvestur-
Póllandi hafa verið stofnuð samtök
menntamanna, kennara og verka-
manna, sem ætla að fylgjast með
mannréttindamálum i landinu, og
er þetta í fyrsta sinn frá herlögum
sem menn bindast slíkum samtök-
um. Héldu stofnendurnir leyni-
legan fund í gær og sögðu að hon-
um loknum, að sams konar samtök
yrðu brátt stofnuð í Varsjá, Kraká,
Katowice og Gdansk og að þeir
vonuðu, að þau yrðu upphafið að
nýjum þjóðarsamtökum.