Morgunblaðið - 01.11.1984, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984
Sinfóníutónleikariiir í kvöld
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Sinfóníuhljóms’’eit íslands
heidur aðra tónleika sína á þessu
starfsári og flytur verk eftir Jón
Leifs, Lalo og Prókofféff. Geysir
heitir verk Jóns með undirtitlin-
um „Forleikur fyrir hljómsveit".
Þetta tuttugu og þriggja ára
gamla verk Jóns (7. apríl 1961),
hefur ekki verið flutt áður og eru
það í raun nokkur tíðindi, að
ekki skuli vera búið að frum-
flytja stóran hluta af verkum
Jóns, sem var einn mesti „orgin-
al“ Íslendinga og auk þess svo
framsýnn um ýmis mál tón-
skálda, að íslenskir tónlistar-
menn munu eiga eftir að njóta
góðs af framlagi hans á þeim
vettvangi um langt skeið.
Tónverkið Geysir er tónsetn-
ing á hljóðrænni reynslu höf-
undar að vera viðstaddur Geys-
isgos. Verkið hefst á djúpum
tóni „kontra-bé“, leikið á kontra-
fagott og smám saman bætast
við fleiri hljóðfæri. Þessi þáttur
minnir á drungalega morgun-
kyrrð. Smám saman birtir til og
þá blasir við blundandi náttúru-
skepnan, nærð af frumkrafti
eldsins í átökum við vatnið. Er
þessi öfl hefja átök sín, tekur
vatnið í hvernum að hníga og
rísa og er þessi átaksmögnun
túlkuð með strengjasveitinni og
hefst sá þáttur í þrítugasta
takti. Næsta stigmögnun hefst í
takti 63, en þá heyrast drunur í
Jón Leifs
trommum utan sviðs, er eiga að
túlka átökin djúpt í iðrum jarð-
arinnar. ólgan eykst og í takti 79
og síðar i 81 eru gostilburðirnir
túlkaðir, með „glissando“. Síðan
hefst gosið og það síðan hjaðnar
og verkið endar á sama tóni og
það hófst á. í fjarska heyrist
klukkuhljómur eins og til að
minna á að yfir þessu öllu vakir
almáttug eilifðin.
Verk Jóns Leifs er hreinrækt-
að „prógram“-verk, skáldleg
tónlýsing á frægasta hver í
heimi, svo frægum, að nafn hans
er alþjóðlegt tegundarnafn. Það
Edouard Lalo
er ekki nokkrum vafa undirorpið
að gera má glæsilega kvikmynd
um Geysi og áreiðanlega hægt
að klippa þá mynd að tónverki
Jóns.
Annað verkið á tónleikunum
er Spánska sinfónían eftir Lalo.
Symphonie Espagnole, eftir
Edouard Lalo, er samið fyrir
einleiksfiðlu og hljómsveit og er
það án efa eitt af vinsælustu
viðfangsefnum fiðlusnillinga
heimsins. Verkið hefst á eins
konar inngangi þar sem upp-
hafstónar stefsins (Tónmynd 1)
eru leiknir fyrst af hljómsveit-
inni og þá teknir upp af ein-
leiksfiðlunni og í takti 17 leikur
hljómsveitin stefið í heild
(Tónmynd 2). Það sem einkennir
aðalstefið er þríóla, sem setur
næstum taktskiptablæ á það og
er þessi hrynskipan mjög ráð-
andi í öllum þáttum verksins.
Eins konar viðbót við aðalstefið
kemur fram í fiðluröddinni eftir
að hafa leikið aðalstefið (Tón-
mynd 3). í takti 92 er skemmti-
legur samleikur tveggja radda,
sem oftlega bregður fyrir bæði
sem undirleikur og í samleik
(Tónmynd 4). Fyrsti kaflinn er
glæsilegt verk, sannkallaður sin-
fónískur konsert. Annar þáttur
nefnist „Scherzando“, hraður og
fjörugur þáttur, þar sem leikið
er með „stutttóna" (staccato)
hljóðfallsleik á móti líðandi
tónferli. f þessum hrynleik er
tríólan mjög þýðingarmikil.
Upphaf kaflans er skemmtileg
hugmynd, þar sem ætlast er til
að tónhendingin endi með
sterkri áherslu (Tónmynd 5). Á
móti þessum hrynleik kemur
hægferðugt lag (Tónmynd 6),
sem leikið er með á ýmsa vegu út
kaflann. Þriðji kaflinn ber yfir-
skriftina Intermezzo og þekkist
það, að þessum kafla sé sleppt í
konsertuppfærslum. Intermessó-
ið er bæði teknískt og hrynrænt
erfitt og hefst á sérkennilegu
hrynstefi er gengur eins og rauð-
ur þráður í gegnum kaflann
(Tónmynd 7). Aðalstefið í fiðl-
unni kemur eftir smá forleik í
hljómsveitinni (Tónmynd 8).
Fjórði kaflinn er hægur og ekki
með aðra yfirskrift en Andante.
Hann hefst á stuttu forspili en
síðan kemur stef er minnir mjög
á annað stef í síðasta þættinum,
stef sem er nærri því eins og
þekkt drykkjuvísa. „Hann var
sjómaður dáðadrengur" (Tón-
mynd 9). Framhald tónmyndar-
innar er stefbrot, sem margir
muna eftir fyrstu heyrn (Tón-
mynd 10), vegna þess hve ein-
kenni þess eru sterk og reyndar
áhrifamikil. Síðasti kaflinn ber
yfirskriftina Rondo og hefst
hann, á hrynstefi sem hljóm-
sveitin leikur fyrst og er svo not-
að sem undirleikur við fiðlustef-
ið. Fyrst er rétt að sýna hryn-
stefið (Tónmynd 11) og síðan
samleik stefjanna (Tónmynd 12).
Úr þessum stefjum er unnið
langt mál og um miðjan kaflann
heyrist það fræga stef „Hann
var sjómaður dáðadrengur"
(Tónmynd 13). Verkinu lýkur
með glæsilegum „endaspretti",
þar sem fiðlan hefur yfirtökin í
framvindu verksins.
Síðasta verkið á efnisskránni
er Svíta nr. 1 úr Ballettinum
Rómeó og Júlía. Svítan hefst á
Dansi alþýðunnar og eru tvö stef
þar virkust, það fyrsta (Tón-
mynd 14), sem er leikið af óbó og
ensku horni en seinna stefið af
„Cornetto" (Tónmynd 15). Annar
þátturinn ber yfirskriftina Sýn
(Tableau) og hefst hann á fag-
ottsóló (Tónmynd 16), sem er
uppistaða kaflans og endar hann
sömuleiðis á þessari fagottsóló.
Þriðji þátturinn heitir Madrigal
og hefst hann með leik strengja-
sveitarinnar (Tónmynd 17). I
flautunni kemur fram stefhug-
mynd er síðar tekur á sig ýmsar
myndir (Tónmynd 18a og 18b).
Fjórði kaflinn er Menuett og er
aðalstefið ein frægasta tónhug-
myndin eftir Prókofféff (Tón-
mynd 19). Menúettinn er smell-
inn og alls konar stef og hug-
myndir koma þar fram.
Fimmti þátturinn er grímu-
dans og þar heyrist ráðandi stef
í fiðlunni (Tónmynd 20) en ann-
ars er þátturinn mjög hryn-
sterkur og í göngutakti. Sjötti
þátturinn fjallar um elskend-
urna, Rómeó og Júlíu. Þar má
heyra ýmsar stefhugmyndir sem
sumar hverjar hafa mjög vítt
tónsvið. 1 þessum kafla er til-
finningum elskendanna lýst sem
sterkum geðsveiflum og bera
stefin og úrvinnslan þess merki.
Nokkur stef eru tilgreind undir
einu merki, sem tónmynd 21.
Síðasti kaflinn fjallar um dauða
Túbalts og er einn veigamesti
kafli svítunnar. Stef, sem mest
koma þar við sögu, eru rituð 1
þeirri röð sem þau birtast (Tón-
mynd 22). Svítunni lýkur með
þessum kafla. Svíta nr. 1 var
fyrst flutt árið 1936, 24. nóv-
ember, fyrir tæplega hálfri öld,
en ári seinna samdi Prókofféff
Svítu nr. 2, sem nýtur meiri hylli
meðal áheyrenda en sú fyrsta.
Til eru drög að þriðju svítunni,
sem átti að vera sex þættir og
enda á dauða Júlíu. Stjórnandi
hljómsveitarinnar á þessum tón-
leikum verður Jean-Pierre
Jacquillat en einleikari á fiðlu
verður Pierre Amoyal. Góða
skemmtun.
Tónmynd 1
uj-if s
3
Tónmynd 2
fy jj i 1 ^ j jijjS i j | J j í f f
f mTrV firr
Tónmynd 4
Tónmynd 15
Tónmynd 5
8 ]?Uji l i
r?
Tónmynd 6
Tónmynd 7
71n i^p n i
Tónmynd 8
$ ” r r; > i* X) 11 f n í ið n i j
Tónmynd 9
f+l ‘ ir r i r r
Tónmynd 10
itrf tr i r rittfftr itMttÉÉ
Tónmynd 11
H
tóo:m7 tí-r
n in ?
Tónmynd 14
S •>' 1 ru-f LZJ iTÍ tlf t-T í ?)
(rttf i f tu irjj m i jg p g
Tónmynd 16
Tónmynd 17
(,'ínm Di'tj.trfut-1
Tónmynd 18a og b
Tónmynd 19
Tónmynd 20
D P r U(P ^ fÍTf
Tónmynd 21
£3 7'UIl‘f 1 JJ,J-ji,fjl
S -'tV lr f t*r r r Jl
7 rrs:jf %Ír/77iJJA t!
Tónmynd 22
sm7
otJifi ií stfftru,"J u u 1
$ JTO- 1 I Uu A W
,'f I