Morgunblaðið - 01.11.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984
39
Béthir
imsim
Margrét Þorvaldsdóttir
Heilbrigði er náðargjöf sem allir
vildu geta notið. Leggið rækt við
hcilsufarið og neytið fjölbreyttrar
fæðu. Fiskur þykir kostafæða, svo er
hann íslensk framleiðsla, þó að upp-
skriftin sé:
Portúgölsk
lúöusteik
800 gr lúða
2 tómatar (skornir í bita)
1 laukur meðalstór (saxaður)
2 matsk. fersk paprika (söxuð)
3 matsk. smjörvi eða smjörlíki
(bráðið)
'k tsk. basil
V* tsk. timian
V\ tsk. tarragon
salt og pipar
1. Lúðan er skorin í hæfilega stór
stykki og þau þerruð með
bréfaþurrku.
2. Blandið saman smátt skornum
tómötum, lauk, papriku, basil,
timian, tarragon, örlitlu salti
(og pipar) og að síðustu 3
matsk. af bráðnum smjörva.
3. Raðið steikunum á eldfast fat
eða í álmót, setjið síðan tóm-
atamaukið á steikurnar og setj-
ið undir grill í 10 mín. eða þar
til fiskurinn er orðinn laus í sér
þegar stungið er í hann með
gaffli.
Berið fisksteikurnar á borð með
soðnum kartöflum. Vökvinn sem
kemur frá fiskinum í steikingu er
borinn fram sem sósan.
Með fiski er næstum nauðsyn-
legt að bera fram einhvers konar
hrásalat. Hér er uppskrift af
kjarngóðu salati og ódýru gæða-
salati.
1 rófa niðurrifin
2—3 gulrætur niðurrifnar
safi úr einni sítrónu
Vi bolli rúsínur
Setjið rúsínurnar í skál og hell'ð
yfir þær sjóðandi vatni. Látið þær
standa í vatninu í 5 mín. Heita
vatnið gerir rúsínurnar mjúkar og
dregur fram sæta bragðið. Blandið
saman niðurrifinni rófu, gulrót-
um, safa úr sítrónu og rúsfnunum.
Bætið sykri saman við eftir
smekk. Salat þetta er einnig ágætt
með kjötréttum.
Verð á hráefni
Lúða
tómatar
gulrætur
rúsínur
sítróna
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
110,00
12,00
6,00
7,00
8,00
Kr. 143,00
í október kosta
1 kg tómatar kr. 96,00
1 kg sítrónur kr. 48,30
1 kg gulrætur kr. 57,50
1 kg rúsínur 79,90
_ %
f-jróöleikur og 1
X skemmtun
fyrirháa semlága! 1
SNOR
Ásmundarsafn:
12 þús. gestir sóttu safnið í sumar
1 SUMAR hefur staðið yfir í Ás-
mundarsafni við Sigtún sýning er
nefnist „Vinnan í list Ásmundar
Sveinssonar“.
Skiptist sýningin í tvo hluta.
Annars vegar er sýnd tækni
höggmyndalistarinnar, tæki, efni
og aðferðir. Og hins vegar eru
sýnd myndverk, sem tengjast
hugtakinu Vinnan. Sýningunni
fylgir ítarleg sýningarskrá, þar
sem gert er grein fyrir tækjum og
efni, sem Asmundur notaði við
listsköpun sína, auk þess sem
fjallað er um hugmyndir lista-
mannsins um Vinnuna. í sýn-
ingarskránni er mikið af ljós-
myndum, sem aldrei áður hafa
verið birtar.
Síðastliðið vor tók Ásmundar-
safn upp þá nýbreytni að hafa
safnið opið alla daga frá kl.
10—17. Hefur þessi opnunartími
mælst vel fyrir og aðsókn í safnið
verið einstaklega góð. Meira en
12.000 gestir hafa heimsótt
Ásmundarsafn í sumar. í sept-
ember tók gildi vetraropnunartími
og verður þá safnið opið þriðju-
dag, fimmtudag, laugardag og
sunnudag frá kl. 14—17. Aðgangs-
eyrir er 50 kr. og er sýningarskrá-
in innifalin í því verði.
Ásmundarsafn hefur staðið
fvrir afsteypugerð af verkum eftir
Ásmund Sveinsson. Eru nú til í
safninu átta gerðir af afsteypum í
bronsi, gifsi og sementi. Þá mun
koma á markaðinn í lok október
litskyggnuröð sem sýnir yfirlit yf-
ir listsköpun Ásmundar. Lit-
skyggnunum fylgir ítarlegur skýr-
ingatexti.
Ásmundur vinnur við verkið Öldugjálfur.
1
Föt fyrir
menn
SNORRABRAUT 56 SIMI 1 35 05 GCÆSI8Æ SÍMI 3 43 50