Morgunblaðið - 03.11.1984, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
213. tbl. 71. árg._________________________________LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja MorgunblaÓsins
Vargöld ríkir á Indlandi:
Shíkar falla í hundruða
tali fyrir æstum hindúum
Vargöld
ríkir í Indlandi í kjölfarið á morði
Indiru Gandhi. Myndin að neðan er
frá höfuðborginni Nýju Delhí í dag.
Hermenn fylgjast með breiðgötu þar
sem vörubifreið stendur í Ijósum
logum. Það voru óaldarflokkar
hindúa sem lögðu eld að farartæk-
inu. Þeir hafa framið óhugnanleg
fjöldamorð á shíkum síðustu dag-
ana, myrt marga með því að berja þá
fyrst til óbóta og leggja síðan eld að
Sfmamynd AP.
Nýju Delkí, 2. nóvember. AP.
MIKLAR ÓEIRÐIR og vaxandi hafa verið víðs vegar um Indland og
hápunktinum var náð í dag, er æstir hindúar fóru í hópum um hverfi
shika, börðu þá, limlestu og drápu fjölda þeirra. Allt frá morði
Indiru Gandhi, hafa shíkar orðið fyrir barðinu á hindúum í hefnd-
arhug, en í dag höfðu alls um 500 manns verið drepnir í óeirðum í
landinu, lang flestir þeirra shíkar. Verstu dæmin hafa verið er
hindúar hafa farið um borð í lestir, drepið eða slasað alla shíka um
borð og skipt síðan um lestir. Sums staðar voru dauðir shíkar bornir
frá borði lesta í hverri stöð. Þá voru rúmlega 90 shíkar myrtir á einu
bretti í shíkahverfi einu í Nýju Delhí og skoðun manna er sú að ekki
séu öll kurl komin til grafar varðandi fjöldamorðin.
„Drepum alla shíka" öskraði
hindúamúgurinn, en Rajiv
Gandhi, hinn nýskipaði forsætis-
ráðherra, ávarpaði þjóð sína í út-
varpi og sjónvarpi. Þar sagði hann
m.a.: „Eg líð ekki þessi morð og
óeirðir, ég skal sem forsætisráð-
herra binda endi á óöldina og
tryggja öryggi allra Indverja með
engu tilliti til uppruna þeirra og
trúar.“ Rajiv hefur í samráði við
stjórn sína sett á útgöngubann
víða í stærstu borgunum og fyrir-
skipað að þeir sem virði það ekki
eða brjóti af sér á annan hátt
verði umsvifalaust og formála-
laust skotnir.
Sá orðrómur hefur gengið fjöll-
um hærra í Indlandi í dag, að upp
hafi komist um meiri háttar sam-
særi og morðið á Indiru Gandhi
hafi aðeins verið hluti þess. 1 raun
hafi staðið til að myrða einnig
Rajiv Gandhi og forseta landsins
Zail Singh. Talsmenn varnarmála-
ráðuneytisins og innanríkisráðu-
neytisins hafa borið þessar fregnir
til baka, sagt engan fót fyrir þeim.
En læknir nokkur sem gerði að
sárum annars árásarmanns Ind-
iru Gandhi lét hafa eftir sér að
skotmaðurinn hafi sagt sér frá
áætluninni.
Útför frú Gandhi fer fram á
morgun, laugardag, og munu
hundruð þúsunda Indverja fylgja
þjóðhöfðingja sínum til grafar.
Þúsundir her- og lögreglumanna
munu sjá til að allt fari fram í
friði og spekt.
Sjá nánar frétt bls. 21.
Hungursvæðin f Afríku:
Neyðarástand í
flóttamannabúðum
Geaf. 2. nóvember. AP.
NEYÐARÁSTAND hefur skapast í
flóttamannabúóum á vegum Sam-
einuóu þjóóanna í Afríku, nærri
hungursvæóunum í Eþíópíu, eftir því
sem forstöóumaóur þeirra, Leon
Ný skoðanakönnun:
Fylgi forset-
ans minnkar
Wuhiactoa, 2. oó.ember. AP.
SPÁNNÝ skoóanakönnun gerð á
vegum Louis-Harris stofnunar-
innar bendir til að fylgi Ronalds
Reagan, Bandaríkjaforseta, sé
enn talsvert meira heldur en
Walters Mondale, frambjóóanda
Demókrataflokksins, hins vegar
hafl munurinn minnkað.
Úrtak stofnunarinnar var
3.007 kjósendur og reyndust 57
prósent styðja Reagan, en 41
prósent fylgdu Mondale að
málum, eða 16% munur Reag-
an í hag. Munurinn hefur
minnkað frá því að þessi sama
stofnun sendi frá sér niður-
stöður 30. október síðastliðinn
og þá var munurinn 19 stig
Reagan í hag.
Sjá nánar á bls. 24—5.
Davico, sagði í dag. Það er vegna
þess aó hungraó fólk er farió aó
flykkjast til þeirra í von um mat.
Umræddar flóttamannabúðir
hafa til þessa verið notaðar af
fólki sem er landflótta vegna
striðs eða ofsókna í heimalöndum
sínum. Vandamálin eru sjöþætt,
50.000 Chad-búar eru á leið tií
búða í Mið-Afríkulýðveldinu,
42.000 Chad-búar eru i búðum í
Súdan, 35.000 Eþíópíumenn í búð-
um í Austur-Súdan, 53.000 Eþíóp-
iumenn í búðum í norðvestur-
Sómalíu, 30.000 Angólamenn í Za-
ire, 1.500 Angólamenn i Zambíu og
65.000 Mózambique-menn í Zimb-
abwe. Davico sagði ennfremur:
„Fólk sækir í búðir okkar af ýms-
um ástæðum, en nú er allt að
verða gersamlega yfirfullt vegna
hugursneyðarinnar og við vitum
eiginlega ekki hvernig við eigum
að bregðast við.“
Mikið af villidýrum hafa fallið í
þurrkunum miklu, gíraffar, fílar,
nashyrningar og margar fleiri
tegundir. Nokkrar tegundir eru í
útrýmingarhættu vegna þessa,
m.a. svarti nashyrningurinn. Það
ber vel í veiði hjá veiðiþjófum sem
ganga að máttförnum dýrunum,
þurrum fótum yfir skrælnað fyrr-
um mýrlendið þar sem dýrin gátu
falið sig fyrir þeim.
Utför pólska prestsins á morgun:
Háttsettir lögreglu-
foringjar handteknir
Varajá, Z aáveaber. AP.
Pólsk stjórn-
völd leystu í dag
frá embætti lög-
regluforingja og
handtóku tvo
lögregluofursta
fyrir meinta aóild
aó moróinu á
prestinum Jerzy
Popieluszko. Áó-
ur höfóu þrír
lögreglumenn
verið handteknir og einn þeirra sér-
staklega bendlaóur vió moróió. Á
morgun veröur útför prestsins og er
búLst vió aó hundruó þúsunda Pól-
verja fylgi honum til grafar.
Það var hin opinbera fréttastofa
PAP sem greindi frá þessum síð-
ustu tiðindum í morðmáli prests-
ins. PAP sagði að lögregluforing-
inn hefði verið settur af fyrir „af-
skiptaleysi í starfi" en hinir tveir
séu grunaðir um alvarlegri aðild
að ódæðinu. Þessi síðustu tíðindi
renna stoðum undir þá skoðun
margra sérfræðinga, að umfangs-
mikilla hreinsana megi vænta inn-
an pólska kommúnistaflokksins
áður en langt um líður. PAP sagði
ennfremur að báðir ofurstarnir
störfuðu við „sömu deild innanrík-
isráðuneytisins", en fór ekki nánar
út í þá sálma. Lögreglumennirnir
þrír sem áður voru handteknir,
einn höfuðsmaður og tveir lautin-
antar, hafa verið sviptir titlum
sínum „með engu tilliti til hvernig
gangur málsins fer“, sagði PAP.
Séra Popieluzsko verður til
moldar borinn á morgun, en dag-
lega síðan að lík hans fannst hafa
þúsundir Pólverja safnast saman
við kirkju hans og skreytt með
kertum, blómum og fleiru. Búist
er við að tugþúsundir fylgi honum
til grafar og er búist við miklum
viðbúnaði pólska hersins og lög-
reglunnar.
Séra Popieluszko
Sjá nánar bls. 20.