Morgunblaðið - 03.11.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 03.11.1984, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 213. tbl. 71. árg._________________________________LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja MorgunblaÓsins Vargöld ríkir á Indlandi: Shíkar falla í hundruða tali fyrir æstum hindúum Vargöld ríkir í Indlandi í kjölfarið á morði Indiru Gandhi. Myndin að neðan er frá höfuðborginni Nýju Delhí í dag. Hermenn fylgjast með breiðgötu þar sem vörubifreið stendur í Ijósum logum. Það voru óaldarflokkar hindúa sem lögðu eld að farartæk- inu. Þeir hafa framið óhugnanleg fjöldamorð á shíkum síðustu dag- ana, myrt marga með því að berja þá fyrst til óbóta og leggja síðan eld að Sfmamynd AP. Nýju Delkí, 2. nóvember. AP. MIKLAR ÓEIRÐIR og vaxandi hafa verið víðs vegar um Indland og hápunktinum var náð í dag, er æstir hindúar fóru í hópum um hverfi shika, börðu þá, limlestu og drápu fjölda þeirra. Allt frá morði Indiru Gandhi, hafa shíkar orðið fyrir barðinu á hindúum í hefnd- arhug, en í dag höfðu alls um 500 manns verið drepnir í óeirðum í landinu, lang flestir þeirra shíkar. Verstu dæmin hafa verið er hindúar hafa farið um borð í lestir, drepið eða slasað alla shíka um borð og skipt síðan um lestir. Sums staðar voru dauðir shíkar bornir frá borði lesta í hverri stöð. Þá voru rúmlega 90 shíkar myrtir á einu bretti í shíkahverfi einu í Nýju Delhí og skoðun manna er sú að ekki séu öll kurl komin til grafar varðandi fjöldamorðin. „Drepum alla shíka" öskraði hindúamúgurinn, en Rajiv Gandhi, hinn nýskipaði forsætis- ráðherra, ávarpaði þjóð sína í út- varpi og sjónvarpi. Þar sagði hann m.a.: „Eg líð ekki þessi morð og óeirðir, ég skal sem forsætisráð- herra binda endi á óöldina og tryggja öryggi allra Indverja með engu tilliti til uppruna þeirra og trúar.“ Rajiv hefur í samráði við stjórn sína sett á útgöngubann víða í stærstu borgunum og fyrir- skipað að þeir sem virði það ekki eða brjóti af sér á annan hátt verði umsvifalaust og formála- laust skotnir. Sá orðrómur hefur gengið fjöll- um hærra í Indlandi í dag, að upp hafi komist um meiri háttar sam- særi og morðið á Indiru Gandhi hafi aðeins verið hluti þess. 1 raun hafi staðið til að myrða einnig Rajiv Gandhi og forseta landsins Zail Singh. Talsmenn varnarmála- ráðuneytisins og innanríkisráðu- neytisins hafa borið þessar fregnir til baka, sagt engan fót fyrir þeim. En læknir nokkur sem gerði að sárum annars árásarmanns Ind- iru Gandhi lét hafa eftir sér að skotmaðurinn hafi sagt sér frá áætluninni. Útför frú Gandhi fer fram á morgun, laugardag, og munu hundruð þúsunda Indverja fylgja þjóðhöfðingja sínum til grafar. Þúsundir her- og lögreglumanna munu sjá til að allt fari fram í friði og spekt. Sjá nánar frétt bls. 21. Hungursvæðin f Afríku: Neyðarástand í flóttamannabúðum Geaf. 2. nóvember. AP. NEYÐARÁSTAND hefur skapast í flóttamannabúóum á vegum Sam- einuóu þjóóanna í Afríku, nærri hungursvæóunum í Eþíópíu, eftir því sem forstöóumaóur þeirra, Leon Ný skoðanakönnun: Fylgi forset- ans minnkar Wuhiactoa, 2. oó.ember. AP. SPÁNNÝ skoóanakönnun gerð á vegum Louis-Harris stofnunar- innar bendir til að fylgi Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, sé enn talsvert meira heldur en Walters Mondale, frambjóóanda Demókrataflokksins, hins vegar hafl munurinn minnkað. Úrtak stofnunarinnar var 3.007 kjósendur og reyndust 57 prósent styðja Reagan, en 41 prósent fylgdu Mondale að málum, eða 16% munur Reag- an í hag. Munurinn hefur minnkað frá því að þessi sama stofnun sendi frá sér niður- stöður 30. október síðastliðinn og þá var munurinn 19 stig Reagan í hag. Sjá nánar á bls. 24—5. Davico, sagði í dag. Það er vegna þess aó hungraó fólk er farió aó flykkjast til þeirra í von um mat. Umræddar flóttamannabúðir hafa til þessa verið notaðar af fólki sem er landflótta vegna striðs eða ofsókna í heimalöndum sínum. Vandamálin eru sjöþætt, 50.000 Chad-búar eru á leið tií búða í Mið-Afríkulýðveldinu, 42.000 Chad-búar eru i búðum í Súdan, 35.000 Eþíópíumenn í búð- um í Austur-Súdan, 53.000 Eþíóp- iumenn í búðum í norðvestur- Sómalíu, 30.000 Angólamenn í Za- ire, 1.500 Angólamenn i Zambíu og 65.000 Mózambique-menn í Zimb- abwe. Davico sagði ennfremur: „Fólk sækir í búðir okkar af ýms- um ástæðum, en nú er allt að verða gersamlega yfirfullt vegna hugursneyðarinnar og við vitum eiginlega ekki hvernig við eigum að bregðast við.“ Mikið af villidýrum hafa fallið í þurrkunum miklu, gíraffar, fílar, nashyrningar og margar fleiri tegundir. Nokkrar tegundir eru í útrýmingarhættu vegna þessa, m.a. svarti nashyrningurinn. Það ber vel í veiði hjá veiðiþjófum sem ganga að máttförnum dýrunum, þurrum fótum yfir skrælnað fyrr- um mýrlendið þar sem dýrin gátu falið sig fyrir þeim. Utför pólska prestsins á morgun: Háttsettir lögreglu- foringjar handteknir Varajá, Z aáveaber. AP. Pólsk stjórn- völd leystu í dag frá embætti lög- regluforingja og handtóku tvo lögregluofursta fyrir meinta aóild aó moróinu á prestinum Jerzy Popieluszko. Áó- ur höfóu þrír lögreglumenn verið handteknir og einn þeirra sér- staklega bendlaóur vió moróió. Á morgun veröur útför prestsins og er búLst vió aó hundruó þúsunda Pól- verja fylgi honum til grafar. Það var hin opinbera fréttastofa PAP sem greindi frá þessum síð- ustu tiðindum í morðmáli prests- ins. PAP sagði að lögregluforing- inn hefði verið settur af fyrir „af- skiptaleysi í starfi" en hinir tveir séu grunaðir um alvarlegri aðild að ódæðinu. Þessi síðustu tíðindi renna stoðum undir þá skoðun margra sérfræðinga, að umfangs- mikilla hreinsana megi vænta inn- an pólska kommúnistaflokksins áður en langt um líður. PAP sagði ennfremur að báðir ofurstarnir störfuðu við „sömu deild innanrík- isráðuneytisins", en fór ekki nánar út í þá sálma. Lögreglumennirnir þrír sem áður voru handteknir, einn höfuðsmaður og tveir lautin- antar, hafa verið sviptir titlum sínum „með engu tilliti til hvernig gangur málsins fer“, sagði PAP. Séra Popieluzsko verður til moldar borinn á morgun, en dag- lega síðan að lík hans fannst hafa þúsundir Pólverja safnast saman við kirkju hans og skreytt með kertum, blómum og fleiru. Búist er við að tugþúsundir fylgi honum til grafar og er búist við miklum viðbúnaði pólska hersins og lög- reglunnar. Séra Popieluszko Sjá nánar bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.