Morgunblaðið - 07.11.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
3
Óvíst um áfram-
hald síldveiða
Söltun um það bil að ljúka
SÍLDARSÖLTUN upp í fyrirfram-
samninga lýkur á næstu dögum og
fer þá að verða brýnt að ákveðið sé
verð á síld til frystingar svo hægt sé
að hefja frystinguna. Gert hafði ver-
ið ráð fyrir, að fryst yrðu nærri 20
þúsund tonn af síld á yfirstandandi
vertíð, sem væri sambærilegt við að í
fyrra voru fryst um 37 % afheildarafl-
anum, skv. upplýsingum Sfldarút-
vegsnefndar. Heildarkvótinn í ár er
53 þúsund tonn.
Síldveiði og -söltun á undan-
förnum dögum hefur gengið mjög
vel og hefur þegar verið saltað í
195 þúsund tunnur. Er ósaltað í
um 35 þúsund tunnur auk sérverk-
aðra flaka fyrir Svíþjóðarmarkað.
En hvað tekur við þegar söltun
er lokið, Jón B. Jónasson, skrif-
stofustjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu? „Það er eiginlega allt i
lausu lofti," svaraði hann. „Menn
sjá ekki að það allt verði selt sem
átti að veiða og enn er ekki búið að
færa að landi nema um 30 þúsund
tonn. Menn halda að sér höndum á
meðan ekki hefur verið ákveðið
verð og það verður varla ákveðið á
meðan ekki er ljóst hvort hægt
verður að selja allan aflann. Bátar
eru jafnvel að hætta veiðum án
þess að vera búnir með sinn kvóta.
Einhverjar stöðvar hafa þó verið
að taka á móti síld í frystingu og
gefið upp eigið verð. Þetta er allt
mjög erfitt viðureignar og óljóst.
sem stendur, en ég sé ekki að það
verði veidd þessi rúmlega 50 þús-
und tonn, sem átti að veiða,“ sagði
Jón B. Jónasson.
Bókasendingar:
Skattleysis-
mörkin hækk-
uð í 500 kr.
ÞANN 10. nóvember næstkomandi
verður hætt að innheimta söluskatt í
tolli af erlendum bókum sem menn
flytja inn til eigin nota ef tollverð
þeirra er innan við 500 krónur en
hingað til hefur verið innheimtur
söluskattur af bókum sem kostað
hafa meira en 250 krónur.
Flestar venjulegar bækur eru
taldar falla innan 500 króna
marksins. Einnig er í undirbún-
ingi einföldun á framkvæmd toll-
afgreiðslu slíkra sendinga og er
meðal annars verið að einfalda
alla skýrslugerð.
Ríkisstarfsmenn:
Borgað eftir nýja samningnum
LAUNADEILD fjármálaráðuneytis-
ins hefur nú greitt út laun allra
þeirra ríkisstarfsmanna sem áttu að
fá greitt út um síðustu mánaðamót.
Þeir ríkisstarfsmenn sem fá
laun sín greidd fyrirfram fengu
greitt samkvæmt nýgerðum
kjarasamningi BSRB og rikisins,
að sögn Indriða H. Þorlákssonar,
deildarstjóra í launadeildinni, þó
að ekki sé búið að staðfesta kjara-
samninginn. Hinsvegar fá ríkis-
starfsmenn ekki þær föstu krónu-
tölugreiðslur sem um var samið,
sem var um 6.500 krónur, fyrr en
kjarasamningurinn hefur verið
staðfestur. Sagði Indriði að sú
greiðsla kæmi til útborgunar viku
eftir að samningurinn hefur verið
staðfestur.
Þór Magnússon, þjóðminjavörður, stendur við hluta úr gamla pípuorgelinu, sem í gær var flutt af lofti
Dómkirkjunnar í Þjóðminjasafnið. Horgunbia&ið/Júifus
Fyrsta orgel Dómkirkjunn-
ar flutt í Þjóðminjasafnið
í GÆR var fyrsta orgel Dómkirkj-
unnar flutt í Þjóðminjasafnið.
Þetta er pípuorgel, sem sett var í
kirkjuna árið 1840 og var í notkun
til ársins 1894. Þá var orgelið orðið
mjög illa farið, vegna Iftils við-
halds og fékk Dómkirkjan
harmóníum, sem notað var næstu
tíu árin. Síðan hafa verið í Dóm-
kirkjunni tvö pípuorgel. Annað var
í kirkjunni frá 1904 til 1934, eða
þar til núverandi orgel var sett
upp.
Þór Magnússon, þjóðminja-
vörður, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að Þjóðminja-
safninu hafi verið gefið þetta
fyrsta pípuorgel Dómkirkjunnar
árið 1932 af félögum í Oddfellow.
„Safnið hafði þá ekki aðstöðu til
að taka við gjöfinni, þar sem það
bjó við mikil þrengsli," sagði
Þór. „Og sennilega hefur orgelið
verið geymt á lofti Dómkirkj-
unnar allan þennan tíma.
Það þarf að skoða orgelið vel
og hreinsa áður en séð verður
hvort hægt er að koma því sam-
an. Sennilega þarf það mjög
mikla viðgerð og mikla endur-
smíði til þess, því mikið virðist
vanta í það. Vonandi verður
hægt að hafa það sem sýningar-
grip hér, svo ég tali nú ekki um
ef tækist að spila á það. Þetta er
mjög einfalt orgel með aðeins
einu borði og engu fótspili og
þykir mjög frumstætt miðað við
það sem nú gerist og jafnvel þá,
því orgel voru orðin mjög vönduð
og fullkomin á þeim tíma.“
Einnig var flutt I Þjóðminja-
safnið harmóníum það, sem kom
í Dómkirkjuna árið 1894 . Þór
Magnússon sagði að miklu
minna vantaði í það. Einnig
verður reynt að koma því upp í
safninu, en það þykir ekki eins
merkilegur gripur og pípuorgel-
ið.
VIKA FYRIR KR. 14.059EÐA HELGIFYRIR KR. 9.936.-
Tíminn stendur hvergi í stað, síst af öllu I heimsborginni London. En þó líður hann furðu
hægt, jafnvel í hringiðu alls þess sem hægt er að taka sér fyrir hendur.
Ef þú átt sæmilega heimangengt og eitthvað eftir af sumarfríinu þá er tilvalið að kynna sér
lífið í London. Skildu9til5rútínunaeftirheimaogsökktuþéráhyggjulaustí menninguog
apdrúmsloft sem þú finnur ekki á gamla Fróni.
Úrval hefur árum saman skipulagt viku- og helgarferðir til London og smám saman náð frábærum
samningum við fjölmörg hótelþar í borg. Við getum boðið sannkallaða Úrvalsþjónustu
á Úrvalsverði. f London verður sérstakur starfsmaður sem sér um að útvega
miða í leikhús, á óperu, hljómleika og knattspyrnuleiki, auk þess að veita farþegum okkar
alla mögulega aðstoð, t.d. í verslunarleiðöngrum. Þá verðum viðnú, í fyrsta skipti, meðsér-
stakar ferðir milli flugvallar og ákveðinna nótela.
Dæmi um verð:
Vika
Helgi
Cumberland kr. 17.865.- kr. 11.792.-
Westmoreland kr. 15.472.- kr. 10.767.-
Whlte House kr. 14.993.- kr. 10.561,-
Royal Kensington kr. 15.412.- kr. 10.793.-
Innifalið: Flugfar og gisting fyrir einstakling í 2ja manna herbergi.
Bæklingar um London og hótelin liggja frammi á skrifstofu okkar við Austurvöll.
London er sannarlega vikunnar virði.
Vertu samferða!
FERÐASKRIFSTOFON URVM