Morgunblaðið - 07.11.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
9
íbúðir í Florída
til leigu í lengri eöa skemmri tíma. Hægt aö synda í
Mexíkóflóa eöa okkar fallegu sundlaug og fara í
tennis. Öll þjónusta. Skrifiö eöa hringiö eftir upplýs-
ingabæklingi. Sarasota Surf & Racquet Club, 5900
Midnight Pass Road, Sarasota, Fl. 33581. Sími
1-813-349-2200.
VARAHLUTA
VERSLANIR!
Höfum
■gársterkan
kaupanda að fyrirtæki
sem verslar með varahluti
og aðrar þjónustuvömr
fyrir brfreiðar.
Kaupþing hf.
Verðbréfadeild
s: 686988
Þaö nýjasta í tréklossum er
FLEX-O-LET
tréklossinn meö beygjanleg-
um sóla, stæröir nr. 35—46.
Fer sigurför um allan heim.
Nú aftur fáanlegir í 10 gerðum.
Póstsendum
GEÍSÍBf
Stjórnarandstaðan í leiðurum NT
„Þaö fréttist úr stjórnarherbúöunum, aö Steingrímur Her-
mannsson hafi beöiö Þorstein Pálsson afsökunar á leiö-
araskrifum NT, málgagns Framsóknar, og sagt, aö árásun-
um á Sjálfstæöisflokkinn muni linna. Síöan er liðin vika, og
ekki linnir." Þannig hljóöa upphafsorö í leiöara DV á dög-
unum. í dag stiklum viö á stökum steinum í stjórnarand-
stööutilburöum NT. Nýtt forsetaefni Þjóöviljans í BSRB er
oa í siónmáli.
Nútíminn
opnast í hinn
endann!
Framsóknarflokkurinn
hefur löngum hælzt um yfir
því að vera opinn f báöa
enda. Fri því Steingrímur
Hcrmannsson, formaður
flokksins, myndaði ríkis-
stjórn og fram til skamms
tíma var NT, málgagn
flokksins, galopið til hægri.
Fyrir skömmu skellti það
aftur þeim durum og
opnaðist í hinn endann.
Skammir um Sjálfstæðis-
flokkinn flóðu um bakka
og sér í lagi formann hans,
Þorstein Pálsson. Össur-
arskrif Þjóðviljans, sem
sízt fiokkast undir bíblíu-
texta, líta út eins og vöggu-
vísur í samanburði við
hvassyrði og heift NT f
garð samstarfsflokksins.
Éin setning, sem hefur ver-
ið endurtekin í sfbylju í NT
með breytilegum hstti,
hljóðar svo: „Frá því Þor-
steinn Pálsson varð for-
maður Sjálfstæðisflokksins
hefur vegur og gangur
þessarar rfkisstjórnar verið
á niðurleið."
Naumast var það Stein-
grímur Hermannsson, sem
bað formann Sjálf-
stæðisfiokksins afsökunar
á leiðaraskrifum NT og hét
leiðréttingum, að sögn DV,
sem gaf leiðarahöfundi NT
forskrift að forystugreinun-
um. Texti þeirra er stirður
og ber nokkur höfundar-
einkenni hins nýja rit-
stjóra. Hinsvegar er sitt-
hvað í suraum þeirra sem
bendir til þess að sá, sem
skrifar, hafi innsýn, máske
um annars augu, á stjórn-
arheimilið. Skapgerðar-
einkenni, sem fram koma,
kunna að benda til sjávar-
útvegsráðuneytisins. En
hver sem að baki stendur
hrópandans í forystugrein-
um NT og kippir í leik-
brúðuspottann stendur hitt
óhaggað: NT hefur faríð
fram úr Þjóðviljanum í
vopnaskaki gegn ríkis-
stjórn Steingríms Her-
mannssonar. Það hefur
ekki verið ódrengilegar
vegið að henni úr annarri
átt Þeir fyrírfinnast enn
Brútusarnir.
Forsetaefni
Þjóðyiljans
ÍBSRB
Alþýðubandalagið hefur
löngum litið á samtök
launafólks sem einskonar
fiokksnýlendur. Það er
hald flokksforystunnar að
hún eigi að fjarstýra þess-
um samtökum: halda þeim
hægum og hógværum þeg-
ar Alþýðubandalagið er
innan ríkisstjórnar en nota
þau til að setja allt í bál og
brand f þjóðarbúskapnum
þegar það er úti í kuldan-
um. Þeæum alræðissinn-
uðu pólitíkusum kemur
ekki til hugar að vinnandi
fólk eigi sjálft að velja for-
ystu sína og ráða stefnu-
ákvöröunum samtaka
sinna. Þeir líta á val
verkalýðsforystu, hvort
heldur er innan samtaka
opinberra starfsmanna eða
launafólks á almennum
vinnumarkaði, sem „púslu-
spil“, er þeir eigi einir að
sitja að.
Þjóðviljinn, bergmál
Svavars Gestssonar, birti
helgarviðtal við óskabarn
sitt hjá Sjónvarpinu, Ög-
mund Jónasson. Loka-
spurning viðtalsins er
þessi:
„Að lokum, Ögmundur,
getur þú hugsað þér að
veröa næsti formaður
BSRB7"
Þetta er sakleysisleg
spurning, fijótt á litið. En
Ijóst er að Alþýðubandalag-
ið og Þjóðviljinn hafa valiö
forsetaefni hinna róttæku í
BSRB. Sjónvarpsmaður,
sem er svo að segja dagleg-
ur gestur á heimilisskjám í
landinu, og skoöanalega
samstiga yzt á vinstri
vængnum, fellur vel inn f
„púsluspilið", sem „litla,
Ijóta kommaklikan" við
stjórnvöl Alþýðubandalags-
ins leikur.
Skattalækkun-
arleið hafnað
Forysta BSRB hafnaði
skattala'kkunarlcið til al-
mennra kjarabóta, sem
ríkisstjórnin bauð. Sú leið
hefði aukið ráöstöfunarfé
heimiia, þ.e. kaupmátt
launa, án þess að hafa
verðbólguáhríf. Krónutölu-
hækkunarleið, umfram það
sem efnahagsstaðreyndir
leyfa, hefur hinsvegar
ævinlega og undantekn-
ingarlaust veríð velt yfir f
verðlagið. Vara og þjónusta
á innlendum markaði hef-
ur hækkað samsvarandi.
Kostnaöarauki útfhitn-
ingsvöru hefur verið unn-
inn upp með einhvers kon-
ar gengissigi. Krónan hefur
smækkað, kaupmáttarauki
étizt upp og niðurstaðan
oröið allra tap en engra
hagnaður. I>essi hefur ver-
ið margendurtekin reynsla
þjóðarinnar í hálfan annan
áratug.
Skattalækkunarleið
hefði að vísu þýtt áfram-
haldandi niöurskurð ríkis-
útgjalda. En ríkissjóður
héfði einnig hlotið sína
plúsa í hófiegri krónutöhi-
hækkun og verulega minna
verðrisi annarra útgjalda
og framkvæmda.
A
VELA-TENGI
7 1 2
Allar gerðir
Öxull — í — öxul.
Öxull — í — flans.
Flans — í — flans.
Tengið aldrei stál — í — stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring milli
t»kja.
Allar stærðir fastar og frá-
tengjanlegar
■Lt—L
SöypflmíigjMií'
(Scö) ,
Vesturgötu 16, sími 13280
Askriftarsíi rtinn <r S30A3
Hestamenn! Hittumst á
Herrakvöldi í Glæsibæ.
Miðasala í Ástund, Hesta-
manninum og skrifstofu
Fáks.
SÖL H/F.
‘ tum
Hestamannafólagið
HERRAKVOLD
HESTAMANNA
verður haldið í Glæsibæ
föstudaginn 9. nóv. 1984.
Húsið opnað kl. 19.00.
Fjölbreytt skemmtidagskrá.
M.a. koma fram: Sigurbjörn
Bárðarson, Erling Sigurðs-
son, Alli Rúts, Jón Stefáns-
son og ómar Ragnarsson.