Morgunblaðið - 07.11.1984, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
Niðurstöður skýrslu Iðntæknistofunar
ekki nothæfar til ákvarðanatöku
— segir Guðmundur Einarsson, fráfarandi
stjórnarformður Sjóefnavinnslunnar
Línuritið sýnir feril þróunarverkefnis miðað við tíma, áfangastig, fjárfestingu
og ágóða. Bogalína efst sýnir uppsafnaðan stofnkostnað. Að sögn Guðmund-
„SAMKVÆMT inngangi skýrslunn-
ar fól iðnaðarráðherra Iðntækni-
stofnun að láta fara fram athugun á
rekstri og framtíðarmöguleikum Sjó-
efnavinnsiunnar á Reykjanesi með
bréfi dagsettu 24. aprfl 1984. Vænt-
anlega hefur iðnaðarráðherra haft í
huga að hann fengi skýrslu, sem
hægt væri að leggja til grundvallar
ákvarðanatöku um rekstur og fjár-
raögnun Sjóefnavinnslunnar. Niður-
stöður skýrslunnar eru ekki þess
eðlis, að þær séu nothæfar til
ákvarðanatöku um framhald Sjó-
efnavinnslunnar. Umsögn skýrsl-
unnar um rekstur og framtíðar-
möguleika Sjóefnavinnslunnar hlýt-
ur að verða að miðast við þær grunn-
forsendur, sem eigendur lögðu til
grundvallar, og koma fram í skýrslu
iðnaðarráðuneytisins frá í marz
1981. Það eru niðurstöður nefndar,
sem sett var í gang til að meta
árangur tilraunaverksmiðju um
sjóefnavinnslu á Reykjanesi,“ sagði
Guðmundur Einarsson, verkfræð-
ingur og fráfarandi stjórnarformað-
ur Sjóefnavinnslunar, er Morgun-
blaðið innti hann álits á skýrslu Iðn-
tæknistofnunar um rekstur og fram-
tíð Sjóefnavinnslunnar.
„Stærstu frávik frá upphaflegri
skýrslu eru verðbólga og gengis-
skrið. Vísitala janúar 1981 var 626
stig og í janúar 1984 2.298 stig eða
hækkun um 267%. Bandaríkja-
dollar var 1. janúar 1981 4,80
krónur, en fyrsta janúar 1984
25,07 krónur eða 422% hækkun.
Þar sem aðallán félagsins eru f
dollurum, hefur þetta orsakað það,
að 44% af heildarkostnaði verk-
smiðjunnar í dag er framreikn-
aður gengismunur og verðhækk-
anir. Fisksalt hefur lækkað inn-
anlands vegna verðstríðs milli
Eimsalts hf. og Saltsölunnar hf.
og er það vegna lækkunar á fragt,
en salt hefur hækkað erlendis.
Þessi mismunur er metinn um
14% miðað við upphaflegar for-
sendur. Tilraunarekstur hefur
tekið lengri tíma en áætlað var
eða um eitt ár og var það meðal
annars til að ná kornastærð og
styrkleika á kornum til þess að
vera samkeppnisfær til saltfisk-
verkunar.
Jákvæðu þættirnir, sem voru
ófyrirséðir eru þessir: Saltið er
roðagerlafrítt. Saltið inniheldur
kalsíumklóríð, sem gefur fiskinum
hvítara yfirbragð. Kalsíumklóríð
vinnur á móti losi í fiski. Kalsí-
umklóríð bindur betur eðlisvökva í
holdi fiskins og gerir hann þar
með stinnari og bragðbetri. Áhrif
þessara þátta hafa verið mæld af
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
og koma fram í tæknitíðindum
þeirra númer 145 og hafa gefið
möguleika á að verðmeta þessi
áhrif, sem reyndust vera 2,6% af
verðmæti fisksins, sem gæti þýtt
allt að 60 milljónir á ári, væri
þetta salt notað i alla framleiðslu.
Eiginleikar saltsins gefa einnig
möguleika á að nota það f aðra
matvælaframleiðslu, meðal ann-
ars þar sem það er snefilefnafrítt
og laust við alla þunga málma,
ar Einarssonar er Sjóefnavinnslan
segja á stigi tilraunaframleiðslu.
sem er ein af kvöðum þróaðs mat-
vælaiðnaðar. Ennfremur gefa
þessir eiginleikar möguleika á
notkun þessa salts sem heilsusalts
og er slíkt salt innflutt f dag og
selt á 164.000 krónur lestin í eins
kílós pakkningum. Sjóefnavinnsl-
an er í sambandi við þýzka fyrir-
tækið Bio-Maris, sem hefur óskað
eftir samstarfi um framleiðslu á
slíku salti, vegna sérstakra eigin-
leika þess. Þessi þáttur hefur verið
nú stödd a tæknistigi 5 til 8. Það er að
látinn bíða þess, að 8.000 lesta
fisksaltsáfanganum væri lokið.
Til viðbótar óvæntum eiginleik-
um saltsins, hafa borunarfram-
kvæmdir skilað eindæma árangri,
þar sem borhola númer 9 er stað-
fest í dag sem aflmesta borhola f
heimi, með 180 kílóa rennsli á sek-
úndu, sem er fjórfaldur árangur
miðað við upphaflegar reiknifor-
sendur. Ef svo tekst til, að menn
sjái ekki leiðir til þess að nýta
þennan árangur, er hægt að af-
skrifa allar umræður um nýtingu
jarðvarmans til iðnaðarfram-
leiðslu, þar sem ekkert háhita-
svæði er nær sjó en þetta. Ef eig-
endur sjá sér ekki hag í þvi, að
halda þessu verkefni áfram, sem
byrjunarverkefni á alhliðaefna-
framleiðslu, tel ég næsta skrefið
að kanna hvort erlend fjölefnafyr-
irtæki sjái sér ekki hag í því að
kaupa fyrirtækið.
Sjóefnavinnslan hefur samning
um hitaréttindi á Reykjanesi til 25
ára fyrir fast afgjald, sem er 0,5%
af öllum verðmætum, sem eru
sköpuð þar hvort sem um efnaiðn-
að eða orkusölu er að ræða. Allt
mat á verðgildi þessa mikla
árangurs í borun, orku- og efna-
öflun vantar í skýrsluna.
Auk þess má benda á að þegar
er hafin orkusala til iðnaðar-
framleiðslu, sem fyrirtækið
Strandir hf. notar við framleiðslu
á fiskimjöli. í samanburði við
fiskimjölsframleiðslu með olíu
virðist vera grundvöllur til að
sækja hráefni hvert sem er á suð-
vesturlandi til framleiðslunnar.
Einnig er þegar svo mikil eftir-
spurn eftir salti verksmiðjunnar
til síldarsöltunar, að beðið er eftir
hverju tonni, sem framleitt er.
Grindvíkingar hafa keypt upp alla
framleiðsluna, en þeir gerðu til-
raunir með notkum saltsins við
síldarsöltun á síðustu vertíð,"
sagði Guðmundur.
— Hvert er álit þitt á framtíð
Sjóefnavinnslunnar að þessu at-
huguðu og er rétt að halda áfram
fjárfestingum í rekstrinum?
„Ég tel að þau frávik, sem eru
frá upphaflegum markmiðum, er
alþingi setti í apríl 1981, séu vel
innan þeirra marka, sem megi bú-
ast við í nýiðnaðarverkefni sem
þessu og stærsta óvissuatriði þá
var talið að væri gufuöflun, en
endurmat á arðsemi miðað við
Umræður á Kirkjuþingi:
Kirkjur liggja undir skemmd-
um vegna ónógrar upphitunar
SAUTJÁN mál voru lögð fram fyrir
Kirkjuþing á mánudag. Meðal
þeirra var tillaga um að biskup hefji
umræður beint við orkumálaráð-
herra um hagkvæmari gjald.skrá raf-
veita til kirknanna. Fram kom að
ýmsar kirkjur liggja undir skemmd-
um vegna ónógrar upphitunar, en
fámennir söfnuðir hafa ekki efni á
að greiða rafmagnskostnað við upp-
hitun, en kirkjurnar greiða rafmagn
eftir sama taxta og bankar.
Fulltrúar Norðurlands eystra,
séra Birgir Snæbjörnsson og
Gunnlaugur Kristinsson flytja til-
lögu um könnun á skráningu
manna í trúfélög, en i ljós hefur
komið við prestskosningar, að
Frumsýning i Bæjarbiói fimmtudaginn 8. nóv. kl. 17:00
önnur sýning laugardaginMO. nóv. kl. 14:00
forsala aðgöngumlða hefst á miðvikudag.
Miöapantanir í-stma 50184
BPifh
16
leikstjóri
SAGA JÓNSDÓTTIR
leikmynd
BALDVIN BJÖRNSSON
tónlist
JÓN ÓLAFSS0N
söngtextar
KARL ÁGÚST ÚLFSS0N
Leikendur:
Július Brjánsson
Þórir Steingrlmsson
Guörún Alfreðsdóttir
Margrét Akadóttir
Sólveig Pálsdóttir
Guðrún Þóröardóttir
Bjarni Ingvarsson
Ólafur Örn
Thoroddsen
o.fl.
ýmsir, sem telja sig til safnaðar-
ins finnast ekki á skrá eða geta
ekki verið á staðnum á kjördegi og
fá því ekki að kjósa.
Sköttun heimavinnandi
foreldra
Séra Þorbergur Kristinsson
flytur tillögu um breytingu á
skattalögum, að þau fyrirheit
verði framkvæmd, sem gefin voru,
að þau heimili búi ekki við verri
hlut skattalega séð, þar sem að-
eins annað hjónanna vinnur utan
heimilis, oft vegna þess að um-
hirða barna eða vanheilsa kemur í
veg fyrir það. Samkvæmt upplýs-
ingum rfkisskattstjóra, er vinna
heimavinnandi maka einskis met-
in við sköttun og núgildandi
Klæðum og bólstrum!
gomul húsgögn. Gott'
úrval af áklæðum
: BÓLSTRUN
! ÁSGRÍMS.
‘ Bergstaðastræti 2,
í Simí 16807.
skattalög ganga því á hlut þeirra
heimila. „Heimilið stendur höllum
fæti 1 nútímanum," sagði flutn-
ingsmaður, „og hlýtur kirkjan að
láta sig það varða."
Kirkja fyrirfinnst
engin
íbúðarhverfi með tugum þús-
unda íbúa geta verið án kirkju-
húss áratugum saman hérlendis
og kynslóðir geta vaxið upp án
þess að kynnast kirkjulegu lífi eða
starfi," sagði séra Hreinn Hjart-
arson, er hann mælti fyrir tillögu
um að slíku verði forðað í framtíð-
inni og benti sérstaklega á vænt-
anlega stórbyggð við Grafarvog í
Reykjavík.
Fagnað stóraukinni
útbreiðslu Biblíunnar
Kirkjuþing fagnar mikilli út-
breiðslu og víðtækri kynningu
Biblíunnar á Biblíuárinu segir i
tillögu sem biskup flytur ásamt
fleirum á Kirkjuþingi, og hvetur
alla landsmenn til að gefa gaum
að hinu ritaða orði Guðs og láta
það verða f raun leiðarljós f dag-
legu lífi.
Lei kmannastefna
kirkjunnar
Séra Halldór Gunnarsson flutti
tillögur um útgáfu árbókar kirkj-
unnar, ráðningu fjármálastjóra
hennar og aukna áherslu á ferm-
ingu og fermingarfræðslu innan
kirkjunnar. Einnig að efnt verði
til leikmannastefnu kirkjunnar
þar sem, fulltrúar úr prófasts-
dæmunum fjalli um mál leik-
manna innan kirkjunnar.
Einingarstarf
kirkjunnar
Skýrsla Alkirkjuráðsins: „Skírn
— máltíð Drottins — þjónusta,"
felur í sér tjáningu á trú kirkjunn-
ar. Hún er árangur af áratuga
starfi Alkirkjuráðsins og er nú
kynnt í aðildarkirkjum þess.
Skýrslan er komin út í íslenskri
þýðingu dr. Einars Sigurbjörns-
sonar og var lögð fram á Kirkju-
þingi í gær. Lagt er til, að hún
verði send umsagnar og kynningar
sem flestra aðila innan þjóðkirkj-
unnar og annarra kirkjudeilda og
verði síðan tekin til afgreiðslu á
Kirkjuþingi 1984.
í gær hlutu allmörg mál af-
greiðslu á Kirkjuþingi. Samþykkt
var að hefja undirbúning undir
1.000 ára afmæli kristintöku árið
2.000 á Þingvöllum og verði fyrstu
hugmyndir um það kynntar á
næsta kirkjuþingi.
Kirkjuþing fylgir því fast eftir
að umræður hefjist við stjórnir
Ríkisspítalanna og Borgarspítal-
ans um að ráðnir verði sjúkra-
húsprestar til starfa þar. Lög voru
samþykkt fyrir 14 árum á Alþingi
um ráðningu sjúkrahúsprests en
fjárveiting hefur enn ekki fengist.
Þá var samþykkt á Kirkjuþingi
að fela Kirkjuráði að gangast fyrir
átaki í öldrunarþjónustu kirkj-
unnar, bæði í þjónustu við hina
öldruðu sem og í fræðslu þeirra
sem með þeim skulu starfa.
Kirkjuþing heldur áfram í dag
en lýkur á fimmtudag.
Leiðrétting
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi leiðrétting frá Bisk-
upsstofu:
Sá 6% innheimtukostnaður sem
tekinn er af innheimtu kirkju-
garðsgjalda rennur óskiptur í rík-
issjóð, en ekki til innheimtu-
manna ríkisins, eins og fram kom
á kjrkjuþingi og greint var frá I
fréttum.