Morgunblaðið - 07.11.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
25
Hagspeki landbúnaðarins
— eftirSvein
Valfells
í Morgunblaðinu föstudaginn
31. ágúst er vitnað í skýrslu Inga
Tryggvasonar á aðalfundi Stéttar-
sambands bænda. Þar segir að
Ingi teiji afleiðingar af lækkun
niðurgreiðslna um 180 milljónir
samsvari því að 55 mjólkurfram-
leiðendur hafi í reynd verið sviptir
atvinnu sinni. í sömu grein kemur
fram að útfluttur ostur árið 1983
sé 585 tonn og fengist hafi 19.981
þúsundir króna fyrir eða rétt rúm-
ar 34 kr. fyrir kíló af osti. Á sama
tíma borguðu íslenskir neytendur
og skattborgarar á annað hundrað
krónur fyrir kíló af samskonar
osti.
Fengist hefur íslenskur ostur í
verslunum í New York undir nafn-
inu Icelandic Baby Swiss og er
hann undantekningarlaust ódýr-
asti osturinn er þar fæst og kostar
aðeins brot af því sem íslenskir
neytendur greiða fyrir hann hér
heima. Sagt hefur verið í gríni að
niðurgreiðslur okkar á osti til
Bandaríkjanna séu framlag ís-
lendinga til styrktar fátækum og
vanþróuðum þjóðum.
En hvað kostar offramleiðslan?
Með því að minnka niðurgreiðslur
um 180 milljónir dregst salan
saman sem samsvarar að 55
bændur séu sviptir vinnu sinni eða
180.000.000/55 sem eru rúmar
þrjár milljónir á ári á bónda til
þess að halda þessum 55 bændum
við vinnu sína. Nær væri að greiða
þessum 55 bændum beint full laun
og spara kostnaðinn við fram-
leiðsluna, olíu, áburð o.s.frv. Ef
bændur vilja þiggja ölmusu af
öðrum þegnum þjóðfélagsins, þá
er hagkvæmara að greiða þeim
hana beint og spara þannig kostn-
aðinn við framleiðslu sem er um-
fram eftirspurn.
Núverandi landbúnaðarstefna,
sem er borin uppi af skattborgur-
um og neytendum þessa lands, við-
gengst í skjóli þess að lýðræði er
ekki virkt á fslandi, því meingöll-
uð stjórnarskrá, sem á rætur sínar
að rekja til erlends konungsvalds,
gerir ekki ráð fyrir að allir þegn-
arnir séu jafnir að rétti til kosn-
inga til Alþingis. Slíkt misvægi
hvort sem það er með tilliti til
kynþáttar, kynferði, tekna, trú-
arbragða eða búsetu er það sama
og erum við ósparir að fordæma
slíkt ef það gerist hjá erlendum
þjóðum sbr. Suður-Afríku. Stjórn-
lagaþing hefur aldrei verið kvatt
saman I hinu íslenska lýðveldi,
sem er löngu orðið tímabært, þar
sem vonlítið er orðið að Alþingi
bæti ráð sitt, enda meirihluti
þingmanna fulltrúar minnihluta
þjóðarinnar kosnir á ólýðræðisleg-
um forsendum.
Reykjavík, 1. september 1984.
Sveitw Yalíells er verk- og við-
skiptafræðiagur.
Sveinn Valfells
Frá langborði stjórnarinnar, lengst til hægri er Sigurður Haraldsson, Kirkju-
bæ, ritari, þá Guðrún Gunnarsdóttir, Egilsstöðum, meðstjórnandi, Gísli B.
Björnsson, Reykjavík, gjaldkeri, Stefán Pálsson, Kópavogi, formaður. Næst
Stefáni sitja forsetar þingsins þeir Kári Arnórsson, Reykjavík, og Ólafur
Pálsson, Hafnarfirði.
samstarfi við Hagsmunafélag
hrossabænda, Búnaðarfélag ís-
lands, Félag tamningamanna og
FEIF um að boða til alþjóðlegrar
dómararáðstefnu, t.d. í sambandi
við Landsmótið 1986. Tilgangur-
inn með slíku námskeiði væri að
samhæfa dómara frá aðildarlönd-
um FEIF í íþrótta-, gæðinga- og
kynbótadómum.
Gullmerki LH var veitt Þorláki
Ottesen, sem varð níræður á þessu
ári, en hann hefur setið öll þing
LH sem fulltrúi þar til nú.
Siðasti dagskrárliður ársþings-
ins var stjórnarkjör, úr stjórn
áttu að ganga Stefán Pálsson
formaður og Skúli Kristjónsson
meðstjórnandi og gáfu þeir báðir
kost á sér og voru endurkjörnir
með meginþorra atkvæða. í vara-
stjórn voru endurkosnir þeir
Gunnar Egilsson, Akureyri, Guð-
mundur Jónsson, Reykjum, og
Gunnar B. Gunnarsson, Arnar-
stöðum. Tveir nýjir menn komu
inn í varastjórnina að þessu sinni
þeir Sigurbjörn Björnsson, Lund-
um, og Kári Arnórsson, Reykja-
vík, og komu þeir í stað Árna Guð-
mundssonar, Beigalda, og Jónasar
Vigfússonar, Litla-Dal, sem ekki
gaf kost á sér til endurkjörs. Nán-
ar verður sagt frá þinginu siðar.
35. ársþing Landsambands hestamannafélaga:
Samþykkt að LH verði
aðili að væntanlegri reiðhöll
— þingið ályktaði að setja beri reglur um útflutning á sæöi úr stóöhestum
voru til afgreiðslu að þessu sinni og
setti það óneitanlega svip á samkom-
una.
Bryddað var upp á nýjung í
þinghaldinu. Voru það tvennar
pallborðsumræður og efni þessara
umræðna var hestamennskan í
næstu framtíð og hrossaræktin
staða og stefna. Fjórir framsögu-
menn voru í hvorri umræðu og að
framsöguerindum fluttum var al-
menn umræða um málefni með
fyrirspurnum úr sal.
Af helstu samþykktum þingsins
má nefna nýjar agareglur til notk-
unar á hestamótum. Þá var sam-
þykkt nýtt árgjald 170 krónur
fyrir hvern félaga og renna 35
krónur af þessu árgjaldi til vænt-
anlegrar reiðhallar. Þá var einnig
í framhaldi af því samþykkt að
LH yrði aðili að reiðhallarbygg-
ingunni með 7% hlutafjárframlag
miðað við 10 milljóna króna hluta-
fé.
Á þinginu kom fram eftirfar-
andi tillaga, sem var samþykkt.
35. ársþing LH lýsir þeirri skoðun
sinni að þegar i stað beri að setja
reglur um fyrirkomulag á útflutn-
ingi hestasæðis. Er í því sambandi
vakin athygli á þeirri ójöfnu að-
stöðu, sem íslensk hrossarækt hef-
ur þegar sæðingar fara að tíðkast,
því útilokað er að um gagnkvæma
nytsemi yrði að ræða fyrir ís-
lenska og erlenda ræktendur.
Þá voru gerðar breytingar á
reglum úm úthlutun reiðvegafjár
þannig að nú verður færri félögum
úthlutað í hvert skipti og er miðað
við allt að fjögurra ára tímabil á
úthlutun og fer það eftir eðli og
umfangi verkefnisins hverju sinni.
Með þessu er talið að meira verði
úr peningunum og hægt að gera
stærra átak við verkefnin, sem eru
næg.
I sambandi við erlend samskipti
var samþykkt að LH leiti eftir
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Kvenfélag
Neskirkju hefji á næstunni aukna
þjónustu í safnaðarheimili kirkjunn-
ar fyrir aldraða. Er sú þjónusta aðal-
lega hugsuð fyrir sóknarfólk, sem
býr eitt, en vill gjarnan komast út á
meðal annarra um stund. Athvarfið
er hugsað sem einskonar heimili í
kirkjunni, upplyfting og samfélag við
annað sóknarfólk, sem líkt er ástatt
um. Til afþreyingar verður ýmislegt,
útvarp verður á staðnum svo hægt
verði að hlusta á hádegisfréttir,
dagblöðin munu verða til reiðu. Spil
og töfl eru fyrir hendi, hljóðfæri til
að taka lagið á sér til hressingar,
framhaldssaga og myndasýningar
koma til greina. Handavinna mun
verða kennd á þriðjudögum.
Athvarfið verður opið tvisvar í
viku, þriðjudaga og fimmtudaga,
frá klukkan 12 á hádegi til klukk-
an 17.
Heita máltíð verður hægt að fá í
hádegi fyrir um það bil 100 krón-
ur. Panta verður á mánudegi fyrir
þriðjudag og fimmtudag. Ef ein-
hver forfallast verður að afpanta
daginn áður ef mögulegt er. Þeir
sem óska eftir siðdegiskaffi frá
15.30 til 16 með eða án meðlætis
geta fengið það og verður verði
stillt í hóf.
Konur úr kvenfélagi Neskirkju
munu annast þetta starf undir
stjórn formanns félagsins, Hrefnu
Tynes. Símaviðtalstími hennar
verður á mánudögum frá 10 til 11
í síma 13726 og þriðjudaga og
fimmtudaga frá klukkan 16 til 17 I
síma 16783 í Neskirkju.
Starf þetta hefst fimmtudaginn
15 nóv. Þeir sem vilja láta skrá sig
hringi eins og að framan greinir
og sem fyrst. Kostnaður er enginn
fyrir utan máltíðir og handa-
vinnuefni.
Tíðindalitlu ársþingi Landsam-
bands hestamannafélaga lauk um
fjögurleytið á laugardag. Var þetta
þing hið 35. í röðinni og sá hesta-
mannafélagið Sörli um framkvæmd-
ina. Lítið var um stórmál sem tekin
Neskirkja
Athvarf fyrir
aldraða opnar
á næstunni
NÝJUNG I
! Hkamsrækt '
Ekki aðeins þrekhjól heldur
einnig róðrartæki «
Model 17 er topptæki á ótrúlega lágu verði. Fyrir þá \
sem er annt um líkama sinn og vilja halda þynqdinni í '
skefjum.
Lítil fyrirferð og algjörlega lokaö drif sem kemur
í veg fyrir óþrif og slysahættu
. _ Reidhjolaverslunm.
ORNINN
Spítalastig 8 viö Óöinstorg. Símar 14661 og 26888.
BH