Morgunblaðið - 07.11.1984, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
Öryggismálaráðstefna Evrópu:
Búist við að samkomulag
takist um starfsáætlun
á starfstímabilinu sem nú er hafið í Stokkhólmi
Stokkhólmi. 6. nóvember. AP.
í DAG hófst fjórða starfstímabil ör-
yggismálaráðstefnu Evrópu, sem
haldin er í Stokkhólmi, og "hvöttu
fulltrúar beggja þýsku ríkjanna til
þess að ráðstefnan k«mi sér a.m.k.
saman um verkefnaáætlun til að
vinna eftir.
Hingað til hefur lítið miðað í
starfi ráðstefnunnar og ekki náðst
samkomulag um neitt þau þrjú
starfstímabil sem liðin eru.
Fundurinn í dag var lokaður
blaðamönnum eins og fyrri fundir
ráðstefnunnar og ræðurnar ekki
birtar. En eftir fundinn kváðust
vestrænir fulltrúar hafa greint
Mondale óánægð-
ur með áhrif skoð-
anakannana
Ncw York, 6. nóvember. AP.
„ÚRSLIT kosninga ráðast ekki í
skoðanakönnunum,“ var haft eftir
Walter Mondale, forsetaefni banda-
rískra demókrata, í dag. „Það eru
kjósendurnir sjálfir, sem hafa síð-
asta orðið,“ bætti hann við.
Mondale dró ekki dul á óánægju
sína með þá almennu ályktun, að
úr því allar kannanir bentu til yf-
irburðasigurs Reagans forseta
væri leikurinn tapaður fyrir for-
setaefni demókrata. Hann hefur
að undanförnu hamrað mjög á því,
að úrslit forsetakosninga í Banda-
ríkjunum hafi áður orðið gagn-
stæð við það sem kannanir bentu
til, og sagst fullviss um, að svo
verði einnig í þetta skipti.
Raunar er Mondale ekki einn
um að hafa áhyggjur af því að
niðurstöður skoðanakannanna
hafi áhrif á kjósendur. Reagan og
samherjar hans óttast t.d., að þær
kunni að letja ýmsa, sem kjósa
mundu forsetann, til að fara á
kjörstað. Þessir kjósendur hugsi
sem svo, að óþarfi sé að greiða
atkvæði úr því úrslitin séu þegar
ráðin.
breytingu hjá formanni austur-
þýsku sendinefndarinnar, Gunth-
er Buhring, sem lagði áherslu á
nauðsyn þess að komast að sam-
komulagi um starfsáætlun.
Öryggismálaráðstefna Evrópu
hófst 17. janúar sl. og er ætlað að
standa í a.m.k. tvö ár. Meðal þátt-
takenda eru Sovétríkin og öll Evr-
ópuríki önnur en Albanía, svo og
Bandaríkin og Kanada.
Áður en öðru starfstímabili
ráðstefnunnar lauk í júlí sl. lögðu
níu hlutlaus ríki fram drög að til-
lögu um starfsáætlun. Bandaríkin
og önnur vestræn ríki féllust á til-
löguna en Sovétríkin og fylgiríki
þeirra sögðu þvert nei.
Þegar þriðja starfstímabili
ráðstefnunnar lauk, hinn 12. októ-
ber sl., tóku fulltrúarnir heim með
sér tillögur sem finnska sendi-
nefndin hafði lagt fram og hafði
einnig að geyma þætti úr tillögu-
gerð hlutlausu ríkjanna. Var álitið
að hin nýja útgafa gæti orðið að-
gengilegri fyrir Austur-Evrópu-
ríkin og bjóst bandaríski full-
trúinn við að mál þetta myndi
leysast á starfstímabili því sem nú
er hafið, en því lýkur 14. des. nk.
Elísabet Englandsdrottning var í fullum drottningarskrúða þegar hún flutti
hásætisræðuna. Þótti athöfnin mjög virðuleg og glæsileg en einkennast þó af
mjög strangri gæslu.
Hásætisræða Englandsdrottningar:
Dixville í New Hampshire:
AÐ venju var Dixville Notch,
sem er smábær í New Hamp-
shire, fyrsti staðurinn í Banda-
ríkjunum til að ljúka kosningu i
forsetakjörinu þar í gær. Þar
Obreytt stefna í
peningamálum
Símamynd AP
tonald Reagan Bandaríkjaforseti og Nancy kona hans á kjörstað í Solvang í
[aliforníu í gær.
Reagan fékk 29 atkvæði af 30
vann Ronald Reagan forseti yf-
irburðasigur yfir Walter Mon-
dale, forsetaefni demókrata,
hlaut 29 atkvæði af 30. Mondale
fékk eitt atkvæði.
London, 6. nóvember. AP
Elísabet II Bretadrottning flutti í
dag hásætisræðu sína, sem er
stefnuræða stjórnarinnar. Kom þar
fátt á óvart, en meginstefið var að
áfram yrði haldið á þeirri braut, sem
stjórnin hefði markað sér. Drottn-
ingin kom frá Buckingham-höll til
þingsins í hestvagni og einkenndist
öll athöfnin af glæsileik og strangri
gæslu.
í hásætisræðu drottningar
sagði, að stjórnin ætlaði hvergi að
víkja frá stefnu sinni í peninga-
málum og öðrum þjóðmálum þrátt
fyrir mikið atvinnuleysi. Boðuð
voru lagafrumvörp um afnám
borgarstjórnar Stór-Lundúna og
sex annarra borga, en það mál er
sem eitur í beinum Verkamanna-
flokksmanna, sem ráða í öllum
viðkomandi borgum.
„Ríkisstjórn mín mun áfram
Stórsigur Reagans
á „Harrys Bar“
Piris, 6. nóvember. AP.
RONALD Keagan Bandaríkjafor-
seti var endurkjörinn með miklum
meirihluta atkvæða í hefðbundnum
kosningum á frægu öldurhúsi í Par-
ís sem heitir „Harrys New York
Bar“. Hlaut Reagan 61 prósent at-
kvæða hinna fjölmörgu bandarísku
viðskiptavina Harrabars.
öldurhúsið hans Harra skipar
ákveðinn sess í bandarískri kosn-
ingasögu í seinni tíð, „kosningin”
sem þar fer fram jafnan og lýkur
að morgni kjördags, hefur alltaf
farið fram síðan árið 1924, að 1940
og 1944 undanskildum. Og aðeins
einu sinni hefur útkoma könnun-
arinnar verið röng, en það var
þegar Jimmy Carter sigraði Ger-
ald Ford árið 1976.
Núverandi eigandi knæpunnar,
Andy Machelone, sagði að venju-
lega væru greidd milli 400 og 550
atkvæði, en að þessu sinni hefði
verið margt um Bandaríkjamenn í
París og kosningin því náð 600 at-
kvæðum. Kjörið hófst 25. október.
Machelone er eigandi annars
„Harrys Bar“ í Munchen. Þar fer
fram sams konar kosning eða
könnun. Reagan hafði enn meiri
yfirburði meðal bandaríkjamanna
þar, 349 atkvæði gegn 170, eða 67
prósent gegn 33 prósentum.
hafa að leiðarljósi í störfum sín-
um heilbrigða peningastefnu og
litlar opinberar lántökur," sagði
drottning en bætti því við, að
stjórnin hefði miklar áhyggjur af
þeim þremur milljónum manna,
sem nú eru atvinnulausir.
Með Elísabetu drottningu voru
þau Karl, ríkisarfi, og Diana,
prinsessa, og var höfð á þeim gíf-
urlega ströng gæsla. Alla leiðina
milli Buckingham-hallar og þing-
hússins voru skyttur á hverju
strái og sérfræðingar hers og lög-
reglu höfðu áður grandskoðað
nærliggjandi götur og byggingar.
Indland:
Kyrrð á yfirborðinu
en ólga undir niðri
Nýj« Delhi, 6. nóvember. AP.
LEIÐTOGAR stjórnarandstödunnar f Indlandi og ýmsir trú-
arleiðtogar vöruðu í dag stjórnina við og sögðu, að ástandið í
höfuðborginni væri enn sem í púðurtunnu. Hvöttu þeir Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra, til að sýna festu og vernda sikha
gegn ofsóknum hindúa.
Indverski herinn virðist hafa
fulla stjórn á gangi mála í Nýju
Delhi og öðrum helstu borgum
landsins eftir fjöldamorð og
fjögurra daga hefndaræði
hindúa í kjölfar morðsins á Ind-
iru Gandhi. Undir niðri er þó
enn mikil ólga og ótti við, að upp
úr sjóði á ný. Rajiv Gandhi, for-
sætisráðherra, sagði á fundi
með 10 leiðtogum stjórnar-
andstöðuflokkanna, að bætt yrði
það eignatjón, sem orðið hefði í
óeirðunum og að til athugunar
væri, að það fólk, sem hefði orð-
ið að flýja heimili sín, fengi að
setjast að annars staðar.
Stjórnarandstöðuleiðtogarnir
hafa sakað ýmsa frammámenn í
Kongress-flokknum um að hafa
tekið þátt í ofsóknunum á hend-
ur sikhum og einnig segja þeir
aðstæður í flóttamannabúðum
sikha vera fyrir neðan allar
hellur.
Indverska blaðið „The States-
man“ sagði í dag, að sjúkrabíll,
sem að venju hefði verið til taks
við heimili Indiru heitinnar
Gandhi, hefði verið notaður til
að flytja burt dauðvona morð-
ingja hennar en hún sjálf flutt á
sjúkrahúsið í aftursæti einka-
bifreiðar. Hefur blaðið það eftir
læknum á sjúkrahúsinu, að þótt
Indira hefði verið flutt strax
með sjúkrabílnum hefði allt
komið fyrir það sama, en „við
eigum ekki orð yfir vitleysuna
og mistökin", sagði einn þeirra.