Morgunblaðið - 07.11.1984, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
Höggmyndin „Menneskemuren" eftir Björn Nörgird er sett hefur verið upp fyrir framan „Statens Museum for
Kunst“, Ríkislistasafnið í Kaupmannahöfn.
danska liðsins, sem setti þjóðina á
annan endann. Ég er alltaf fastur
lesandi Politiken, þegar ég er í
Danmörku, einn daginn las ég að
Povl Sabroe væri látinn 87 ára að
aldri, sá var stórfrægur undir
nafninu „Den Gyldenblonde" og
skrifaði létta sunnudagsþætti í
blaðið í áratugi, er voru óhemju
vinsælir. Hann hafði líka reglu-
lega þæíti í útvarpinu og var
tengdur útgáfu „Blæksprutten", —
skoprits, sem kom út fyrir jól ár
hvert við miklar vinsældir. Þá
taldi hann sig höfund „fonetekn-
isk tegneserie", sem gert hefur
landa hans Victor Borge heims-
frægan. Þeir eru ófáir íslend-
ingarnir við nám eða búsettir í
K.höfn, sem áttu þessum manni
gott sunnudagsskap að launa hér
á árum áður. Hann var fulltrúi
margs af því besta í dönskum
„húmor" og um leið danskri þjóð-
arsál.
- O -
Að sjálfsögðu er ekki eins mikið
um markverðar listsýningar yfir
sumartímann og á aðalsýningar-
tímabilinu, sem haust og vormán-
uðir teljast, en jafnan eru nokkrar
stórar og vandaðar í gangi. Ann-
ars þótti mér einna athyglisverð-
ast að hugsa til þess, að við í litlu
Reykjavík höfum upp á að bjóða
mun fleiri ágæta sýningarsali
fyrir einstaklingssýningar en
milljónaborgin Kaupmannahöfn,
en við eigum ekki hliðstæðu stóru
salanna né Lousiana-safnpins. Þar
stóð yfir mögnuð sýning á fornum
listmunum og bókum frá írlandi
„Irlands skatte“ — áhrifamikil
sýning og einstæð, undirstrikar
listfengi forfeðra okkar í bland. í
Nicolai Kirke stóð yfir viðamikil
sýning á vatnslita- og krítarmynd-
um Svavars Guðnasonar svo og
vefnaði Ásgerðar Búadóttur.
Vakti sú sýning verðskuldaða at-
hygli og var enda vel fyrir komið
og hrifmikil. Hér kom það fram,
hve mikilsvert það er að hafa ítök
hjá Dönum á myndlistarsviði, en
til þess þurfa menn annað hvort
að vera frægir útlendingar eða
hafa haslað sér völl í landinu.
Þannig hafði Svavar rokselt
myndir sínar, er mig bar að garði,
en ég varð ekki var við, að Ásgerð-
ur hafi selt neitt og þó er aldrei að
vita (en hvar voru listiðnaðarsöfn-
in?).
íslenzkar listsýningar mættu að
ósekju vera algengari í Kaup-
mannahöfn og undarlegt er að
Ríkislistasafnið skuli aldrei vera
með íslenzkar sýningar, en var t.d.
með tvær finnskar á sl. ári, svo
sem fram kom í síðustu grein. Á
eftir sýningu þeirra Ásgerðar og
Svavars var væntanleg sýning á
ca. 650 teikningum Svend Wiig
Hansen. Það kalla ég hressilegt
sýningarframtak, sem íslenskir
myndlistarmenn mættu taka til
fyrirmyndar. Erlendis eru menn
allajafna 20—30 árum fyrr með
yfirlitssýningar á verkum mynd-
listarmanna en hér á útskerinu,
þar sem slíkar þykja tilheyra elli-
árunum en ekki þróun og áfanga í
list viðkomandi.
Hinir veglegu sýningarsalir
Charlottenborg er jafnan bjóða
upp á vandaðar sumarsýningar
voru lokaðir vegna neyðarlegs
rifrildis stjórnarmanna, en Ríkis-
listasafnið bauð upp á eftirminni-
lega sýningu á þróunarferli listar
hins fræga málara Richards
Mortensen — voru það aðallega
teikningar, vatnslitamyndir svo
og ein leikmynd. Þessi sýning kom
mér að mörgu leyti á óvart því
hún sýndi margar óþekktar hliðar
á listamanninum og var einmitt í
samræmi við hugmyndir mínar
um framkvæmd yfirlitssýninga.
Eitt af skipum Vesturfaranna
dönsku, „Thingvalla" vió landfestar
í Halifax (eftir árekstur vió Geysir
1888).
Þarna vöktu sérstaka athygli
mína módelstúdíur, er listamaður-
inn hafði gert í skóla Bizzie Höyer,
— því að hér hefur verið lögð mik-
il áhersla á grundvallaratriðin, og
þessi ströngu en fáguðu vinnu-
brögð virðast ganga eins og rauð-
ur þráður í gegn um list Richard
Mortensens alla. Þeir voru ekki
ófáir snillingarnir í danskri list er
hófu feril sinn í skóla Bizzie Höy-
er. Fyrir utan safnið hafði verið
sett upp mikið skúlptúrverk eftir
einn af framsæknustu myndlistar-
mönnum Danmerkur, Björn Nör-
gárd, en nefnist „Menneskemur-
en“ — mun verkið einungis vera í
láni í tvö ár og gefur góða hug-
mynd um vinnubrögð yngri kyn-
slóðarinnar í dönskum skúlptúr.
Inni er svo kynnt þróunin í tilurð
myndarinnar ásamt ýmsum öðr-
um verkum Nörgárd í skissuformi.
Þá ber að geta hinnar eftirtekt-
arverðu sýningar „Draumurinn
um Ameríku" í Brede, er fjallar
um vesturfarana dönsku á síðustu
öld. Margt kemur þar kunnuglega
fyrir sjónir og málið er okkur
skylt í sögulegu samhengi. Við
þyrftum sannarlega að setja upp
svipaða sýningu hérlendis og ekki
í Bogasal, heldur í öllum Kjarv-
alsstöðum, og gera þar rækilega
úttekt á þessum kafla í sögu þjóð-
arinnar.
Þess má geta, að skipafélagið er
flutti einna flesta Dani vestur, bar
heitið „Thingvalla-linen og getur
skipa er hétu Geiser, Hekla og
Thingvalla.
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla föstudaga.
Helgarferð: Flug og gisting m/morgunverði, akstur frá
flugvelli og fararstjóri. Verð í tvíbýli frá kr. 9.835.00
GLASG0W
Helgar- og vikurferðir. Brottför fimmtudaga og
laugurdaga. Flug og gisting m/morgunverði á fyrsta
flokks hóteli. Verð í tvíbýli frá kr. 8.935.00
IUI.tML
9.370.
Helgar- og vikuferðir. Brottför fimmtudaga og
laugardaga. Flug og gisting m/morgunverði.
Verð í tvíbýli frá kr. 9.370.00 ____
LUXEMB0URG 10.765.
Helgar- og vikuferðir. Helgarferð: Flug og gisting
m/morgunverði. Verð í tvíbýli frá kr. 10.765.00.
PARIS
14.241.
Helgar- og vikuferðir. Flogið um Luxembourg til
Parísar.
Helgarferð: Flug og gistingm/morgunverði/flug og bíll.
Verðí tvíbýli frá kr. 14.241.00.
15.568.
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla föstudaga. Flogið
um Luxembourg.
Helgarferð: Flug og gisting m/morgunverði.
Verð í tvíbýli frá kr. 15.568.00.
KAUPM.H0FN 10.334.
Helgar- og vikuferðir. Brottför alla föstudaga.
Helgarferð: Flug og gisting m/morgunverði.
Verð í tvíbýli frá kr. 10.334.00.
tm
23.
Flogið um Luxembourg. Flug og gisting í Agadir í tvær
vikur auk 3ja nátta gistingar í Luxembourg —
17 daga ferð.
Verð í tvíbýli frá kr. 23.909.00.
22.529.
Alltaf er nú notalegt að skreppa til Kanaríeyja úr
skammdeginu á Islandi. — Fjölbreytt úrval gististaða,
margskonar ferðamöguleikar. Fáðu upplýsingar hjá
okkur um ferðamátann, sem hentar þér.
Verð frá kr. 22.529.00.
SKIÐAFERÐIR 22.098
í boði er fjölbreytt úrval skíðaferða í vetur, frá
desembermánuði ’84 til vors ’85. — Viku-, 2ja vikna og
3ja vikna ferðir. Beina flugið til Austurríkis byrjar
26. des. — Góðir gististaðir í Mayrhofen.
Verð í tvíbýli m/hálfu fæði í 2 vikur frá kr. 22.098.00.
Láttu okkur aðstoða þig við að velja Skíðaferðina sem
hentar þér.
FARSEÐLAR UM ALLAN HEIM!
FERDA
MIÐSTOÐIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
BJARMQAOUR'AUGLl